Landslið karla í fótbolta

Aron Einar valinn en enginn Gylfi í hópnum
Åge Hareide, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, hefur tilkynnt hópinn fyrir síðustu leikina í Þjóðadeildinni. Aron Einar Gunnarsson kemur aftur inn í íslenska hópinn en Gylfi Þór Sigurðsson verður ekki með.

Ísland náði jafntefli gegn Spáni
Íslenska U-17 ára lið drengja í knattspyrnu gerði í kvöld 2-2 jafntefli við Spán í undankeppni Evrópumótsins sem fram fer næsta sumar. Báðar þjóðirnar höfðu þegar tryggt sér sæti í næsta stigi undankeppninnar fyrir leik kvöldsins en fyrsta sætið var engu að síður undir.

Hætti ungur í landsliðinu og fór beint á Prikið
Theodór Elmar Bjarnason hætti tvítugur að spila fyrir íslenska karlalandsliðið eftir að hafa verið settur á varamannabekkinn. Hann fór beinustu leið á Prikið í afmæli hjá bróður sínum.

Um þrjú hundruð vörubílsfarmar af efni: „Engu keyrt í burtu“
Fyrsta skref í uppbyggingu Laugardalsvallar gengur vel og er á áætlun. Formaður KSÍ segir stefnuna svo að byggja völlinn enn frekar upp og enda með mannvirki sem við getum verið stolt af.

Framkvæmdir á Laugardalsvelli: Sex vikur frá sáningu í fullkominn völl
Líkt og við sögðum ykkur frá í gær ganga framkvæmdir við Laugardalsvöll vel og stefnt er að því að leika fyrsta leik á honum í júní á næsta ári. Grasvallatæknifræðingur sem er KSÍ innan handar segir það aðeins munu taka um sex vikur frá sáningu vallarins, sem ráðgert er að fari fram í mars, þar til að hann verður leikhæfur.

Farsæll ferill á enda: „Langar að vera í fríi um helgar og á kvöldin“
Birkir Már Sævarsson lauk knattspyrnuferli sínum um síðustu helgi þegar hans menn í Val unnu 6-1 sigur á ÍA í lokaumferð Bestu deildar karla. Birkir Már í atvinnumennsku í rúman áratug og er á meðal leikjahærri manna í sögu landsliðsins.

Laugardalsvöllur eins og þú hefur aldrei séð hann áður
Góður gangur er á framkvæmdum við þjóðarleikvang okkar Íslendinga í fótbolta, Laugardalsvöll. Við litum við og tókum stöðuna á framkvæmdunum í dag og þar tók Ívar Fannar Arnarsson, tökumaður, meðfylgjand myndir.

Íslensku landsliðin spila áfram í Puma búningum
Knattspyrnusamband Íslands hefur framlengt samning sinn við íþróttavöruframleiðandann PUMA og munu landslið Íslands í knattspyrnu leika í Puma-búningum til ársins 2030.

Upp um eitt sæti á heimslistanum
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta fer upp um eitt sæti á nýjum styrkleikalista FIFA sem var gefinn út í dag. Ísland er nú í 70. sæti listans.

Albert frá í mánuð og missir af landsleikjunum
Albert Guðmundsson mun líklegast ekki snúa aftur í íslenska landsliðið í nóvember þar sem meiðsli hans um helgina munu halda honum frá keppni næstu vikurnar.

Stimpluðu sig út með tapi gegn Dönum
Íslenska U21-landsliðið í fótbolta karla tapaði verðskuldað fyrir Danmörku ytra í dag, 2-0, í síðasta leik sínum í undankeppni EM 2025.

Dómarinn í Laugardalnum fór ekki eftir vinnureglum
Starfsreglur UEFA-dómara er varða endurskoðun á VAR segja til um að dómari á velli skuli horfa á myndbönd af atviki áður en hann taki ákvörðun. Ekki dugi að sjá stillimynd. Dómari leiks Íslands og Tyrklands í Þjóðadeild UEFA í gær virðist ekki hafa farið eftir þeim reglum þegar hann dæmdi Tyrkjum tvær vítaspyrnur.

Aðeins tveir hafa skorað fyrr í landsleik en Orri í gær
Orri Steinn Óskarsson kom íslenska liðinu í 1-0 á móti Tyrkjum í upphafi leiks á Laugardalsvellinum í gær og er þetta aðeins áttunda markið í sögu landsliðsins sem er skorað á þriðju mínútu eða fyrr.

Ræddu dýrkeypt mistök Hákonar í íslenska markinu
Hákon Rafn Valdimarsson hefur staðið sig mjög vel í íslenska markinu síðan hann fékk tækifærið með A-landsliðinu en hann gerði stór mistök í tapinu á móti Tyrkjum í Laugardalnum i gær.

