Erlendar

Jóhannes Karl einbeittur
Jóhannes Karl Guðjónsson segir í samtali við breska fjölmiðla í gær að hann ætli að berjast til síðasta manns með félögum sínum í 1. deildinni þó ljóst sé að hann muni fara frá félaginu í sumar þegar samningur hans rennur út.

Chelsea - Everton í beinni á Sýn
Tveir leikir fara fram í enska bikarnum í kvöld og verður leikur Chelsea og Everton sýndur í beinni útsendingu á sýn. Útsending hefst klukkan 19:55, en á sama tíma eigast við Middlesbrough og Coventry í sömu keppni. Þá er einn leikur á dagskrá í ensku úrvalsdeildinni. Hermann Hreiðarsson og félagar í Charlton taka á móti Liverpool.

Sheringham neitaði að fara til Tottenham
Gamla kempan Teddy Sheringham hjá West Ham hefur látið það uppi að sér hafi boðist að ganga í raðir síns gamla félags Tottenham í þriðja sinn á ferlinum í janúar, en sagðist hafa afþakkað það því hann væri mjög ánægður hjá West Ham.

Old Trafford fær ekki nýtt nafn
Forráðamenn Manchester United hafa vísað fréttum úr bresku slúðurpressunni á bug sem sögðu að heimavöllur liðsins Old Trafford verði skírður upp á nýtt eftir nýjum stuðningsaðilum sem liðið fær eftir að Vodafone sagði upp samningi sínum við félagið.

Keppnin á Spa blásin af
Nú hefur verið staðfest að ekki verði keppt á Spa-brautinni frægu í Formúlu eitt í haust eins og til stóð, því mótshaldarar sjá fram á að ekki verði hægt að ljúka nauðsynlegu viðhaldi á brautinni í tæka tíð. Rekstur brautarinnar sigldi í strand í fyrra, en nú er ljóst að keppnir ársins verða 18 í stað 19. Spa-brautin er mjög vinsæl meðal ökumanna í Formúlu 1 og hefur verið kölluð ein sú allra skemmtilegasta.

Rasiak lánaður til Southampton
Úrvalsdeildarliði Tottenham Hotspurs hefur lánað pólska landsliðsmanninn Grzegorz Rasiak til Southampton út leiktíðina með möguleika á að fyrstudeildarliðið kaupi hann á um 2 milljónir punda í sumar. Rasiak stóð sig vel í framlínu pólska landsliðsins í fyrra, en hefur verið skelfilegur í þeim leikjum sem hann hefur spilað með Lundúnaliðinu og verður hans því vart saknað þar á bæ.

Annað tap Detroit í nótt
Detroit Pistons tapaði afar óvænt öðrum leik sínum í röð í NBA deildinni í körfubolta í nótt þegar liðið lá fyrir lágt skrifuðu liði Atlanta Hawks 99-98. Tayshaun Prince skoraði 29 stig fyrir Detroit, en Joe Johnson skoraði sömuleiðis 29 stig fyrir Atlanta. Þetta var í fyrsta sinn sem Detroit tapar tveimur leikjum í röð í vetur.

Mourinho ætlar að vinna titilinn 9. apríl
Jose Mourinho stjóri Chelsea hefur nú gefið það út á sjónvarpsstöð félagsins að það muni tryggja sér enska meistaratitilinn þann 9. apríl næstkomandi. "Annar meistaratitill okkar er í sjónmáli og við verðum að halda dampi. Ég held að átta sigrar í viðbót verði nóg til að tryggja það," sagði Mourinho en leikurinn 9. apríl er gegn West Ham.

Mido í sex mánaða bann
Egypski framherjinn Mido hefur verið dæmdur í sex leikja bann með landsliði sínu og mun því missa af úrslitaleiknum í Afríkukeppninni eftir að hann hnakkreifst við þjálfara liðsins þegar honum var skipt útaf í undanúrslitaleiknum í gær. Mido hefur því lokið þáttöku í mótinu og snýr aftur til London þar sem hann leikur með Tottenham.

Birmingham lagði Reading
Birmingham er komið áfram í enska bikarnum eftir 2-1 sigur á Íslendingaliði Reading í kvöld. Það voru Mikael Forssell og Julian Gray sem skoruðu mörk úrvalsdeildarliðsins, en Stephen Hunt skoraði mark Reading.
Birmingham yfir í hálfleik
Birmingham hefur yfir 1-0 í leiknum við Reading í enska bikarnum, en leikurinn er sýndur í beinni útsendingu á Sýn. Ívar Ingimarsson og Brynjar Björn Gunnarsson eru báðir í byrjunarliði Reading. Það var finnski framherjinn Mikael Forssell sem skoraði mark Birmingham á 30. mínútu.

Egyptar í úrslit
Það verða Egyptaland og Fílabeinsströndin sem mætast í úrslitum Afríkukeppninnar í knattspyrnu eftir að Egyptar lögðu Senegala 2-1 í undanúrslitum keppninar áðan.

