
Vegagerð

Siglufjarðarvegur færist um metra á ári
Siglufjarðarvegur færist að meðaltali um einn metra á ári í átt til sjávar. Mikil tilfærsla hefur orðið á veginum síðustu daga vegna mikillar úrkomu síðustu daga. Í gær og fyrradag mældist tilfærslan sjö sentímetra þar sem hún er sem mest.

Niðurstöðu um smíði nýrrar brúar yfir Ölfusá vænst á næstu dögum
Niðurstöðu um smíði nýrrar Ölfusárbrúar er vænst á næstu dögum, að sögn Sigurðar Inga Jóhannssonar fjármálaráðherra. Standist það gætu framkvæmdir hafist í haust og ný brú verið tilbúin eftir rúm þrjú ár.

Helsta nýframkvæmdin 2024 er endurheimt malarvega – telst það ekki innviðaskuld?
Eins og kunnugt er var blásið til mikilla hátíðarhalda þann 21. ágúst sl. þar sem forystumenn ríkisstjórnar og forráðafólk sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu kynntu enn eina uppfærsluna á samgöngusáttmála fyrir höfuðborgarsvæðið.

Geirsgata opnuð í báðar áttir á morgun
Opnað verður fyrir umferð um Geirsgötu í miðbæ Reykjavíkur í báðar áttir á nýjan leik á morgun. Lokað hefur verið fyrir akstur í aðra átt í einu síðan á fimmtudag í síðustu viku.

Hellisheiði lokuð að hluta á fimmtudag til föstudags
Hellisheiði verður lokuð til austurs við Þrengslavegamót frá því klukkan níu um morgun á fimmtudag til klukkan sjö föstudagsmorgun vegna malbikunarframkvæmda. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni.

Strandavegur í sundur og ferðamaður festi sig í flýti
Eftir úrhellisrigningu í nótt hafa fallið aurskriður á nokkrum stöðum á veginum norður í Árneshrepp. Vegagerðin vinnur að viðgerð á veginum í Veiðileysi þar sem hann grófst í sundur.

Refasveitarvegur
Vegagerðin fær miklar þakkir fyrir að leggja sléttan, breiðan og góðan veg um Refasveitina miðja frá þjóðvegi 1 að tveimur brúm yfir Laxá á Refasveit, nýja brú út á Skagaströnd en hina á veginum upp í Norðurárdal og þaðan yfir Biskupsleiti austur í Skagafjörð.

Ástand vega á Íslandi mikið áhyggjuefni
Bifhjólasamtök lýðveldisins, Sniglar, hafa boðað til opins fundar um vegakerfið og öryggi í húsnæði Colas í Hafnarfirðinum klukkan 19 í kvöld. Á fundinum verður rætt um umferðaröryggi og lagningu vega, en sagt er að ástand vega sé mikið áhyggjuefni. Fjöldi látinna og alvarlega slasaðra í umferðarslysum var 237 á síðasta ári.

Vegfarendum stafi hætta af auglýsingaskiltum
Vegagerðin segir auglýsingaskilti vera til þess gerð að draga athygli ökumanna frá akstrinum. Bjartir skjáir sem skipta á milli auglýsinga ótt og títt við gatnamót þar sem mikið er um að vera eru sérstaklega varhugaverð.

Heilmiklar skemmdir sem mun taka sinn tíma að gera við
Starfsmenn Vegagerðarinnar vinna nú hörðum höndum að viðgerð hringvegarins austan Skálmár, sem varð fyrir skemmdum vegna jökulhlaups í Mýrdalsjökli um helgina. Vegurinn eru verulega laskaður.

Frestun á afgreiðslu Samgönguáætlunar er fagnaðarefni
Ástand vega í Dalabyggð er bágborið í öllum samanburði við aðra landshluta og er þar efstur á blaði þessa dagana þjóðvegur 60, Vestfjarðarvegur í gegnum Dali. Nú er komin 22. júlí og ekki er enn farið að leggja slitlag á þá vegbúta sem slitlag var heflað ofan af í vor og þar með var „endurheimtur“ malarvegur á þeim köflum þjóðvegarins sem um ræðir.