„Það skilur enginn þessa reglu lengur“
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta tapaði 4-2 á móti Tyrkjum á Laugardalsvellinum í Þjóðadeildinni í gærkvöldi þar sem myndbandsdómgæslan kom talsvert við sögu.

Myndasyrpa frá tapinu súra á Laugardalsvelli
Ísland mátti þola tap gegn Tyrklandi á Laugardalsvelli þegar liðin mættust í Þjóðadeild karla í fótbolta.

Ósáttur við ósamræmið og segir Skandinavíu í herferð gegn VAR
Åge Hareide, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu, var enn ósáttur með dómgæsluna er hann mætti á blaðamannafund eftir 4-2 tap liðsins gegn Tyrkjum í Þjóðadeild UEFA í kvöld.

„Mér finnst þetta bara kjaftæði“
„Ég skil bara ekki hvernig þetta féll ekki okkar megin í dag,“ segir Orri Óskarsson eftir óhemju svekkjandi 4-2 tap Íslands gegn Tyrklandi á Laugardalsvelli í kvöld, í Þjóðadeildinni í fótbolta.

„Einstaklingsmistök að kosta okkur stigin og við þurfum að hætta því“
„Mjög stór mistök sem kosta okkur leikinn,“ sagði landsliðsþjálfarinn Åge Hareide rétt eftir að hann sussaði á Tyrki sem fögnuðu 4-2 sigri gegn Íslandi.

„Þegar maður skorar tvö mörk vill maður fá eitthvað úr leiknum“
„Þetta er ógeðslega svekkjandi. Við unnum svo ótrúlega hart að okkur og mér fannst við ekki eiga skilið að tapa 4-2 í dag,“ sagði Andri Lucas Guðjohnsen eftir tap Íslands gegn Tyrkjum í Þjóðadeildinni í kvöld.

„Eins og ég hef verið að segja í langan tíma þá erum við á réttri leið“
Fyrirliðinn Jóhann Berg Guðmundsson var eðlilega ekki sáttur eftir tveggja marka tap Íslands gegn Tyrklandi í Þjóðadeild karla í fótbolta.

Samfélagsmiðlarnir: „Skrípaleikur í lægsta gæðaflokki“
Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu mátti þola 4-2 tap er liðið tók á móti Tyrkjum í Þjóðadeild UEFA á Laugardalsvelli í kvöld.

Einkunnir Íslands: Orri bar af í tapi gegn Tyrkjum
Ísland tapaði 2-4 gegn Tyrklandi á Laugardalsvelli í kvöld. Orri Steinn Óskarsson kom Íslandi yfir snemma og var valinn maður leiksins.

Sjáðu allt það helsta frá súru tapi á Laugardalsvelli
Ísland mátti þola tap gegn Tyrklandi á Laugardalsvelli í Þjóðadeild karla eftir að komast 1-0 yfir snemma leiks. Lokatölur 2-4 en tapið heldur betur súrt eftir vítaspyrnufíaskó á báðum endum vallarins. Mörkin má sjá hér að neðan.

Kristall Máni ekki meira með á þessu ári
Kristall Máni Ingason, markahæsti leikmaður í sögu íslenska U-21 árs landsliðsins í fótbolta, mun ekki bæta við markafjölda sinn þegar liðið lýkur keppni í undankeppni EM 2025 gegn Danmörku á morgun. Hann er meiddur og spilar ekki meira á þessu ári.

Uppgjörið: Ísland - Tyrkland 2-4 | Grasið kvatt með gjöf til Tyrkja
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta kvaddi, vonandi, grasið á Laugardalsvelli í kvöld með 4-2 tapi gegn Tyrkjum sem þar með sóttu í fyrsta sinn í sögunni þrjú stig til Íslands.

Byrjunarliðið gegn Tyrkjum: Hetjan Logi kemur inn og þrjár aðrar breytingar
Åge Hareide gerir fjórar breytingar á byrjunarliði Íslands fyrir leikinn gegn Tyrklandi í Þjóðadeildinni í kvöld. Hetja leiksins gegn Wales, Logi Tómasson, er meðal þeirra sem kemur inn í byrjunarliðið.

Åge bjartsýnn: „Verðum að stöðva Aktürkoglu“
Åge Hareide vonast til að íslenska karlalandsliðið í fótbolta nýti meðbyrinn frá því í seinni hálfleik gegn Wales í leiknum gegn Tyrklandi í Þjóðadeildinni á Laugardalsvelli í kvöld.

Landsleikurinn fer fram í kvöld
Leikur Íslands og Tyrklands í Þjóðadeildinni fer fram í kvöld. Laugardalsvöllurinn var metinn leikhæfur af dómurum leiksins.

Logi fær sviðsljósið á miðlum UEFA
Logi Tómasson var maður föstudagskvöldsins og fær væntanlega sæti í byrjunarliði íslenska landsliðsins í leiknum á móti Tyrkjum á Laugardalsvellinum í kvöld.