

Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari í handbolta hefur ákveðið að hafa þá Hauk Þrastarson og Kristján Örn Kristjánsson, eða Donna, utan hóps í leiknum við Svartfjallaland sem hefst klukkan 17.
Óli Mittún leikmaður færeyska landsliðsins í handknattleik segir að jafntefli Íslands gegn Serbíu hafi gefið Færeyingum innblástur í leik liðsins gegn Noregi í gær. Færeyingar jöfnuðu metin á ótrúlegan hátt undir lokin leiksins.
„Það er mikið af skyttum þarna og þeir eru stórir og þungir,“ segir Sigvaldi Björn Guðjónsson, hornamaður íslenska landsliðsins, um Svartfellingana sem Ísland þarf að eiga við á EM í handbolta í dag.
Elvar Örn Jónsson er tilbúinn í frekari átök gegn þungum og öflugum leikmönnum Svartfjallalands á EM í handbolta í dag, eftir að hafa leitt öfluga vörn Íslands í jafnteflinu við Serba á föstudaginn.
Strákarnir okkar æfðu í krúttlegum leikfimissal í úthverfi München í gær. Þar voru líka stjórnendur EM í dag, þeir Henry Birgir Gunnarsson og Sindri Sverrisson.
Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari í handbolta, ætlar ekki að gera neinar stórvægilegar breytingar á sóknarleik Íslands fyrir leikinn við Svartfjallaland á EM í dag. Skammur tími frá jafnteflinu við Serbíu á föstudag bjóði heldur ekki upp á það.
Landsliðsþjálfarinn Snorri Steinn Guðjónsson hefði getað gert hluti öðruvísi í leik Íslands og Serbíu í fyrrakvöld. Sérfræðingur Besta sætisins sér lítinn mun á áherslum Snorra og forvera hans í starfi, að minnsta kosti að dæma af fyrsta leik.
Elliði Snær Viðarsson segist hafa verðskuldað rauða spjaldið sem hann fékk gegn Serbíu í fyrsta leik á EM í handbolta. Hann er úthvíldur og klár í átökin gegn Svartfjallalandi í dag.
„Ég var alls ekki góður og ég á helling inni. Það verður bara að gera betur. Bæði ég og liðið,“ segir Ómar Ingi Magnússon, máttarstólpi í íslenska landsliðinu í handbolta, hreinskilinn eftir fyrsta leik á EM í Þýskalandi.
Danir og Svíar unnu yfirburðasigra í leikjum sínum á EM í kvöld og eru bæði lið því með fullt hús stiga í sínum riðlum, tveir sigrar í tveimur leikjum.
Færeyingar skráðu sig í sögubækurnar í kvöld þegar liðið náði jafntefli gegn Noregi á Evrópumeistarmótinu í handbolta en þetta er fyrsti stigið sem liðið nælir sér í á stórmóti. Boðið var upp á gríðarlega dramtík á lokamínútunum.
Portúgal er komið í lykilstöðu á Evrópumótinu í handbolta en liðið lagði Tékkland 27-30 í dag. Hinn 21 árs gamli Martim Costa fór á kostum og skoraði ellefu mörk.
Erfitt var að sjá handbragð Snorra Steins Guðjónssonar á leik íslenska karlalandsliðsins í handbolta í fyrsta leik liðsins á EM í gær. Margir leikmenn áttu erfiðan dag.
Það er heldur betur farið að hitna í kolunum á EM karla í handbolta í Þýskalandi. Í öðrum þætti af EM í dag fóru Henry Birgir Gunnarsson og Sindri Sverrisson yfir fyrsta leikdag, stemninguna í München og geðsveiflurnar sem fylgdu jafnteflinu vði Serbíu.
Ísland og Serbía gerðu jafntefli í fyrsta leik liðanna á Evrópumótinu í handknattleik í gær. Síðast þegar það gerðist náði Ísland sínum besta árangri á EM í sögunni.
