Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir og Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifa 28. ágúst 2026 12:40 Í umræðunni um símafrí í skólum er auðvelt að beina sjónum að því sem börn og ungmenni eiga ekki að gera. Okkur langar að nálgast málið frá annarri hlið og spyrja: Hvað fá börnin þegar síminn víkur? Meira rými fyrir leik, hreyfingu, samtöl, hlátur, vináttu og samveru. Sem formaður og varaformaður Foreldraráðs Hafnarfjarðar höfum við, ásamt ráðinu, lagt áherslu á að nálgast umræðuna um síma- og skjánotkun barna á jákvæðan og uppbyggilegan hátt. Í samstarfi við Rec Media og grunnskóla í Hafnarfirði urðu til tvö myndbönd þar sem börn og ungmenni fá sjálf orðið. Með þeim viljum við beina sjónum að því sem við viljum sjá meira af í skóladeginum. Hvað gerist þegar síminn fær að víkja? Í myndböndunum segja börnin sjálf frá því hvað þeim finnst skemmtilegast að gera í frímínútum. Þau segja frá leikjunum sínum og við sjáum gleðina, hreyfinguna, hláturinn, vináttuna og samveruna sem skapast þegar þau leika og eru saman. Skilaboðin eru einföld: Meiri leikur. Meiri gleði. Meiri samvera. Foreldraráð Hafnarfjarðar hefur óskað eftir því við grunnskóla bæjarins að myndböndin verði sýnd á skólakynningum í upphafi skólaársins og þeim deilt með foreldrum og skólasamfélaginu. Von okkar er að þau geti orðið kveikja að góðu samtali um símafrí, samveru og það skólaumhverfi sem við viljum skapa saman. Sameiginlegt verkefni heimila og skóla Símafrí í skólum er ekki verkefni skólanna einna. Við trúum því að bestur árangur náist þegar skólar, foreldrar og börn standa saman og skilaboðin eru skýr og samhljóma. Við fögnum frumkvæði Ingu Sæland að skapa börnum og öllu skólasamfélaginu símafrí innan veggja skólanna. Við teljum það mikilvægt skref í þá átt að skapa meira rými fyrir nærveru, samskipti og samveru í skóladeginum. Skólarnir skapa rammann utan um skóladaginn, en við foreldrar gegnum ekki síður mikilvægu hlutverki. Með jákvæðu samtali heima fyrir og stuðningi við þann ramma sem skólarnir setja getum við saman hjálpað börnum og ungmennum að móta heilbrigðar venjur í kringum síma- og skjánotkun. Þetta verkefni er hluti af áframhaldandi vinnu okkar innan Foreldraráðs Hafnarfjarðar að velferð barna og heilbrigðum venjum í kringum skjánotkun. Fyrr á árinu færði ráðið skólastjórum grunnskóla Hafnarfjarðar meðal annars bókina Kvíðakynslóðina eftir Jonathan Haidt, til að hvetja til sameiginlegs samtals heimila og skóla um þessi málefni. Við viljum ekki aðeins ræða það sem börn og ungmenni eiga ekki að gera. Við viljum líka beina sjónum að því sem við getum gefið meira rými – leik, vináttu, samtölum, hreyfingu og samveru. Hvatning til meiri leiks Samhliða verkefninu færði Foreldraráð Hafnarfjarðar grunnskólum bæjarins táknræna gjöf í upphafi skólaárs, nokkur útileikföng sem tengjast meðal annars leikjum sem börnin sjálf nefna sem sína uppáhaldsleiki í frímínútum. Gjöfin er kannski lítil en hugsunin á bak við hana er stærri. Hún er hvatning til að skapa meira rými fyrir leik, gleði og samveru í skóladeginum og áminning um að þegar síminn víkur getur eitthvað annað fengið að vaxa. Við foreldrar og skólasamfélagið höfum sameiginlegt hlutverk. Við getum skapað rammann, hvatt til góðra venja og gefið börnum og ungmennum fleiri tækifæri til að horfast í augu, tala saman, leika og einfaldlega vera saman. Leikur er lífsins gaman. Gefum leiknum meira pláss. Vala Steinsdóttir, formaður Foreldraráðs HafnarfjarðarKristín Ólöf Grétarsdóttir, varaformaður Foreldraráðs Hafnarfjarðar Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Símanotkun barna Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Skoðun Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar