
Bandaríkin

Myrti fimm eftir að hafa verið beðinn um að hætta að skjóta úr byssu
Karlmaður í Cleveland í Texasfylki í Bandaríkjunum er grunaður um að hafa myrt fimm hondúrska nágranna sína, þar á meðal átta ára gamalt barn, eftir að hann hafði verið beðinn um að hætta að skjóta úr riffli í bakgarði sínum. Tvö fórnarlambanna fundust örend ofan á tveimur börnum, sem lifðu árásina af.

Þrír hermenn létust þegar þyrlur skullu saman
Þrír bandarískir hermenn létust í Alaska í Bandaríkjunum í dag þegar tvær herþyrlur skullu saman og hröpuðu til jarðar. Tveir hermenn voru í hvorri þyrlunni. Einn komst lífs af úr slysinu og er á sjúkrahúsi.

Blakstelpurnar í Nebraska seldu 82 þúsund miða á leikinn sinn
Þeir sem héldu að það væri tóm vitleysa að láta blakleik fara fram á risastórum fótboltaleikvangi breyta kannski um skoðun þegar þeir heyra fréttirnar frá Nebraska í Bandaríkjunum.

Ummæli DeSantis um Disney líkleg til að koma niður á honum
Ron DeSantis, ríkisstjóri Flórída, sagði í gær að lögsókn Disney gegn sér og Flórída væri pólitísks eðlis. Forsvarsmenn fyrirtækisins væru reiðir yfir því að hann væri að binda enda á sérkjör Disney í Flórída. Hann segir Disney hafa verið á sérkjörum í Flórída og nú væri sá tími liðinn.

Repúblikanar standa í vegi fyrir hertum lögum um þungunarrof
Tilraunir Repúblikana í Suður-Karólínu og Nebraska til að takmarka aðgengi að þungunarrofi mistókust í gær sökum andstöðu samflokksmanna þeirra. Í Nebraska var það 80 ára karlmaður sem kom í veg fyrir að umrætt frumvarp yrði að lögum.

„Hann nauðgaði mér, hvort sem ég öskraði eða ekki“
E Jean Carroll tókst á við Joe Tacopina, lögmann Donald Trump, í réttarsal í New York í gær og neitaði því ítrekað að hafa skáldað að hafa verið nauðgað af forsetanum fyrrverandi í verslun í borginni.

Pence bar vitni í kosningamáli Trump
Kviðdómendur í ákærudómstól í Washington-borg hlýddu í gær á framburð Mike Pence, fyrrverandi varaforseta Bandaríkjanna, í tengslum við rannsókn á tilraunum Donalds Trump og bandamanna hans til að snúa við úrslitum forsetakosninganna árið 2020. Dómstóll hafði áður staðfest að Trump gæti ekki komið í veg fyrir vitnisburð Pence.

Corden stimplaði sig út með hjartnæmum skilaboðum
Spjallþáttur breska þáttastjórnadans James Corden lauk göngu sinni í bandarísku sjónvarpi í gærkvöldi eftir átta ár á skjánum. Í þessum síðasta þætti kvaddi Corden áhorfendur, meðal annars aðstoð söngvarans Harry Styles og leikarans Will Ferrell og þá kom Joe Biden Bandaríkjaforseti sérstökum skilaboðum á framfæri.

Löggjafinn í Kansas samþykkir víðtækt salernis-bann
Löggjafinn í Kansas hefur samþykkt lög sem banna trans fólki að nota það salerni sem samræmist kynvitund þeirra. Um er að ræða eina mest takmarkandi löggjöfina af þessu tagi í Bandaríkjunum, þar sem hún nær ekki aðeins til salerna í skólum.

Bam Margera gaf sig fram
Jackass-stjarnan Bam Margera gaf sig fram við lögreglu í Pennsylvaníu í morgun eftir að hafa verið eftirlýstur í fjóra daga fyrir að kýla bróður sinn. Margera var látinn laus úr varðhaldi gegn 50 þúsund dala tryggingu en má ekki eiga í samskiptum við föður sinn og bróður eða koma nálægt heimili sínu

Konan sem ásakaði Emmett Till um áreitni er látin
Carolyn Bryant Donham, konan sem sakaði svarta drenginn Emmett Till um að hafa áreitt sig í matvöruverslun árið 1955, er látin, 88 ára að aldri.

Jerry Springer látinn
Umdeildi spjallþáttastjórnandinn Jerry Springer er látinn, 79 ára að aldri. Þættirnir sem Springer stýrði í nærri því þrjá áratugi enduðu oft í tilfinningalegu uppnámi eða jafnvel líkamlegum átökum gesta.

Dómarar telja hneykslismál ekki kalla á neinar breytingar
Níu dómarar Hæstaréttar Bandaríkjanna virðast ekki telja neina þörf á breytingum á því hvernig tekið er á mögulegum hagsmunaárekstrum þeirra og siðferðislegum álitamálum. Rétturinn hefur legið undir gagnrýni fyrir ógegnsæi eftir að upplýst var um að tveir dómarar hefðu ekki gert grein fyrir mögulegum hagsmunaárekstrum.

Íslandsvinur dæmdur fyrir pólitískt misferli í Bandaríkjunum
Bandaríski rapparinn Prakazrel „Pras“ Michel úr hiphopsveitinni Fugees var dæmdur sekur um ólöglega áhrifaherferð gagnvart bandarískum stjórnvöldum í þágu malasísks kaupsýslumanns og kínverskra stjórnvalda. Rapparinn sagðist ekki hafa vitað að það sem hann gerði væri ólöglegt.

