Samherjaskjölin
1 2 3 4 5 6 7 … 16 ›
Lögregla þurfi að fara sérstaklega varlega í rannsóknum sem beinist að fjölmiðlum Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra telur að lögregla þurfi að fara sérstaklega varlega í rannsóknum sem beinast að frjálsum fjölmiðlum sem fjalla um viðkvæm samfélagsmál. Hún minnir á að hún hafi látið verkin tala þegar kemur að lagasetningu um vernd heimildarmanna fjölmiðla. Innlent 22.9.2022 13:16
Formaður BÍ segist ekkert botna í því hvað Bjarna gangi til Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður Blaðamannafélags Íslands (BÍ), segist ekki vita hvað Bjarna Benediktssyni, formanni Sjálfstæðisflokksins og fjármálaráðherra, gangi til með að vilja blanda sér mál sem snýr að rannsókn lögreglu á fjórum blaðamönnum. Afstaða hans standist enga skoðun. Innlent 21.9.2022 12:20
„Kannski mættu þeir sem fjölluðu um málið læra eitthvað“ Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra svarar ummælum Þórðar Snæs Júlíussonar og segist furða sig á skrifum Þórðar. Hann segist hvorki vera í liði með lögreglunni né blaðamönnum heldur lögum landsins. Innlent 20.9.2022 17:59
MDE skeri úr um lögmæti aðgerða lögreglunnar á Norðurlandi eystra Aðalsteinn Kjartansson, blaðamaður á Stundinni, hefur falið Gunnari Inga Jóhannssyni lögmanni sínum, að óska eftir því að Mannréttindadómstóll Evrópu skeri úr um lögmæti framgöngu Lögreglunnar á Norðurlandi eystra. Innlent 20.9.2022 17:30
Þórður Snær segir rannsókn Páleyjar ráðast af hagsmunum Samherja Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, hefur birt aðsenda grein á fréttavef sínum, þar sem hann setur fram alvarlegar ásakanir á hendur Páley Borgþórsdóttur og lögregluembættinu á Norðurlandi eystra. Innlent 20.9.2022 12:13
„Ekki kann lögreglan að meta það“ Í þakkarræðu sinni á Edduverðlaununum í kvöld skaut Þóra Arnórsdóttir föstum skotum að lögreglu og Samherja þegar hún tók við verðlaunum fyrir hönd umsjónarmanna Kveiks, sem hlutu verðlaun fyrir fréttaskýringaþátt ársins. Innlent 18.9.2022 22:19
Fyrrum Samherjaskip í árekstri undan ströndum Namibíu Mildi þykir að tæplega 170 sjómenn hafi ekki stórslasast þegar tvö skip, Tutungeni (sem áður hét Heinaste) og Erica rákust saman í svartaþoku við strendur Namibíu. Erlent 14.9.2022 15:56
Blaðamennska í ágjöf norðlensks réttarfars Enn hefur lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra kallað fjóra blaðamenn til yfirheyrslu vegna tapaðs síma í eigu húskarls Samherja. Enn heyrist ekkert af yfirheyrslum yfir Samherjamönnum vegna meintar mútustarfssemi í þróunarlandi – örlítið stærra mál en tapaður sími. Skoðun 31.8.2022 13:01
Blaðamennirnir fjórir hafi nú allir gefið skýrslu Íslensku blaðamennirnir fjórir sem voru boðaðir til yfirheyrslu vegna umfjöllunar um „skæruliðadeild“ Samherja eru nú sögð hafa gefið lögreglunni á Norðurlandi eystra skýrslu vegna málsins. Innlent 30.8.2022 18:23
Skoða leiðir til að endurheimta Namibíufé Graham Hopwood framkvæmdastjóri IPPR í Namibíu greindi í dag frá því að samtökin og Íslandsdeild Transparency International hafi tekið höndum saman og séu nú að kanna leiðir til sækja þá fjármuni sem „hafi verið teknir út úr Namibíu“ vegna umsvifa Samherja þar í landi. Erlent 30.8.2022 17:36
„Ég er í engum vafa um að ég braut engin lög“ Ritstjóri Kjarnans segir yfirheyrslu yfir sér, sem fram fór í gær, fyrst og fremst hafa snúist um störf fjölmiðla og heimildamenn í tengslum við Samherjamálið. Ekki hafi verið spurt um meinta dreifingu á kynferðislegu efni, sem rannsóknin var áður sögð snúast um. Innlent 12.8.2022 14:01
Blaðamennirnir boðaðir í yfirheyrslu á ný Lögreglan á Norðurlandi eystra hefur boðað blaðamennina fjóra sem eru með réttarstöðu sakbornings eftir umfjöllun um „skæruliðadeild Samherja“, aftur í skýrslutöku. Innlent 11.8.2022 18:17
Íslendingarnir hafi forðast sendinefnd Namibíu Þeir Íslendingar sem sendinefnd namibískra stjórnvalda vildi ræða við hér á landi fyrr í sumar eru sagðir hafa forðast það með öllum ráðum að ræða við nefndina. Nefndin var send hingað til lands til þess að ræða framsal þriggja Íslendinga sem áttu hlut að meintum mútugreiðslum til áhrifamanna í sjávarútvegi í Namibíu. Innlent 8.8.2022 13:42
Brynjar segir umdeildan fund með Namibíumönnum hinn furðulegasta Brynjar Níelsson, varaþingmaður og aðstoðarmaður dómsmálaráðherra segir ómögulegt fyrir sig að átta sig á því hvers eðlis umdeildur fundur með Namibíumönnum var. Innlent 2.8.2022 10:24
Staðfesta ekki skýringar Brynjars Talskona namibíska utanríkissamskipta- og samvinnuráðuneytinu staðfestir ekki skýringar Brynjars Níelssonar, aðstoðarmanns dómsmálaráðherra, vegna fundar sem hann átti með namibískum embættismönnum. Innlent 2.8.2022 06:57
Sömdu söngleik um Samherja og slógu Íslandsmet í plötuútgáfu Þrír ungir tónlistarmenn hafa í sumar gefið út átta plötur yfir átta vikna tímabil sem þeir segja vera Íslandsmet í plötuútgáfu yfir jafnlangt tímabil. Meðal platnanna átta er Samherji: The Musical sem inniheldur meðal annars lögin Kvótakóng og Arðrán. Menning 29.7.2022 07:15
Töf Samherjamálsins valdi réttarspjöllum ofan á orðsporsáhættu Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingar, telur að töf á rannsókn Samherjamálsins geti valdið réttarspjöllum ofan á þá „orðsporsáhættu sem augljós er“. Hún segir embætti héraðssaksóknara og skattrannsóknarstjóra vanfjármögnuð og sakar fjármálaráðherra um að kæra sig kollóttan um fjárhagsskort embættanna. Innlent 19.6.2022 15:01
Undrun og vonbrigði innan OECD með framgang Samherjamálsins á Íslandi Drago Kos, yfirmaður vinnuhóps OECD gegn mútum, segir að það sé nánast vandræðalegt fyrir Ísland að yfirvöld í Namibíu dragi vagninn í rannsókn á Samherjamálinu. Hann tekur þó fram að hann vanmetur ekkert land. Hópurinn hefur fylgst með framvindu málsins og krefst nú svara frá yfirvöldum á Íslandi vegna afskipta lögreglu af blaðamönnum. Innlent 18.6.2022 20:00
Fundarhöld með namibískum rannsakendum og saksóknara Héraðssaksóknari hefur átt tvo fundi með þeim sem fara fyrir rannsókn og saksókn í Samherjamálinu í Namibíu. Varaforsætisráðherra Namibíu er stödd hér á landi ásamt sendinefnd til að ræða við íslensk stjórnvöld og rannsakendur. Héraðssaksóknari segir að það sé góður gangur á rannsókninni. Innlent 8.6.2022 12:16
Ekki vanhæfur þrátt fyrir „óviðeigandi“ ummæli Þrátt fyrir að tvenn ummæli staðgengils lögreglustjórans á Norðurlandi eystra í garð fjölmiðlafólks séu talin óheppileg og óviðeigandi er hann ekki vanhæfur til að fara með rannsókn á meintu broti gegn friðhelgi Páls Steingrímssonar skipstjóra. Innlent 9.5.2022 13:08
Þórður Snær segist ekki lengur geta setið undir óhróðri Páls Þórður Snær Júlíusson ritstjóri Kjarnans og Arnar Þór Ingólfsson ætla að stefna Páli Vilhjálmssyni bloggara og framhaldsskólakennara fyrir meiðyrði. Innlent 9.5.2022 12:24
Kröfu Þóru um vanhæfi lögreglunnar á Norðurlandi eystra hafnað Kröfu Þóru Arnórsdóttur fréttamanns Ríkisútvarpsins um að embætti Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra yrði úrskurðað vanhæft til að rannsaka meint brot blaðamanna á friðhelgi einkalífs skipstjórans Páls Steingrímssonar hefur verið hafnað. Innlent 26.4.2022 16:28
Aðalsteinn þarf að gefa skýrslu eftir frávísun í Hæstarétti Aðalsteinn Kjartansson, blaðamaður á Stundinni, þarf að gefa skýrslu hjá Lögreglunni á Norðurlandi eystra. Þetta er ljóst eftir að Hæstiréttur vísaði kæru Aðalsteins frá dómi í dag. Hæstiréttur taldi að Aðalsteinn hefði ekki heimild til að kæra frávísunarúrskurð Landsréttar til Hæstaréttar. Innlent 25.3.2022 14:43
Óeðlilegt að lögreglan hafi algjörlega frjálsar hendur í lýðræðisríki Aðalsteinn Kjartansson, blaðamaður á Stundinni, furðar sig á því að Landsréttur hafi ekki tekið efnislega afstöðu í máli sínu gegn embætti lögreglustjórans á Norðurlandi eystra. Innlent 16.3.2022 22:52
Landsréttur vísaði máli Aðalsteins frá og blaðamennirnir verða kallaðir til skýrslutöku Landsréttur vísaði í dag kæru Aðalsteins Kjartanssonar, blaðamanns á Stundinni, gegn embætti lögreglustjórans á Norðurlandi eystra frá héraðsdómi. Héraðsdómur Norðurlands eystra hafði áður komist að þeirri niðurstöðu að ákvörðun lögreglu um taka skýrslu af Aðalsteini sem sakborningi hafi verið ólögmæt. Innlent 16.3.2022 19:16
Munu kæra ef lögreglan heldur yfirheyrslum til streitu Ritstjóri Kjarnans á ekki von á að lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra muni halda til streitu yfirheyrslum á fjórum blaðamönnum eftir að héraðsdómur kvað upp úr um ólögmæti þess að einn þeirra yrði yfirheyrður með stöðu sakbornings. Hann segist munu kæra ef lögreglan geri slíkt. Innlent 1.3.2022 13:32
Saksóknari segir viðkvæma blaðamenn eiga heima í blómaskreytingum Lögregluembættið á Norðurlandi eystra var gripið í landhelgi þegar það gaf Aðalsteini Kjartanssyni blaðamanni réttarstöðu sakbornings og vildi yfirheyra hann sem slíkan. Héraðsdómur segir það ólögmætt. Lögregluembættið fyrir norðan ætlar að kæra úrskurðinn til Landsréttar. Innlent 28.2.2022 15:28
Páleyju óheimilt að gera Aðalstein að sakborningi Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur úrskurðað í máli Aðalsteins Kjartanssonar blaðamanns á Stundinni en hann kærði þá ákvörðun lögreglunnar á Norðurlandi eystra að gera hann í sakborningi í máli sem snýr að eitrun og stuldi á síma Páls Steingrímssonar skipstjóra hjá Samherja. Niðurstaða dómarans er að Páleyju Borgþórsdóttur lögreglustjóra hafi verið það óheimilt. Innlent 28.2.2022 14:23
Blaðamenn segja greinargerðina einkennast af dylgjum og getgátum Ýmissa grasa kennir í greinargerð Eyþórs Þorbergssonar aðstoðarsaksóknara, þar sem afstaða Páleyjar Borgþórsdóttur lögreglustjóra og lögregluembættisins birtist til rannsóknar á hlut blaðamanna í sakamáli sem snýr að eitrun, símastuldi og svo dreifingu kynferðislegs efnis. Innlent 24.2.2022 22:41
Lögmaður Aðalsteins: Fjarstæðukennt að blaðamenn hafi gerst sekir um kynferðisbrot með því að skoða efni Tekist var á um meint brot blaðamanna í tengslum við umfjöllun um hina svokölluðu Skæruliðadeild Samherja í Héraðsdómi Norðurlands eystra í dag. Tíðindamaður Vísis var á vettvangi og færði til bókar það helsta. Saksóknari telur ljóst að blaðamennirnir hafi gerst sekir um stafrænt kynferðisbrot en lögmaður blaðamanns segir hann ekki hafa séð umrætt efni og kenningu lögreglu líkjast samsæriskenningu. Innlent 23.2.2022 23:00