
Íslenski körfuboltinn

Keflavík áfram í bikarnum | Úrvalsdeildarliðin áfram hjá konunum
Keflavík lagði Þór Þ. 89-78 í 16 liða úrslitum Powerade-bikarsins í körfubolta karla í kvöld. Þrjú úrvalsdeildarlið fóru áfram í Powerade-bikar kvenna.

Svali raðaði niður þristum í Madison Square Garden | Myndband
Svali H. Björgvinsson, körfuboltasérfræðingur 365 og fyrrum leikmaður Vals í úrvalsdeild karla stóðst ekki freistinguna þegar hann mætti í Madison Square Garden á dögunum.

Öruggt að íslenska körfuboltalandsliðið fer ekki til Lettlands
Íslenska körfuboltalandsliðið er á leiðinni í úrslitakeppni Evrópumótsins í fyrsta sinn á næsta ári en það verður dregið í riðla í Disneyland í París 8. desember næstkomandi.

Ekkert gengur hjá Martin og Elvari að ná í fyrsta sigurinn
LIU Brooklyn náði ekki að landa fyrsta sigri tímabilsins í Madison Square Garden í New York í gær en liðið tapaði þá illa fyrir Stony Brook 73-54 í bandaríska háskólakörfuboltanum.

Martin og Elvar gætu misst af EM í körfubolta
Martin Hermannsson og Elvar Már Friðriksson, tveir af efnilegustu körfuboltamönnum landsins, eru á sínu fyrsta ári með LIU Brooklyn háskólanum en þeir gætu þurft að taka stóra ákvörðun næsta haust.

Menntamálaráðherra sigraði Steinda Jr. og Fjallið í troðslukeppni
Illugi Gunnarsson vippaði sér upp og tróð með tilþrifum í DHL-Höllinni í dag.

Helena: Þetta eru frábærar fréttir
"Mér finnst frábært að við séum að taka þátt aftur,“ segir Helena Sverrisdóttir, fyrirliði kvennalandsliðsins um það að íslenska kvennalandsliðið í körfubolta sé á leiðinni í Evrópukeppnina næsta haust.

Kvennalandsliðið í körfubolta fékk hæsta styrkinn
Eitt landsliðsverkefni og þrjár afrekskonur í íþróttum hlutu í dag styrk úr Afrekskvennasjóði Íslandsbanka og ÍSÍ fyrir árið 2014. Afrekskonurnar fá fimm hundruð þúsund krónur hver og Körfuknattleikssamband Íslands hlýtur eina milljón króna.

Bikarmeistararnir á Krókinn
Dregið í 16-liða úrslit Powerade-bikarkeppni karla og kvenna.

Lið Helenu og Jóns Arnórs eru enn ósigruð í vetur
Tímabilið hefur byrjað mjög vel hjá liðunum tveimur sem besti körfuboltakarl og besta körfuboltakona Íslands spila með. Lið þeirra hafa unnið samanlagt tólf leiki af tólf mögulegum í upphafi tímabils.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Stjarnan - Haukar 99-73 | Stórsigur Stjörnunnar
Stjarnan komst í kvöld í 16-liða úrslit Powerade-bikarsins í körfubolta eftir öruggan 26 stiga sigur á Haukum í Ásgarði. Lokatölur 99-73, Stjörnunni í vil.

Jón Arnór meiddur og spilar ekki næstu vikurnar
Jón Arnór Stefánsson meiddist í sigri Unicaja Malaga á Limoges í Euroleague í gær og íslenski landsliðsmaðurinn segir í samtali við karfan.is að hann verði frá í þrjár til fjórar vikur.

Utan vallar: Ævintýrið okkar heldur áfram í ævintýralandinu
Auðvitað hlakkar allt íslenskt körfuboltaáhugafólk til sögulegrar stundar í lok næsta sumars en það er ekki mikið minni spenningur í okkur körfuboltaáhugamönnum að sjá hvar og við hverja íslenska liðið spilar á EM í september 2015.

Dregið í riðla á EM í körfu í París í desember
FIBA Europe tilkynnti í dag hvenær verður dregið í riðla vegna Evrópumótsins í körfubolta á næsta ári en athöfnin fer fram mánudaginn 8. desember næstkomandi og verður haldin í París í Frakklandi.

