
Faraldur kórónuveiru (COVID-19)

Bolsonaro vildi ekki samþykkja grímuskyldu í verslunum og skólum
Forseti Brasilíu, Jair Bolsonaro, sem hefur gefið lítið fyrir sóttvarnir vegna kórónuveirufaraldursins hefur nú samþykkt lög sem gera það að skyldu að klæðast andlitsgrímu.

„Það versta sem gæti komið fyrir okkur er önnur bylgja af faraldrinum“
Önnur bylgja faraldursins á Íslandi myndi skapa grafalvarlega stöðu, að sögn forstöðumanns hjá Landspítalanum. Hann óttast að fólk sé orðið of værukært í persónubundnum smitvörnum.

Tveir í einangrun eftir komuna til Seyðisfjarðar
Um fjögur hundruð farþegar Norrænu sem komu til landsins í gær þurftu að fara í sýnatöku við komuna en 634 farþegar voru um borð í skipinu. Tveir farþeganna reyndust smitaðir af kórónuveirunni.

Ferðalangar frá Íslandi til Englands þurfa ekki að fara í sóttkví
Ísland er meðal þeirra landa sem ferðast má frá til Englands, án þess að þurfa að sæta 14 daga sóttkví, frá og með 10. júlí. Þetta tilkynntu bresk stjórnvöld í dag.

Óbreyttar veirutakmarkanir til 26. júlí vegna bakslags
Fjöldamörk samkomubanns verða óbreytt í þrjár vikur til viðbótar, þ.e. til 26. júlí og verður því áfram miðað við að ekki komi saman fleiri en 500 manns.

Dæmi um að smitað fólk fái símtöl og skilaboð þar sem það er skammað
Deildarstjóri hjá Almannavarnardeild ríkislögreglustjóra segir að fólk með Covid-19 hafi fengið skilaboð og hringingar þar sem það er sakað um að hafa ekki farið nógu varlega. Hann segir að þvert á móti hafi þeir sem hafa veikst undanfarið farið að öllum sóttvarnarreglum.

Fimm greindust með veiruna í gær
Beðið er eftir niðurstöðum úr mótefnamælingu og eru viðkomandi einstaklingar í einangrun á meðan.

Fjögur lykilatriði fyrir vinnustaði eftir faraldur
Í kjölfar kórónufaraldurs þurfa vinnustaðir að aðlagast breyttum tímum hraðar en áður var áætlað.

Farþegar frá yfir 50 löndum sleppa við sóttkví í Bretlandi
Farþegar sem ferðast til Bretlands frá yfir fimmtíu löndum, þar með talin Frakkland, Spánn, Þýskaland og Ítalía, munu ekki þurfa að sæta sóttkví við komuna til landsins frá og með 10. júlí.

Ríkisstjórn Frakklands hættir
Franska forsetahöllin greindi frá því í morgun að Edouard Philippe, forsætisráðherra landsins, hefði sagt starfi sínu lausu - rétt eins og aðrir ráðherrar landsins.

Geðræktarstöð á Suðurnesjum lokað vegna smits
Skjólstæðingur Bjargarinnar, geðræktarmiðstöðvar Suðurnesja, hefur greinst með kórónuveirusmit. Af þeim sökum hafa tíu aðrir notendur Bjargarinnar verið skikkaðir í sóttkví og Björginni verið lokað meðan unnið er að sótthreinsun.

Japanskir næturgöltrarar sýkjast í tugavís
Annan daginn í röð greindust á annað hundrað kórónuveirusmit í Tókýó, höfuðborg Japans, sem er sagt valda þarlendum heilbrigðisyfirvöldum áhyggjum.

Oddvitinn segir dásamlegt að sjá Íslendinga ferðast innanlands
Ferðaþjónustan í Skaftárhreppi fékk á sig stóran skell, milli 30 og 40 prósent atvinnuleysi, þegar ferðamennirnir hættu að koma vegna kórónufaraldursins. Markmið ferðaþjónustunnar þar er núna að komast í gegnum árið.

Smit á uppleið í 37 ríkjum Bandaríkjanna
Nýjum kórónuveirusmitum fer fjölgandi í 37 af 50 ríkjum Bandaríkjanna síðustu tvær vikurnar, miðað við fjórtán daga tímabil snemma í júní, að því er greining Reuters leiðir í ljós.

