
Kvöldfréttir Stöðvar 2

Lífshættuleg meðhöndlun barna á vöggustofum og þrír eftir í bakgarðshlaupi
Samningafundur í deilu Sameykis og Félags flugmálastarfsmanna stendur nú yfir í Karphúsinu. Náist ekki samkomulag hefst ótímabundið yfirvinnu- og þjálfunarbann klukkan á fimmtudag. Við förum yfir málið í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum
Utankjörfundarkosning til embættis forseta Íslands er hafin. Búist er við að allt að 55 þúsund manns muni kjósa utan kjörfundar. Í kvöldfréttunum á Stöð 2 heyrum við hljóðið í landsmönnum eftir forsetakappræður gærkvöldsins.

Nýjustu skoðanakannanir, verkfallsaðgerðir á flugvellinum og týndur gaffall
Í kvöldfréttunum förum við yfir Pallborð dagsins, þar sem Baldur Þórhallsson, Halla Hrund Logadóttir og Katrín Jakobsdóttir mættust og ræddu meðal annars málskotsréttinn, móðurmálið og niðurstöður nýjustu skoðanakannana. Heimir Már Pétursson fréttamaður rýnir svo í fylgiskannanir og greinir stöðuna.

Papa's Pizza, verkföll flugvallarstarfsmanna og óvæntur forsetaframbjóðandi
Papa's Pizza í Grindavík opnaði dyr sínar að nýju eftir að hafa verið lokaður í meira en hálft ár. Einn eigendanna segir tíma til kominn að hægt verði að líta björtum augum til Grindavíkur. Við heimsækjum Papa's Pizza í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Jarðhræringar á Reykjanesi, flug til Færeyja og verkalýðsdagurinn
Enn mælist landris við Svartsengi þrátt fyrir að vísbendingar séu um að hægt hafi á því síðustu daga. Gögn benda til þess að þrýstingur sé að aukast í kvikuhólfinu undir Svartsengi. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður rætt við Magnús Tuma Guðmundsson prófessor í jarðeðlisfræði um stöðuna við Svartsengi.

Ekkert eftirlit með veðmálasíðum, landris við Svartsengi og milljónasektir fyrir eldislax
Lögregla hefur ekkert eftirlit með ólöglegum veðmálasíðum hér á landi þrátt fyrir að ríkislögreglustjóri meti sem svo að áhætta á peningaþvætti og skattsvikum í gegnum síðurnar sé mikil. Dæmi eru um að íslenskir áhrifavaldar þiggi greiðslur eða hlunnindi frá fyrirtækinu. Fjallað verður nánar um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Ógild framboð, flug í lamasessi og draumaferð í Disney
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna forsetakosninganna hefst í síðasta lagi á fimmtudag. Tveir frambjóðendur heltust úr lestinni í dag og í kvöldfréttum Stöðvar 2 rýnir Heimir Már Pétursson í kannanir sem gefa misjafna mynd af stöðunni.

Íslandsferðin sem breyttist í martröð
Ferðamenn sem voru hætt komnir eftir harðan árekstur á þjóðvegi 1 við Hellu um síðustu helgi telja bílbeltin hafa bjargað lífi þeirra. Bíllinn sem þeir voru á gjöreyðilagðist í árekstrinum og annar ferðamannanna liggur enn talsvert þungt haldinn á Landspítalanum.

Hættuástand í Grindavík og æsispennandi forsetakosningar
Lögregla á Suðurnesjum fylgist grannt með stöðu mála við Grindavík, þar sem hrauntunga hóf að renna yfir varnargarð í morgun. Þá telja vísindamenn að annað eldgos gæti verið yfirvofandi á svæðinu hvað úr hverju.

Mikil tíðindi í glænýrri könnun
Við greinum frá niðurstöðum glænýrrar könnunar Maskínu á fylgi forsetaframbjóðenda í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30. Metfjöldi skilaði meðmælum í Hörpu í morgun, við sýnum svipmyndir frá viðburðaríkum degi og ræðum við frambjóðendur.

