Karl III Bretakonungur „
1 2 3 4 … 4 ›
„Þú ert svo falleg“ Donald Trump Bandaríkjaforseti varð bergnuminn af fegurð Kate Middleton, prinsessu af Wales, þegar hann hitti fyrir bresku konungsfjölskylduna í morgun. Varalesari rýndi í varir forsetans. Lífið 17.9.2025 17:10
Bein útsending: Rauða dreglinum rúllað út fyrir Trump Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, og eiginkona hans Melanía snæða í dag með Karli Bretakonung og öðrum úr konungsfjölskyldunni. Rauði dregillinn hefur verið dreginn út fyrir forsetann og er búist við miklum pomp og prakt vegna heimsóknarinnar. Erlent 17.9.2025 09:43
Trump fær konunglegar móttökur í Bretlandi Donald Trump Bandaríkjaforseti og eiginkona hans, Melania Trump, lentu á Stansted-flugvelli í Lundúnum í gærkvöldi en í dag hefst tveggja daga opinber heimsókn forsetans til Bretlands. Erlent 17.9.2025 06:45
Fjallar um afstöðu Elísabetar til Brexit og hvernig Kamilla varðist árás Elísabet II Englandsdrottning var á móti Brexit og vildi vera áfram innan Evrópusambandsins. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri bók Valentine Low, sem fjallaði um konungsfjölskylduna fyrir The Times. Erlent 3.9.2025 07:47
Kóngafólkið eys lofi yfir enska liðið Eftir sigur enska landsliðsins á Evrópumóti kvenna í knattspyrnu hefur hamingjuóskunum rignt yfir liðið. Breska konungsfjölskyldan lét ekki sitt eftir liggja. Fótbolti 28.7.2025 07:00
Fyrirgefur fjölskyldunni og leitar sátta Harry Bretaprins segir að honum þætti verulega vænt um að ná sáttum við bresku konungsfjölskylduna eftir allt sem gengið hefur á. Í tilfinningaþrungnu viðtali við breska ríkisútvarpið sagðist hann niðurbrotinn eftir að hafa tapað máli fyrir Hæstarétti í Lundúnum vegna reglna um öryggisgæslu fyrir fjölskyldu hans í Bretlandi. Erlent 2.5.2025 21:13
Lagður inn á sjúkrahús vegna aukaverkana krabbameinsmeðferðar Karl III Bretakonungur var lagður inn á sjúkrahús í dag vegna aukaverkana krabbameinsmeðferðar. Hann var útskrifaður stuttu seinna. Erlent 27.3.2025 22:03
Heiðrar lækna sína í miðri krabbameinsmeðferð Karl III Bretakonungur hefur veitt læknunum Douglas Glass og Richard Leach heiðursorðu fyrir störf þeirra fyrir konungsfjölskylduna. Karl hefur verið í krabbameinsmeðferð frá því í febrúar og er ekki vitað hvenær henni lýkur. Erlent 31.12.2024 09:14
Kostnaðurinn við krýningu Karls konungs 13 milljarðar króna Kostnaður breska ríkisins við krýningu Karls III Bretakonungs á síðasta ári var 72 milljónir punda hið minnsta, eða tæpir þrettán milljarðar íslenskra króna. Erlent 22.11.2024 07:58
Grímuklæddir menn keyrðu niður hlið við Windsor Grímuklæddir menn klifruðu í síðustu viku yfir grindverk við Windsor kastala á meðan Vilhjálmur og Katrín, prinsinn og prinsessan af Wales, og þrjú börn þeirra voru sofandi í húsnæði þeirra á lóð kastalans en þau fluttu þangað árið 2022. Erlent 18.11.2024 09:57
Svarar ekki símtölum sonarins Karl Bretakonungur svarar ekki símtölum yngri sonar síns Harry Bretaprinsar. Feðgarnir hafa lítið sem ekkert talað saman undanfarið og ekki sést síðan í febrúar síðastliðnum þegar Karl tilkynnti heimsbyggðinni að hann væri með krabbamein. Lífið 2.8.2024 16:36
Hagnaður krúnunnar meira en tvöfaldast vegna vindorkusamninga Hagnaður eignarhaldsfélagsins sem heldur utan um jarðir og fasteignir í eigu bresku konungsfjölskyldunnar jókst gríðarlega í fyrra og nam 1,1 milljarði punda, samanborið við 442 milljónir árið á undan. Erlent 24.7.2024 11:40
Bjarni fór á fund konungs Bjarni Benediktsson forsætisráðherra fór á fund Karls III Bretakonungs að loknum fundi Evrópuleiðtoga í Blenheimhöll. Karl Bretakonungur bauð leiðtogum til móttöku í höllinni. Innlent 19.7.2024 14:56
Stefna Starmers mörkuð í ræðu konungs Í dag hefur breska þingið störf eftir stórsigur Verkamannaflokksins í kosningum fyrr í mánuðinum. Eins og hefð er fyrir heldur Karl III Bretakonungur ræðu í þinghúsinu við tilefnið. Ræða konungs er eins konar stefnuyfirlýsing nýviðtekinnar ríkisstjórnar og er skrifuð af ríkisstjórnarliðum. Erlent 17.7.2024 10:10
Breska konungsfjölskyldan og hjón í Njarðvík Kona á tíræðisaldri í Reykjanesbæ geymir nokkur bréf, sem hún og maður hennar hafa fengið, eins og gull heima hjá þeim en það eru árnaðaróskir frá Karli Bretakonungi og Kamillu konu hans, auk bréfa frá Elísabetu annarri Bretadrottningu. Innlent 25.6.2024 20:06
