Þýski boltinn
109 110 111 112 113 114 115 116 117 … 117 ›
Babbel íhugar að hætta Þýski miðjumaðurinn Markus Babbel hjá Stuttgart segist vera að íhuga að leggja skóna á hilluna vegna meiðsla. Babbel lék á árum áður með Liverpool og Blackburn og varð Evrópumeistari með Þjóðverjum árið 1996. Babbel er 34 ára gamall og á að baki 51 landsleik. Fótbolti 19.1.2007 10:36
Sebastian Deisler leggur skóna á hilluna Þýski miðjumaðurinn Sebastian Deisler hjá Bayern Munchen hélt blaðamannafund í morgun þar sem hann tilkynnti að hann væri hættur að leika knattspyrnu, aðeins 27 ára að aldri. Deisler þótti einhver efnilegasti leikmaður Þýskalands á sínum tíma en hefur aldrei náð ferlinum á fullan skrið vegna meiðsla og þunglyndis. Hann sagðist hætta því hann hefði einfaldlega ekki gaman af að spila fótbolta lengur. Fótbolti 16.1.2007 13:46
Bayern hefur áhuga á Robben Forráðamenn þýska félagsins Bayern Munchen hafa gefið það upp að þeir hafi mikinn áhuga á að fá til sín hollenska vængmanninn Arjen Robben hjá Chelsea. Þessar fréttir komu upp úr kafinu í kjölfar þess að Chelsea er sagt hafa blandað sér í hóp þeirra liða sem vilja fá Owen Hargreaves frá Bayern. Fótbolti 12.1.2007 12:27
Atouba enn til vandræða Kamerúninn Timothee Atouba hjá þýska liðinu Hamburg er enn og aftur búinn að koma sér í ónáð hjá forráðamönnum félagsins og var í dag sendur heim úr æfingaferðalagi liðsins í Dubai. Fótbolti 11.1.2007 19:57
Klose vill ekki fara hvert sem er Þýski landsliðsframherjinn Miroslav Klose segir aðeins fimm félög koma til greina fyrir sig ef hann ákveði að yfirgefa herbúðir Werder Bremen í sumar eins og flestir reikna með. Klose hefur verið orðaður við fjölda stórliða eftir að ljóst varð að hann ætlaði ekki að framlengja við Bremen. Fótbolti 10.1.2007 18:57
Bayern hefur augastað á Ribery Uli Hoeness, framkvæmdastjóri Bayern Munchen, segist hafa komist að samkomulagi við forseta franska félagsins Marseille þess efnis að hann verði látinn vita ef kantmaðurinn Franck Ribery verði seldur. Bayern er eitt fjölmargra stórliða í Evrópu sem hafa mikinn áhuga á að fá leikmanninn í sínar raðir. Ribery er 23 ára gamall franskur landsliðsmaður og þótti standa sig vel á HM í sumar. Fótbolti 8.1.2007 16:33
Hargreaves er falur fyrir 20 milljónir punda Sápuóperunni í kring um enska landsliðsmanninn Owen Hargreaves hjá Bayern Munchen er hvergi lokið og í dag sagði forseti Bayern, Franz Beckenbauer, að félagið myndi ekki íhuga að selja hann fyrr en það fengi 20 milljón punda tilboð í leikmanninn. Fótbolti 5.1.2007 14:02
Diego bestur í Þýskalandi Brasilíski miðjumaðurinn Diego hjá Werder Bremen hefur verið kjörinn besti leikmaðurinn á fyrri helmingi keppnistímabilsins í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu en það var tímaritið Kicker sem stóð fyrir könnuninni og spurði leikmenn í deildinni álits. Fótbolti 2.1.2007 19:29
Söknum Ballack ekki neitt Karl-Heinz Rummenigge, stjórnarformaður Bayern Munchen, segir að félagið sakni miðjumannsins Michael Ballack ekki neitt og segir þá gagnrýni sem liðið hefur orðið fyrir undanfarið vera alveg þá sömu og á síðasta ári þegar þýski landsliðsmaðurinn var í herbúðum liðsins. Fótbolti 19.12.2006 16:01
Röber tekur við Dortmund Jurgen Röber, fyrrum þjálfari Stuttgart og Wolfsburg, var í dag ráðinn þjálfari þýska úrvalsdeildarliðsins Dortmund í stað Hollendingsins Bert van Marwijk sem rekinn var í gær. Dortmund er í miklum fjárhagserfiðleikum og því bíður Röber erfitt verkefni hjá stórliðinu. Fótbolti 19.12.2006 14:22