Sigrún og félagar töpuðu í framlengingu
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir og félagar hennar í Norrköping Dolphins urðu að sætta sig við sex stiga tap á heimavelli á móti 08 Stockholm HR, 59-65, í framlengdum leik í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta.

Umfjöllun og viðtal: Snæfell - Haukar 72-69 | Íslandsmeistararnir höfðu betur
Snæfell tryggði sér í dag sigur í Meistarakeppni KKÍ með þriggja stiga sigri, 72-69, á Haukum í árlegum leik Íslands- og bikarmeistaranna í körfubolta.

Jón Arnór elsti leikmaður Unicaja í vetur
Jón Arnór Stefánsson samdi nýverið við spænska stórliðið Unicaja Malaga og mun hann spila með þessu fornfræga liði á þessu tímabili.

Jón Arnór fer á fyrstu æfinguna strax eftir læknisskoðun
Íslenski landsliðsmaðurinn Jón Arnór Stefánsson fyllir skarð Zoran Dragic hjá spænska stórliðinu Unicaja Malaga samkvæmt frétt á heimasíðu liðsins en Jón Arnór samdi við Unicaja um helgina.

Frumleg liðsmynd vekur athygli
Tíu og ellefu ára stúlkur sem æfa körfubolta hjá Njarðvík stilltu sér skemmtilega upp á nýrri liðsmynd. Mikil gróska er í starfinu hjá Njarðvíkingum.

Stólarnir lögðu Njarðvík í Lengjubikarnum - úrslit og tölfræði kvöldsins
Darrel Lewis og Darrell Flake öflugir í sigri Tindastóls.

Einar: Alltaf sami aumingjaskapurinn
Einar Bollason segir að aðkoma ríkisvalda að afreksíþróttum sé "grín“.

„Ég kalla þetta öldungaráð sambandsins“
Velunnarar körfuboltans á Íslandi hefja söfnun til styrktar karlalandsliðinu.

Körfuboltafjölskyldan safnar peningum fyrir KKÍ
Íslenska körfuknattleikslandsliðið tekur þátt í lokakeppni stórmóts í fyrsta skipti næsta sumar og það er víst ekki ókeypis.

Snæfell vann ÍR í Hólminum - Grindavík tapaði öðrum leiknum í röð
Sigurður Þorvaldsson öflugur í öruggum sigri Snæfells á ÍR.

Hægt að styðja KKÍ og horfa á HM
HM í körfubolta hefst á Spáni í dag en alls munu 24 lið keppa um heimsmeistaratitilinn. Körfuboltaáhugafólk getur nú styrkt KKÍ og fengið alla leikina heim í stofu.

Níundi bikarúrslitaleikurinn hjá Stjörnunni á aðeins þremur árum
Silfurskeiðin, stuðningsmannasveit Stjörnunnar, þekkir það vel að fylgja sínum liðum niður í Laugardal með það markmið að vinna bikarinn. Fótboltakonur félagsins spila bikarúrslitaleik á móti Selfossi á Laugardalsvelli á morgun.

Utan vallar: Takk, Óli Rafns
Karlalandsliðið í körfubolta braut blað í íslenskri íþróttasögu á miðvikudagskvöldið þegar það komst á EM. Fyrrverandi forseti ÍSÍ á ekki lítinn þátt í því.

Tölfræði Íslands í undankeppninni
Eftir úrslit gærdagsins er ljóst að Ísland verður á meðal þátttökuþjóða á EM 2015.

Haukur Helgi: Fólk áttar sig ekki á mikilvægi Hlyns
Haukur Helgi var svekktur að ná ekki sigri í kvöld í naumu tapi gegn Bosníu og var fullviss um að hefði Hlynur Bæringsson verið með liðinu allan leikinn hefðu þeir náð sigrinum.

Craig: Sérstaklega ánægður fyrir hönd strákanna
Craig Pedersen þjálfari íslenska landsliðsins í körfubolta var gríðarlega stoltur af lærisveinum sínum eftir naumt tap gegn Bosníu í kvöld. Þrátt fyrir tapið er Ísland á leiðinni á EM í fyrsta sinn