Barnalán

Vala Eiríks og Óskar orðin foreldrar
Útvarspkonan Valdís Eiriksdóttir, sem margir þekkja sem Völu Eiríks, og Óskar Logi Ágústsson úr Vintage Caravan, eignuðust frumburð sinn þann 5. desember síðastliðinn. Parið deilir gleðitíðindunum í sameiginlegri færslu á Instagram í gær.

Hélt tryllt tónlistarteiti og eignaðist svo tvíbura
Það hefur margt á daga Sævars Breka drifið en hann myndar tvíeykið NUSSUN ásamt Agli Breka. Þeir stóðu fyrir stórum útgáfutónleikum í síðustu viku þar sem þeir gáfu út stuttmynd og tónlistarmyndband og á föstudag eignuðust Sævar Breki og unnusta hans Guðrún Lóa svo tvíbura.

„Risa tilkynning“
Kristín Pétursdóttir, leikkona, flugfreyja og áhrifavaldur og kærastinn hennar, Þorvar Bjarmi Harðarson handboltadómari, eiga von á sínu fyrsta barni saman. Fyrir á Kristín einn dreng.

Gísli Pálmi er orðinn pabbi
Rapparinn Gísli Pálmi Sigurðsson og Írena Líf Svavarsdóttir, félagsráðgjafi, eru orðin foreldrar. Þau eignuðust stúlku þann 23. júlí síðastliðinn.

Lyftu barninu upp eins og hann væri Simbi
Sonur Katrínar Eddu Þorsteinsdóttur, áhrifavalds og verkfræðings, og eiginmanns hennar Markusar Wasserbaech er kominn með nafn. Drengnum var gefið nafnið Aron Atli.

Lára og lyfjaprinsinn opinbera kynið
Samfélagsmiðlastjarnan Lára Clausen og kærasti hennar Jens Hilmar Wessman eiga von á sínu fyrsta barni saman. Parið tilkynnti á samfélgsmiðlum í gær að von væri á stúlku.

Dóttir Anítu og Hafþórs komin í heiminn
Leikkonan Aníta Briem og sambýlismaður hennar Hafþór Waldorff eru orðin foreldrar. Samkvæmt heimildum Vísis kom stúlkan í heiminn þann 13. nóvember síðastliðinn. Um er að ræða þeirra fyrsta barn saman en fyrir á Aníta eina stúlku.

Ísak og Karítas orðin foreldrar eftir bráðakeisara
Kvikmyndagerðamaðurinn Ísak Hinriksson og kærastan hans Karítas Spanó fatahönnuður eignuðust dreng þann 16. nóvember síðastliðin. Um er að ræða þeirra fyrsta barn saman.

Svava Rós og Hinrik eiga von á dreng
Svava Rós Guðmundsdóttir landsliðskona í fótbolta og unnusti hennar, Hinrik Hákonarson, eiga von á dreng. Um er að ræða þeirra fyrsta barn saman. Parið greinir frá gleðitíðindunum á Instagram.

Elín Metta og Sigurður eignuðust stúlku
Knattspyrnukonan og læknaneminn Elín Metta Jensen og Sigurður Tómasson framkvæmdastjóri vaxtar og viðskiptaþróunar hjá Origo eignuðust sitt fyrsta barn saman 14. nóvember síðastliðinn. Parið greinir frá gleðitíðindunum í færslu á samfélagsmiðlum.

Erna Mist og Þorleifur keyptu útsýnishæð í Vesturbænum
Erna Mist Yamagata listakona og Þorleifur Örn Arnarsson leikstjóri hafa fest kaup á 134 fermetra hæð í Vesturbæ Reykjavíkur. Parið greiddi 126,9 milljónir fyrir eignina.

Sexfalda greiðslur í fyrstu tæknifrjóvgun og tæknisæðing telur
Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra, hefur birt í samráðsgátt drög að nýrri reglugerð um þátttöku sjúkratrygginga í kostnaði við tæknifrjóvganir, sem veittar eru án samnings við Sjúkratryggingar Íslands.

Lára og Jens verða mamma og pabbi
Samfélagsmiðlastjarnan Lára Clausen og kærasti hennar Jens Hilmar Wessman verða foreldrar árið 2025. Þetta tilkynna þau í einlægri Instagram færslu.

Annar bakaradrengur kominn í heiminn
Gunnlaugur Arnar Ingason, bakari og kondítor, betur þekktur sem Gulli bakari, og sambýliskona hans Kristel Þórðardóttir, eignuðust dreng þann 15. nóvember síðastliðinn. Fyrir eiga þau soninn Arnar Inga sem fæddist í apríl 2023.

Sigríður Margrét orðin amma
Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins er orðin amma.

Katrín og Markus orðin tveggja barna foreldrar
Katrín Edda Þorsteinsdóttir, áhrifavaldur og verkfræðingur, og eiginmaður hennar Markus Wasserbaech eignuðust sitt annað barn í gær. Fyrir eiga þau eina dóttur, Elísu Eyþóru sem verður tveggja ára í desember.