Hargreaves til sölu? Uli Hoeness, framkvæmdastjóri Bayern Munchen, hefur nú látið í veðri vaka að Owen Hargreaves gæti farið frá félaginu í framtíðinni, en aðeins ef félagið gæti fengið mann í staðinn á viðráðanlegu verði. Hann segir þó að liðið þurfi á enska landsliðsmanninum að halda í næstu umferð Meistaradeildarinnar þegar hann verði búinn að ná sér af meiðslum. Enski boltinn 19.12.2006 13:47
Hitzfeld hafnaði Dortmund Ottmar Hitzfeld hefur hafnað tilboði þýska úrvalsdeildarliðsins Dortmund um að taka við þjálfun þess, en félagið hefur þegar tilkynnt að sitjandi þjálfari Bert van Marwijk hætti með liðið í vor. Hitzfeld segist ætla að einbeita sér að því að vinna fyrir sjónvarp í nánustu framtíð, en hann gerði Dortmund að Evrópumeisturum fyrir um áratug síðan. Fótbolti 18.12.2006 15:34
Schalke á toppinn Schalke komst í dag á toppinn í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu þegar liðið lagði Bielefeld 1-0 á útivelli með marki frá varamanninum Zlatan Bajramovic og Bayern Munchen burstaði Mainz 4-0 með mörkum frá Hasan Salihamidzic, Roy Makaay, Claudio Pizarro og Bastian Schweinsteiger. Bremen á leik til góða gegn Wolfsburg á morgun. Fótbolti 16.12.2006 17:33
Hargreaves er ekki að skapa sér vinsældir Karl-Heinz Rummenigge, yfirmaður knattspyrnumála hjá Þýskalandsmeisturum Bayern Munchen, hefur varað enska landsliðsmanninn Owen Hargreaves við sífelldum yfirlýsingum sínum um að hann vilji fara til Manchester United. Fótbolti 15.12.2006 18:15
Deisler meiddur enn og aftur Miðjumaðurinn Sebastian Deisler hjá Bayern Munchen spilar ekki meira með liðinu fyrr en eftir vetrarhlé í deildinni eftir að hann reif vöðva í læri á æfingu í dag. Landsliðsmaðurinn hefur aldrei náð sér almennilega á strik með liðinu og hefur þurft í fimm uppskurði á hné vegna þrálátra meiðsla. Fótbolti 13.12.2006 18:32
Marwijk hættir hjá Dortmund Þýska knattspyrnufélagið Dortmund hefur tilkynnt að þjálfari liðsins Bert van Marwijk muni láta af störfum í lok leiktíðar í vor en þetta er aðeins eitt atvik í röð furðufrétta frá Dortmund á undanförnum mánuðum. Þetta stóra félag berst nú í bökkum fjárhagslega og er í alla staði skugginn af sjálfu sér. Fótbolti 11.12.2006 20:02
Schalke upp að hlið Bremen Schalke komst í dag upp að hlið Werder Bremen á toppi þýsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu þegar liðið lagði granna sína í Dortmund 3-1. Kevin Kuranyi, Peter Lovenkrands og Christian Pander skoruðu mörk Schalke sem hefur 33 stig á toppnum líkt og Bremen. Ein umferð er nú eftir af þýsku úrvalsdeildinni fyrir vetrarhlé. Fótbolti 10.12.2006 19:34
Naldo með þrennu í stórsigri Bremen Leikmenn Werder Bremen voru ekki lengi að hrista af sér vonbrigðin í Meistaradeildinni í vikunni þegar liðið malaði Frankfurt 6-2 á útivelli í þýsku úrvalsdeildinni í dag. Brasilíski varnarmaðurinn Naldo skoraði þrennu fyrir Bremen. Stuttgart lagði Bochum 1-0 og Bayern lagði Cottbus 2-1 með mörkum frá Schweinsteiger og Van Buyten. Fótbolti 9.12.2006 20:34
Klose með þrennu fyrir Bremen Werder Bremen gaf tóninn af því sem koma skal í stórleiknum gegn Barcelona í Meistaradeildinni á þriðjudag með því að bera sigurorð af Herthu Berlin, 3-1, í þýsku úrvalsdeildinni í dag. Sigurinn fleytir Bremen í toppsæti deildarinnar en Miroslav Klose skoraði öll mörkin. Fótbolti 2.12.2006 17:09
Hargreaves spilar ekki fyrr en eftir áramót Enski landsliðsmaðurinn Owen Hargreaves hjá Bayern Munchen segist ekki muni spila meira með liði sínu á árinu, en hann er að jafna sig eftir fótbrot í september. Hann útilokar ekki að ganga í raðir Manchester United í janúar. Fótbolti 30.11.2006 14:52