Vísir birtir í dag lokaþáttinn af „Ekki bara leikur“ sem er þríleikur Björgvins Páls Gústavssonar landsliðsmarkvarðar um lífið sem leikmaður á stórmóti.
Ísland og Serbía skildu jöfn í fyrsta leik liðanna á EM í Þýskalandi en lokatölur leiksins voru 27-27 eftir frábæran endasprett íslenska liðsins.
Hundrað sekúndur eftir. Aron með boltann og Ísland þremur mörkum undir, eftir arfaslaka frammistöðu allt kvöldið. Á einhvern ótrúlegan hátt endaði þetta samt þannig að þúsundir Íslendinga gengu léttir í lund út úr Ólympíuhöllinni í München.
Ungverjaland hafði betur gegn Svartfjallalandi í fyrsta leik liðanna á EM í Þýskalandi.
Íslenska handboltalandsliðið náði í dýrmætt stig gegn Serbíu með þremur mörkum í röð á ótrúlegum lokamínútum í fyrsta leik sínum á Evrópumeistaramótinu í handbolta í Þýskalandi.
Ísland byrjar EM karla í handbolta á einu dramatískasta jafntefli síðari ára. Liðið var tveimur mörkum undir þegar nokkrar sekúndur lifðu leiks en á einhvern ótrúlegan hátt tryggði Sigvaldi Björn Guðjónsson stig með marki úr hraðaupphlaupi í blálokin, lokatölur 27-27.
Viktor Gísli átti frábæran fyrri hálfleik í marki Íslands og hélt liðinu á lífi meðan mörkin létu á sér standa. Í seinni hálfleik minnkaði markvarslan, sem skrifast að mörgu leyti á slakan varnarleik, og allt stefndi í tap gegn Serbíu.
„Mér líður ágætlega úr því sem komið var. Held að við verðum að vera glaðir með þetta eina stig,“ sagði landsliðsþjálfarinn Snorri Steinn Guðjónsson um ótrúlegt jafntefli Íslands og Serbíu í fyrsta leik liðanna á EM.
Íslenska karlalandsliðið í handbolta gerði 27-27 jafntefli við Serbíu eftir ótrúlega endurkomu í fyrsta leik sínum á Evrópumeistaramótinu í Þýskalandi.
Austurríki fór létt með Rúmeníu í fyrsta leik liðsins á EM í Þýskalandi.
Ísland gerði eitt dramatískasta jafntefli í manna minnum í fyrsta leik sínum á Evrópumótinu gegn Serbíu. Ísland var þremur mörkum undir þegar tvær mínútur voru eftir en tvö þrumuskot Arons Pálmarsonar hleyptu lífi í leikinn og Sigvaldi Björn skoraði svo jöfnunarmarkið þegar fimm sekúndur voru til leiksloka.
„Veit ekki, frekar skrítinn leikur. Erum að klikka á algjörum grunnatriðum og förum illa með yfirtöluna,“ sagði Gísli Þorgeir Kristjánsson um ótrúlegt jafntefli Íslands og Serbíu í fyrsta leik EM karla í handbolta.
Ísland byrjar EM karla í handbolta á einu dramatískasta jafntefli síðari ára. Liðið var tveimur mörkum undir þegar nokkrar sekúndur lifðu leiks en á einhvern ótrúlegan hátt tryggði Sigvaldi Björn Guðjónsson stig með marki úr hraðaupphlaupi í blálokin.
Snorri Steinn Guðjónsson hefur valið þá sextán leikmenn sem mæta Serbíu í dag í fyrsta leik íslenska liðsins á Evrópumótinu í handbolta í Þýskalandi.
Strákarnir okkar í handboltalandsliðinu hefja leik í dag á Evrópumeistaramótinu í Þýskalandi og stuðningsmenn íslenska landsliðsins hafa fjölmennt til München. Þeir ætla að mála Ólympíuhöllina bláa í kvöld og voru í stuði fyrir leik eins og sjá má í myndum og myndbandi hér inn á Vísi.