Sveinn Waage

„Ekki koma heim!“ – köld kveðja frá verðtryggðu leikhúsi fáránleikans
Stundum afhjúpast ískaldur raunveruleikinn á óvæntum stöðum. Að vísu afhjúpast ótrúlegustu hlutir á þessum sama vettvangi eins og við þekkjum. En svo gerast þar hlutir sem segja okkur meira en annað. Afhjúpa ástand og afstöðu.

Ofurkraftur okkar allra
Húmor og hlátur er alþjóðlegt tungumál sem hefur þann ótrúlega hæfileika að leiða fólk saman og stökkva yfir menningarlegar og tungumála-hindranir. Húmor er einfalt en öflugt tæki sem við elskum flest fyrir getu sína til að lyfta okkur upp og skapa jákvæðar tilfinningar.

Krón-ískir landráðamenn
„Er ekki nefnilega borðleggjandi að þeir sem halda að þeir séu að vernda hagsmuni og viðhalda menningu Íslands með því að verja íslensku krónuna eru að vinna GEGN hagsmunum Íslands ekki öfugt? Eru þeir ekki frekar landráðamenn, en þeir sem benda á alsnakinn keisarann hrunadansandi í alelda seðlabanka?“

Sameinumst og skerum meinið burt!
Stundum dettur maður óvart í „Lennon-íska“ trú á mannkynið og þá er um að gera að nýta það áður en ískaldur raunveruleikinn sparkar manni til baka í febrúar-slabbið.

Sólveig Anna og Trump
Ok, ok, ok... áður en heykvíslar þöggunatilburða með meinta kvenfyrirlitningu miðaldra karlmanns i forréttindastöðu fara á loft; leyfið mér að útskýra af hverju þessu ólíku nöfn eru hér hlið við hlið.

Má ég vera feitur?
Ef það er einhver aðkallandi umræða sem erfitt reynist að tækla þá er það slagurinn um offituna.

Drep-fyndin kynferðisleg áreitni
Eins dásamlegur og Húmorinn er í lífinu er hann einnig ótrúlega öflugt tól til varnar áreitni, áföllum og sjokki. Þetta styðja ítrekaðar rannsóknir og dæmi.

Hefjum störf breytir lífi fólks: Þakkir og hvatning til Vinnumálastofnunnar
Merkilegt hvernig mismunandi hlutir sitja eftir úr skólagöngunni. Á meðan ótrúlega lítið situr eftir af algebrunni urðu önnur atriði naglföst í langtímaminninu. Eitt af því sem sat eftir úr framhaldsskólanum á síðustu öld var eldfim umræða í sálfræði 203 um hvaða atburðir í lífi fólks hefði mestu áhrif andlega á það til langframa.

Samskiptin skipta öllu máli
„Það er ekki hvað þú segir heldur hvernig þú segir það“, er ein af þessum línum sem við könnumst við úr ýmsum áttum. Án þess að eiga langan feril í leiklist, skilst mér að þetta sé einmitt lykilatriði í þeirri mögnuðu listgrein. Í húmor skiptir þetta öllu máli, ekki satt? Saklaus setning getur orðið fyndin, klúr og alls konar, með svipbrigðum, áherslum og látbragði. Eigum við ekki að sannmælast um að við þekkjum þetta flest.

Komdu fagnandi til Eyja
Já, ég er Eyjamaður. Fæddur og uppalinn í Vestmannaeyjum og nú 50 árum seinna finnst mér enn þá að ég hafi svolítið unnið í fæðingarstaðar-lottóinu. Á erfitt með að ímynda mér betri stað að alast upp á.

Ég er Eiður Smári
Við Íslendingar erum sérstakir um marga hluti en á sama tíma erum við líka eins og flestir aðrir. Afsakið mótsögnina. Súrsætt samband okkar við áfengi er mjög gott dæmi.