Tekjurnar úr 700 milljónum niður í 700 þúsund
Gray line er komið í greiðsluskjól og fasteignir hafa verið settar á sölu.

„Ávallt meðvituð um að við gætum þurft að hætta við allt“
„Það er ótrúlegur léttir að geta sagt að HönnunarMars í júní hafi farið fram úr björtustu vonum teymisins og við eru í skýjunum með hversu frábærlega vel til tókst með hátíðina,“ segir Þórey Einarsdóttir stjórnandi hátíðarinnar.

Nátengd konunni sem kom frá Albaníu og voru þegar í sóttkví
Þrjú ný innanlandssmit kórónuveirunnar sem greindust eftir hádegi í dag má rekja til konu sem kom hingað til lands frá Albaníu í síðustu viku. Þ

Þrjú innanlandssmit til viðbótar greindust eftir hádegi
Fólkið hefur verið í samskiptum við smitaðan einstakling hér á landi á síðustu vikum og er því um að ræða þrjú innanlandssmit til viðbótar.

Eins árs barn greindist með Covid-19
Eins árs gamalt barn greindist með Covid-19 hér á landi í gær. Barnið er einkennalaust eins og er.

Sýnatakan kláruð þrátt fyrir skamman tíma: „Það verður bara að hafa það að skipið tefst“
Norræna lagðist að bryggju á Seyðisfirði í dag með yfir fjögur hundruð farþega sem þurftu að gangast undir skimun fyrir kórónuveirunni.

Tvö smit greindust á landamærunum og eitt innanlands
Þrír greindust með kórónuveiruna síðasta sólarhringinn, tveir við landamæraskimun og einn hjá Íslenskri erfðagreiningu, samkvæmt nýjum tölum á Covid.is.

Heilbrigðisráðherra fyrirmyndarríkisins segir af sér
Heilbrigðisráðherra Nýja-Sjálands hefur sagt af sér eftir að hafa sætt gagnrýni vegna framgöngu sinnar og ríkisstjórnar hans í kórónuveirufaraldrinum.

Smitrakning í gangi vegna konu sem kom til landsins fyrir 10 dögum en greindist í gær
Íslendingar þurfa að fara í nokkurra daga sóttkví og tvær skimanir við komu til landsins verði tillögur sóttvarnarlæknis samþykktar. Í gær greindist smit hjá konu sem kom til landsins fyrir tíu dögum.

Breyta vinnulagi á landamærunum eftir að smit greindust ekki í fyrstu skimun
Stefnt er að setja á laggirnar vinnulag til þess að koma í veg fyrir að fólk, nýsmitað af kórónuveirunni, geti komið til landsins og ekki greinst jákvætt fyrir kórónuveirusmiti á landamærunum.

Svona var 82. upplýsingafundur almannavarna
Almannavarnardeild ríkislögreglustjóra hefur boðað til upplýsingafundar fyrir blaðamenn klukkan 14 í dag í Katrínartúni 2.

Fjórir greindust með veiruna síðasta sólarhringinn
Fjórir greindust með kórónuveiruna síðasta sólarhringinn, þrír við landamæraskimun og einn hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans, samkvæmt nýjum tölum á Covid.is.

Metfjöldi nýsmita vestanhafs
Nýsmitum í Bandaríkjunum fjölgaði um 47 þúsund frá mánudegi til þriðjudags

Kæmi Fauci ekki á óvart ef tilfellin verði 100 þúsund á dag í Bandaríkjunum
Dr. Anthony Fauci, yfirmaður Ofnæmis- og smitsjúkdómastofnunar Bandaríkjanna segir að honum kæmi það ekki á óvart ef tilfelli kórónuveirusmita í Bandaríkjunum nái 100 þúsund á dag í náinni framtíð.

Bandaríkin tryggja sér stóran hluta framtíðarbirgða af Remdesivir
Bandarísk yfirvöld hafa keypt upp nær alla framleiðslu bandaríska lyfjaframleiðandans Gilead á lyfinu Remdesivir næstu þrjá mánuðina, eitt af aðeins tveimur lyfjum sem sýnt hefur verið fram á að gagnist í baráttunni gegn Covid-19.

1.094 króna umbunin í raun niðurlægjandi
Gréta María Björnsdóttir hjúkrunarfræðingur á gjörgæslu Landspítala segir umbunina sem hún fékk í sinn hlut fyrir störf sín í kórónuveirufaraldrinum í raun hafa verið niðurlægjandi.