Spænski boltinn

Iker Casillas: Kallar eftir stöðugleika hjá Real Madrid
Iker Casillas, markvörður spænska stórliðsins Real Madrid, vill að Manuel Pellegrini fái tækifæri til að þjálfa liðið áfram og hann kallar eftir meiri stöðugleika hjá félaginu. Real Madrid stendur líklega uppi titlalaust eftir tímabilið þrátt fyrir að hafa, síðasta sumar, eytt gríðarlegum fjármunum í marga af bestu leikmönnum heims.

Henry sagður hafa samið við Red Bulls
Spænskir fjölmiðlar segjast hafa heimildir fyrir því að franski framherjinn Thierry Henry sé búinn að semja við bandaríska liðið New York Red Bulls.

Fari Mourinho til Real Madrid fær Rafa Benítez símtal frá Inter
Innanhússlagur hjá Real Madrid ræður því hvort Jose Mourinho taki við knattspyrnuliði félagsins eða ekki. Samningur hans er tilbúinn og hann vill taka við, en óvíst er hvort af því verði.

Guti með tilboð frá tyrkneska liðinu Galatasaray
Jose Maria “Guti” Gutierrez, leikmaður Real Madrid, er á förum frá félaginu þar sem hann hefur spilað síðustu fimmtán árin. Þessi 33 ára miðjumaður er að leita sér að nýju liði og hefur nú fengið tilboð frá Tyrklandi.

Yaya Toure gæti farið til Arsenal
Yaya Toure, miðjumaður Barcelona, hefur verið orðaður við Arsenal samkvæmt umboðsmanni leikmannsins. Hann segir einnig að Toure sé hrifinn af Arsene Wenger, stjóra Arsenal, því hann hefur gert góða hluti með marga miðjumenn.

Enginn möguleiki að Zlatan snúi aftur til Juve
Umboðsmaður Zlatan Ibrahimovic, leikmanns Barcelona, hefur gefið út að ekki sé mögulegt að hann snúi aftur til síns gamla félags Juventus. Zlatan yfirgaf herbúðir Juventus árið 2006 eftir að félagið var fellt niður um deild í kjölfar mútuhneykslisins sem að komst upp um.

Úrslitin á Spáni ráðast í lokaumferðinni
Barcelona komst heldur betur í hann krappann gegn Sevilla í kvöld en hafði þó sigur og er í toppsætinu fyrir lokaumferð deildarinnar.

Messi vantar bara þrjú mörk til að jafna metið hans Ronaldo
Lionel Messi á möguleika að jafna markametið hjá Barcelona í síðustu tveimur umferðunum í spænsku úrvalsdeildinni. Messi er búinn að skora 44 mörk í öllum keppnum á tímabilinu og vantar þrjú mörk til viðbótar til þess að jafna félagsmet Ronaldo. Metið er orðið þrettán ára gamalt eða níu árum yngra en Messi sjálfur.

Raul yfir sig hrifinn af Ronaldo
Reynsluboltinn Raul hjá Real Madrid er yfir sig hrifinn af liðsfélaga sínum, Cristiano Ronaldo, og hann hrósar honum í hástert fyrir viðhorf sitt og fagmennsku.

Þrenna frá Ronaldo hélt lífi í titilvonum Real Madrid
Cristiano Ronaldo skoraði þrennu í 4-1 útisigri Real Madrid á Real Mallorca í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld. Real Madrid er því áfram aðeins einu stigi á eftir Barcelona þegar tvær umferðir eru eftir.

Silva: Yrði erfitt að hafna Man. Utd
Spænski leikmaðurinn David Silva hjá Valencia er enn og aftur orðaður við Man. Utd þessa dagana og leikmaðurinn er nú farinn að gefa United undir fótinn.

Benzema: Ég verð áfram hjá Real
Karim Benzema segir ekkert hæft í þeim sögusögnum um að hann sé á leið frá spænska stórveldinu Real Madrid en hann hefur verið orðaður við Manchester United að undanförnu.

Messi með tvö í sigri Barcelona
Barcelona vann í kvöld 4-1 sigur á Tenerife í spænsku úrvalsdeildinni og er komið með fjögurra stiga forystu á toppnum.

Ef fólki mislíkar leikstíllinn getur það slökkt á sjónvarpinu
Sergio Ramos, varnarmaður Real Madrid, er orðinn afar pirraður á athugasemdum þess eðlis að liðið spili ekki fallegan fótbolta.

Henry má fara frá Barcelona
Joan Laporta, forseti Barcelona, hefur staðfest að líklegt sé að Frakkinn Thierry Henry yfirgefa herbúðir félagsins í sumar.

