
Skoðanir

Skattsvik annað en skattsvik
Við þurfum ekki lög, sem auðvelda skattyfirvöldum að afla upplýsinga um eignir Íslendinga erlendis eða sem heimila þeim að skattleggja slíkar eignir hér á landi, heldur lög um ríkan trúnað fjármálafyrirtækja við viðskiptavini sína. Ísland getur orðið alþjóðleg fjármálamiðstöð alveg eins og Guernsey.

Næring á ábyrgð foreldra
Mergurinn málsins er að hver og einn sé heilbrigður og hafi góða orku til að takast á við dagleg verkefni. Vissulega er hvorki gott að vera allt of feitur né allt of mjór. Hins vegar eru staðalmyndir um holdafar afar skaðlegar, ekki síst þegar þær eru farnar að ná til ungra barna.

Vinnan göfgar eða hvað?
Allar götur síðan heimsstyrjöldinni síðari lauk 1945 hafa Evrópumenn litið með lotningu til Bandaríkjamanna og með þakklæti fyrir ómetanlegt framlag Bandaríkjanna til sigurs yfir Þjóðverjum, Ítölum og Japönum í styrjöldinni og til umbyggingar þessara landa eftir stríðið.

Engin léttleið og ljúf
Segja má að stöðugleiki í þjóðarbúskapnum sé óumdeilt markmið. Fyrr á þessu ári ritaði aðalhagfræðingur Seðlabankans athyglisverða grein í þetta blað um stefnuna í peningamálum og stöðugleikann.

Réttindi borgara og afbrotamanna
Skipulagi lögreglunnar í landinu hefur verið breytt í grundvallaratriðum. Lögregluumdæmum hefur verið fækkað. Að sama skapi ættu þau að verða öflugri og virkari í hvers kyns vörslu laga og réttar.

Einu sinni var...
"Einu sinni var ...". Þannig byrja mörg ævintýri og byrjunin ein vekur eftirvæntingu í huga okkar og ljúfar minningar um sögur sem okkur voru sagðar í æsku. Við erum söguþjóð og flestir njóta þess að segja og hlusta á sögur. Þessa dagana og vikurnar eru flestir í sumarfríi og fjölmargir á ferð um landið.

Brot á almennum borgurum
Alþjóðasamfélagið verður að rísa upp og hafna þessum árásum á almenna borgara. Tjónið er þegar orðið óbætanlegt og þessu stríði verður að ljúka áður en enn frekari skörð verða höggvin í raðir almennra borgara og uppbyggingu samfélagsins í Líbanon.

Aukið valfrelsi, aukin ábyrgð
Tillögur starfsnámsnefndar um breytta tilhögun framhaldsskólanáms fela í sér að skólarnir fá aukið frelsi til mótunar náms en jafnframt aukna ábyrgð. Samkvæmt tillögum nefndarinnar verður framhaldsskólum gert kleift að bjóða nám sem miðast við þarfir og lokamarkmið nemenda með hliðsjón af kröfum næsta skólastigs og/eða atvinnulífs.

Vegurinn til Hallormsstaðar
Í liðinni viku var rætt við fréttamann sem staddur var í Kastrup. Og öll erum við orðin hræðilega vön því að talað sé við fólk í Dalvík og í Ólafsfirði. Enn hrapar næmi fjölmiðlafólks fyrir því hvar við erum stödd á landinu. Hin nákvæma tilfinning íslenskunnar fyrir staðsetningu, legu og lögun staðar, hverfur fyrir flatneskjulegu og enskustolnu orðfæri. Eða finnst okkur ekki fallegur (og eðlilegur) munur á því að fara upp á Akranes og koma síðan í Borgarnes?

Endalaus átök?
Fréttirnar frá Líbanon eru hræðilegar. Fyrir okkur hér heima færðust atburðirnir nær vegna landa okkar sem staddir voru nálægt átökunum. Til allrar hamingju tókst að koma okkar fólki í burtu.

Undir aga alþjóðaviðskipta
Fjármálafyrirtækið Merrill Lynch birti nýja skýrsu þar sem lagt er mat á áhættu af skuldabréfum íslensku bankanna. Merrill Lynch birti afar neikvæða skýrslu um íslensku bankana fyrr á árinu sem átti sinn þátt í að ýtta af stað falli á íslensku krónunni.


Styrinn um strætó
Hitt er annað mál að ekki virðist hafa tekist eins vel og skyldi að byggja upp alveg nýtt kerfi og hugsanlegt er að hreinlega hafi ekki verið gengið nógu langt í að endurhugsa kerfið algerlega frá grunni.

Hin óbærilegu völd tilfinninganna
Þessi atburðarás er enginn leikur og hún snýst ekki um ást. Af því að það var eiginlega engin ást í millum makanna. Blekkingin og misskilningurinn liggja í rangtúlkun þessa orðs. Sem því miður, maður áttar sig oftast ekki á, fyrr en um seinan.

Skynsamlegar kerfisbreytingar
Mála sannast er að ástæða er til að fagna niðurstöðu í viðræðum ríkisstjórnarinnar við samtök eldri borgara. Hún felur í sér ákvarðanir og fyrirheit um lagabreytingar sem verulega munu bæta stöðu bótaþega almannatrygginganna.

Bætum kjör láglaunafólks!
Íslendingar eru lausir við margvíslegan vanda annarra þjóða. Hér er almenn velmegun, og menn þurfa ekki að óttast um öryggi sitt. En á velmegun okkar er þó skuggahlið. Það er erfitt að vera fátækur á Íslandi.

