Innlent

Hrefnuveiðimenn halda sínu striki
Hrefnuveiðimenn ætla að halda sínu striki þótt Hvalur 9 sé hættur veiðum og skilji tvö dýr eftir af kvótanum.

Danskur lögfræðingur og rússneskur ráðherra í umfjöllun Ekstra Bladet
Hjálparhella íslenskra kaupsýslumanna í Danmörku, danski lögmaðurinn Jeff Galmond, og rússneski fjarskiptaráðherrann eru í aðalhlutverki fréttaskýringar Ekstra-blaðsins danska í dag um íslensku útrásina.

Hafa efasemdir um spár um hrun í dýraríki sjávar
Fiskistofnar og sjávarspendýr í höfum heimsins hrynja árið 2048 ef mannfólkið heldur áfram með uppteknum hætti að spilla umhverfi og lífríki sjávar, segja erlendir vísindamenn. Íslenskir útvegsmenn og fiskifræðingar eru ekki alveg eins vissir.

Um 450 hafa kosið utan kjörfundar í prófkjöri í Suðurkjördæmi
457 höfðu kosið utan kjörfundar í opnu prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi nú á hádegi en prófkjörið fer fram á morgun. Kosið hefur verið utan kjörfundar á skrifstofu flokksins í Reykjavík, í Reykjanesbæ, á Selfossi, á Hornafirði og í Vestamannaeyjum.

Slökkviliðið á Akureyri fær viðurkenningu
Tryggingafélagði Vörður veitti slökikviliðsmönnum á Akureyri viðurkenningu fyrir að hafa bjarða mannslífum í bruna að Fjólugötu 18 á Akureyri í apríl síðastliðnum.

Hagnaður Eyris rúmir 1,5 milljarðar króna
Fjárfestingafélagið Eyrir Invest hagnaðist um rúma 1,5 milljarða krónur á fyrstu mánuðum ársins. Hlutafé hefur verið aukið um 10 prósent. Í tilkynningu frá Eyri segir að fjárhagslegur styrkleiki aukist í hlutafjáraukningarinnar og innkomu nýrra fjárfesta. Nýtt hlutafé verður að fullu innborgað í lok ársins.

Pétur Árni sækist eftir 5. sætinu hjá Sjálfstæðisflokknum í SV-kjördæmi
Pétur Árni Jónsson gefur kost á sér í 5. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi í prófkjöri sem fram fer 11. nóvember. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Pétri Árna. Þar segir einnig að tíu frambjóðendur hafi skilað inn framboðum áður en framboðsfrestur rann út en kjörnefnd hafi óskað eftir því við hann að hann gæfi einnig kost á sér og varð hann við þeirri ósk.

Landsbankinn mælir með kaupum í Bakkavör
Greiningardeild Landsbankans segir rekstur Bakkavarar hafa gengið vel á árinu og félagið vaxið umfram markaðinn. Deildin segir í nýju mati á félaginu að verðmatsgengi gefi 62,5 og verði vænt verð eftir 12 mánuði 69,4 krónur á hlut. Deildin mælir því með kaupum á bréfum í Bakkavör.

Safna fé fyrir vatni handa íbúum þriggja Afríkuríkja
Fermingarbörn úr 66 sóknum í öllum landshlutum ganga í hús mánudaginn til þess að safna fé fyrir vatni í þremur löndum í Afríku. Söfnunin er á vegum Hjálparstofnunar kirkjunnar en börnin hafa að undanförnu fengið fræðslu um aðstæður fátækra barna í Mósambík, Malaví og Úganda.

Ásatrúarmenn og rétttrúnaðarkirkjan fá fyrirheit um lóðir
Borgarráð samþykkti á fundi sínum í gær fyrirheit um lóðir til tveggja safnaða hér á landi. Um er að ræða Ástrúarsöfnuðinn sem fær fyrirheit lóð fyrir hof, með eða án safnaðarheimilis, í Leynimýri í Öskjuhlíð og hefur skipulagssviði verið falið að gera tillögur um að staðsetningu lóðarinnar. Þá er Rússnesku rétttrúnaðarkirkjunni gefin fyrirheit um lóð fyrir kirkjubyggingu á Nýlendureit milli Nýlendugötu og Mýrargötu.