Forsetaslagurinn, leit að eiganda fjármuna og rjómablíða
Útlit er fyrir að tíu verði í framboði til embættis forseta Íslands þann 1. júní næstkomandi, eftir að einn bættist í hóp þeirra sem safnað hafa lágmarksfjölda meðmæla nú síðdegis. Frambjóðendur voru á útopnu um alla borg í dag, daginn áður en framboðsfrestur rennur út. Við sjáum frá deginum og ræðum við formann Landskjörstjórnar í beinni útsendingu.

Kári Stefánsson, ákall um vaxtalækkun og hinsegin list
Fiskeldisfyrirtæki munu ekki greiða auðlindagjald samkvæmt nýju frumvarpi og verður heimilt að selja eða leigja frá sér laxahlutann án endurgjalds til ríkisins. Í kvöldfréttum verður rætt við matvælaráðherra um umdeilt frumvarp og talsmann Íslenska náttúruverndarsjóðsins sem gagnrýnir málið harðlega.

Stórfjölgun ofbeldisbrota, firðir í hættu og hönnunarstuldur
Tilkynningum um alvarleg ofbeldisbrot til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur fjölgað um áttatíu og fimm prósent á síðustu tíu árum á sama tíma og lögreglumönnum hefur fækkað um fjörutíu. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður rætt við lögreglustjóra sem kallar eftir breytingum.

Morðrannsókn á Akureyri og sundgestir í uppnámi
Kona fannst látin í fjölbýlishúsi í Naustahverfinu á Akureyri á fimmta í nótt og grunur er um að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti. Fjallað verður nánar um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Morðrannsókn og hestur sem hefur dálæti á saxófónleik
Fjórir voru í dag úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna gruns um manndráp í sumarbústað á Suðurlandi. Mennirnir eru allir frá Litháen. Lögreglan tjáir sig ekki um áverka á hinum látna, sem vöktu grunsemdir um saknæma háttsemi.

Grunur um manndráp á Suðurlandi, Kári Stefánsson og ropandi kýr
Karlmaður á fertugsaldri er talinn hafa verið myrtur í sumarhúsi á Suðurlandi. Fjórir hafa verið handteknir.

Yfirvofandi eldgos, örvæntingarfull móðir og Hamraborgarþjófarnir
Almannavarnir hafa aukið viðbúnað vegna meiri hættu á öðru eldgosi, sem búist er við að geti hafist á Reykjanesskaganum á næstu dögum. Við ræðum við Víði Reynisson, sviðsstjóra almannavarna í beinni útsendingu.

Myndskeið úr Hamraborg og maður sem heyrir liti með loftneti
Þjófarnir í Hamraborgarmálinu voru rúmar þrjátíu sekúndur að brjótast inn í peningaflutningabíl Öryggismiðstöðvarinnar, færa peningatöskur yfir í eigin bíl og bruna í burtu með tuttugu til þrjátíu milljónir króna í fórum sínum. Þetta sýnir myndband sem komið er í dreifingu og barst fréttastofu. Við fjöllum um málið í fréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30.

Sagði upp til að annast einhverfa dóttur, vantraust á þingi og bílastæðagjöld
Einstæð móðir einhverfrar stúlku brann út og þurfti að segja upp vinnunni til þess að geta annast dóttur sína. Hún segir stjórnvöld verða að gera betur fyrir einhverf börn og foreldra þeirra, álagið sé ómanneskjulegt. Rætt verður við hana í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Öskrandi húsaskortur, átök í þinginu og þunglyndi í boltanum
Byggja þarf helmingi meira en nú er gert til að mæta húsnæðisþörf og hagfræðingur býst við miklum verðhækkunum á næstunni vegna þessa. Háir stýrivextir hafa hægt á uppbyggingu og samdráttur í framkvæmdum á milli ára nemur þriðjungi. Við fjöllum um varhugaverða þróun á húsnæðismarkaði í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Kvöldfréttir Stöðvar 2 í beinni útsendingu
Veitingamaðurinn Quang Le plataði félaga sinn til að giftast konu sem hann sjálfur eignaðist tvö börn með. Lögmaður segir manninn þurfa að höfða mál til að leiðrétta skráninguna en mikilvægt sé að börn séu rétt feðruð.

