„Að öllu óbreyttu mun þjóðvegurinn fara í sundur“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 20. desember 2025 12:40 Einar Freyr Elínarson er sveitarstjóri Mýrdalshrepps. Einar Freyr Elínarson Sveitarstjóri Mýrdalshrepps kveðst vonsvikin vegna þess sem hann lýsir sem aðgerðarleysi stjórnvalda þegar það kemur að því að reisa sjóvarnir austan við Vík. Að öllu óbreyttu muni þjóðvegurinn fara í sundur að hans mati.
Mikill sjór gekk á land við Vík í Mýrdal á fimmtudag með þeim afleiðingum að flóð var við Vík og sunnan við þjóðveginn. Austan við Vík gekk sjór yfir þjóðveginn. Veðurfræðingur Vegagerðarinnar sagði í gær að svo virðist sem að breytingar hafi orðið á sandinum við strendur Víkur þannig að sjórinn á auðveldara með að ganga inn á land. Innviðir og þjóðvegur í bráðri hættu Einar Freyr Elínarson, sveitarstjóri Mýrdalshrepps, tekur fram að hann og íbúar séu verulega áhyggjufullir fyrir næstu dögum enda er spáð talsvert verra veðri á aðfangadag en var í vikunni. „Þarna eru auðvitað innviðir. Þjóðvegur og innviðir sveitarfélagsins sem eru í bráðri hættu. Staðan er sú að þarna er viðvarandi landrof og fjaran er alltaf að færast nær og nær. Að öllu óbreyttu mun þjóðvegurinn fara í sundur ef ekki verður brugðist við.“ Hann segir sveitarfélagið hafa barist fyrir sandfangara á svæðinu líkt og er við Vík í sex ár. „Þar sem að þeir eru er fjaran stöðug og það er ekkert landrof. Þetta er lausn sem við höfum ítrekað bent á og óskað að farið verði í. En því hefur verið hafnað.“ Samgönguáætlun hafi verið gífurleg vonbrigði Hann segir að bæði innviðaráðuneytið og Vegagerðin hafi bæði lýst því yfir að þjóðvegurinn sé ekki í hættu. Ekki var gert ráð fyrir úrbætum á svæðinu í nýrri samgönguáætlun. „Það voru gríðarleg vonbrigði og ég hef auðvitað átt samtöl við okkar þingmenn og innviðaráðherra. Ég vonast til þess að staðan í dag opni augu fólks fyrir því hversu nauðsynlegt það er að gera eitthvað. Það er svo langt frá því að þetta snúist bara um Vík í Mýrdal. Þarna erum við að tala um samgönguæð landsins.“ Frá Vík í Mýrdal á fimmtudag.Einar Freyr Elínarson Hann ítrekar að gífurlegir hagsmunir séu undir fyrir allt suðaustur- og Austurland. „Það er mjög óþægilegt þegar að fulltrúar Vegagerðarinnar koma fram og slá fram kostnaðartölum fyrir sjóvarnir sem ég veit ekki hvernig þeir fá út. Því núna hefur sveitarfélagið gert kostnaðarmat gerð nýs sandfangara. Ég bara hafna því að þessar aðgerðir þurfi að kosta marga milljarða eins og fulltrúar Vegagerðarinnar halda fram. Það er algjörlega skýrt að samkvæmt lögum um sjóvarnir þá ber að verja þetta svæði. Bæði þjóðveginn og skipulagt svæði við Vík.“
Vegagerð Mýrdalshreppur Samgöngur Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara Innlent Fleiri fréttir Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Sjá meira