Leigubílar

Traust í húfi
Þann 1. apríl 2023 tóku gildi ný heildarlög um leigubifreiðaakstur. Með þeim voru fjöldatakmarkanir á útgáfu starfsleyfa afnumdar og sömuleiðis stöðvaskylda og gjaldmælaskylda við fyrirfram samið verð. Í aðdraganda breytinganna var ekki tekið nægilegt tillit til sjónarmiða leigubifreiðastjóra og stéttarinnar í heild.

Leigubílstjóri fór í svaðilför á Teslunni inn í Þórsmörk og sneri heill heim
Leigubílstjóri sem ók Teslu yfir fjölda lækja inn í Þórsmörk segir nútímarafbíla vel hannaða til að keyra gegnum djúpa polla eða læki. Hann hafi verið meðvitaður um áhættuna en farið varlega og eru engin ummerki eftir svaðilförina á bílnum.

Brá sér í túristalíki og segir leigubílstjóra hafa okrað á sér
Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, segist hafa þóst vera erlendur ferðamaður þegar hann tók leigubíl af Keflavíkurflugvelli í gær. Leigubílstjórinn hafi svo rukkað hann miðað við stórhátíðartaxta, um miðjan dag á mánudegi.

Lýsa martraðakenndri leigubílaferð upp í Bláfjöll
Tvær ástralskar ferðakonur lýsa martraðakenndri leigubílaferð hér á landi, þar sem ekið var með þær upp að skíðasvæðinu í Bláfjöllum, þvert á óskir þeirra. Þær hafi verið rukkaðar um hátt í þrjátíu þúsund krónur, en ferðin hafi átt að kosta um sjö þúsund.

Opið bréf til hæstvirts innviðaráðherra, Eyjólfs Ármannssonar, um íslensku og ábyrgð
Við hlustun á viðtal við þig hæstvirtan innviðaráðherra, Eyjólf Ármannsson,í Bítinuþar sem ný leigubílalög voru til umræðu, gat ég ekki orða bundist. Ég er sammála þér að fólk eigi að geta talað íslensku og þá sérstaklega í þjónustustörfum. En það sem ég er ósammála er þegar tungumál er notað sem lás í staðinn fyrir lykil að samfélagi.

Kaffistofa leigubílstjóra orðin „nyrsta moska í heimi“
Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra segir að kaffiskúr leigubílstjóra á Keflavíkurflugvelli sé orðinn „nyrsta moska í heimi.“ Hann segist gruna að Isavia þori ekki að taka á málinu en að það sé þeirra að svara fyrir.

Ráðherra vill að leigubílsstjórar tali íslensku
Eyjólfur Ármannsson, innviðaráðherra var gestur Bítisins og ræddi þar um meðal annars um ný leigubílalög. Hann segir fyrri lagasetningu um leigubíla vera algert klúður. Þá vill Eyjólfur að meirapróf, sem leigubílsstjórar þurfi að taka, verði alfarið á íslensku.

Skiptar skoðanir á stöðvarskyldu: „Held að enginn vilji hverfa aftur í það ástand“
Ríkisstjórnin samþykkti í dag að leggja fram nýtt frumvarp um breytingar á leigubílamarkaði. Rekstrarstjóri Hopp Leigubíla segist efins um að breytingarnar muni stuðla að bættu öryggi farþega en formaður leigubílstjóra segir það til bóta.

Vill taka upp stöðvarskyldu tveimur árum eftir að hún var afnumin
Ríkisstjórnin samþykkti í morgun að leggja fram á Alþingi lagafrumvarp Eyjólfs Ármannssonar innviðaráðherra um breytingar á lögum um leigubifreiðaakstur, sem samþykkt voru árið 2022 en tóku gildi 1. apríl 2023. Stefnt er að því að taka aftur upp stöðvarskyldu leigubifreiða, sem afnumin var með lögunum.

Starfsfólk Isavia of smeykt til að taka á kaffistofumálinu
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, þingmaður Miðflokksins, tók til máls á Alþingi í óundirbúnum fyrirspurnum um nýjasta fréttaflutning af Keflavíkurflugvelli. Hann sagði starfsfólk Isavia of smeykt til að taka á því að leigubílastjórum er meinaður aðgangur að kaffistofu þeirra sökum þess að nú er þar bænahús. Fjármála- og efnahagsráðherra eigi að taka til hendinni að sögn Sigmundar.

