
Fíkn

Stjórnarmeirihluti í afneitun vegna afglæpavæðingar
Eitt síðasta verk stjórnarliða á Alþingi var að fella frumvarp Pírata um afnám refsinga vegna vörslu neysluskammta vímuefna.

Af hverju ég vil afglæpavæða vímuefnaneyslu
Nýlega var fellt frumvarp um að leggja niður refsingar gegn vörslu neysluskammta. Ýmsir angar eru á þessu máli sem ég finn mig knúinn til að fjalla um...

Betra að ráðast á læknana sem skrifa upp á of mikið af þessum lyfjum
Emmsjé Gauti segist persónulega þekkja fólk sem hefur dáið úr ofneyslu. Hann segir fáránlegt að horfa á fíkniefnaneytendur sem glæpamenn en ekki veikt fólk.

Áslaug Arna segir frumvarp Pírata um „afglæpavæðingu“ ekki nothæft
Dómsmálaráðherra segir frumvörp ekki ályktun félagasamtaka.

Svar við grein Kolbeins Óttarssonar Proppé
Í gær birti Kolbeinn Óttarsson Proppé grein á Vísi.is þar sem hann fer rangt með staðreyndir – viljandi að því er virðist, hagræðir sannleikanum og sakar „andstæðinginn“ um sömu taktík og hann sjálfur er að beita.

Fjárhagslegt tjón samfélagsins – ein af mörgum neikvæðum afleiðingum refsistefnu í vímuefnamálum
Í vikunni kaus Alþingi um lagafrumvarp sem átti í stuttu máli að hafa þær afleiðingar að hætt yrði að refsa neytendum vímuefna fyrir vörslu neysluskammta. Frumvarpið var fellt með 28 atkvæðum gegn 18. Aðrir sátu hjá eða voru fjarverandi.

Afglæpavæðing umræðunnar
Ekkert mál hefur fært mér jafn mikið heim sanninn um það að pólitísk umræða í dag snýst bara um fyrirsagnir og það um afglæpavæðingu neysluskammta.

Þingmaður fær hvítt duft inn um lúgu til sín
Kolbeinn Óttarsson Proppé þingmaður harmar að stjórnmálin séu komin á þennan stað.

Þrjú af fimm málum frá stjórnarandstöðu samþykkt
Forseti Alþingis segir þingið hafi staðist erfitt próf í vetur en um þrjátíu mál voru samþykkt á vorþingi sem tengjast kórónuveirufaraldrinum.

Fundu metamfetamín vafið fast um maga manns
Karlmaður á fertugsaldri hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald eftir að tæp 300 grömm af metamfetamíni og 1600 stykki af lyfseðilsskyldum lyfjum í fórum sínum við komuna til landsins fyrr í mánuðinum.

Við refsum (ekki) veiku fólki
Mikil sárindi voru á Alþingi í nótt þegar mál Halldóru Mogensen um afglæpavæðingu neysluskammta var fellt.

Efnislega sammála um afglæpavæðingu en „vanda þyrfti mjög til verks“
Tillaga Pírata um afnám refsinga fyrir vörslu neysluskammta fíkniefna, sem felld var á síðasta þingfundi sumarsins í nótt, hefði mátt vera í meira samhengi við aðrar aðgerðir og segir Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra að tillagan hefði þurft að koma innan úr stjórnkerfinu þar sem málið hafi verið betur undirbúið.

Áfram refsað fyrir vörslu fíkniefna
Frumvarp Pírata um afnám refsinga fyrir vörslu neysluskammta fíkniefna var fellt á síðasta þingfundi sumarsins, sem lauk á þriðja tímanum í nótt.

Þrjú hlutu dóm fyrir innflutning fíkniefna
Þrjú voru í dag dæmd til fangelsisvistar fyrir innflutning og skipulagningu innflutnings á kannabis og kókaíni til landsins frá Alicante um miðjan mars 2018.

Allra augu á þingmönnum Sjálfstæðisflokks og VG
Kosið verður um frumvarp laga um afglæpavæðingu á þinginu á eftir.

Almannahagsmunir krefjast afglæpavæðingu neysluskammta
Afstaða, félag fanga, tekur undir afstöðu Rauða krossins, sem birtist í Fréttablaðinu í gær, varðandi frumvarp um breytingu á lögum um ávana- og fíkniefni sem felur í sér afglæpavæðingu neysluskammta fíkniefnaneytenda.

