Stjarnan

Kristján Gauti með Stjörnunni eftir fjögur ár í dvala?
Kristján Gauti Emilsson, fyrrverandi leikmaður unglingaliðs Liverpool, gæti verið að taka fram fótboltaskóna eftir að hafa ekki spilað fótbolta í fjögur ár.

Spáin fyrir Pepsi Max kvenna 2020: Varkáru liðin (6. til 7. sæti)
Tvö stórveldi í kvennafótboltanum síðustu ár, sem jafnan setja stefnuna á Íslandsmeistaratitilinn, þurfa að passa sig í sumar ef þau ætla ekki að dragast niður í fallbaráttuna.

Nýr fyrirliði Stjörnunnar lék fyrsta meistaraflokksleikinn aðeins tólf ára
Alex Þór Hauksson, nýr fyrirliði Stjörnunnar, var aðeins tólf ára þegar hann lék sinn fyrsta leik í meistaraflokki. Hann ber Ólafi Jóhannessoni vel söguna og segir hann strax hafa sett svip sinn á Stjörnuna. Álftnesingurinn er afar metnaðarfullur og stefnir hátt.

Pepsi Max-spáin 2020: Ekki nóg að fá aukamann í brúna
Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir Stjörnunni 6. sæti Pepsi Max-deildarinnar í sumar.

Framherjar FH settu fimm í síðasta æfingaleiknum - Leiknir R. skellti Stjörnunni
Steven Lennon með þrennu og Morten Beck tvö í síðasta æfingaleik FH fyrir átökin í Pepsi-Max deildinni. Stjarnan tapaði fyrir Lengjudeildarliði Leiknis R.

Játar að hafa haft samband við Heimi og segist hafa þurft að gera breytingar á þjálfarateyminu í ár
Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Stjörnunnar, viðurkennir að hann hafi haft samband við Heimi Guðjónsson eftir að hann fékk ekki áframhaldandi samning hjá FH eftir tímabilið 2017.

Rúnar Páll: Veigar fór í FH og fékk samning lífs síns á þessum aldri
Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Stjörnunnar, segist ekki hafa verið of harður við eldri og reyndari leikmenn Stjörnunnar eins og Veigar Pál Gunnarsson og Garðar Jóhannsson sem hann hleypti frá félaginu.

Gullmoli dagsins: Hópslagsmál í Höllinni
Slagsmál áhorfenda vörpuðu skugga á bikarúrslitaleik Fram og Stjörnunnar í handbolta árið 2007. Atvikið var rifjað upp í Sportinu í dag, í gullmola dagsins.

Kristófer með Stjörnunni í sumar
Kristófer Konráðsson hefur skrifað undir samning til tveggja ára við Stjörnuna en þessi uppaldi Stjörnumaður lék síðast með liðinu sumarið 2017.

Óli Jóh á hækjum á æfingu Stjörnunnar: „Kallinn er að koma til“
Ólafur Jóhannesson styður sig við hækjur eftir að hafa slasast á mjöðm.


Stjarnan fær efnilega tvíburabræður frá Vestra á Ísafirði
Stjarnan fékk flottan liðsstyrk í körfuboltanum í dag þegar tvíburarnir efnilegu Hugi og Hilmir Hallgrímssynir skrifuðu undir samning við Stjörnuna.

„Var kominn í þá stöðu í KR að gera raun og veru allt og ég fæ það í bakið“
Ingi Þór Steinþórsson, sem var ráðinn aðstoðarþjálfari Stjörnunnar í gær, segir að hann hafi fengið það í bakið hjá KR að vera gera allt hjá félaginu en Ingi var sem kunnugt er sagt upp störfum hjá KR í síðustu viku.

Arnar ætlaði að klófesta Inga Þór strax
Ingi Þór Steinþórsson segist hlakka til samstarfsins með Arnari Guðjónssyni sem vildi ólmur fá hann til Stjörnunnar.

Arnar Guðjóns fær Inga Þór og Dani Rodriguez sér til aðstoðar í Garðabænum
Ingi Þór Steinþórsson og Danielle Rodriguez fara bæði úr Vesturbænum yfir í Garðabæ því þau voru kynnt í dag sem nýir aðstoðarþjálfarar Stjörnunnar í Domino´s deild karla.

Rúnar man vel eftir Twitter-færslu eftir jafntefli gegn Val á Íslandsmeistaratímabilinu
Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Stjörnunnar, var einnig þjálfari liðsins er liðið varð Íslandsmeistari í fyrsta og eina sinn í karlaflokki árið 2014. Í byrjum sumars, eftir jafntefli gegn Val á heimavelli, vildu einhverjir stuðningsmenn fá Rúnar burt og hann man vel eftir því.

