Símanotkun barna

Fréttamynd

Samfélagsmiðlar eru ekki barna­leikur

Það hefur alltaf verið eitt af mikilvægustu hlutverkum samfélagsins að vernda börn gegn alls kyns hættum. Við kennum þeim að fara varlega í umferðinni, nota bílbelti og hjálma og tala ekki við ókunnuga.

Skoðun
Fréttamynd

Geri for­eldra og börn að lög­brjótum

Þingmaður Miðflokksins segir að ný áform um samfélagsmiðlabann geri börn og foreldra að lögbrjótum þar sem ekki standi til að framfylgja lögunum á nokkurn hátt. Þingmaður Flokks fólksins vill meina að breytingin sé ekki samfélagsmiðlabann heldur verkfæri fyrir foreldra.

Innlent
Fréttamynd

„Þetta snýst ekki hrein­lega um bann heldur á­kveðna vernd“

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, var spurð út í nýja frumvarpið sem snýr að símabanni fyrir börn, fjórtán ára og yngri, í Reykjavík síðdegis en hún sagði það tilkomið eftir ákveðna vakningu hvað málið varðar hjá íslenskum stjórnvöldum. Bannið yrði vonandi orðið að veruleika fyrir næstu áramót en að það væri alfarið til þess hugsað að vernda börn.

Innlent
Fréttamynd

Ekki öll jafn spennt fyrir boðuðu sam­félags­miðla­banni

Skiptar skoðanir eru á boðuðu samfélagsmiðlabanni fyrir 14 ára og yngri; þeir yngstu lýsa vonbrigðum en fullorðnir eru sáttir. Fjöldi ríkja hefur innleitt eða íhugað að innleiða aldurstakmark á samfélagsmiðla en árangurinn af því er misgóður. Tvær þingkonur ræddu einnig mögulega kosti og galla bannsins í kvöldfréttum Sýnar.

Innlent
Fréttamynd

Stór hluti barna enn á sam­félags­miðlum hálfu ári eftir bannið

Hálfu ári eftir innleiðingu samfélagsmiðlabanns barna yngri en 16 ára í Ástralíu er stór hluti þeirra enn á einhverjum samfélagsmiðlum. Ástralska ríkisstjórnin hefur tilkynnt að hún muni tvöfalda hámarkssekt fyrir brot á lögum landsins um lágmarksaldur á samfélagsmiðlum í 99 milljónir ástralskra dala. Það samsvarar um 9,1 milljarði íslenskra króna. 

Erlent
Fréttamynd

Segir milljarða­hönnun skóla í Voga­hverfi óraun­hæfa

Hildur Björnsdóttir borgarstjóri segir nýjan meirihluta vilja einfalda uppbyggingu skóla og leikskóla og segir verða að læra af uppbyggingu Brákarborgar. Hönnun nýs skóla í Vogahverfi sem samþykkt var fyrir kosningar, verði til dæmis aldrei að veruleika. Framkvæmdin sé of dýr. Nota eigi teikningar sem til eru og nýta betur samstarfi við einkaaðila við hagkvæma uppbyggingu. 

Innlent
Fréttamynd

„Þetta er kannski dýrasta tækið sem barnið á“

Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, segir margt brýnna í skólakerfinu í dag en að setja reglur um símanotkun og að samtal nemenda og kennara um sitt umhverfi sé alltaf gáfulegra en miðstýrðar reglur sem geti skapað óþarfa vanda á milli þeirra. Samkvæmt reglugerð eigi að setja upp skápa en ekki liggi fyrir hver eigi að fylgjast með þeim eða hvort að barnið skili símanum þangað. 

Innlent
Fréttamynd

Kennarar óttast fram­kvæmd símafrís

Grunnskólanemendur í Reykjavík mega hvorki nota farsíma né sambærileg snjalltæki á skólatíma næsta haust eftir að borgarstjórn samþykkti að taka upp símafrí í skólunum. Foreldrar fagna þessu en kennarar hafa áhyggjur af framkvæmdinni.

