Lög og regla
25 26 27 28 29 30 31 32 33 … 120 ›
Jón Axel fékk 3 mánuði Jón Axel Ólafsson, fyrrverandi fjölmiðlamaður, var dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag fyrir brot á skatta- og hegningarlögum þegar hann sat sem stjórnarformaður Íslenska fjölmiðlafélagsins ehf. Honum var einnig gert að greiða 14,3 milljónir króna í sekt sem Jón Axel á að greiða innan fjögurra vikna, ella sæta sex mánaða fangelsi. Innlent 23.10.2005 15:03
Lögbannsmál þingfest Mál Jónínu Benediktsdóttur á hendur Fréttablaðinu og Kára Jónassyni ritstjóra þess var þingfest í Héraðsdómi Reykjvíkur í gærmorgun. Krafist er staðfestingar á lögbanni sem sett var á birtingu einkagagna Jónínu og upptöku á gögnum hjá blaðinu, auk bóta og refsingar. Innlent 23.10.2005 15:03
Albani enn í gæsluvarðhaldi Albaninn sem grunaður er um morð í Grikklandi og var handtekinn hér á meðan hann beið eftir að umsókn um hælisvist hans yrði tekin til umsagnar situr enn í gæsluvarðhaldi. Hann mun að öllum líkindum sitja út gæsluvarðhaldið sem lýkur um miðjan nóvember. Samkvæmt upplýsingum frá dóms- og kirkjumálaráðuneytinu hefur engin framsalskrafa borist til embættisins. Innlent 23.10.2005 15:03
Múgæsingur á Seltjarnarnesi Fréttaflutningur af viðveru Steingríms Njálssonar á Seltjarnarnesi hefur valið nokkrum usla í bænum, en Steingrímur er margdæmdur fyrir kynferðisbrot gegn börnum. Í síðustu viku gerðu unglingar meðal annars aðsúg að húsi þar sem Steingrímur átti að hafa verið. Innlent 23.10.2005 15:03
Beindu byssu að vegfarendum Tveir menn sem beindu skotvopni að vegfarendum út um glugga á bifreið á Akureyri í gærkvöldi voru handteknir eftir að lögreglunni bárust tilkynningar um athæfi þeirra. Innlent 23.10.2005 15:03
Tekinn á 146 kílómetra hraða Lögreglan í Keflavík stöðvaði ökumann á Grindavíkurvegi eftir að bifreið hans hafði mælst á 146 kílómetra hraða. Hámarkshraðinn er hins vegar 90 kílómetrar á klukkustund. Tveir ökumenn voru svo kærðir fyrir ölvun við akstur. Innlent 23.10.2005 15:03
Erill hjá lögreglu Maður var handtekinn þegar hann reyndi að brjótast inn í einbýlishús í Mosfellsbæ í morgun. Lögreglunni barst tilkynning um innbrotið og var maðurinn handtekinn á staðnum. Innlent 23.10.2005 15:03
Rólegt hjá lögreglu í nótt Tiltölulega rólegt var hjá lögreglunni um land allt að öðru leyti á landinu í nótt en maður var þó stöðvaður grunaður um ölvun við akstur á Selfossi á fjórða tímanum í nótt. Innlent 23.10.2005 15:03
Rúta út af vegi Kalla þurfti á björgunarsveit þegar rúta með 50 grunnskólabörn frá Höfn í Hornafirði fór út af veginum við Oddsskarð, Eskifjarðarmegin, um tíuleytið í fyrrakvöld. Engin slys urðu á farþegunum. Innlent 23.10.2005 15:03
Vill fimm milljónir Jónína Benediktsdóttir hefur stefnt Fréttablaðinu fyrir að birta upplýsingar upp úr einkatölvupósti sem Fréttablaðið hafði undir höndum. Innlent 23.10.2005 15:03
Skallaði hurð Lögreglan í Reykjanesbæ handtók karlmann á þrítugsaldri í gærkvöldi en á honum fannst amfetamín og töflur sem taldar eru E-töflur að sögn lögreglunnar. Innlent 23.10.2005 15:03
