Þýski boltinn
111 112 113 114 115 116 117 … 117 ›
Magath framlengir samning sinn Þýskalandsmeistarar Bayern Munchen hafa framlengt samning þjálfarans Felix Magath um eitt ár og mun hann því stýra liðinu út árið 2008. Magath hefur náð frábærum árangri með liðið síðan hann tók við því árið 2004 og hefur stýrt því til sigurs í bæði deild og bikar bæði tímabilin sem hann hefur verið við stjórn. Fótbolti 18.7.2006 16:43
Real og Bayern á höttunum eftir Nistelrooy Nú virðist sem Real Madrid ætli að veita Þýskalandsmeisturum Bayern Munchen samkeppni um hollenska framherjann Ruud Van Nistelrooy hjá Manchester United, en framtíð hans hjá enska félaginu virðist vera mjög óljós. Fótbolti 10.7.2006 15:49
Við höfum efni á Nistelrooy Forráðamenn Þýskalandsmeistara Bayern Munchen eru enn að gera hosur sínar grænar fyrir hollenska framherjanum Ruud Van Nistelrooy hjá Manchester United og í dag fullyrti yfirmaður knattspyrnumála hjá Bayern að félagið hefði vel efni á að kaupa Nistelrooy. Fótbolti 20.6.2006 14:22
Magath sáttur við tvo titla Felix Magath, stjóri Þýskalandsmeistara Bayern Munchen, segist afar sáttur við að hafa landað tveimur titlum í hús á leiktíðinni og þykir gagnrýnendur liðsins of grimmir þegar þeir velta sér upp úr því að liðið hafi fallið úr leik strax í 16-liða úrslitum meistaradeildarinnar. Sport 11.5.2006 20:49
Podolski á leið til Bayern Munchen Skærasta framtíðarstjarna Þjóðverja, hinn tvítugi sóknarmaður, Lukas Podolski er á leið til nýbakaðra meistara Bayern Munchen. Uli Höness, stjórnarformaður Bayern sem tryggði sér Þýskalandsmeistaratitilinn í gær segist í viðtali við þýska fjölmiðla í dag hafa náð samkomulagi við leikmanninn. Sport 7.5.2006 20:12
Bayern Munchen þýskur meistari Jafntefli gegn Kaiserslautern dugði Bayern Munchen til að tryggja sér þýska meistaratitilinn í knattspyrnu í dag. Helstu keppinautarnir, Hamburg SV töpuðu 4-2 á útivelli á sama tíma gegn Hertha Berlin og eru 6 stigum á eftir Bayern þegar ein umferð er eftir. Þetta er 20. meistaratitill Bayern Munchen. Sport 6.5.2006 15:49
Keisarinn lætur Ballack heyra það "Keisarinn" Franz Beckenbauer, forseti Bayern Munchen, lét Michael Ballack heyra það eftir úrslitaleikinn í bikarnum í Þýskalandi í gær, þar sem Bayern bar sigurorð af Frankfurt 1-0. Beckenbauer segir að Ballack sé í huganum þegar orðinn leikmaður Chelsea og var hundfúll með slaka frammistöðu þýska landsliðsmannsins í gær, rétt eins og í síðustu leikjum í úrvalsdeildinni. Sport 30.4.2006 20:20
Kahn ætlar að spila tvö ár í viðbót Þýski markvörðurinn Oliver Kahn hjá Bayern Munchen gaf það út í dag að hann ætli sér að spila í tvö ár til viðbótar með liðinu áður en hann leggur hanskana á hilluna. Kahn missti sæti sitt í þýska landsliðinu til hendur Jens Lehmann hjá Arsenal á dögunum, en ætlar ekki að láta það hafa áhrif á sig og segist muni verða til taks á HM ef Þýskaland þarf á honum að halda. Sport 29.4.2006 20:08
Bayern bikarmeistari Þýskalandsmeistarar Bayern Munchen tryggðu sér í dag bikarmeistaratitilinn þegar liðið lagði Frankfurt í úrslitaleik og er því í kjörstöðu til að vinna tvöfalt annað árið í röð, sem er nokkuð sem engu liði hefur áður tekist frá stofnun úrvalsdeildarinnar. Það var Perúmaðurinn Claudio Pizarro sem skoraði sigurmark Bayern á 59. mínútu. Sport 29.4.2006 20:01
Kemst Bayern í sögubækurnar? Þýskalandsmeistarar Bayern Munchen hafa sett stefnuna á að verða fyrsta liðið í sögu úrvalsdeildarinnar til að vinna bæði deild og bikar tvö ár í röð og á morgun gæti liðið tekið stórt skref í átt að þeim frábæra árangri með því að leggja Frankfurt í úrslitaleik bikarkeppninnar. Bayern er auk þess í lykilstöðu til að tryggja sér deildarmeistaratitilinn í 20. skipti og gæti í besta falli tryggt sér hann í næstu viku. Sport 28.4.2006 14:53
