Bylgjan

Fréttamynd

Verðkröfur stjórn­valda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá

Framkvæmdastjóri samtaka frumlyfjafyrirtækja á Íslandi segir verðkröfur stjórnvalda fæla erlend lyfjafyrirtæki frá því að markaðssetja lyf hér á landi. Ísland teljist örmarkaður á þessu sviði og öll Norðurlöndin myndi saman um fimm prósent af lyfjamarkaði Evrópu.

Innlent
Fréttamynd

„Við erum ekkert að biðja um ein­hverja sér­með­ferð“

Unnur Brá Konráðsdóttir, sveitarstjóri í Borgarbyggð, hefur kært menntamálaráðuneytið og Miðstöð menntunar og skólaþjónustu fyrir að neita að afhenda sveitarfélaginu niðurstöður úr PISA-könnunum. Hún segir það skjóta skökku við að ráðuneytið afhendi stærstu sveitarfélögunum slíkar upplýsingar en ekki minni sveitarfélögum á landsbyggðinni.

Innlent
Fréttamynd

Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengi­sandi

Fádæma góðir gestir verma sætin í hljóðverinu á Sprengisandi í dag. Fjörutíu ár eru liðin frá Höfðafundinum og skærur í verkalýðshreyfingunni eru meðal umfjöllunarefna þáttarins í stjórn Páls Magnússonar sem hefst klukkan tíu.

Innlent
Fréttamynd

Þurfi að bæta eftir­lit í stað þess að meina au pair að­gang

Harpa Söring Ragnarsdóttir hefur hýst fjölda au pair-stúlkna, til að mynda frá Filippseyjum, og segir aðstoð þeirra hafa gjörbreytt heimilislífinu til hins betra. Lítið sem ekkert eftirlit hafi verið með au pair, sem ætti að bæta í stað þess að banna komu filippseyskra stúlkna alveg.

Innlent
Fréttamynd

Sam­tökin séu ekki í bar­áttu gegn einkabílnum

Nýr formaður Samtaka um bíllausan lífsstíl segir samtökin alls ekki vilja þrengja að gegn einkabílnum heldur sé tilgangur samtakanna að gera það auðveldara að velja að vera bíllaus. Sumir gætu sleppt því að kaupa fleiri bíla á heimilið og skoðað það frekar að kaupa gott hjól í staðinn.

Innlent
Fréttamynd

„Sorg­legt að þetta sé staðan“

Dómsmálaráðherra segir hótanir í garð ráðamanna vera ömurlegt frávik frá því sem að öðru leyti einkenni íslenskt samfélag. Hún sé sjálf meðal þeirra ráðamanna sem hafi borist hótanir. 

Innlent
Fréttamynd

Efna­hags­málin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengi­sandi

Sprengisandur er á sínum stað á Bylgjunni í dag en þar fær Páll Magnússon þáttastjórnandi til sín góða gesti og ræðir við þá samfélagsmálin sem brenna á þjóðinni. Að vanda er dagskráin fjölbreytt en þáttur dagsins einkennist af alvöru og gamni.

Innlent
Fréttamynd

Allir gengu út af tón­leikunum: „Ég fór heim og grét“

„Ég var komin á fjórða lag og þá fer fólk að týnast úr salnum þangað til að hann er alveg tómur. Þetta var óþægileg tilfinning, ég þurfti að halda áfram, klára lagið og svo þurftum við að pakka öllu saman og fara. Ég fór heim og ég bara grét,“ segir tónlistarkonan Brynja Valdimarsdóttir um mjög mótandi lífsreynslu fyrir tæpum tveimur árum. Erfiðleikarnir urðu til þess að hún fékk nokkurs konar hugljómun og fann aukna trú á sjálfri sér.

Tónlist
Fréttamynd

Á­huga­málunum for­gangs­raðað framar náminu

Grunnskólakennari telur að íslenskt samfélag hafi misst sjónar á því hvað skólinn standi fyrir. Námið sé aftast í forgangsröðun heimilisins og kallar hún eftir því að foreldrar sýni jafn mikla ástríðu fyrir náminu og á hliðarlínunni á Símamótinu.

Innlent
Fréttamynd

Gæti þaggað niður í röddum lands­byggðarinnar

Forseti sveitarstjórnar Múlaþings segir að nýjar tillögur um að færa þingsæti á milli kjördæma geti þaggað niður rödd heilu byggðasvæðanna. Það að öll atkvæði gildi jafnt sé ekki endilega sanngjarnt.