Síminn hagnast um 3 milljarða
Síminn skilaði 3.264 milljóna króna hagnaði á þriðja ársfjórðungi samanborið við 929 milljónir króna á sama tíma í fyrra. Þetta er 250 prósenta aukning. Tekjur félagsins voru 6,2 milljarðar króna og jukust um 19 prósent á milli ára.
Bíll hafnaði ofan í skurði
Bíll hafnaði ofan í djúpum skurði á mótum Ingólfsstrætis og Skúlagötu í Reykjavík í nótt og stór skemmdist. Höggið var svo mikið að öryggisbelgir blésu út. Ökumaður og hugsanlegir farþegar voru hinsvegar á bak og burt þegar lögregla kom á vettvang og hefur ekki tekist að hafa upp á eiganda bílsins.

Árekstur við strætisvagn
Tvær konur voru fluttar á slysadeild Landspítala Háskólasjúkrahúss í Fossvoginum eftir að bíll þeirra lenti í árkestri við strætisvagn á mótum Salavegar og Arnarnesvegar um sex leitið í gærkvöldi. Konurnar reyndust ekki alvarlega slasaðar þótt beita hafi þurft klippum til að ná annari út úr bílflakinu. Ökumann og farþega strætisvagnsins sakaði ekki. Tildrög slyssins eru óljós.

Sala Borgarinnar á Landsvirkjun gagnrýnd
Hörð gagnrýni kom fram á sölu Reykjavíkurborgar á hlut sínum í Landsvirkjun, á borgarráðsfundi í gær. Minnihlutaflokkarnir bentu á að salan væri undanfari einkavæðingar fyrirtækisins og með henni myndi raforkuverð til borgarbúa hækka.

Hvalveiðum hætt vegna veðurs
Hvalveiðum var hætt í gær þrátt fyrir að tveir hvalir séu óveiddir af níu hvala kvóta. Í viðtali við Morgunblaðið segir Kristján Loftsson forstjóri Hvals að dagsbirtu njóti æ skemur á hverjum degi, og við bætist rigningarsuddi og slæm spá næstu daga, en ekki er hægt að veiða hval nema í góðu skygni.
Útlendingum fjölgar
Erlendum félagsmönnum í Verkalýðsfélagi Akraness hefur fjölgað gífurlega að undanförnu. Þeir eru nú um 200 talsins eða um níu prósent af fullgildum félagsmönnum. Þetta kemur fram á vef Verkalýðsfélagsins. Langflestir af erlendu starfsmönnunum koma frá Póllandi, eða um 120 manns.

Ríflega 3.000 króna verðmunur
Skipting, umfelgun og jafnvægisstilling fyrir fólksbíl á sextán tommu dekkjum með stál-felgum er dýrust hjá Betra gripi í Lágmúla en þar kostar þjónustan 7.760 krónur. Ódýrust er þjónustan hjá Bílkó í Kópavogi þar sem hún kostar 4.690 og er munurinn því 3.070 krónur eða 65,5 prósent.
Karlar með 42 prósenta hærri laun en konur
Heildarlaun karla sem eru félagar innan Starfsgreinasambandsins eru að meðaltali rúmlega 42 prósentum hærri en laun kvenna í sömu félögum. Þetta kemur fram í könnun sem Capacent Gallup vann í haust.

Ekki tekið mið af 91 milljarðs verðmætamati
Á borgarráðsfundi í gær lögðu fulltrúar Samfylkingarinnar fram bókun um að borgarstjóri Reykjavíkur hafi selt hlut borgarinnar í Landsvirkjun fyrir óviðunandi verð. En hluturinn var seldur miðað við að heildarverðmæti fyrirtækisins væri 61 milljarður.

