Morðið á Hannesi Þór Helgasyni
1 2 3 4 5 … 5 ›
Farið fram á lengri gæslu Farið verður að öllum líkindum fram á framlengingu á gæsluvarðhaldi yfir Gunnari Rúnari Sigurþórssyni að sögn Friðriks Smára Björgvinssonar, yfirlögregluþjóns hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Gæsluvarðhaldið yfir Gunnari Rúnari rennur út í dag. Innlent 24.9.2010 06:00
Morðið í Hafnarfirði enn til rannsóknar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar enn morðið á Hannesi Þór Helgasyni, sem myrtur var í Hafnarfirði þann 15 ágúst síðastliðinn. Innlent 20.9.2010 13:27
Morð í Hafnarfirði: Enn beðið eftir niðurstöðum rannsókna Lögregla bíður enn eftir niðurstöðum úr sýnatöku af vettvangi í tengslum við morðið á Hannesi Þór Helgasyni. Fjölmörg sýni voru send til Svíþjóðar til rannsóknar en að sögn Friðriks Smára Björgvinssonar yfirlögregluþjónus vonast hann eftir niðurstöðu í vikunni. Innlent 13.9.2010 12:02
Óvíst hvort lífsýni finnist á meintu morðvopni Óvíst er hvort lífsýni finnist á veiðihnífnum sem lögregla telur að Gunnar Rúnar Sigurþórsson hafi notað til að bana Hannesi Þór Helgasyni. Hnífurinn var sendur til Svíþjóðar í gærkvöldi. Innlent 7.9.2010 12:07
Rannsaka hníf sem unglingar fundu í smábátahöfninni Lögregla rannsakar nú hníf sem fannst við smábátahöfnina í Hafnarfirði. Tveir 15 ára piltar gáfu sig fram við lögreglu um helgina og framvísuðu hnífi sem þeir höfðu fundið í smábátahöfninni í Hafnarfirði. Innlent 6.9.2010 14:36
Kafarar hafa hætt leit að morðvopninu - beðið eftir lífsýnum Að leita að morðvopninu í manndrapsmálinu í smábátahöfninni í Hafnarfirði er í raun eins og að leita að nál í heystakki. Morðvopnið er ófundið og kafarar munu ekki leita í dag. Innlent 6.9.2010 12:00
Unnusta Hannesar: Játning Gunnars gríðarlegt áfall „Ég er búin að vera að bíða eftir niðurstöðum úr þessu máli, hvort sem þetta hafi verið Gunnar eða einhver annar, en þetta eru þær verstu sem gátu verið," segir unnusta Hannesar Þórs Helgasonar sem var myrtur á heimili sínu 15. ágúst. Hún er einnig æskuvinkona Gunnars Rúnars Sigþórssonar, 23 ára gamals karlmanns, sem hefur nú játað á sig morðið. „En auðvitað er ég ánægð að það séu komin málalok." Innlent 6.9.2010 06:00
Engin haldbær sönnunargögn önnur en játning Engin haldbær óumdeild sönnunargögn virðast liggja fyrir í manndrápsmálinu í Hafnarfirði, sem lögregla er tilbúin að greina frá, önnur en játning Gunnars Rúnars Sigurþórssonar. Leit lögreglu að morðvopninu hefur engan árangur borið. Innlent 5.9.2010 18:30
Einbeittur ásetningur eða framið í ákafri geðshræringu? Morðvopnið sem Gunnar Rúnar Sigurþórsson notaði til að bana Hannesi Þór Helgasyni er enn ófundið. Í gær fannst fatnaður í smábátahöfninni í Hafnarfirði sem talið er að tilheyri Gunnari Rúnari. Innlent 5.9.2010 10:51
Morðvopnið ófundið - ekki lengur í einangrun Morðvopnið sem Gunnar Rúnar Sigurþórsson notaði til að bana Hannesi Þór Helgasyni er enn ófundið, að sögn Björgvins Björgvinssonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 5.9.2010 09:16
Fréttaskýring: Morðinginn hugfanginn af kærustu Hannesar Morðið á Hannesi Þór Helgasyni var sérstaklega hrottafengið og á sér líklega fá fordæmi í íslenskri réttarsögu. Ýmsar vísbendingar eru um að um ástríðuglæp hafi verið að ræða en banamaður Hannesar Þórs var afar hugfanginn af kærustu hans. Í þessari fréttaskýringu verður atburðarrásin rakin. Innlent 5.9.2010 08:08
Gunnar segist hafa kastað hnífnum í höfnina Gunnar Rúnar Sigurþórsson sem hefur játað að hafa orðið Hannesi Þór Helgasyni að bana hefur vísað lögreglunni á smábátahöfnina í Hafnarfirði þar sem hann segist hafa kastað morðvopninu. Innlent 4.9.2010 18:37
Gunnar Rúnar játar Gunnar Rúnar Sigurþórsson 23 ára gamall karlmaður úr Hafnarfirði hefur játað að hafa orðið Hannesi Þór Helgasyni að bana þann 15. ágúst síðastliðinn. Hann játaði að hafa orðið honum að bana í gær og í dag. Hann var einn að verki. Innlent 4.9.2010 17:40
Boða til blaðamannafundar vegna morðmálsins Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur boðað til blaðamannafundar klukkan hálf sex í dag. Innlent 4.9.2010 16:41
Lífsýnin skipta ekki sköpum í rannsókn lögreglu Bráðabirgðaniðurstöður úr DNA rannsókn á morðinu á Hannesi Þór Helgasyni eru ekki taldar skipta sköpum í rannsókn málsins. Frekari niðurstöður eru væntanlegar, svo sem á blóði sem fannst á skóm mannsins sem grunaður er um ódæðið. Innlent 3.9.2010 18:45