Gaf lögreglu tvisvar rangar upplýsingar eftir fíkniefnaakstur
Karlmaður á fertugsaldri var á föstudag dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir ítrekuð umferðarlagabrot frá 2018 til 2020

Dæmdur í 26 mánaða fangelsi fyrir kókaín- og metamfetamínsmygl
Sergio Andrade Gentill var í dag dæmdur í 26 mánaða fangelsi fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot. Þann 3. mars síðastliðinn flutti hann tæp tvö kíló af kókaíni og rúm fjögur grömm af metamfetamíni hingað til lands.

57 starfsmenn SÁÁ vilja ekki Þórarin aftur og lýsa yfir stuðningi við Einar
57 starfsmenn meðferðarsviðs SÁÁ hafa sent fjölmiðlum yfirlýsingu þar sem þeir lýsa yfir stuðningi við Einar Hermansson í formannskjöri SÁÁ sem haldið verður 30. júní.

Þú getur leyft þér það
Sagði ein vinkona mín við mig um daginn. Umræðan er tabú en þú ert í þeirri stöðu að geta leyft þér að skrifa um þetta málefni. Þess vegna skrifa ég þessa grein.

Til framtíðar
SÁÁ verður að hætta þátttöku í rekstri spilakassa! Trúverðugleiki SÁÁ er langt um verðmætari en svo að eiga þátt í að magna upp fleiri samfélagsleg vandamál, líkt og spilafíkn augljóslega er.

1,7 milljóna sekt fyrir alvarleg umferðarlagabrot
Karlmaður var í dag dæmdur til þess að greiða 1,7 milljónir króna í sekt fyrir ítrekuð umferðarlagabrot.

Sjö mánaða fangelsi fyrir innflutning á hassi
Karlmaður á þrítugsaldri var í dag dæmdur í sjö mánaða fangelsi fyrir fíkniefnainnflutning.

Þurftu að fækka plássum á Vogi um helming í samkomubanni
Fækka þurfti plássum á sjúkrahúsinu Vogi um helming á meðan á samkomubanni stóð og vegna erfiðleika við fjármögnun verður starfsemin skert út árið.

Óttast að fíkniefnabangsarnir finnist víða
Hlaupbangsar sem innihalda fíkniefni eru í umferð á Norðurlandi vestra. Óttast er að bangsarnir séu víðar á landinu. Ekki hefur fundist bein tenging við hlaupbangsamálið á Suðurnesjum.

Fimmtán prósenta samdráttur hjá Vogi vegna tekjubrests
Sjúkrahúsið Vogur hefur þurft að draga úr meðferðarplássum um fimmtán prósent vegna tekjuskorts. Verulega þurfti að draga úr meðferðarplássum frá miðjum mars þar til í lok maí vegna kórónuveirufaraldursins og er biðtími fyrir suma allt að margir mánuðir.

Búast við allt að þremur ungmennum á viku á nýja afeitrunardeild
Búist er við allt að þremur ungmennum á viku á nýja afeitrunardeild fyrir ólögráða ungmenni sem opnuð var á Landspítalanum í vikunni. Forstöðumaður geðþjónustu spítalans segir mikla þörf á að efla þjónustu við ungmenni með alvarlegan fíknivanda.

„Íslenska úttektin“ sýnir að tugir þúsunda gætu hafa látist í fíkniefnastríðinu
Tugir þúsunda manna kunna að hafa látist í stríði stjórnvalda í Filippseyjum á hendur fíkniefnum síðan árið 2016. Þetta kemur fram í skýrslu Sameinuðu þjóðanna. Skýrslan er afleiðing tillögu Íslands í mannréttindaráði.

Lyfjafíkn Rybaks lagði næstum líf hans í rúst
Norski tónlistarmaðurinn Alexander Rybak, sem sigraði Eurovision árið 2009 með laginu Fairytale, greindi í dag frá áratugaglímu sinni við lyfjafíkn.

Ungmenni aftur í neyslu vegna faraldursins
Um stóran og viðkvæman hóp ungmenna, 13 til 20 ára, er að ræða samkvæmt Berglind Gunnarsdóttur, framkvæmdastjóra Foreldrahúss.