Myndaveisla: Eliza og Lilja Alfreðs í afmæli Karls Bretakonungs Breska sendiráðið fagnaði afmæli Karls Bretakonungs í hópi góðra gesta í veislusal Center Hotels Plaza við Aðalstræti í gær. Afmæli þjóðhöfðingja í Bretlandi er vanalega haldið í júní þó afmæli þeirra séu á öllum tímum árs. Þema veislunnar var sustainability eða sjálfbærni og umhverfisvernd, sem hafa lengi verið áhersluatriði konungsins. Lífið 9.6.2024 20:00
Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Fyrsta opinbera málverkið af Karli III eftir að hann var krýndur konungur var afhjúpað í Buckingham-höll í gær. Verkið er eftir Jonathan Yeo og hlýtur að teljast fremur óhefðbundið, miðað við önnur verk af kóngafólki sem hangir í höllum og söfnum. Erlent 15.5.2024 09:10
Karl konungur snýr aftur úr veikindaleyfi Karl Bretakonungur mun nú aftur sinna konunglegum skyldum sínum samhliða krabbameinsferðinni. Karl Bretakonungur tilkynnti í febrúar síðastliðinni að hann hefði verið greindur með krabbamein og að hann myndi því ekki geta sinnt öllum sínum skyldum. Lífið 27.4.2024 09:37
Vill komast aftur í vinnuna Karl Bretakonungur er orðinn þreyttur á krabbameinsmeðferðinni og þrýstir nú á lækna sína og starfsfólk sitt um að fá grænt ljós til þess að mæta aftur í vinnu. Þetta segir frændi hans Peter Phillips í sjaldgæfu viðtali við ástralska miðla. Lífið 25.3.2024 09:31
Telur saklausar ástæður liggja að baki stormsins í kringum Katrínu „Maður þarf að passa sig. Það er rosa auðvelt að falla fyrir einhverjum svona kenningum,“ segir Guðný Ósk Laxdal, kennari og royalisti, um samsæriskenningar sem hafa sprottið upp undanfarnar viku um Katrínu Middleton, prinsessuna af Wales. Lífið 13.3.2024 13:48
Fyrsta opinbera myndin af prinsessunni eftir aðgerðina Kensingtonhöll birti í dag fyrstu opinberu mynd af Katrínu, prinsessu af Wales, síðan hún fór undir hnífinn í janúar. Erlent 10.3.2024 13:34
Sagan um brasilíska rassinn sterkust í Bandaríkjunum Fyrstu myndirnar af hertogaynjunni Katrínu Middleton á opinberum vettvangi í rúma tvo mánuði voru birtar í vikunni í bandarískum miðlum. Guðný Ósk Laxdal sérlegur sérfræðingur í málefnum bresku konungsfjölskyldunnar segir málið sýna hve góðum samskiptum Katrín og Vilhjálmur Bretaprins eigi við bresku pressuna. Lífið 6.3.2024 07:00
Segir veikindi föður síns mögulega munu greiða fyrir sáttum Harry, hertogi af Sussex, hefur gefið til kynna að hann sé tilbúinn til að ná sáttum við fjölskyldu sína eftir að faðir hans, Karl III Bretakonungur, greindist með krabbamein. Erlent 16.2.2024 18:28
Nógu heilsuhraustur fyrir símtal Breska forsætisráðuneytið tilkynnti fjölmiðlum sérstaklega að Rishi Sunak, forsætisráðherra Bretlands, hyggist ræða við Karl Bretakonung símleiðis í dag. Eins og greint var frá því á dögunum er Karl með krabbamein. Lífið 7.2.2024 16:09
Hefur margbrotið sig en annars verið við ágæta heilsu Harry Bretaprins mun ferðast frá heimili sínu í Los Angeles á næstu dögum til þess að heimsækja föður sinn, Karl III Bretakonung, sem hefur greinst með krabbamein. Erlent 6.2.2024 06:58
Karl Bretakonungur með krabbamein Karl III Bretakonungur hefur greinst með krabbamein. Erlent 5.2.2024 18:07
Bretakonungur berst við bólginn blöðruhálskirtil Karl III Bretakonungur leggst undir hnífinn í næstu viku vegna góðkynja stækkunar á blöðruhálskirtli. Erlent 17.1.2024 16:00
Hafði áhyggjur af því að það myndi flækja málin að deyja í Balmoral Elísabet II Bretadrottning hafði áhyggjur af því skömmu fyrir andlát sitt að það myndi valda skipuleggjendum útfarar hennar vandræðum ef hún félli frá í Skotlandi. Erlent 22.12.2023 07:19
Loðvík löngutangarlaus á jólakorti konungsfjölskyldunnar Hjónin Vilhjálmur og Katrín, krónprins og prinsessa af Wales, hafa sent frá sér árlegt jólakort fjölskyldunnar. Það sem hefur vakið sérstaka athygli er að það vantar löngutöng á Loðvík prins. Kenningar eru uppi um að hún hafi verið klippt af í myndvinnslunni. Lífið 11.12.2023 21:56
Karl kóngur taldi sig kannast við Portman úr gömlu Star Wars Karl Bretakonungur spurði leikkonuna Natalie Portman hvort hún hafi verið í gömlu Star Wars-myndunum þegar The Phantom Menace var frumsýnd. Portman var átján ára þarna og er fjórum árum yngri en fyrsta Star Wars-myndin sem kom út árið 1977. Lífið 7.12.2023 14:33