Framtíð Klose óráðin Framtíð þýska landsliðsframherjans Miroslav Klose hjá Werder Bremen virðist alfarið vera óráðin, en bæði leikmaðurinn og forráðamenn liðsins viðurkenna að til greina komi að hann fari frá félaginu. Klose er 28 ára gamall og var markahæsti leikmaður HM í Þýskalandi í sumar, en vitað er af áhuga fjölda liða í Evrópu á þessum sterka framherja. Fótbolti 29.11.2006 15:01
Stuttgart í þriðja sæti Stuttgart smellti sér í þriðja sæti þýsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í kvöld með 1-0 sigri á Gladbach. Það var framherjinn Cacau sem skoraði eina mark leiksins og hefur Gladbach aðeins náð í eitt stig í síðustu sjö leikjum sínum. Leverkusen lyfti sér af mesta fallsvæðinu með 3-1 sigri á Cottbus. Fótbolti 26.11.2006 21:51
Bayern lagði Stuttgart í toppslagnum Bayern Munchen unnu góðan sigur á Stuttgart í þýsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag, 2-1, eftir að hafa lent undir strax á 8. mínútu leiksins. Við tapið féll Stuttgart af toppi deildarinnar en þar situr nú Schalke eftir 4-2 sigur á Engergie Cuttbus. Fótbolti 18.11.2006 17:54
Óhagstætt að selja Hargreaves Karl-Heinz Rummenigge, stjórnarformaður Þýskalandsmeistara Bayern Munchen, segir að félagið vilji ekki selja enska landsliðsmanninn Owen Hargreaves því skattalög í landinu geri það að verkum að það hreinlega borgi sig ekki. Fótbolti 16.11.2006 17:40
Bayern ætlar að versla í sumar Karl-Heinz Rummenigge, stjórnarformaður Bayern Munchen, segir félagið tilbúið að eyða háum fjárhæðum til leikmannakaupa í sumar og á von á að heimsklassa leikmaður verði keyptur til félagsins fyrir allt að 30 milljónir evra. Fótbolti 15.11.2006 16:37
Deisler í liði Bayern á ný Sebastian Deisler verður í liði Bayern Munchen í fyrsta skipti í átta mánuði um helgina þegar meistararnir mæta Stuttgart í úrvalsdeildinni. Deisler hefur verið frá vegna hnémeiðsla, en þessi fyrrum landsliðsmaður Þjóðverja hefur verið óheppinn með meiðsli allan sinn feril og þjáist einnig ef þunglyndi. Fótbolti 15.11.2006 16:22
Stuttgart á toppinn Stuttgart skellti sér í toppsætið í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag þegar liðið lagði félaga Gunnars Heiðars Þorvaldssonar í Hannover 2-1 á útivelli, eftir að hafa lent undir 1-0. Þetta er í fyrsta sinn í meira en tvö ár sem Stuttgart nær á toppinn í deildinni. Fótbolti 12.11.2006 21:08
Bayern lagði Leverkusen í æsilegum leik Þýskalandsmeistarar Bayern Munchen voru hætt komnir í viðureign sinni við Leverkusen í úrvalsdeildinni í dag, en eftir að hafa lent undir 2-1 þegar 10 mínútur lifðu leiks, náðu meistararnir að snúa leiknum sér í hag og vinna 3-2 á útivelli. Fótbolti 11.11.2006 21:07
Bayern tapaði fyrir botnliðinu Þýskalandsmeistarar Bayern Munchen töpuðu mjög óvænt 1-0 fyrir botnliði Hannover í þýsku úrvalsdeildinni í kvöld. Það var Szabolcs Huszti sem skoraði mark félaga Gunnars Heiðars Þorvaldssonar eftir varnarmistök Bayern, sem er nú sex stigum á eftir toppliði Werder Bremen. Stuttgart er í öðru sætinu eftir 2-0 sigur á Hamburg í gær. Fótbolti 8.11.2006 23:52
Hargreaves byrjaður í endurhæfingu Enski landsliðsmaðurinn Owen Hargreaves hjá Þýskalandsmeisturum Bayern Munchen er nú byrjaður í endurhæfingu eftir að hafa fótbrotnað í síðasta mánuði. Hargreaves er 25 ára gamall og er nú laus við plastspelku af fætinum, sem þýðir að hann er farinn að ganga um eðlilega. Vonir standa til um að hann geti farið að spila í lok næsta mánaðar. Fótbolti 20.10.2006 15:40