„Vinkonusambönd virka aldrei ef það er afbrýðisemi“
Áhrifavaldarnir og raunveruleikastjörnurnar Sunneva Einarsdóttir og Jóhanna Helga Jensdóttir eða Jóa eru bestu vinkonur og hafa þekkst í rúm tólf ár. Vinátta þeirra hefur vakið mikla athygli en þær hafa meðal annars verið saman með raunveruleikaþátt, eytt tíma saman á fæðingardeildinni þegar Jóa eignaðist barn og margt fleira eftirminnilegt. Blaðamaður ræddi við þær um vináttuna.

Edda Falak gaf bróður sínum nafna
Edda Falak, baráttukona og áhrifavaldur, og Kristján Helgi Hafliðason, glímukappi og þjálfari í Mjölni, hafa gefið syni sínum nafn. Drengurinn heitir Ómar, í höfuðið á bróður Eddu.

Gunnhildur og Erin eignuðust dreng
Knattspyrnukonurnar, Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir og Erin McLeod, eignuðust dreng í lok október. Um er að ræða fyrsta barn þeirra hjóna.

Sunneva nefndi son Jóhönnu
Sunneva Einarsdóttir, áhrifavaldur og raunveruleikastjarna, gaf syni vinkonu sinnar, Jóhönnu Helgu Jensdóttur áhrifavalds og útvarpskonu á FM957, nafn við hátíðlega athöfn um helgina. Litli drengurinn fékk nafnið Styrmir Óli Geirsson. Tvær athafnir fóru fram, annars vegar skírn í kirkju og svo athöfnin í heimahúsi.

Tanja Ýr og Ryan fengu að vita kynið á sjöttu viku
Athafnakonan Tanja Ýr Ástþórsdóttir og breski hermaðurinn Ryan Amor eiga von á dreng. Parið greindi frá kyninu barnsins í myndskeiði á Instagram. Þetta mun vera fyrsta barn þeirra saman.

Tveggja barna foreldrar eftir erfiða áhættumeðgöngu
Hjónin Greta Salóme Stefánsdóttir tónlistarkona og Elvar Þór Karlsson, eignuðust dreng þann 23. október síðastliðinn. Um að ræða þeirra annað barn saman en fyrir eiga þau Bjart Elí sem fæddist í nóvember árið 2022. Greta tilkynnti gleðitíðindin í færslu á samfélagsmiðlum.

Margot Robbie orðin mamma
Leikkonan Margot Robbie og Tom Ackerley eignuðust dreng í síðasta mánuði. Um er að ræða fyrsta barn þeirra hjóna sem hafa verið gift frá 2016.

Bjarni Ben orðinn tvöfaldur afi
Bjarni Benediktsson forsætisráðherra er orðinn afi í annað sinn. Margrét Bjarnadóttir elsta dóttir Bjarna og unnusti hennar Ísak Ernir Kristinsson eignuðust dóttur á þriðjudaginn.

Tilkynna óléttu tveimur mánuðum eftir brúðkaup
Breski leikarinn Ed Westwick og leikkonan Amy Jackson eiga von á sínu fyrsta barni saman. Fyrir á Jackson einn dreng, Andreas sem er fimm ára.

Unnur Eggerts og Travis eiga von á öðru barni
Unnur Eggertsdóttir, leikkona og verkefnastjóri og hugmynda- og textasmiður hjá Maurum auglýsingastofu, á von á sínu öðru barni með unnusta sínum Travis. Hún deilir gleðitíðindunum með fylgjendum sínum á Instagram.

Skylduð til að bæta Baltasarsdóttir við
Dóttir leikstjórans Baltasars Kormáks og Sunnevu Ásu Weisshappel, myndlistarkonu og leikmyndahönnuðar var skírð þann 5. október síðastliðinn og fékk hún nafnið Kilja Kormákur. Parið þurfti að sækja um sérstakt leyfi til Mannanafnanefndar og segir að það hafi komið þeim á óvart að Kilja væri ekki til sem íslenskt kvenmannsnafn.

Dóttir Sunnevu og Baltasars ber nafnið Kormákur
Leikstjórinn Baltasar Kormákur og Sunneva Ása Weisshappel, myndlistakona og leikmyndahönnuður, eignuðust stúlku þann 5. ágúst síðastliðinn. Stúlkan hefur fengið nafnið Kilja Kormákur.

Bündchen 44 ára og ólétt
Brasilíska ofurfyrirsætan Gisele Bündchen og þjálfarinn Joaquim Valente, eiga von á sínu fyrsta barni saman. Tímaritið People hefur fengið þetta staðfest.

Móðurmál: Tvær óvæntar þunganir eftir óútskýrða ófrjósemi
„Ég væri til í endurupplifa þessar stundir milljón sinnum. Það er svo magnað að á einni millisekúndu fer maður frá mesta sársauka sem ég hef upplifað yfir í bestu tilfinningu lífs míns,“ segir Jóna Kristín Hauksdóttir, hagfræðingur og þriggja barna móðir, í viðtalsliðnum Móðurmál.