Kvenkyns ökumönnum fækkað: Áhyggjuefni ef almenningur treystir ekki leigubílstjórum
Formaður Frama - félags leigubílstjóra segir mikið áhyggjuefni ef farþegar treysti ekki lengur leigubílstjórum. Hann segir það hafa mikil áhrif að ekki sé lengur skylda að taka starfsnám, þá hafi kvenkyns bílstjórum fækkað á sama tíma og þeirra er óskað í auknum mæli af farþegum.

Aukið eftirlit til muna eftir brot bílstjórans gegn konunni
Framkvæmdastjóri City Taxi vill að opinberir aðilar fái auknar valdheimildir og fjármagn til þess að bregðast við brotum leigubílstjóra. Hann segist vera búinn að stórbæta eftirlit á vegum fyrirtækisins.

Rukkaði konuna fyrir heimferðina eftir að hafa nauðgað henni
Leigubílstjóri sem dæmdur var í tveggja og hálfs árs óskilorðsbundið fangelsi fyrr í mánuðinum fyrir nauðgun, fór í Hagkaup til að kaupa verjur meðan vinur hans nauðgaði konunni í íbúð sinni í bílskúr í Kópavogi. Eftir að þeir höfðu báðir brotið á konunni í umræddri íbúð ók leigubílstjórinn henni heim og rukkaði hana fyrir farið.

Munu tryggja aðgengi að kaffistofunni sem er nú bænahús
Isavia ætlar að tryggja aðgengi allra leigubílstjóra að skúr sem ætlaður er sem kaffistofa þeirra sem nota leigubílastæðið við Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Skúrinn er nú sagður notaður sem bænahús og lokaður öðrum en þeim sem hann nota sem slíkt.

Leigubílstjóri og vinur hans dæmdir fyrir nauðgun
Leigubílstjóri og vinur hans hafa verið dæmdir í 2,5 árs fangelsi fyrir nauðgun. Leigubílstjórinn ók konu í híbýli hins mannsins í Kópavogi þar sem brotin áttu sér stað. Konan gat ekki spornað við verknaðinum sökum ölvunar og svefndrunga.

Hafa vísað hundrað leigubílstjórum á brott frá flugstöðinni vegna brota á reglum
Upplýsingafulltrúi Isavia segir að loka hafi þurft fyrir aðgang um hundrað leigubílstjóra að Keflavíkurflugvelli í lengri og skemmri tíma. Frá og með 1. maí verður fastur starfsmaður á leigubílasvæðinu við flugstöðina á háannatíma til að aðstoða farþega og tryggja að skilmálum flugvallarins sé fylgt.

Ósáttur við aukna gjaldtöku við flugvöllinn fyrir leigubílstjóra
Isavia stefnir að því að hækka gjaldtöku fyrir leigubílstjóra sem stöðva við flugstöðina til að sækja farþega. Hækka á gjaldið til að geta ráðið starfsmenn til að sinna gæslu við leigubílastöðina og aðstoða farþega við að finna sér leigubíl. Öryggisgæsla við leigubílasvæðið hefst 1. maí á háannatíma en hærri gjaldtaka síðar.

Ný gæðavottun stuðli ekki að mismunun
Formaður Bandalags íslenskra leigubifreiðastjóra segir nýja gæðavottun ekki stuðla að mismunun og vonast til að vottunin muni koma til með að auka traust farþega til leigubílstjóra.

Leigubílamarkaðurinn sé eins og „villta vestrið“
Innviðaráðherra segir leigubílamarkaðinn hafa verið eins og „villta vestrið“ hingað til en nú standi til að gera viðamiklar breytingar. Hann hefur lagt fram frumvarp í samráðsgátt um breytingar á starfsemi leigubílstjóra sem felur meðal annars í sér að innleiða stöðvarskyldu að nýju.

Leigubílar eiga að vera almenningssamgöngur en ekki neyðarúrræði
Ný ríkisstjórn boðaði í mínum augum mikið fagnaðarerindi fyrr í vikunni með áformum sínum um að ”fara í fyrsta lið í endurskoðun á lögum um leigubíla” og þá sérstaklega “að koma aftur á stöðvarskyldu”. Þar liggur fyrir sóknarfæri að bæta til muna samgöngur með nokkrum pennastrikum og svo gott sem engum tilkostnaði.