Ronaldo tryggði Real Madrid sigur
Real Madrid heldur áfram að elta Barcelona en liðin berjast um spænska meistaratitilinn. Real er stigi á eftir Börsungum þegar þrjár umferðir eru eftir.

Messi með tvö mörk í sannfærandi sigri Barcelona á Villarreal
Barcelona náði fjögurra stiga forskoti á Real Madrid á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta eftir 4-1 útisigur á Villarreal í kvöld. Lionel Messi skoraði tvö mörk í leiknum og hefur því skorað 29 deildarmörk á tímabilinu.

Fullyrt að Villa sé á leið til Barcelona
Spænska dagblaðið Marca fullyrðir í dag að Valencia og Barcelona hafi komist að samkomulagi um kaupverð á framherjanum David Villa.

Ronaldo ánægður með frammistöðu sína á tímabilinu
Cristiano Ronaldo segist ánægður með hvernig hann hefur staðið sig á sínu fyrsta tímabili með Real Madrid.

Ronaldo: Klára ekki ferilinn hjá Real Madrid
Cristiano Ronaldo á ekki von á því að hann verði hjá Real Madrid þar til að knattspyrnuferli hans lýkur.

Kaka: Ég er ekki búinn að vera ánægður með spilamennsku mína
Brasilíumaðurinn Kaka er kominn aftur af stað með Real Madrid eftir að hafa verið meiddur í mánuð og byrjaði á því að tryggja Real-liðinu mikilvægan sigur eftir að hafa komið inn á sem varamaður um síðustu helgi.

Metzelder hættur hjá Real Madrid og á leiðinni til Schalke
Þýski landsliðsmaðurinn Christoph Metzelder er líklega búinn að spila sinn síðasta leik fyrir Real Madrid eftir þrjú meiðslahrjáð tímabil hjá félaginu. Þýska blaðið Bild segir hinn 29 ára varnarmaður sé búinn að samþykkja að fara til Schalke 04.

Raul skoraði illa meiddur á ökkla - verður ekki meira með á tímabilinu
Raul Gonzalez, fyrirliði Real Madrid, gæti verið búinn að spila sinn síðasta leik fyrir félagið, eftir að hann meiddist á ökkla í sigurleiknum á móti Real Zaragoza um helgina. Raul verður frá í fjórar vikur en hann hefur gefið það í skyn að 16 ára ferli hans á Santiago Bernabeu sé að ljúka.

Van der Vaart úr leik og gæti misst af HM
Hollendingurinn Rafael Van der vaart, leikmaður Real Madrid, meiddist aftan í læri í 3-1 sigri liðsins gegn Real Zaragoza í gær. En þetta kom fram á heimasíðu Real Madrid í dag.

Kaka tryggði Real sigur
Brasilíumaðurinn Kaka var hetja Real Madrid í gærkvöldi er hann tryggði sínum mönnum í Real Madrid 2-1 sigur á Real Zaragoza á útivelli.

Henry og Ibrahimovic skoruðu í sigri Barcelona
Barcelona er komið með fjögurra stiga forskot á Real Madrid í spænsku úrvalsdeildinni eftir sigur á botnliði Xerez í dag. Real Madrid á leik til góða.

Raul ekki að fara að hætta
Raul, gulldrengurinn hjá Real Madrid, útilokar að leggja skó sína á hilluna að tímabilinu loknu. Þessi 33 ára sóknarmaður hefur mátt verma tréverkið mikið þennan veturinn.

Hvort á Barcelona eða Real Madrid eftir erfiðari leiki?
Það er enn spenna í baráttunni um spænska meistaratitilinn þrátt fyrir að Barcelona hafi unnið Real Madrid sannfærandi á dögunum. Barcelona náði aðeins markalausu jafntefli um síðustu helgi og nú munar aðeins einu stigi á liðunum þegar fimm leikir eru eftir. Það er því fróðlegt að skoða hvort liðið á eftir erfiðari andstæðinga í síðustu fimm umferðunum.

Kaka æfði með aðalliði Real Madrid á afmælisdaginn
Brasilíumaðurinn Kaka er 28 ára gamall í dag og hélt upp á það með því að æfa með aðalliði Real Madrid. Það lítur því allt út fyrir það að hann geti spilað með Real-liðin á móti Real Zaragoza á laugardaginn eftir að hafa verið frá vegna meiðsla síðan 10. mars.

Ronaldo vill halda Pellegrini hjá Real
Cristiano Ronaldo vill að Manuel Pellegrini verði áfram knattspyrnustjóri Real Madrid næstu tvö eða þrjú árin.