Innlent
Fréttamynd

Vilja festa símabannið í lög

Ráðamenn í Englandi vilja setja það í lög að nemendum verði bannað að vera með síma í skólum þar í landi. Jacqui Smith, menntamálaráðherra, sagði á breska þinginu í dag að lögð yrði fram breytingartillaga á skólalögum þar sem forsvarsmönnum skóla yrði skylt að banna síma.

Erlent
Fréttamynd

Tímamótadómur: Fyrir­tækin sjálf á­byrg en ekki not­endur

Tímamótadómur var kveðinn upp í Los Angeles í Bandaríkjunum í gær í máli þar sem andleg veikindi ungrar konu voru rakin til notkunar á samfélagsmiðlunum Instagram og Youtube. Fyrirtækin Meta og Google voru dæmd til þess að greiða fjölskyldu konunnar sex milljónir Bandaríkjadala í miskabætur, eða um 840 milljónir íslenskra króna. Tiktok og Snapchat gerðu dómsátt í málinu.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Verndum börn gegn of­beldi á netinu

Börn og ungmenni verja mörg hver miklum tíma á netinu. Þar eiga þau samskipti, mynda tengsl og móta sjálfsmynd sína. Stafrænn veruleiki þeirra felur þó í sér raunverulegar hættur sem samfélagið má ekki líta fram hjá.

Skoðun
Fréttamynd

Fórnar­kostnaður sam­félags­miðla­banns

Undanfarna mánuði hafa sífellt fleiri raddir bæst í hóp þeirra sem kalla eftir samfélagsmiðlabanni fyrir yngri börn og hefur nýlega komið fram þingmannamál sem leggur slíkt bann til og miðar við 15 eða 16 ára aldur.

Skoðun
Fréttamynd

Er smá Insta á skóla­tíma best?

Mikil umræða hefur verið um símanotkun grunnskólabarna víða um heim. Umræðan snýst að einhverji leyti um samfélagsmiðla sem eru hannaðir þannig að flestir verða mjög háðir þeim.

Skoðun
Fréttamynd

Heilsa og líðan barnanna okkar

Við stöndum frammi fyrir fjölda áskorana er varða lýðheilsu barna og ungmenna. Þar má nefna skjá- og samfélagsmiðlanotkun, of litla hreyfingu og frjálsan leik, gjörunnar matvörur og óhollt mataræði, notkun orkudrykkja, nýjar nikótínvörur og aukið aðgengi að áfengi og vímuefnum.

Skoðun
Fréttamynd

Margir sem þurfa að horfa eða hlusta til að sofna

Meira en helmingur þátttakenda í könnun Maskínu fyrir Fjölmiðlanefnd um gervigreind og samfélagsmiðla segir upplifun sína af samfélagsmiðlum verri nú en þegar þeir byrjuðu að nota þá. Um helmingur sagðist oft vera í símanum á salerninu, um þriðjungur segist eiga erfitt með að horfa á mynd, þátt eða íþróttaviðburð án þess að kíkja í símann og 19 prósent eiga erfitt með að borða án þess að skoða símann.

Innlent
Fréttamynd

Símafrí í grunn­skólum Kópa­vogs

Sáttmáli um símafrí í skóla- og frístundastarfi í Kópavogi hefur verið samþykktur að undangengnu samráði við nemendur, foreldra og fagfólk í grunnskólum í Kópavogi. Í sáttmálanum felst meðal annars að símar eru ekki sýnilegir í skóla- og frístundastarfi og frímínútur verða skjálausar.

Innlent
Fréttamynd

Síma­lausir grunn­skólar í Kópa­vogi

Í Kópavogi er öflugt skólastarf og við ætlum að tryggja að svo verði áfram. Skólastarf þarf hins vegar að vera í stöðugri endurskoðun með það að markmiði að efla námsárangur og stuðla að umbótum í námi.

Skoðun
Fréttamynd

Verjum meiri skjátíma með börnunum

Börn í dag alast upp í heimi þar sem netið er ekki aukahlutur heldur órjúfanlegur hluti af daglegu lífi. Þar læra þau, leika sér, mynda vináttu, skapa og móta sjálfsmynd sína.

Skoðun