„Skutlari“ áreitti stúlku og varð fyrir alvarlegri líkamsárás
Svokallaður „skutlari“ hefur verið dæmdur í tíu mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að áreita stúlku kynferðislega í bifreið sinni. Aðstandandi stúlkunnar tók hann kyrkingartaki í kjölfarið og hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps. Sá var nýverið dæmdur í áralangt fangelsi fyrir aðkomu að Sólheimajökulsmálinu svokallaða.

Ekki nauðgun heldur kynferðisleg áreitni í leigubíl
Landsréttur hefur dæmt erlendan leigubílstjóra í tólf mánaða fangelsi fyrir kynferðislega áreitni gagnvart sautján ára stúlku í leigubíl hans haustið 2022. Hann hafði áður hlotið tveggja ára dóm fyrir brotið í héraði en þá taldi dómurinn að um nauðgun væri að ræða.

Lýsir stjórnlausum rasisma: „Hvort verður það líkamlegt ofbeldi eða svívirðingar?“
Leigubílstjóri, sem er innflytjandi frá Afganistan, varð fyrir fólskulegri árás í starfi í mánuðinum. Hann segist merkja skarpa breytingu í samfélaginu, nú sé rasisminn nær stjórnlaus og hann hræddur og kvíðinn fyrir hverja vakt.

Hreyfill gerir sátt við Samkeppniseftirlitið eftir kvörtun Hopp
Samkeppniseftirlitið og leigubílafyrirtækið Hreyfill svf. hafa gert með sér sátt vegna háttsemi Hreyfils sem fólst í því að banna leigubifreiðastjórum sem eru í þjónustu hjá Hreyfli að nýta sér þjónustu annarra leigubifreiðastöðva. Upphaf málsins má rekja til kvörtunar Hopp leigubílum ehf. til eftirlitsins vegna háttsemi Hreyfils. Í sáttinni felst meðal annars að Hreyfill muni ekki hindra að leigubifreiðastjórar sem keyra fyrir stöðina nýti sér einnig aðra þjónustuaðila sem sinna leigubílaakstri.

„Ég vildi óska að það væru fleiri konur í þessu starfi“
Þegar Guðríður Aðalbjörg Þorsteinsdóttir flutti til Horsens í Danmörku árið 2006 átti hún síst von á því að hún myndi enda sem leigubílstjóri- nánar tiltekið annar af tveimur kvenkyns leigubílstjórum sem starfa í bæjarfélaginu.

„Nú er öryggi almennings fórnað á altari atvinnufrelsis“
Formaður bifreiðarstjórafélagsins segir að leigubílstjórar svindli á erlendum ferðamönnum í auknu mæli eftir að ný leigubifreiðalög tóku gildi í apríl á síðasta ári. Þetta hafi slæm áhrif á ásýnd landsins í augum ferðamanna sem veigra sér við að koma til landsins.

Tæknin tekur yfir leigubílamarkaðinn
Fyrir aðeins ári síðan hófu Hopp leigubílar starfsemi á Íslandi og hafa á þessum stutta tíma orðið áberandi á leigubílamarkaðnum. Með nýjungum og tækniþróun hefur fyrirtækið breytt því hvernig bæði bílstjórar og farþegar nýta sér leigubílaþjónustu.

Rassía lögreglu heldur áfram
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu í samstarfi við Skattinn og Samgöngustofu hefur í dag haldið ótrauð áfram í átaki sínu við eftirlit hjá leigubílstjórum á höfuðborgarsvæðinu.

Eftirlitsaðilum bárust 50 ábendingar frá 1. apríl 2023 til ársloka
Tæplega 50 ábendingar um leigubifreiðaakstur bárust eftirlitsaðilum frá 1. apríl 2023, þegar ný lög um leigubifreiðaakstur tóku gildi, til ársloka.

Varar við auknu ofbeldi í leigubifreiðum
Daníel O. Einarsson, formaður Frama - félags leigubílstjóra, tekur eftirliti lögreglunnar gagnvart leigubílstjórum fagnandi. Hann segir mikinn fjölda nýliða í faginu hafa neikvæð áhrif á starfsemina og segir ofbeldismál þar sem leigubílstjórar eiga í hlut aukast.