Hnífurinn í garðinum ekki morðvopnið Hnífurinn, sem fannst í Setberginu í Hafnarfirði og Vísir greindi frá í morgun, tengist ekki morðinu á Hannesi Þór Helgasyni sem var myrtur um miðjan ágúst. Innlent 2.9.2010 16:06
Hnífur fannst í garði - gæti verið morðvopnið Fjölskylda í Setberginu í Hafnarfirði fann hníf í bakgarðinum sínum í gærkvöldi og kom í hendurnar á lögreglunni. Samkvæmt heimildum Vísis fann íbúi hnífinn og spurðist fyrir hjá nágrönnum hvort þeir könnuðust við hann. Innlent 2.9.2010 10:39
Lögregla skoðar myndasafn í tengslum við morðið Fáeinum dögum eftir morðið á Hannesi Þór Helgasyni fékk lögregla afrit af myndasafni Víkurfrétta frá fjölskylduhátíð í Vogum sem fór fram kvöldið fyrir morðið. Á einni myndanna sést Hannes Þór standa einn fyrir aftan unnustu sína. Víkurfréttir greina frá þessu í dag. Þar segir ennfremur að lögregla hafi fengið aðgang að myndunum „með það fyrir augum að finna hugsanlegan morðingja á myndunum." Innlent 31.8.2010 19:56
Hæstiréttur staðfestir gæsluvarðhald yfir Gunnar Rúnari Hæstiréttur hefur staðfest fjögurra vikna gæsluvarðhaldsúrskurð héraðsdóms yfir Gunnari Rúnari Sigurþórssyni, 23 ára, sem grunaður er um að hafa orðið Hannesi Þór Helgasyni að bana á heimili hans aðfaranótt 15.ágúst síðastliðinn. Innlent 31.8.2010 11:57
Grunaður morðingi verður brátt yfirheyrður Sakborningur í morðmálinu í Hafnarfirði verður tekinn til yfirheyrslu síðar í þessari viku, að sögn Friðriks Smára Björgvinssonar, yfirlögregluþjóns á höfuðborgarsvæðinu. Hinn grunaði situr í gæsluvarðhaldi og einangrun á Litla-Hrauni. Innlent 31.8.2010 04:30
Var með unnustu Hannesar um nóttina Gunnar Rúnar Sigþórsson sem nú situr í gæsluvarðhaldi vegna gruns um að hafa orðið Hannesi Þór Helgasyni að bana, var með unnustu Hannesar nóttina örlagaríku. Hann var ekkert yfirheyrður um helgina Innlent 30.8.2010 19:00
Skófar og blóð ástæða gæsluvarðhalds Skófar á vettvangi morðsins í Hafnarfirði og blóð á sem fannst á skóm Gunnars Rúnars Sigurþórssonar, eru meginástæður þess að hann var úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald fyrir helgi samkvæmt fréttastofu Ríkisútvarpsins. Innlent 30.8.2010 15:48
Fundu blóð á skónum Blóð fannst á skóm í eigu Gunnars Rúnars Sigurþórssonar samkvæmt frétt Morgunblaðsins í dag. Þar segist blaðið hafa áreiðanlegar heimildir fyrir því. Innlent 30.8.2010 09:25
Gunnar Rúnar neitar sök Gunnar Rúnar Sigurþórsson neitar að hafa átt þátt í andláti Hannesar Þórs Helgason en Gunnar var úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald siðdegis í Héraðsdómi Reykjaness. Hann hefur áfrýjað úrskurðinum til Hæstaréttar. Innlent 27.8.2010 16:26
Gunnar Rúnar leiddur fyrir dómara - myndband Gunnar Rúnar Sigurþórsson var leiddur fyrir dómara í Héraðsdómi Reykjaness klukkan þrjú í dag. Þar var hann úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald sem rennur út 24. september næstkomandi. Innlent 27.8.2010 16:21
Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Gunnar Rúnar Sigurþórsson hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðahald í fjórar vikur vegna gruns um að hafa átt aðild að andláti Hannesar Þórs Helgasonar, sem var myrtur á heimili sínu 15. ágúst síðastliðinn. Innlent 27.8.2010 14:59
Morðrannsókn: Farið fram á gæsluvarðhald yfir grunuðum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur farið fram á gæsluvarðhald yfir manni á þrítugsaldri sem er grunaður um morðið á Hannesi Þór Helgasyni sem var ráðinn bani 15 ágúst. Innlent 27.8.2010 13:58
Morð í Hafnarfirði: Karlmaður að nýju í haldi lögreglu Karlmaður á þrítugsaldri er í haldi lögreglu vegna rannsóknarinnar á morðinu á Hannesi Helgasyni. Innlent 27.8.2010 12:02
Morðrannsókn: Húsleit hjá grunuðum manni Húsleit var framkvæmd í gærkvöldi heima hjá grunuðum manni, sem var handtekinn og yfirheyrður vegna morðmálsins í Hafnarfirði stuttu eftir að morðið var framið. Þetta kemur fram á fréttamiðlinum Pressan.is. Innlent 27.8.2010 10:45
„Þörfnumst þess að málið sé upplýst" Útför Hannesar Þór Helgasonar sem fannst myrtur á heimili sínu á sunnudaginn fyrir viku fór fram í dag. Fjöldi listamanna söng við afhöfnina. Kirkjan var þétt setin. Innlent 26.8.2010 18:42