Forstjóri Theranos frestar fangelsisvist með áfrýjun
Elizabeth Holmes, forstjóri fallna tæknifyrirtækisins Theranos, hefur ekki afplánun á meira en ellefu ára fangelsisdómi í dag þar sem hún áfrýjaði niðurstöðu alríkisdómstóls. Samverkamaður Holmes seinkaði afplánun sinn um mánuð með sams konar áfrýjun í síðasta mánuði.

Átti sér sögu um rasisma og ofbeldistal fyrir lekann
Ungur maður sem er sakaður um að leka leynilegum skjölum bandaríska varnarmálaráðuneytisins er sagður eiga sér sögu um rasisma og ofbeldistal. Saksóknarar segja að hann hafi reynt að hindra rannsókn á lekanum af veikum mætti.

Bandaríkin og Suður-Kórea undirrita kjarnorkuvopnasamning
Bandaríkin og Suður-Kóreumenn hafa undirritað samning sem ætlað er að mæta kjarnorkuógninni frá Norður-Kóreu.

Carlson stígur fram og tjáir sig... en samt ekki
Sjónvarpsþáttastjórnandinn Tucker Carlson, sem var látinn fara frá Fox News á mánudag, birti í nótt myndskeið á Twitter þar sem hann boðar mögulega endurkomu sína.

OnlyFans-tvífari Kim Kardashian látin eftir lýtaaðgerð
Áhrifavaldurinn og OnlyFans-stjarnan Ashten G sem var þekkt fyrir líkindi sín og Kim Kardashian lést eftir hjartaáfall sem hún fékk í kjölfar lýtaaðgerðar.

„Ég er hér vegna þess að Donald Trump nauðgaði mér“
Rithöfundurinn E. Jean Carroll sagði fyrir dómi í dag að Donald Trump fyrrverandi Bandaríkjaforseti hafi nauðgað henni á tíunda áratugnum. Í kjölfarið hafi hún ekki getað átt í ástarsamböndum og mannorð hennar hafi verið í rúst eftir að hann sakaði hana um lygar.

Hugh Grant verður Úmpa-Lúmpa
Hugh Grant mun leika Úmpa-Lúmpa í myndinni Wonka sem kemur út í desember. Myndin segir frá ævintýrum sælgætisjöfursins Willy Wonka áður en hann opnaði sælgætisgerðina. Ungstirnið Timothee Chalamet fer með hlutverk Wonka í myndinni.

Fyrsta þjónustuheimsókn bandarísks kjarnorkukafbáts í dag
Í dag fór fram fyrsta þjónustuheimsókn bandarísks kjarnorkukafbáts í íslenskri landhelgi. Landhelgisgæslan leiddi framkvæmdina í samstarfi við embætti ríkislögreglustjóra, Geislavarnir ríkisins og utanríkisráðuneytið. Vel gekk að flytja kost um borð í bátinn.

Talinn hafa strokið úr fangelsi og myrt mann
Lögreglan í Mississippi leitar nú fjögurra manna sem struku úr fangelsi í ríkinu í vikunni. Talið er að einn þeirra hafi myrt mann og rænt bílnum hans.

Dómari greindi ekki frá fasteignasölu til forstjóra lögmannsstofu
Bandarískur hæstaréttardómari skráði ekki sölu á fasteign til forstjóra lögmannsstofu með mál fyrir Hæstarétti Bandaríkjanna í hagsmunaskráningu sína. Þetta er í annað skipti á skömmum tíma sem upplýst er um mögulega hagsmunaárekstra sem dómarar við réttinn héldu leyndum.

Þáði tugi milljóna frá Sádum eftir morðið á Khashoggi
Fyrrverandi forstjóri Þjóðaröryggisstofnunar Bandaríkjanna gerði samning um ráðgjafarstörf upp á hátt í hundrað milljónir króna við stjórnvöld í Sádi-Arabíu eftir morðið á blaðamanninum Jamal Khashoggi árið 2018. Hann hefur þegið hunduð milljóna króna frá erlendum ríkjum frá því að hann lét af embætti.

Sanders ætlar ekki í framboð
Bandaríski öldungadeildarþingmaðurinn Bernie Sanders ætlar sér ekki að reyna að verða forsetaefni Demókrataflokksins í þriðja skipti. Hann segist frekar ætla að styðja framboð Joe Biden og gera hvað sem í hans valdi stendur til að sjá til þess að hann verði endurkjörinn sem forseti Bandaríkjann

Gat ekki hætt að fróa sér í flugvélinni
Rapparinn Desiigner hefur verið ákærður fyrir að fróa sér hamslaust fyrir framan flugfreyjur í flugferð í síðustu viku. Rapparinn segir lyf sem hann tók hafa haft slæm áhrif á sig. Hann er nú búinn að aflýsa tónleikaröð sinni og ætlar að leita sér hjálpar vegna andlegra erfiðleika.

Sagðir hafa ráðið sama lögmanninn
Fjölmiðlamennirnir Tucker Carlson og Don Lemon eiga það sameiginlegt að hafa báðir misst vinnuna í gær. Carlson hætti hjá Fox News og Lemon var rekinn frá CNN. Það er þó ekki það eina sem þeir eiga sameiginlegt því þeir eru sagðir hafa báðir ráðið sama stjörnulögmanninn til að hjálpa sér vegna starfslokanna.

Barbie nú með Downs
Mattel, framleiðandi hinna sívinsælu Barbie-dúkka, hefur tilkynnt að sú næsta sem fer í framleiðslu verður með Downs-heilkennið. Undanfarin ár hefur fyrirtækið aukið fjölbreytni meðal Barbie dúkkanna í von um að líkja meira eftir raunverulegum konum.

Harry Belafonte er látinn
Jamaísk-bandaríski söngvarinn og leikarinn Harry Belafonte er látinn, 96 ára að aldri.