Bayern í úrslitin Þýskalandsmeistarar Bayern Munchen tryggðu sér í kvöld sæti í úrslitaleik þýsku bikarkeppninnar þegar liðið lagði smálið St.Pauli 3-0 í undanúrslitunum. Owen Hargreaves kom Bayern yfir á 15. mínútu leiksins og það var svo Claudio Pizarro sem innsiglaði sigurinn með tveimur mörkum á fimm mínútum undir lok leiksins. Bayern mætir Frankfurt í úrslitaleik keppninnar um mánaðarmótin. Sport 12.4.2006 21:19
Ballack fer til Chelsea vegna peninganna Uli Hoeness hjá Bayern Munchen segir að ef Michael Ballack kjósi að ganga til liðs við Chelsea í sumar eins og allt útlit er fyrir, sé það aðeins vegna þess að hann sé að eltast við peninga. Sport 11.4.2006 17:49
Bremen burstaði Bayern Baráttan um Þýskalandsmeistaratitilinn í knattspyrnu opnaðist nokkuð í dag þegar Werder Bremen vann 3-0 sigur á meisturum Bayern Munchen á heimavelli sínum. Bastian Schweinsteiger skallaði boltann í eigið net eftir hálftíma leik og Daninn Daniel Jensen og Tim Borowski bættu við tveimur mörkum undir lokin til að fullkomna slæma viku fyrir Oliver Kahn, markverði Bayern. Sport 8.4.2006 18:39
Við viljum enga Beckham-týpu í stað Ballack Felix Magath er alveg með það á tæru hvernig leikmann Bayern Munchen þurfi til að fylla skarð Michael Ballack í liðinu ef hann fer til Chelsea í sumar eins og altalað er. Magath segist ekki þurfa neinn David Beckham í lið Bayern, heldur baráttuhund sem búi yfir sæmilegum hæfileikum. Sport 22.3.2006 19:43
Gunnar Heiðar til Hannover Landsliðsframherjinn Gunnar Heiðar Þorvaldsson hefur gengið frá þriggja ára samningi við þýska úrvalsdeildarliðið Hannover og gengur til liðs við félagið í sumar. Þetta kemur fram á heimasíðu sænska liðsins Halmstad í dag, en vitað var að Gunnar væri í viðræðum við félag í þýsku úrvalsdeildinni. Sport 21.3.2006 18:18
Bayern vantar leiðtoga Fyrrum landsliðsmaðurinn Lothar Matthaus er ekki í vafa um hvað lið Bayern Munchen þarf að gera til að fylla skarð Michael Ballack sem að öllum líkindum gengur í raðir Chelsea í sumar. Matthaus telur að Bayern eigi að leita sér að leiðtoga - ekki hæfileikamanni. Sport 17.3.2006 14:51
Getum ekki keppt við Chelsea Uli Hoeness hefur viðurkennt að þýsku meistararnir Bayern Munchen eigi ekki möguleika á að keppa við Chelsea um Michael Ballack, en talið er víst að Ballack gangi í raðir Chelsea á næstu misserum. Sport 15.3.2006 14:36
Ég dáist að Jurgen Klinsmann Jose Mourinho, stjóri Chelsea, segist vera mikill aðdáandi hins umdeilda landsliðsþjálfara Þjóðverja, Jurgen Klinsmann og í viðtali við þýska blaðið Bild, sagði Portúgalinn að Klinsmann væri hugaður maður sem væri óhræddur við að tefla fram ungum leikmönnum. Sport 14.3.2006 15:50
Farinn að leita að eftirmanni Michael Ballack Felix Magath, stjóri Bayern Munchen, segist vera búinn að sætta sig við að Michael Ballack fari frá félaginu í sumar og segir að enginn maður í herbúðum liðsins nú geti fyllt það skarð sem hann skilur eftir sig sem leiðtogi á vellinum. Sport 7.3.2006 17:01
Mönchengladbach upp um 3 sæti í það sjötta Borussia Mönchengladbach lyfti sér upp um þrjú sæti og í það sjötta með 2-0 sigri á Arminia Bielefeld í þýsku Bundesligunni í fótbolta í dag en tveir leikir fóru þá fram. Þá skildu Eintracht Frankfurt og Wolfsburg jöfn, 1-1. Bayern Munchen er efst í deildinni þrátt fyrir ósigur á heimavelli í gær fyrir Hamburg, eru með 58 stig en Werder Bremen, sem gerði 1-1 jafntefli við Bayer Leverkusen er í 2. sæti með 50 stig. Mönchengladbach er með 33 stig í 6. sætinu. Sport 5.3.2006 20:40