Landsbjörg aflar fjár með neyðarkalli
Slysavarnafélagið Landsbjörg hefur í dag sölu á svokölluðum neyðarkalli. Hann verður seldur um helgina í fjáröflun Landsbjargar til styrktar starfsemi sinni. Fjáröflunin hefur mikla þýðingu fyrir starfsemina segir Landsbjörg.
Fundað um flokksskrár Sjálfstæðisflokks
Framkvæmdastjórn Sjálfstæðisflokksins mun taka fyrir deilur um flokksskrár Sjálfstæðisflokksins á fundi á mánudagsmorgun. Engra tíðinda er að vænta frá flokknum fyrr en eftir þann fund samkvæmt heimildum Fréttablaðsins.
Sátt um meginefni fjölmiðlafrumvarps
Stjórnarandstaðan er hlynnt nýju frumvarpi um fjölmiðla. Í því er kveðið á um að enginn megi eiga meira en fjórðungshlut í fjölmiðli með ráðandi stöðu.

Sátt um Siv í fyrsta sætinu í Kraganum
Framsóknarmenn í Suðvesturkjördæmi ganga frá framboðslista sínum á auka kjördæmisþingi á laugardag. Siv Friðleifsdóttir sækist ein eftir fyrsta sætinu en fjórir vilja annað sætið. Framsóknarmenn eiga eitt þingsæti í kjördæminu.

Athugasemdirnar alvarlegar
Viðbrögð mín við skrifum Vilhjálms Egilssonar eru þau að ljóst er að þessar athugasemdir frá Samtökum atvinnulífsins eru alvarlegar. Ég og við sem í nefndinni sitjum munum taka þær til rækilegrar skoðunar við vinnslu málsins,“ Sigurður Kári Kristjánsson, formaður menntamálanefndar alþingis. „Ég mun ekki tjá mig um þessar hugleiðingar Vilhjálms að svo stöddu en mun fara yfir þær af nákvæmni við afgreiðslu málsins í heild.“
Skýrslutökum lýkur senn
Rannsókn yfirvalda á því hvort símar í utanríkisráðuneytinu hafi verið hleraðir eftir 1991, sem stýrt er af Ólafi Þór Haukssyni, er langt komin. Ólafur Þór segir nokkrar skýrslutökur eftir enn þá.

Meintur barnaníðingur tekinn
Lögreglan á Akureyri rannsakar nú mál meints barnaníðings gegn tíu ára telpu. Hann var tekinn til yfirheyrslu fyrr í vikunni og mun hafa játað sök, samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins.

Ökuníðingar hljóta mun þyngri refsingar
Sektir vegna umferðarlagabrota munu hækka og gert er ráð fyrir upptöku ökutækja vegna grófra og ítrekaðra brota. Þetta er eitt af því sem fram kemur í nýjum lögum sem taka munu gildi 1. desember og í apríl á næsta ári.

Kynferðisbrot fyrnist ekki
Lagafrumvarp um afnám fyrningarfrests vegna kynferðisbrots gegn börnum hefur verið lagt fram á Alþingi í fjórða sinn og er Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Samfylkingarinnar, fyrsti flutningsmaður.

Hart sótt að sitjandi þingmönnum
Nítján bjóða sig fram í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðvesturkjödæmi. Flokkurinn á nú fjóra þingmenn í kjördæminu og gefa sautján kost á sér í fjögur efstu sætin.

Unglingarnir verða að ganga í skólann
Óánægju gætir meðal foreldra í Vesturbænum vegna nýrra reglna varðandi skólaakstur eða strætómiða í skólann. Unglingar í sjötta til tíunda bekk verða nú að búa í meira en tveggja kílómetra fjarlægð frá Hagaskóla til að fá strætómiða og hafa ekki í annan skóla að venda þar sem Hagaskóli er eini grunnskólinn í Vesturbænum fyrir áttunda til tíunda bekk.