Faraldur kórónuveiru (COVID-19)

Þórólfur líkti stöðu sinni við slökkviliðsmann með bundnar hendur
Samfylkingarfólk heldur því fram að Svandís Svavarsdóttir sé milli tveggja elda: Þórólfs og eigin sannfæringar annars vegar og hins vegar Sjálfstæðisflokksins.

Tíu greindust með Covid-19 í gær, allir nema einn í sóttkví
Tíu greindust með Covid-19 í gær og 134 eru í einangrun. 812 eru í sóttkví og 1.106 í skimunarsóttkví. Þá liggja fjórir inni á sjúkrahúsi vegna Covid-19.

Að minnsta kosti 22 börn og nítján starfsmenn með Covid-19
Á miðvikudaginn höfðu 22 börn á leikskólanum Jörfa og nítján starfsmenn greinst með Covid-19. Helgi Grímsson, sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs, segir ljóst að ekki verði hægt að halda úti hefðbundnu skólastarfi á leikskólanum í næstu viku.

Sýrland: Bóluefnin ljós í myrkri eftir áratuga stríð
Sýrland fékk i gær afhenta fyrstu skammtana af bóluefnum gegn kórónaveirunni.

Hraðvirk réttindaskerðing
Píratar eru ekki á móti sóttvarnarhúsum, takmörkunum, skimunum, grímum eða bólusetningum. Pírötum er þó mjög annt um þau réttindi sem við öll eigum og þegar þau réttindi eru takmörkuð með lagasetningum þá er eðlilegt að sú lagasetning uppfylli kröfum réttarríkisins.

Þrettán látast í eldsvoða á bráðadeild og metfjöldi greinist með Covid-19
Þrettán létust þegar eldur braust út á bráðadeild Vijay Vallabh-sjúkrahússins í Maharashtra á Indlandi í morgun. Búið er að slökkva eldinn og hafa fjórir verið fluttir á annað sjúkrahús.

Fimmtán í sóttkví vegna smits í Vallaskóla
Tólf nemendur og þrír starfsmenn í Vallaskóla á Selfossi eru nú í sóttkví eftir að nemandi í 4. bekk greindist smitaður af kórónuveirunni. Nemandinn mætti í skólann í gærmorgun, einkennalaus, og sótti tíma með nemendum í tveimur list- og verkgreinahópum í 4. bekk.

Sóttvarnalæknir kominn að borðinu
Frumvarp um skylduvist farþega frá útlöndum í sóttvarnahúsi tók miklum breytingum á næturfundi á Alþingi. Ráðherra fær nú umboð til að skilgreina áhættusvæði að fenginni tillögu sóttvarnalæknis, ólíkt hugmyndum sem ríkisstjórnin kynnti fyrr í vikunni.

Telja 1. júní ekki raunhæfa dagsetningu
Dagsetningin 1. júní varð samkvæmt vísindamönnum ranglega að viðmiði um betri tíma í huga margra eftir að ríkisstjórnin sýndi glæru á blaðamannafundi í vikunni, þar sem á stóð að öllum takmörkunum yrði aflétt innanlands þegar stærstur hluti fullorðinna hefði verið „varinn“ með fyrri skammt af bóluefni.

Tilslakanir á veitingastöðum og börum
Ýmsar smávægilegar breytingar voru gerðar á gildandi reglugerð heilbrigðisráðuneytisins um sóttvarnir í fyrradag.

Heimsmeistaramóti íslenska hestsins aflýst
Alþjóðasamtök íslenska hestsins, FEIF, gáfu í morgun út tilkynningu þess efnis að heimsmeistaramóti íslenska hestsins árið 2021 hafi verið aflýst.

Drekkja sorgum sínum á sóttkvíarhótelinu
Ekkert kemur í veg fyrir að fólk neyti áfengis á sóttkvíarhótelinu á Fosshóteli, nema ef vera skyldi að það á auðvitað ekki heimangengt úr sóttkví í Vínbúðina. Sú verslun býður ekki upp á heimsendingu.

Jansen líklega fyrir þá sem erfitt er að ná aftur í bólusetningu
Notkun bóluefnis frá framleiðandanum Jansen hefur verið samþykkt hér á landi og má búast við að í næstu viku verði þeir fyrstu bólusettir með efninu frá bandaríska fyrirtækinu Johnson & Johnson.

Varaþingmaðurinn úr Pírötum sem greiddi atkvæði gegn frumvarpi Svandísar
Aðeins tvö atkvæði voru greidd gegn sóttvarnalagafrumvarpi Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra í gær, þar sem skylduvist á sóttkvíarhóteli var leidd í lög fyrir ákveðna hópa við landamærin.

„Aldrei verið eins lítil ástæða til að veita lagastoð jafnmikilli valdbeitingu“
Sigríður Á. Andersen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, var önnur þeirra tveggja þingmanna sem ekki studdu frumvarp heilbrigðisráðherra um sóttvarnarhús og ráðstafanir á landamærum. Hún segir aldrei hafa verið eins litla ástæðu til að veita jafnmikilli valdbeitingu á landamærunum lagastoð.

Herra Hnetusmjör hættur við mótmæli í bili
Ekkert verður af áformum rapparans Herra Hnetusmjör um að stífla Reykjanesbrautina í mótmælaskyni í bili.