Klinsmann kallaður á teppið í þinginu Jurgen Klinsmann, landsliðsþjálfari Þjóðverja í knattspyrnu gæti þurft að mæta inn á teppið í þýska þinginu á næstu dögum og ekki af góðu. Þingmenn þar í landi eru órólegir í kjölfar þess að þýska landsliðið var tekið í bakaríið af Ítölum í vináttulansleik í vikunni þar sem úrslitin urðu 4-1 fyrir smjörgreiddu súkkulaðistrákana. Sport 5.3.2006 16:08
Loks tapaði Bayern Munchen á heimavelli Bayern Munchen tapaði sínum fyrsta heimaleik á tímabilinu í þýska Bundesligunni í fótbolta í dag þegar Hamburger SV kom í heimsókn til Munchen og vann 1-2 útisigur. Hollendingurinn Nigel de Jong skoraði sigurmarkið á 89. mínútu eftir að Memeth Scholl hafði jafnað metin fyrir heimamenn, 6 mínútum áður. Sport 4.3.2006 19:44
Ballack til Chelsea? Breskir fjölmiðlar hafa mikið fjallað um að Chelsea sé að undibúa stórt samningstilboð handa Michael Ballack hjá Bayern Munchen, en hann verður samningslaus í sumar. Leikmaðurinn sjálfur, sem og umboðsmaður hans vilja þó ekkert kannast við þessar fréttir. Sport 28.2.2006 16:26
Bayern á siglingu Meistarar Bayern Munchen létu vonbrigðin gegn AC Milan í meistaradeildinni í vikunni ekki hafa áhrif á sig í dag þegar liðið malaði Frankfurt 5-2 og vann þar með 11. heimaleikinn í röð í deildinni. Michael Ballack og Paolo Guerrero skoruðu tvö mörk hvor og Claudio Pizzaro eitt og Bayern hefur þægilega forystu á toppi deildarinnar. Sport 25.2.2006 20:03
Trapattoni rekinn frá Stuttgart Ítalski knattspyrnustjórinn Giovanni Trapattoni hefur verið rekinn úr starfi hjá þýska úrvalsdeildarliðinu Stuttgart eftir aðeins 8 mánuði í starfi. Það verður fyrrum þjálfari Hansa Rostock, Armin Veh, sem tekur við liðinu í hans stað. Sport 10.2.2006 18:04
Ballack skoraði eina markið Michael Ballack tryggði Bayern Munchen 1-0 sigur á Bayer Leverkusen í þýsku Bundesligunni í knattspyrnu í dag og nægði markið til að halda Þýskalandsmeisturunum í 8 stiga fjarlægð á toppi deildarinnar. Werder Bremen hélt í 2. sætið eftir 4-2 sigur á gestunum, Keflavíkurbönunum í Mainz sem komust 2-0 yfir. Hamburg SV vann 2-1 sigur á Arminia Bielefeld og er í 3. sæti með 41 stig. Sport 4.2.2006 17:56
Ballack fær engan draumasamning Forráðamenn Bayern Munchen láta nú í það skína að litlir peningar verði handbærir til að bjóða Michael Ballack risasamning, en núverandi samningur hans rennur út í sumar. Ballack hefur fram að þessu ekki viljað ræða nýjan samning og hefur verið orðaður við lið á Englandi og á Spáni. Sport 30.1.2006 14:27
Bayern fjölgar sætum á heimavelli sínum Þýsku meistararnir í Bayern Munchen hafa ákveðið að bæta við rúmum 3.000 sætum á heimavöll sinn Allianz Arena fljótlega og því mun völlurinn taka við tæplega 70.000 manns á næstunni. Þetta var ákveðið eftir að uppselt var á tólf heimaleiki liðsins í röð í vetur. Breytingarnar eru ekki fyrirhafnarmiklar og því var ákveðið að ráðast í framkvæmdirnar strax. Sport 9.1.2006 17:05
Schalke ræður nýjan þjálfara Þýska úrvalsdeildarliðið Schalke tilkynnti í dag að aðstoðarþjálfari liðsins, Mirko Slomka, hefði verið gerður að nýjum aðalþjálfara liðsins eftir að Ralf Rangnick var rekinn á dögunum. Schalke er í fjórða sæti í þýsku úrvalsdeildinni, en þar á bæ eru kröfurnar miklar um árangur. Sport 4.1.2006 15:52
Augenthaler tekinn við Wolfsburg Fyrrum landsliðsmaðurinn Klaus Augenthaler hefur verið ráðinn þjálfari þýska úrvalsdeildarliðsins Wolfsburg, en samningurinn gildir út árið 2007. Augenthaler tekur við af Holger Fach sem var rekinn fyrir jólin, en hann stýrði áður liði Bayer Leverkusen. Sport 29.12.2005 20:28