Góð byrjun er pólitískt val Guðrún Rakel Svandísardóttir skrifar 20. apríl 2026 09:45 Í leikskólum er grunnur lagður að námi, líðan og félagsfærni barna. Grunnur sem hefur áhrif á börnin okkar til framtíðar. Leikskólinn er fyrsta skólastigið. Ég hef starfað lengi í leik- og grunnskólum, bæði í Reykjavík og í Árborg. Ég var deildarstjóri í leikskóla í átta ár, starfaði sem umsjónarkennari í BES og starfa í dag sem skólastjóri Bláskógaskóla á Laugarvatni. Sú reynsla hefur mótað sýn mína, á mikilvægi þess að það sé sterkt og samræmt kerfi í kringum börn frá fyrstu árum. Ég þekki það að af eigin raun að ganga ekki alltaf beinu leiðina í gegnum skólakerfið og hversu miklu máli það skiptir að fá stuðning á réttum tíma. Það er einmitt það sem við þurfum að tryggja fyrir öll börn. Byggjum upp til framtíðar Að bjóða upp á góða leikskóla er eitt af mikilvægustu verkefnum hvers sveitarfélags. Ef vel er staðið að umhverfi leikskóla, þá eykst traust íbúa og samfélagið verður meira aðlaðandi fyrir nýjar fjölskyldur. Í vaxandi sveitarfélagi eins og Árborg þarf uppbygging að halda í við þróunina. Til að viðhalda þróuninni á undanförnum árum hefðum við þurft að bæta við að minnsta kosti tveimur nýjum deildum á ári. Ef markmiðið er að stytta biðlista og tryggja jafnt aðgengi að þjónustu þá er lykilatriði að úr þessu verði bætt. Ein stærsta áskorunin snýr að skipulagi. Of oft hafa ný hverfi risið án þess að skólar fylgi með. Þetta skapar álag á allt starfsumhverfi skólanna og dregur úr fyrirsjáanleika í lífi fjölskyldna. Við eigum að byggja skólana samhliða uppbyggingu hverfa, ekki á eftir. Sterkari leikskólar - sterkari Árborg Við þurfum að styrkja leikskólana sem faglegt umhverfi. Það felur í sér betri starfsaðstæður, stöðugleika í starfsmannahaldi og aukin tækifæri til menntunar innan stéttarinnar. Lausnin á mönnunarvanda er ekki að lækka kröfur, heldur að styrkja fagið og aðstæður þess. Foreldrar treysta á leikskóla til að geta stundað vinnu eða nám og til að geta haft fjárhagslegt öryggi. Ef vöntun er á leikskólaplássum skapast álag bæði á fjölskyldur og atvinnulífið. Við höfum tækifæri til að fara frá skammtímalausnum yfir í skýra langtímastefnu. Það gerist ekki af sjálfu sér, þetta er allt spurning um forgangsröðun. Höfundur skipar 4. sæti á B lista Framsóknar í Árborg. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Menntakerfið pólitískur leikvöllur? Anna Kristín Sigurðardóttir Skoðun Stjórnarformaður RÚV bregður sér í gervi Ragnars Reykás Guðmundur Halldór Björnsson Skoðun Hver ver æru hins látna? Theódór Skúli Halldórsson Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson Skoðun PISA: Þegar allir þurfa létti, hver heldur þá utan um barnið? Helgi S. Karlsson Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson Skoðun Hvaða lærdóm má draga af ferðavenjukönnun 2025? Þórarinn Hjaltason Skoðun Hvað er til ráða? Davíð Már Sigurðsson Skoðun Þversögn íslenskra varna Arnór SIgurjónsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvaða lærdóm má draga af ferðavenjukönnun 2025? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Þversögn íslenskra varna Arnór SIgurjónsson skrifar Skoðun Stjórnarformaður RÚV bregður sér í gervi Ragnars Reykás Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun PISA: Þegar allir þurfa létti, hver heldur þá utan um barnið? Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Hver ver æru hins látna? Theódór Skúli Halldórsson skrifar Skoðun DARVO: Sálfélagslegur glundroði Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun Menntakerfið pólitískur leikvöllur? Anna Kristín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvað er til ráða? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað þarf að laga á Íslandi – hver ber ábyrgð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar andstæðingum eru eignuð orð Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Síðan hvenær er ég enginn? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Af bíómiðum og baðlónum María Rut Ágústsdóttir skrifar Skoðun Hvað verður minna þegar ríkið tekur meira? Íris Ósk Gísladóttir skrifar Skoðun Hver er okkar Napóleon Bónaparte? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Samfélagsumræðan og nunnan Ingibjörg Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun 0,01% er ekki undanþága frá ábyrgð Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Óréttlæti lífeyriskerfisins gagnvart ungu fólki Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við erum froskar í vatni sem nálgast suðu Isla Sweet,Jóhanna Malen Skúladóttir skrifar Skoðun Sögulegt skref fyrir dýr í Danmörku Linda Karen Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Áður en við greinum barn þurfum við að skilja allt barnið Tara Khoshkhoo skrifar Skoðun Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir,Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun Þegar tengsl geta skipt sköpum Steinunn Bergmann,María Björk Ingvadóttir skrifar Skoðun Háskólamenntun á útsölu! Tombóluprís – allt á að seljast. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Má þjóðin aðeins fá að anda? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun EES er ekki eina leiðin og kannski ekki sú skynsamlegasta lengur Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Hver fær að skilgreina hvað þjóðin sagði? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Fjórfrelsið og EES fyrir Ísland Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Sjá meira
Í leikskólum er grunnur lagður að námi, líðan og félagsfærni barna. Grunnur sem hefur áhrif á börnin okkar til framtíðar. Leikskólinn er fyrsta skólastigið. Ég hef starfað lengi í leik- og grunnskólum, bæði í Reykjavík og í Árborg. Ég var deildarstjóri í leikskóla í átta ár, starfaði sem umsjónarkennari í BES og starfa í dag sem skólastjóri Bláskógaskóla á Laugarvatni. Sú reynsla hefur mótað sýn mína, á mikilvægi þess að það sé sterkt og samræmt kerfi í kringum börn frá fyrstu árum. Ég þekki það að af eigin raun að ganga ekki alltaf beinu leiðina í gegnum skólakerfið og hversu miklu máli það skiptir að fá stuðning á réttum tíma. Það er einmitt það sem við þurfum að tryggja fyrir öll börn. Byggjum upp til framtíðar Að bjóða upp á góða leikskóla er eitt af mikilvægustu verkefnum hvers sveitarfélags. Ef vel er staðið að umhverfi leikskóla, þá eykst traust íbúa og samfélagið verður meira aðlaðandi fyrir nýjar fjölskyldur. Í vaxandi sveitarfélagi eins og Árborg þarf uppbygging að halda í við þróunina. Til að viðhalda þróuninni á undanförnum árum hefðum við þurft að bæta við að minnsta kosti tveimur nýjum deildum á ári. Ef markmiðið er að stytta biðlista og tryggja jafnt aðgengi að þjónustu þá er lykilatriði að úr þessu verði bætt. Ein stærsta áskorunin snýr að skipulagi. Of oft hafa ný hverfi risið án þess að skólar fylgi með. Þetta skapar álag á allt starfsumhverfi skólanna og dregur úr fyrirsjáanleika í lífi fjölskyldna. Við eigum að byggja skólana samhliða uppbyggingu hverfa, ekki á eftir. Sterkari leikskólar - sterkari Árborg Við þurfum að styrkja leikskólana sem faglegt umhverfi. Það felur í sér betri starfsaðstæður, stöðugleika í starfsmannahaldi og aukin tækifæri til menntunar innan stéttarinnar. Lausnin á mönnunarvanda er ekki að lækka kröfur, heldur að styrkja fagið og aðstæður þess. Foreldrar treysta á leikskóla til að geta stundað vinnu eða nám og til að geta haft fjárhagslegt öryggi. Ef vöntun er á leikskólaplássum skapast álag bæði á fjölskyldur og atvinnulífið. Við höfum tækifæri til að fara frá skammtímalausnum yfir í skýra langtímastefnu. Það gerist ekki af sjálfu sér, þetta er allt spurning um forgangsröðun. Höfundur skipar 4. sæti á B lista Framsóknar í Árborg.
Skoðun Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir,Sædís Ósk Harðardóttir skrifar
Skoðun Háskólamenntun á útsölu! Tombóluprís – allt á að seljast. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar