Innlent

Álit um aðkomu stjórnvalda að íbúðalánum kynnt í dag
Félagsmálaráðherra hefur boðað til blaðamannafundar í dag klukkan 15. Þar verður kynnt lokaálit stýrihóps um framtíðarstefnumótun um hlutverk og aðkomu stjórnvalda að íbúðalánamarkaðnum.
67 teknir á meira en 190 í ágúst
Tugir bíla mældust á yfir 190 kílómetra hraða í ágústmánuði. Sigurður Helgason hjá Umferðarstofu segir hraðann aukast í takt við velsæld þjóðfélagsins.

Gæti hagnast um 20 milljarða við sölu á Icelandair
Eignarhaldsfélagið FL Group gæti hagnast um tuttugu milljarða króna með fyrirhugaðri sölu á Icelandair, eða Flugleiðum, að mati markaðssérfræðinga. Það yrði einhver mesti söluhagnaður á svo skömmum tíma sem um getur hér á landi.


Ísland færist upp um tvö sæti á lista WEF um samkeppnishæfni
Ísland er fjórtánda samkeppnishæfasta land í heimi og færist upp um tvö sæti frá því í fyrra samkvæmt nýrri skýrslu samtakanna Wold Economic Forum. Sviss er samkepnnishæfasta hagkerfi heimsins en þar á eftir koma Finnland, Svíþjóð og Danmörk.
Samkeppnishæfasta hagkerfið í Sviss
Sviss, Finnland og Svíþjóð eru í þremur efstu sætum yfir samkeppnishæfustu hagkerfi heimsins, samkvæmt nýrri skýrslu World Economic Forum, sem kom út í dag. Bandaríkin voru í fyrsta sæti í fyrra en fellu niður í sjötta sæti. Ísland fer upp um tvö sæti á milli ára og vermir nú 14. sætið yfir samkeppnishæfustu hagkerfi heims.

Trúir ekki að Steingrímur hafi ekki spurt um leyniþjónustu
Björn Bjarnason dómsmálaráðherra segir að það væri með miklum ólíkindum ef embættismenn hefðu ekki upplýst Steingrím Hermannsson, fyrrverandi dóms- og kirkjumálaráðherra og forsætisráðherra um ráðstafanir lögreglunnar til að gæta öryggis ríkisins. Hafi Steingrími ekki verið sagt frá þessum grundvallaratriðum að fyrra bragði trúi hann ekki öðru en jafnathugull maður og Steingrímur hafi spurt.

Yfirlýsing frá FL Group vegna fréttar Morgunblaðsins
FL Group hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna fréttar Morgunblaðsins í dag um áhuga að minnsta kosti tveggja banka á að kaupa Icelandair.

Taka undir kröfur sjúkraliða á LSH um nýjan stofnanasamning
Sjúkraliðar á sjúkrahúsi og heilsugæslu Akranes og sjúkraliðar á Heilbrigðisstofnun Austurlands hafa sent frá sér ályktanir þar sem tekið er undir kröfur sjúkraliða á Landspítalans um að gengið verði frá nýjum stofnanasamningi við sjúkraliða tafarlaust.

Bryndís Ísfold stefnir á 6. sætið í Reykjavík
Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir sækist eftir 6. sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík. Þetta kemur fram í tilkynningu frá henni. Bryndís situr nú í framkvæmdastjórn flokksins og hefur gegnt fjölmörgum trúnaðarstörfum á vegum hans.

Sextán manns vakta varnarsvæðið þegar herinn fer
Búið er að ráða tólf öryggisverði til að starfa með fjórum lögreglumönnum við að vakta varnarsvæðið á Keflavíkurflugvelli eftir að síðustu varnarliðsmennirnir yfirgefa svæðið um helgina.
Varað við hálku á Holtavörðuheiði
Vegagerðin varar við hálku á Holtavörðuheiði, og er þetta líklega fyrsta hálkuviðvörunin í haust. Þá er varað við steinkasti á Hellisheiðinni frá Skíðaskálanum í Hveradölum að Kömbunum og eins efst í Þrengslunum vegna klæðningarvinnu.

Halda upp á brottför hersins
Íslenskir friðarsinnar ætla að halda til Suðurnesja og fagna brottför hersins á sunnudaginn næstkomandi.

Nýr formaður Vinstri-grænna í Reykjavík
Hermann Valsson var í kvöld kosinn nýr formaður Reykjavíkurfélags Vinstri-grænna. Hermann er kennari og varaborgarfulltrúi en hann tekur við af Þorleifi Gunnlaugssyni.

Fundað um vetni
Sjötti fundur stýrinefndar Alþjóðavetnissamstarfsins verður haldinn á Hótel Nordica í Reykjavík dagana 26. og 27. september.

Íslenskur verkfræðinema í sigurliði í alþjóðlegri hönnunarkeppni
Íslenskur verkfræðinemi úr Háskóla Íslands, Andri Heiðar Kristinsson, bar ásamt hópi verkfræðinema sigur úr bítum hönnunarkeppni sem fram fór í Barcelona í síðustu viku.

Óvissa um byggingu menningarhúss í Skagafirði
Algjör óvissa ríkir um byggingu menningarhúss í Skagafirði eftir deilur og aðdróttanir á síðasta sveitastjórnarfundi. Sóknarpresturinn í Glaumbæ krefst afsökunarbeiðni og stefnir í dómsmál.

Ísfirðingar greiða sama verð og höfuðborgarbúar fyrir hægari nettengingu
Ísfirðingar greiða sama verð og höfuðborgarbúar fyrir helmingi hægari nettengingu. Notandi með 4 MB/s tenging á Ísafirði greiðir sama verð og notandi á höfuðborgarsvæðinu með 8 MB/s tengingu.

Tófan á ferð
Illa leikin ær fannst á túni bóndans á Stað í Súgandafirði fyrir skömmu. Svo virðist sem tófan hafi verið að verki en ærin lifði þó árásina af.

Vestfirsk Jökulsárganga
Vestfirskt áhugafólk um verndun hálendisins ætlar á morgun að mótmæla yfirvofandi náttúruspjöllum á austfjarðarhálendinu með því að ganga.

Þvertaka fyrir að hafa vitað af rekstri leyniþjónustu
Tveir dómsmálaráðherrar Framsóknarflokksins á tímum kalda stríðsins, Steingrímur Hermannsson og Jón Helgason, þvertaka fyrir að hafa vitað af rekstri leyniþjónustu hjá undirstofnunum sem heyrðu undir ráðuneyti þeirra.

Listaverk og skrímsli í Faxaskála
Vinnuvélar, sem minna einna helst á skrímsli úr vísindaskáldsögu, rífa nú í sig leifarnar af Faxaskála við Reykjavíkurhöfn. Aðkoman á vinnusvæðinu líkist heimkynnum skrímslanna í slíkri sögu eða jafnvel vígvelli.

Niðurgreitt flug til Eyja?
Flug til Eyja verður niðurgreitt af ríkinu ef ekki finnst á næstu 6 mánuðum flugfélag sem treystir sér til að halda úti flugi milli Eyja og Reykjavíkur á viðskiptalegum forsendum.

Val á prestum ekki undir jafnréttislög
Kirkjuráð ætlar að leggja til við Kirkjuþing í október að prestar verði kosnir leynilegri kosningu, meðal annars til að tryggja að valið falli ekki undir jafnréttislög.

Fær ekki aðstoð barnaverndaryfirvalda
Móðir af erlendum uppruna fær ekki aðstoð barnaverndaryfirvalda á Álftanesi til að sækja barn sitt til forsjárlauss föður sem hefur haldið barninu í leyfisleysi frá því í ágúst. Drengurinn átti að byrja í skóla fyrir mánuði.

Ráðherra seig úr þyrlu
Öryggisvika sjómanna var sett í dag í rjómablíðu út við sundin blá. Í vikunni verða sjómenn hvattir til að þjálfa viðbrögð við slysum og sjávarháska.

Eignir íslenskra heimila hækka
Eignir íslenskra heimila hækkuðu að verðmæti í ágúst eftir nánast stöðugan samdrátt frá því í mars ef miðað er við eignaverðsvísitölu greiningardeildar KB banka. Vísitalan hækkaði um 4,3% í mánuðinum og fór vöxtur vísitölunnar síðustu tólf mánuðina þar með úr 2,3% í 5,6% að raunvirði.

Leigusamningur vegna tækja líklega framlengdur
Leigusamningur milli íslenskra og bandarískra stjónvalda vegna tækjabúnaðar á Keflavíkurflugvelli verður hugsanlega framlengdur um fjögur ár til viðbótar því ári sem samið verður um. Frá þessu er greint á vef Víkurfétta.

Lögreglan í Kópavogi lýsir eftir þrettán ára stúlku
Lögreglan í Kópavogi lýsir eftir þrettán ára stúlku Sigrúnu Mjöll Jóhannesdóttur. Sigrún Mjöll fór frá heimili sínu í Kópavogi á síðastliðið föstudagskvöld og hefur hún ekkert látið vita af sér síðan þá. Sést hefur þó til hennar bæði í Kópavogi og í Reykjavík.