„Ég hef ekki aðgang að vatni neins staðar annars staðar“
Eigandi sumarbústaðar í Vestur-Skaftafellssýslu kennir umdeildum garði um laka grunnvatnsstöðu í bústað sínum. Um er að ræða sama garð og hefur valdið því að gjöfult fiskveiðisvæði er upp urið.

„Alvarlega vanfjármögnuð“ í viðhaldinu
Forstjóri Vegagerðarinnar segir stofnunina alvarlega vanfjármagnaða þegar það kemur að viðhaldi vega. Ósamþykkt samgönguáætlun setur sömuleiðis strik í reikninginn.

Hefja viðgerðir á næstu dögum þrátt fyrir óvissuástand
Grindavíkurnefnd hyggst ráðast sem allra fyrst í framkvæmdir og viðgerðir í Grindavík svo að hægt verði að opna bæinn að fullu á nýjan leik þrátt fyrir óvissuástand á svæðinu.

„Litu bara á þetta eins og hefði verið keyrt á kind“
Hópur bifhjólamanna safnaðist saman á Korputorgi til að mótmæla slæmum skilyrðum fyrir akstur þeirra á vegum landsins. Hann krefst þess jafnframt að einhver axli ábyrgð á mistökum við vegagerð sem leiddu til banaslyss tveggja bifhjólamanna á Kjalarnesi árið 2020.

„Hættan fyrir vinnandi fólk er raunveruleg“
Hraðakstur á vinnusvæði við breikkun Reykjanesbrautar skapar mikla hættu fyrir vinnandi fólk. Um helmingur ökumanna virða ekki hraðatakmarkanir.

Segir fáránlegt að enginn axli ábyrgð á banaslysinu
Hópur mótorhjólamanna hefur efnt til mótmæla næstkomandi mánudag til að mótmæla því að enginn ætli að bera ábyrgð á mistökum við vegagerð, sem leiddu til banaslyss tveggja mótorhjólamanna á Kjalarnesi fyrir fjórum árum. Hópurinn ætlar að hittast á Korputorgi klukkan 19, aka saman upp á Kjalarnes, og stöðva þar hjólin á báðum akreinum í stutta stund í mótmælaskyni. Skipuleggjandi segir fáránlegt að enginn taki ábyrgð.

Sjá fyrir endann á tvöföldun Reykjanesbrautar að flugstöð
Hringtorg víkja fyrir mislægum gatnamótum á Reykjanesbrautinni til að stuðla að öryggi íbúa og vegfarenda. Með fyrirhuguðum framkvæmdum verður brautin tvöfölduð frá höfuðborgarsvæðinu og alla leið að Keflavíkurflugvelli.

Bjartmar ráðinn aðstoðarframkvæmdastjóri
Malbikstöðin hefur ráðið Bjartmar Stein Guðjónsson sem aðstoðarframkvæmdastjóra fyrirtækisins. Bjartmar er lögfræðingur að mennt og kemur yfir til Malbikstöðvarinnar frá Samtökum iðnaðarins, þar sem hann starfaði sem viðskiptastjóri á mannvirkjasviði.

Lokað frá Heklu að Nóatúni í hálfan mánuð
Laugavegi verður lokað í báðar áttir milli gatnamóta Nóatúns og Laugavegs og Laugavegs 172, þar sem bílaumboðið Hekla er til húsa. Veginum verður lokað frá og með 15. júlí út 29. júlí.

„Klæðingin er engin skítaredding“
Forstöðumaður samskiptadeildar Vegagerðarinnar segir klæðingu á vegum ekki skítareddingu. Vegakerfið á Íslandi væri ekki að meirihluta á bundnu slitlagi ef ekki væri fyrir hana. Það sem sé hamlandi sé að vegna fjármagns nái Vegagerðin ekki að sinna viðhaldi eftir þörf. Viðhaldsskuld í íslensku vegakerfi kosti líklega tugi eða hundrað milljarða.

