Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026

Fréttamynd

Snúum Reykja­vík við

Reykvíkingar kjósa nýja borgarstjórn eftir 24 daga. Í mínum huga snúast kosningarnar um næstu kynslóð Reykvíkinga. Velur unga fólkið að búa í höfuðborginni okkar? Er húsnæði hræðilega dýrt? Er gaman að stofna fyrirtæki? Er ég stanslaust á bið?

Skoðun
Fréttamynd

Styrkjum heilsubæinn Hvera­gerði

Hveragerði hefur lengi verið þekkt fyrir að vera heilsubær, staður þar sem nálægðin við náttúruna skapar kjöraðstæður fyrir vellíðan fólks. Það er einmitt þessi nálægð sem laðar marga að Hveragerði, þar á meðal okkur sem skrifum þessa grein. Ekki þarf að fara langt til að komast út í náttúruna. Fossflötin, Hamarinn, Reykjafoss, Reykjafjall og Reykjadalur eru allt hluti af daglegu lífi okkar og þessi svæði, og fleiri til, bjóða upp á fjölbreytta möguleika til útivistar.

Skoðun
Fréttamynd

Við þurfum að geta tekið sam­talið því orð eru til alls fyrst og at­hafnir næsta skrefið

Í kosningabaráttunni hitti ég allskonar fólk og tek umræðuna um allskonar mál, stundum er fólk með útúrsnúning eða vill ekki heyra hvað ég hef að segja - sem er í góðu lagi.Stöku sinnum er fólk með hreina vanvirðingu við okkur sem teljum mannréttindi þess virði að berjast fyrir, sem er hreint út sagt sorglegt og sannar virkilega vel fyrir okkur af hverju við, sem það getum, verðum að taka slaginn fyrir hönd þeirra sem ekki geta það.

Skoðun
Fréttamynd

Hættum að tala um sam­einingu!

Umræðan um samskipti Akraneskaupstaðar og Hvalfjarðarsveitar hefur verið áberandi undanfarið, og það er í sjálfu sér ekkert nema eðlilegt. Þegar nágrannasveitarfélög ræða saman – eða jafnvel deila – þá fylgir því athygli.

Skoðun
Fréttamynd

Aukum nærþjónustu í Urriða­holti

Urriðaholtið er fyrsta umhverfisvottaða hverfið á Íslandi. Ýmislegt er gert til að draga úr áhrifum byggðarinnar á hina dásamlegu og nærandi náttúru sem umlykur byggðina.

Skoðun
Fréttamynd

Að­för að einkabílnum hættir?

Einkabíllinn er mikilvægt samgöngutæki meirihluta borgarbúa og Flokkur fólksins stendur gegn þeirri aðför sem gerð hefur verið að notkun einkabílsins undanfarin ár. Skipulag samgöngumála í Reykjavík hafa einkennst af rörsýni. Flokkur fólksins hafnar forsjárhyggju, þar sem borgin ætlar að stjórna því hvernig fólk ferðast.

Skoðun
Fréttamynd

Börnin í fyrsta sæti

Samfylkingin í Reykjavík kynnti helstu stefnumál flokksins fyrir kosningarnar í vor, um síðustu helgi. Við setjum börnin í fyrsta sæti, viljum einfalda ferla og auðvelda fyrirtækjum að eiga samskipti við borgina, standa með samgöngusáttmálanum og efla hverfiskjarna.

Skoðun
Fréttamynd

Sparnaður eða sóun?

Í október síðastliðnum fjallaði Forbes um þróun Reykjavíkur og hvað aðrar borgir geta lært af stafrænni þjónustu hennar. Það er ekki sjálfgefið að íslensk sveitarfélög veki slíka alþjóðlega athygli - en það gerist þegar hlutirnir eru gerðir vel og með skýrum markmiðum.

Skoðun
Fréttamynd

Bjart­sýni í boði

Ég er bjartsýnismaður og finnst mikilvægt að benda á það sem jákvætt er og forðast svartsýni. Það þýðir ekki að maður láti framhjá sér fara það sem miður fer, heldur legg ég áherslu á að leita jákvæðra leiða til að leysa vandann hverju sinni.

Skoðun
Fréttamynd

Hvert stefnir Bláskógabyggð?

Í minni sveitarfélögum hefur rödd hvers og eins íbúa meira vægi en víða annars staðar. Því er mikilvægt að virkt íbúasamráð í sveitarfélögum eins Bláskógabyggð sé til staðar. Íbúasamráð snýst um meira en að kjósa fulltrúa í sveitarstjórn. Það felur í sér virkt samtal, gagnsæi og raunverulegt tækifæri fyrir fólk til að hafa áhrif.

Skoðun
Fréttamynd

Brot­hætta karl­mennskan sem óttast regnbogafána

Tilvist hinsegin fólks er ekki pólitísk skoðun eða hugmyndafræði. Réttindi kvenna eru ekki pólitísk skoðun eða hugmyndafræði. Mannréttindi minnihlutahópa eru ekki álitamál, sem tvær hliðar eigi jafnan rétt á að rökræða.

Skoðun
Fréttamynd

Takk leik­skóla­kennarar og starfs­fólk

Takk fyrir að hafa hjálpað barninu mínu með hluti sem ég vissi ekki að það þurfti hjálp með. Takk fyrir að hafa setið með okkur foreldrunum á fundum og velt upp nýjum leiðum til málörvunar, sésniðnar að okkar barni.

Skoðun
Fréttamynd

Flug með for­tíð og fram­tíð

„Áætlunarflug á milli Reykjavíkur og Ísafjarðar, Bíldudals og Gjögurs eru mikilvægustu almenningssamgöngur Vestfirðinga og lífæð byggðanna stóran hluta ársins. Brýnt er að standa vörð um þá þjónustu og öryggi sem flugsamgöngur veita íbúum á Vestfjörðum.”

Skoðun
Fréttamynd

Hvert er erindið?

Þó svo að ég hafi starfað lengi innan Sjálfstæðisflokksins og í stjórnmálum þá er ég nýr oddviti flokksins hér í Hafnarfirði og því ný rödd með nýjar áherslur. Sjálfstæðisflokkurinn er stór og breiður flokkur þar sem ólíkar áherslur innan sjálfstæðisstefnunar rúmast.

Skoðun
Fréttamynd

Góð byrjun er pólitískt val

Í leikskólum er grunnur lagður að námi, líðan og félagsfærni barna. Grunnur sem hefur áhrif á börnin okkar til framtíðar. Leikskólinn er fyrsta skólastigið.

Skoðun
Fréttamynd

Fjöl­skyldu­vænt sam­fé­lag í verki

Árborg er öflugt og lifandi samfélag þar sem samheldni og þátttaka hafa lengi verið styrkur okkar. Við erum íþrótta bær og á þeim grundvelli mætumst við, byggjum tengsl og stöndum saman.

Skoðun
Fréttamynd

Þjónustu­mið­stöð 60+ í Hvera­gerði

Hveragerðisbær hefur löngum verið þekktur fyrir gæðin sem felast í því að eyða hér sínum efri árum. Öflug og metnaðarfull öldrunarþjónusta er eitt af einkennum bæjarins, sem við erum einkar stolt af.

Skoðun
Fréttamynd

Sam­fé­lag sem stendur með fólki

Þegar fólk glímir við geðrænan vanda skiptir sköpum að þjónustan sé til staðar í nærumhverfinu. Þar gegna sveitarfélög lykilhlutverki. Það er einfaldlega ekki ásættanlegt að fólk þurfi að leita langt eftir grunnstuðningi eða bíða mánuðum saman eftir viðeigandi úrræðum.

Skoðun