Slys á Hellu Kona og maður á sjötugsaldri voru flutt á sjúkrahúsið á Hellu eftir að jeppi með pallhýsi sem þau voru farþegar í keyrði út af veginum á Hvolsvelli upp úr klukkan níu í gærmorgun. Brákaðist konan á fæti. Fengu þau bæði að fara heim að lokinni skoðun.</font /> Innlent 23.10.2005 15:03
Sýknaður af 94 milljóna kröfu Arngrímur Jóhannsson, fyrrverandi forstjóri Atlanta, var sýknaður í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun af skaðabótakröfu upp á 94 milljónir króna. Sækjandi í málinu, sem er norskur athafnamaður, stefndi Arngrími á þeim forsendum að hann hafi skuldbundið sig til að gerast aðili að fyrirtæki stefnanda, Scandinavian Historic Flight, og til að leggja tiltekna fjármuni til félagsins. Innlent 23.10.2005 15:02
Sluppu ómeidd úr eldsvoða Eldur kom upp í húsi við Hvanneyrarbraut á Siglufirði laust fyrir klukkan fimm í morgun. Eldurinn kviknaði í kjallara en barst fljótlega upp á hæðina fyrir ofan. Tvennt var í húsinu og bæði komust ómeidd út af sjálfsdáðum. Innlent 23.10.2005 15:02
Hæstiréttur ómerkti sýknudóminn Hæstiréttur ómerkti í gær sýknudóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir manni sem ákærður var fyrir tilraun til manndráps með því að skera leigubílstjóra á háls í fyrrasumar, og vísaði málinu aftur til Héraðsdóms. Sýknudómurinn vakti undrun á sínum tíma þar sem hann byggðist á því að enginn hafi séð verknaðinn nægilega vel. Innlent 23.10.2005 15:02
Ákærður fyrir nauðgun í Bretlandi Íslenskur karlmaður á fertugsaldri bíður nú dóms í Englandi vegna nauðgunarákæru. Maðurinn mun, samkvæmt frétt vefmiðilsins Surrey Online, hafa átt kynmök við 15 ára stúlku en heldur því fram að hann hafi hvort tveggja talið hana eldri, auk þess sem hann haldi því fram að hún hafi veitt fullt samþykki fyrir kynmökunum og því hafi ekki verið um eiginlega nauðgun að ræða. Innlent 23.10.2005 15:02
Hluthöfum lofað skjótfengnum gróða Svo virðist sem hluthöfum í Skúlason Limited hafi verið lofað skjótfengnum gróða, fjárfestu þeir í fyrirtækinu. Grunur leikur á að fleiri íslensk fyrirtæki en Skúlason Limited tengist rannsókn á umfangsmiklu peningaþvætti. Innlent 23.10.2005 15:03
Málið tekið upp aftur? Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor er nú að láta lögmann sinn í Englandi kanna hvort hann geti fengið meiðyrðadóm Jóns Ólafssonar á hendur sér tekinn upp aftur fyrir dómstólum þar. Jón kveðst sömuleiðis vera að skoða hvort ummæli Hannesar í hádegisfréttum Bylgjunnar á miðvikudag hafi verið brot á lögbanni sem breskir dómstólar settu á að Hannes endurtæki ummæli sín. Innlent 23.10.2005 15:02
Jón Ólafsson býður sættir Jón Ólafsson er tilbúinn til að sættast við Hannes Hólmstein Gissurarson ef hann biðst afsökunar á ummælum sínum um að Jón hafi auðgast á fíkniefnainnflutningi. Hannes segist hins vegar aðeins hafa verið að segja sannleikann. Innlent 23.10.2005 15:03
Átti 38 þúsund skrár með barnaklám Lögreglan í Reykjavík fann gríðarlegt magn af barnaklámi í tölvu Reykvíkings á fertugsaldri. Hann hafði tengt sig við barnaklámsvefi í Finnlandi og vistað tugþúsundir ljósmynda og hreyfimyndir sem taka tólf klukkustundir í sýningu. > Innlent 23.10.2005 17:31