Fréttir Stöðvar 2 öllum opnar frá og með kvöldinu
Í kvöld verða kvöldfréttir Stöðvar 2, sportpakkinn og Ísland í dag í opinni dagskrá í fyrsta sinn í þrjú ár. Allir landsmenn munu hafa greiðan aðgang að fréttunum frá og með kvöldinu, alla daga ársins.

Kvöldfréttir Stöðvar 2
Tólf særðust í dróna- og eldflaugaárás sem Íran gerði á Ísrael í gærkvöldi og í nótt, þar á meðal sjö ára gömul stúlka, sem liggur á gjörgæslu. Leiðtogar G-7 ríkjanna funda nú um hvernig bregðast eigi við árásinni.

Kvöldfréttir Stöðvar 2
Bjarni Benediktsson forsætisráðherra segir mikilvægt að taka stjórn á landamærum Íslands. Hann ætlar að leggja áherslu á útlendingamálin út kjörtímabilið og boðar raunsæja stefnu í þeim og harðari reglur. Rætt verður við hann í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Kvöldfréttir Stöðvar 2 í opinni dagskrá á ný
Frá og með mánudeginum 15. apríl munu allir landsmenn hafa greiðan aðgang að kvöldfréttum Stöðvar 2 í opinni dagskrá, alla daga ársins klukkan 18:30. Opinn fréttagluggi mun ná yfir fréttir, sportpakkann og Ísland í dag.

Kvöldfréttir Stöðvar 2
Afgreiðsla meirihluta atvinnuveganefndar á búvörulögum stappar nærri spillingu að mati formanns Neytendasamtakanna. Nokkur samtök hafa látið vinna fyrir sig greinargerð um málið, þau útiloka ekki málaferli og segja brotið gegn stjórnarskrá.

Kvöldfréttir Stöðvar 2
Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar tók til starfa í dag og ráðherrar komu sér fyrir í nýjum ráðuneytum. Á Alþingi sköpuðust heitar umræður um yfirlýsingu forsætisráðherra og mótmælandi var fjarlægður af þingpöllum. Við sjáum myndir frá viðburðaríkum degi í íslenskum stjórnmálum í kvöldfréttum Stöðvar 2 og ræðum við þingmenn í beinni útsendingu.

Kvöldfréttir Stöðvar 2
Bjarni Benediktsson segir endurnýjaða ríkisstjórn ætla að fara að krafti í orkumálin og aðlaga útlendingalöggjöfina að því sem þekkist á Norðurlöndunum. Ný ríkisstjórn verður formlega sett í embætti á Bessastöðum í kvöld. Við förum yfir atburði dagsins og verðum í beinni þaðan.

Kvöldfréttir Stöðvar 2
Ekkert varð af þingfundi sem halda átti í dag með þrettán stjórnarfrumvörp á dagskránni vegna anna ráðherra við stjórnarmyndunarviðræður. Óljóst er hvort hægt verði að boða til þingfundar á morgun. Við heyrum í þingmönnum og ráðherrum um sérstaka stöðu í íslenskum stjórnmálum í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Kvöldfréttir Stöðvar 2
Katrín Jakobsdóttir mun sitja sem forsætisráðherra þar til ný ríkisstjórn hefur verið mynduð. Forseti Íslands hafnar því að atburðarásin sé óheppileg. Katrín telur að ríkisstjórnin haldi, þó að hún gangi nú frá borði. Við förum yfir stöðuna í beinni útsendingu.