„Hreint og klárt vistmorð sem hér á sér stað“
Bóndi í Landbroti í Vestur-Skaftafellssýslu lýsir miklum raunum í áratugalangri baráttu við kerfið, en á sem rennur um land hans er upp urin. Hrygningarfiskar í ánni eru flestir dauðir og útlitið er svart.

Býður þingmönnum að „fá hrollkaldan veruleikan í andlitið“
Almar Guðmundsson bæjarstjóri Garðabæjar vill bjóða þingmönnum og ráðherrum í útsýnisferð um Flóttamannaleiðina til að þeir fái að sjá hve slæmt ástandið á henni sé orðið.

Ein leið í og úr hverfinu dragi úr öryggi íbúa
Garðabær bíður núna eftir því að ná samkomulagi við Vegagerðina um endurbætur á Flóttamannaleiðinni svokölluðu. Til hefur staðið að tengja Urriðaholtsstræti og Holtsveg við veginn í tíu til fimmtán ár síðan að skipulag fyrir hverfið var gert. Eins og stendur er aðeins ein leið í og úr hverfinu.

„Við erum að klæða vegi sem eiga að vera malbikaðir“
Björk Úlfarsdóttir, umhverfis, gæða og nýsköpunarstjóri hjá Colas malbikunarfyrirtæki og formaður Félags kvenna í vegagerð segir klæðingu á vegi ekki alslæma en að malbikið sé betra. Klæðingu eigi að nota á umferðarminni vegi. Hún segir Vegagerðina ekki anna eftirspurn og viðhaldsskuldina aðeins aukast þegar hugsað er í skammtímalausnum.

Vestfirðingar segja ítrekuð svik í vegamálum óboðleg
„Áætlunum kollvarpað og staðan óboðleg,” er fyrirsögn ályktunar stjórnar Vestfjarðastofu þar sem lýst er miklum vonbrigðum með þá stöðu sem enn og aftur sé komin upp í samgönguframkvæmdum í fjórðungnum. Segir að verið sé að svíkja ítrekuð loforð ráðherra og þingmanna um að þær nýframkvæmdir sem ættu núna að vera á lokastigi yrðu kláraðar eins fljótt og mögulegt væri.

„Þetta er ekkert ódýrt, við tökum alveg undir það“
Hilmar Stefánsson, forstöðumaður almenningssamgangna hjá Vegagerðinni, segist taka undir með netverjum sem héldu því fram að verðlag strætóferða á landsbyggðinni væri of hátt. Hann segir að landsbyggðarferðir séu ekki ódýrar og að verðlagningarkerfi Vegagerðarinnar sé í heildarendurskoðunarferli.

Framkvæmdum ljúki „vonandi fyrir verslunarmannahelgi“
Vegagerðin stefnir að því að ljúka framkvæmdum við gatnamót Kringlumýrar- og Miklubrautar fyrir verslunarmannahelgi, þannig að umferð tefjist ekki lengur við þessi fjölförnustu gatnamót landsins.

Mögulegt að einhverjir stofnar séu þegar glataðir
Sviðsstjóri hjá Hafrannsóknarstofnun segir að ráðast þurfi í bráðaaðgerðir til að koma vatni í Grenlæk í Landbroti í Vestur-Skaftafellssýslu. Hann segir stöðuna sem þar er uppi grafalvarlega fyrir lífríkið, og að mögulega séu einhverjir stofnar þar þegar útdauðir.

Dauðir fiskar hrannast upp og kerfið gerir ekkert
Grenlækur í Landbroti hefur staðið á þurru á ellefu kílómetra kafla síðan í vor og meirihluti hrygningarfiska er dauður. Sonur landeigenda segir stöðuna grafalvarlega.