Innlent
Fréttamynd

„Það kom babb í bátinn í Hafnarfjarðarhöfn“

Stjórnarformaður Tækniskólans telur að Hafnarfjarðarbær þurfi að standa undir tjóni sem verður af því að skólinn fékk ekki lóð í Hafnarfirði. Fjölmörg sveitarfélög hafa boðað fram aðstoð, þar á meðal Reykjavíkurborg.

Innlent
Fréttamynd

Snúist um dóm­greind frekar en gervi­greind

Snæbjörn Ragnarsson, tónlistarmaður og sköpunarstjóri á auglýsingastofunni Pipar TBWA, segir gervigreind vera gagnlegt tól í hönnunarvinnu en hún eigi ekki að koma að lokaafurð hönnunarinnar. Umræðan sé strembin en enn eigi almenningur eftir að átta sig á því hvað gervigreind raunverulega sé.

Innlent
Fréttamynd

Per­sónu­leg Vala Matt opnar sig um einka­lífið

Tvöhundraðasti þátturinn af Heimsókn með Sindra Sindrasyni fer í loftið í kvöld og kíkir hann þar til fjölmiðlakonunnar Valgerðar Matthíasdóttur, sem landinn þekkir sem Völu Matt. Hún hefur haldið einkalífi sínu fyrir sig síðustu fjörutíu árin og sýnir loks á sér nýja persónulegri hlið í þættinum.

Lífið
Fréttamynd

Ó­líkt hafast þeir að for­setarnir fyrr­verandi

Guðni Th. Jóhannesson, fyrrverandi forseti lýðveldisins og prófessor í sagnfræði, hefur tekist á hendur mikið verk sem er að skrásetja hvað gekk á í þorskastríðunum. Að efni til kallast bókin óbeint á við nýafstaðna þjóðaratkvæðagreiðslu. Guðna finnst þægilegt að fela sig í fortíðinni öfugt við annan fyrrverandi forseta sem heitir Ólafur Ragnar Grímsson. Honum finnst hann enn fulltrúi afla sem hann er ósammála og geti því ekki tjáð sig fyrirvaralaust.

Lífið
Fréttamynd

Túlkunar­at­riði hvað eigi að gera við um­sóknina

Stjórnmálafræðingur og prófessor í fjölmiðlafræði segir óljóst hver eftirmál þjóðaratkvæðagreiðslunnar um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið eigi að vera. Þau eigi þó eftir að hafa áhrif á þingveturinn framundan.

Innlent
Fréttamynd

„Ó­harðnaðir ung­lingar sem kunna ekkert á lífið“

Fólki er misvel við máva en íbúar höfuðborgarsvæðisins segja margir farir sínar ekki sléttar af fuglunum og atgangi þeirra síðastliðnar vikur. Ekki sé við þá að sakast enda um svanga og óharðnaða unglinga að ræða, að sögn fuglafræðings. 

Innlent
Fréttamynd

„Ríkið á stóra sök á þessu“

Fyrsti fréttastjóri Stöðvar 2 segir það að hluta til sök ríkisins að kvöldfréttir Sýnar, áður Stöðvar 2, hafi verið lagðar niður. Staðan sé dapurleg.

Innlent
Fréttamynd

Afmælispartý Bylgjunnar í beinni

Útvarpsstöðin Bylgjan fagnar 40 ára afmæli í dag og verður tímamótunum fagnað í allan dag með sérstakri afmælisdagskrá. Gamalkunnir þáttastjórnendur snúa aftur í hljóðverið og fjölmargir gestir úr sögu stöðvarinnar líta við.

Lífið
Fréttamynd

Bylgjan heiðraði goð­sögnina Þor­geir

Útvarps- og tónlistarmaðurinn Þorgeir Ástvaldsson var heiðraður í vikunni fyrir framlag sitt til íslensks útvarps og einstakan þátt í sögu Bylgjunnar. Útvarpsstöðin fagnar fjörutíu ára afmæli sínu á morgun.

Lífið
Fréttamynd

Fyrstu tölur sýna lík­lega fleiri nei en já

Líklegt er að fyrstu tölur sem birtar verða úr þjóðaratkvæðagreiðslunni á laugardaginn muni sýna fleiri nei. Tölurnar munu líklega fyrst koma af landsbyggðinni þar sem fleiri ætla að segja nei, samkvæmt könnunum. Reykvíkingar eru líklegastir til að segja já.

Innlent