Einn áfram í haldi lögreglu Lögregla hefur farið fram á að einn þremenninganna, sem úrskurðaður var í gæsluvarðhald vegna alvarlegrar líkamsárásar í Garðabæ aðfaranótt sunnudags þar sem sveðjum var m.a. beitt, verði áfram í gæsluvarðhaldi. Tveimur félögum mannsins var sleppt úr gæsluvarðahaldi í dag. Innlent 23.10.2005 15:02
Gæsluvarðhald framlengt Gæsluvarðhald yfir manni sem sakaður er um alvarlega líkamsárás í Garðabæ aðfaranótt sunnudags, hefur verið framlengt til 2. desember næst komandi. Gæsluvarðhaldsúrkurður yfir honum og tveimur félögum hans rann út í dag og var félögunum tveimur sleppt en krafist lengra gæsluvarðhalds yfir manninum fyrir Héraðsdómi Reykjaness, sem féllst á beiðni lögreglu. Innlent 23.10.2005 15:03
Írarnir hafa ekki sótt um leyfi Hópur Íra, sem gripinn hefur verið við ólöglega sölu ýmiss varnings hér á landi undanfarið, virðist ekki hafa ráðið bót á sínum málum. Á meðal þess sem mennirnir hafa boðið til sölu eru rafstöðvar, borvélar og háþrýstidælur. Innlent 23.10.2005 15:02
Krafa um fjárnám samþykkt Sýslumaðurinn í Reykjavík samþykkti fyrir stundu kröfu Jóns Ólafssonar um fjárnám upp á tæpar tólf milljónir króna hjá Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni. Fjárnám var gert í skuldabréfi sem Hannes hafði gefið út á Kjartan Gunnarsson, vegna húseignar Hannesar á Hringbraut. Innlent 23.10.2005 15:02
Einn af íslensku bergi brotinn Einn mannanna sjö sem handteknir voru í gær í húsleit bresku lögreglunnar er af íslensku bergi brotinn. Hann er þó ekki íslenskur ríkisborgari lengur. Fjársvikin sem um ræðir nema um þremur milljónum punda, eða 324 milljónir íslenskra króna. Innlent 23.10.2005 15:02
Fjárnám gert í eignum Hannesar Fjárnám var gert í dag í eignum Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar, sem breskir dómstólar dæmdu fyrir meiðyrði í garð Jóns Ólafssonar kaupsýslumanns. Innlent 23.10.2005 15:02
Ríkislögreglustjóri verst frétta Ríkislögreglustjóri verst allra frétta af húsleit efnahagsbrotadeildar í gær sem gerð var að beiðni bresku lögreglunnar, enda sé aðgerðin ekki að frumkvæði Ríkislögreglustjóra. Innlent 23.10.2005 15:02
Fundað um fjárnámskröfu Lögmenn Jóns Ólafssonar og Hannesar Hólmsteins funda nú um fjárnámskröfu Jóns á hendur Hannesi í húsakynnum sýslumannsins í Reykjavík. Hannes hefur lýst því yfir að hann muni láta lögmann sinn gera þá kröfu að fjárnámskröfu á hendur sér verði vísað til héraðsdóms. Innlent 23.10.2005 15:02
Hæstiréttur ómerkti sýknudóm Hæstiréttur ómerkti og vísaði heim í hérað til aðalmeðferðar sýknudómi héraðsdóms yfir manni sem ákærður var fyrir tilraun til manndráps í júlí í fyrra. Maðurinn var sakaður um að hafa lagt til leigubílstjóra með óþekktu eggvopni, með þeim afleiðingum að bílstjórinn hlaut átján sentimetra langan skurð á hálsi. Innlent 23.10.2005 15:02
Bílstjóri fagnar áfangasigri Hæstiréttur hefur vísað aftur til héraðsdóms máli leigubílstjóra sem varð fyrir því í fyrrasumar að maður teygði sig inn um gluggann hjá honum og skar hann á háls með hnífi. Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í lok nóvember í fyrra manninn sem grunaður var um verknaðinn. Innlent 23.10.2005 15:02
Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Innlent