Höfundarverk og virðing
Glæsileg þykir mér afmælissýning Gerðarsafns í Kópavogi á málverkum Jóhannesar Kjarval í eigu Landsbanka Íslands. Merkilegastar og óvenjulegastar á sýngunni munu mörgum áhorfendum að mestum líkindum þykja mannamyndirnar, sem hanga jafnan í bankaráðsherbergi Landsbankans í Austurstræti í Reykjavík.


Varðstaða um vont ástand
Viðbragða Geirs H. Haarde forsætisráðherra við skýrslu formanns matvælaverðsnefndar hefur verið beðið með nokkurri eftirvæntingu, enda nefnd sem var skipuð af honum sjálfum.

Einstakt sögulegt tækifæri
Þorsteinn Pálsson skrifaði leiðara Fréttablaðsins á mánudaginn var og veltir þar fyrir sér „hverju kjósendur eigi að ráða“. Hann bendir þar á að í öðrum löndum sé kosningakerfið þannig upp byggt að kjósendur geti „með beinum hætti kosið einn flokk til valda og annan frá völdum“.

Þekkirðu ekki einhvern - úti á landi?
Fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor töluðu frambjóðendur talsvert um aðbúnað aldraðra og lofuðu ýmsu fögru til úrbóta í þeim efnum. Sá málflutningur var eiginlega hálfgert svindl. Eða kannski bara algjört svindl, vegna þess að sveitarstjórnarfólk ræður mest lítið um hvernig að þessum aldurshópi er búið, af því að fjárveitingavaldið til þessa málaflokks er ríkisins en ekki sveitarfélaga.

Strætó á villigötu
Á tímum methækkana á eldsneytisverði, bílalána sem þenjast út vegna verðbólgu og almenns samdráttar, er þau heldur öfugsnúin tíðindin sem berast af almenningsamgöngum á höfuðborgarsvæðinu. Ljóst er að rekstur einkabílsins er farinn að taka til sín stærri skerf af heimilisútgjöldunum en margir gerðu ráð fyrir í upphafi árs.

Sagan af Zidane hinum súra
Ítalir fengu bikarinn en Zidane umtalið. Sigurinn féll í skuggann af ósigrinum. Frakkar voru betri en Ítalir sterkari. Liðsheildin var þeirra. Þeir stóðu saman í byrjun leiks, með hendur á öxlum hvers annars og kyrjuðu þjóðsönginn hástöfum. Frakkarnir stóðu hljóðir undir sínum. (Þó ekki hlæjandi líkt og á Laugardalsvelli forðum.) Lið þeirra var fullt af ljómandi einstaklingum en sumir voru frægari en aðrir.

Hverju eiga kjósendur að ráða?
Kosningaþátttaka hefur jafnan verið mjög góð á Íslandi. Eigi að síður örlar hér á þeirri þróun sem þekkt er í Evrópu og víðar að áhugi á að greiða atkvæði í kosningum dvínar. Sveitarstjórnarkosningarnar í vor sem leið voru vísbending í þessa veru.

Kyoto og Schelling
Ég hef tekið eftir því að sumir talsmenn umhverfisverndar á vinstri kantinum eru pínulítið órólegir þessa dagana. Það virðist allt ganga vel, fleiri og fleiri átta sig á mikilvægi þess að við verndum umhverfið og gætum þess að nýta það á skynsamlegan hátt.

Völd og verklag lífeyrissjóða
Lífeyrissjóðir eru ásamt stórum fjárfestum og fjármálstofnunum hryggjarstykki í uppbyggingu atvinnulífsins. Stofnun þeirra og skylduaðild að þeim er eitthvert mesta gæfuspor sem þjóðin hefur stigið. Lífeyrissjóðirnir hafa stutt við uppbyggingu fyrirtækja og átt ríkan þátt í að þróa verðbréfamarkað hér á landi. Sú þróun hefur verið uppspretta mikilla tækifæra.

Þögn er sama og samþykki
Unglingadrykkja er leiður fylgifiskur þessara sumarhátíða. Undantekning er að ekki fylgi fréttum af, að öðru leyti vel heppnuðum hátíðahöldum, að mikil ölvun hafi verið og ekki bara ölvun fullorðinna heldur einnig barna. Ölvun úr hófi er vitanlega alltaf til vansa en ölvun barna og unglinga er ótæk og á aldrei að líðast, hverjar sem ytri aðstæður eru.

Leggjum niður Landsvirkjun!
Á dögunum leysti Illugi Gunnarsson eyðufyllingaverkefni úr stjórnmálaskóla Sjálfstæðisflokksins á síðum Fréttablaðsins. Verkefnið hljóðaði eitthvað á þessa leið: "Ríkisfyrirtæki X á í vanda vegna Y og Z. Lausnin á þessu er að einkavæða X." Illugi setti nafn Landsvirkjunar samviskusamlega í eyðu X og fannst raunar úrlausnin svo góð hjá sér að hann birti aðra grein um sama efni skömmu síðar.

Hvar er innrásin?
Útrás hefur verið tískuhugtak um nokkurn tíma. Það á rætur í þeim athöfnum allmargra íslenskra fyrirtækja og ungra athafnamanna að hasla sér völl á erlendum vettvangi.

Forseti hægri manna?
Hafa íslenskir hægri menn verið of fjandsamlegir Ólafi Ragnari Grímssyni forseta? Þeir ættu ef til vill frekar að fagna því, hversu miklu betri maður hann virðist vera orðinn hin síðari misseri.