Kórónukeisarinn og hvað svo?
Gleðilegt sumar kæru vinir! Það er svo sannarlega gott að vita til þess að sumarið kemur þrátt fyrir heimsfaraldurinn. Það er vissulega áhugavert að heimsfaraldurinn skuli bera nafnið kórónuveiran.

Ánægður með breytingarnar sem gerðar voru á frumvarpinu í nótt
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir er ánægðir að frumvörp um breytingar á sóttvarnalögum og lögum um útlendinga voru samþykkt í nótt. Lagabreytingin skyldar fólk frá tilteknum svæðum, miðað við útbreiðslu kórónuveirunnar, til að fara í sóttvarnahús milli skimana eftir komuna til landsins.

Þórólfur órólegur vegna stöðunnar
Átta af þeim sautján sem greindust með kórónuveiruna innanlands í gær voru ekki í sóttkví. Sóttvarnalæknir er órólegur vegna stöðunnar og segir ljóst að veiran sé búin að dreifa sér víða.

Hefði viljað ganga lengra til að „stoppa lekann á landamærum“
Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og formaður velferðarnefndar, segir miður að ekki hafi verið gengið lengra í frumvarpi sem samþykkt var á Alþingi í nótt við að veita sóttvarnayfirvöldum heimild til að „stöðva lekann á landamærum.“ Hún telur ósamstöðu innan ríkisstjórnarinnar um að kenna.

Sautján greindust innanlands og átta ekki í sóttkví
Alls greindust sautján með covid-19 innanlands í gær og voru átta þeirra ekki í sóttkví. Alls voru tekin 1.923 sýni og er tala yfir nýgengi smita nú 29,2. Þetta kemur fram í tilkynningu frá almannavörnum.

Norðmenn staðfesta bóluefnalánið til Íslands og Svíþjóðar
Heilbrigðisráðherra Noregs hefur staðfest að Norðmenn muni lána Íslendingum og Svíum bóluefni AstraZeneca. Svíar fá 200 þúsund skammta en Íslendingar 16 þúsund skammta.

Metfjöldi tilfella á heimsvísu og skortur á súrefni á Indlandi
Hátt í 315 þúsund greindust með covid-19 á Indlandi síðasta sólarhringinn, sem er metfjöldi á einum degi, ekki aðeins á Indlandi heldur í heiminum öllum. Þá létust 2.104 úr covid-19 á Indlandi í gær sem er einnig met í fjölda dauðsfalla á einum degi í landinu.

Frumvarpið samþykkt á Alþingi í nótt
Frumvarp Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra um breytingar á sóttvarnalögum og lögum um útlendinga, þar sem kveðið er á um sóttvarnahús og för yfir landamæri, var samþykkt á Alþingi á fimmta tímanum í nótt. Frumvarpið var samþykkt með 28 atkvæðum gegn tveimur, 22 greiddu ekki atkvæði og ellefu voru fjarstaddir.

Farið yfir skrítna tíma á fyrsta degi sumars
Fuglahræðan sem varð á vegi ljósmyndarans Ragnars Axelssonar á dögunum, er svolítið táknræn fyrir þá skrítnu tíma sem við erum að ganga í gegnum.

209 milljóna tap Ríkisútvarpsins
Ríkisútvarpið tapaði 209 milljónum króna eftir skatta á árinu 2020, samkvæmt rekstrarreikningi sem kynntur var á aðalfundi í dag. Afkoma Ríkisútvarpsins sé þannig neikvæð í fyrsta sinn frá árinu 2014 vegna kórónuveirufaraldursins.

Þingfundi frestað enn einu sinni
Þingfundi sem hefjast átti klukkan 21:30 hefur nú verið frestað til klukkan eitt. Fundinum hafði áður verið frestað til 23 og síðan aftur til miðnættis. Afgreiðsla frumvarps heilbrigðisráðherra um sóttvarna- og útlendingalög í velferðarnefnd hefur dregist á langinn og útlit fyrir að umræða um frumvarpið á þingi standi fram á nótt.

Bólusetning myndi draga úr álagi á foreldra langveikra barna
Foreldrar langveikra barna kalla eftir því að fá forgang í bólusetningar við kórónuveirunni. Sumir hafa þurft að vera í nær stöðugu verndarsóttkví á heimili sínu og segja velvild vinnuveitenda sinna að þolmörkum komna.

Gerir fastlega ráð fyrir að frumvarpið taki „þónokkrum breytingum“ í kvöld
Sigríður Á. Andersen þingmaður Sjálfstæðisflokksins gerir fastlega ráð fyrir að frumvarp ríkisstjórnarinnar um breytingar á sóttvarnar- og útlendingalögum verði taki þónokkrum breytingum í meðförum velferðarnefndar í kvöld.

Svandís segir aðgerðirnar tímabundnar og afmarkaðar en brýnar
Heilbrigðisráðherra segir Íslendinga ekki mega láta kappið bera sig ofurliði í aðgerðum gegn covid 19 og gæta meðalhófs. Nýjustu aðgerðirnar miði að því að taka harðar á þeim sem komi til landsins frá hááhættusvæðum. Reiknað er með að frumvarp ríkisstjórnarinnar um breytingar á sóttvarna- og útlendingalögum verði lögfest í kvöld.