„Ekki sérlega vinsælt í Garðabænum að detta út gegn Þrótti“
Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Stjörnunnar, rifjaði upp með Gumma Ben í Sportinu í kvöld Íslandsmeistaraárið 2014. Eina tap Stjörnunnar það sumarið, fyrir liði sem var ekki Inter Milan, var gegn Þrótti Reykjavík.

Pólverjarnir skildu plönin eftir í ruslinu í Garðabæ
Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Stjörnunnar, rifjaði upp með Gumma Ben í Sportinu í kvöld Íslandsmeistaraárið 2014. Það ár sló Stjarnan meðal annars út pólska liðið Lech Poznan, 1:0, í forkeppni Evrópudeildarinnar.

Þröngt mega sáttir sitja, magnað andrúmsloft og „leynileið“ í sund | Myndband
Kjartan Atli Kjartansson kíkti í klefa körfuknattleikslið Stjörnunnar í Ásgarði en sá er ekki allur þar sem hann er séður.

Rúnar fékk skýrsluna um Motherwell á kaffifilter
Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Stjörnunnar, rifjaði upp Íslandsmeistaraárið 2014 með Gumma Ben í Sportinu í kvöld. Stjörnumenn náðu einnig afar langt í Evrópukeppni það ár.

Patrekur vill akademíu í samstarfi við körfuna
Patrekur Jóhannesson, sem tekur við handboltaliði karla hjá Stjörnunni 1. júní, vill að farin verði sama leið í Garðabæ og á Selfossi með því að koma á fót handboltaakademíu.

29 dagar í Pepsi Max: Enginn skorað meira en Hilmar Árni síðan hann fór til Stjörnunnar
Í dag eru 29 dagar þar til keppni í Pepsi Max-deild karla 2020 hefst.

Nýr formaður Stjörnunnar: „Okkar fókus er á framrúðuna en ekki baksýnisspegilinn“
Sigurgeir Guðlaugsson er nýr formaður Stjörnunnar en mikið hefur gustað um félagið undanfarnar vikur. Sigurður Bjarnason hætti sem formaður á aðalfundi í gær eftir að nokkrir aðrir stjórnarmenn hefðu gengið út úr stjórninni í síðasta mánuði.

Stjarnan fær tvo af bestu mönnum Fjölnis
Fjórir leikmenn hafa gengið í raðir karlaliðs Stjörnunnar í handbolta á síðustu dögum.

Hlynur og Ægir halda áfram hjá Stjörnunni
Þrír af bestu leikmönnum karlaliðs Stjörnunnar í körfubolta verða áfram hjá félaginu.

Sigurður hættir sem formaður: „Ég hef ekki verið að skella neinum hurðum“
„Ég hef ekkert á móti þessu fólki sem að hætti í aðalstjórn,“ segir Sigurður Bjarnason, formaður aðalstjórnar Stjörnunnar til fimm ára, en þrír stjórnarmenn nefndu samskipti við Sigurð sem ástæðu þess að þeir sögðu sig úr stjórn fyrir skömmu. Sigurður ætlar að hætta sem formaður á aðalfundi á morgun.

Tvær landsliðskonur í Stjörnuna
Stjarnan hefur fengið til sín tvær landsliðskonur fyrir átökin næsta vetur.

Fyrrum leikmenn Stjörnunnar taka undir orð Mána
Fyrrum leikmenn kvennaliðs Stjörnunnar benda á að aðeins sé einn leikmaður úr meistaraliðinu 2016 enn starfandi fyrir félagið. Reikna má með átakafundi í Garðabæ í komandi viku.

Máni um Stjörnuna: „Ástandið innan félagsins er í tómu rugli“
Fjölmiðlamaðurinn Þorkell Máni Pétursson segir að ástandið innan Stjörnunnar sé ekki gott. Félagið þurfi að ganga í gegnum naflaskoðun en þetta sagði hann í þættinum Sportið í kvöld sem var sýnt á Stöð 2 Sport í kvöld.

Botna ekkert í yfirlýsingu HK: „Hlýtur að vera byggt á misskilningi“
Stjarnan segir að hvorki HK né HSÍ hafi samband við sig vegna félagaskipta handboltamannsins Péturs Árna Haukssonar. HK-ingar eru ósáttir við vinnubrögð Stjörnumanna í málinu.