Birmingham - Reading í beinni á Sýn
Leikur Birmingham og Reading í enska bikarnum verður sýndur á sjónvarpsstöðinni Sýn í kvöld og hefst útsending klukkan 19:35. Þetta er síðari leikur liðanna eftir að þau gerðu jafntefli á heimavelli Reading á dögunum. Stjóri Reading er talinn muni hvíla nokkra af lykilmönnum sínum í kvöld, en hann leggur áherslu á að koma liðinu upp í úrvalsdeildi í vor.

Tyrkir í sex leikja bann
Alþjóða knattspyrnusambandið hefur dæmt landslið Tyrkja til að spila næstu sex heimaleiki sína fyrir luktum dyrum vegna ólátanna sem áttu sér stað eftir leik liðsins gegn Svisslendingum í undankeppni HM í sumar.

Fílabeinsströndin í úrslit
Lið Fílabeinsstrandarinnar komst í dag í úrslit Afríkukeppninnar í knattspyrnu þegar liðið lagði Nígeríu 1-0 í undanúrslitunum. Það var Didier Drogba, leikmaður Chelsea, sem skoraði sigurmarkið á 47.mínútu.

Fullviss um að verða áfram í Madrid
Knattspyrnumaðurinn David Beckham segir 99% öruggt að hann muni skrifa undir framlengingu á samningi sínum við Real Madrid í sumar og verða áfram í herbúðum félagsins. Beckham hefur verið orðaður við félög í heimalandinu, en segir að hann vilji vera hjá Madrid og að félagið vilji sig, svo ekkert sé í vegi fyrir nýjum samningi.

Khan mætir Williams í Norwich
Nú hefur verið tilkynnt að næsti andstæðingur undrabarnsins Amir Khan verði Jackson Williams og munu þeir eigast við þann 25. febrúar næstkomandi í London. Bardagi þeirra verður háður á undan viðureign Danny Williams og Matt Skelton í þungavigt.

Robben á að fá Óskarsverðlaunin
Jose Reina var ekki ánægður með leikræna tilburði Hollendingsins Arjen Robben í leik Liverpool og Chelsea á sunnudag, en spænski markvörðurinn fékk að líta rauða spjaldið í leiknum eftir að hafa stjakað við Robben, sem lét sig vaða í völlinn með leikrænum tilburðum og fiskaði markvörðinn útaf.

Chelsea á höttunum eftir Adu
Englandsmeistarar Chelsea hafa ekki gefið upp alla von um að lokka unglinginn Freddy Adu til sín frá Bandaríkjunum þar sem hann leikur með DC United, en Manchester United hefur einnig leitast við að fá hinn 16 ára gamla leikmann í sínar raðir.

Fjórði sigur Houston í röð
Lið Houston Rockets er óðum að rétta úr kútnum eftir að þeir Yao Ming og Tracy McGrady sneru báðir til baka úr meiðslum og í nótt vann liðið fjórða leik sinn í röð þegar það skellti Philadelphia á útivelli 87-81. Yao Ming skoraði 27 stig og hirti 12 fráköst fyrir Houston, en Allen Iverson skoraði 32 stig fyrir Philadelphia.

Leitin að eftirmanni Keane heldur áfram
Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United segir að leitin að eftirmanni Roy Keane á miðju liðsins hafi staðið yfir í tvö ár og segir einmitt það vera næsta mál á dagskrá í leikmannakaupum hjá félaginu.

Heskey í vanda
Framherjinn Emile Heskey hjá Birmingham á yfir höfði sér frekara leikbann en það sem hann fær fyrir að vera rekinn af velli gegn Arsenal í leik liðanna á dögunum, því enska knattspyrnusambandið hefur nú kært hann fyrir að hegðun sem hann sýndi eftir að hann fékk að líta sitt annað gula spjald í leiknum.

Hartson hættur með landsliðinu
Framherjinn John Hartson hefur tilkynnt að hann sé hættur að gefa kost á sér í landslið Wales og ætlar framvegis að einbeita sér að því að spila með liði sínu Glasgow Celtic í Skotlandi. Hartson er þrítugur, á að baki 51 landsleik og hefur skoraði í þeim 14 mörk.

Allardyce má taka við landsliðinu
Stjórnarformaður Bolton segir að ef enska knattspyrnusambandið fælist eftir því að fá Sam Allardyce til að taka við enska landsliðinu, mundi hann ekki standa í vegi fyrir því, en tekur fram að ekki komi til greina að hann fari til annars félags í úrvalsdeildinni.

Spjaldi Reina ekki áfrýjað
Liverpool áfrýjar ekki rauða spjaldinu sem markvörðurinn Claudio Reyna fékk að líta í leik Chelsea og Liverpool í gær. Reina fékk að líta rauða spjaldið eftir að hafa danglað hendinni í átt að Arjen Robben hjá Chelsea, sem féll í jörðina með miklum tilþrifum. Fresturinn til að áfrýja er nú runninn út og engar athugasemdir bárust frá Liverpool fyrir þann tíma.

Jóhannes og Grétar skrifa undir
Jóhannes Karl Guðjónsson hefur skrifað undir fjögurra ára samning við hollenska liðið AZ Alkmaar og gengur í raðir þess frá Leicester í sumar. Þá hefur Grétar Rafn Steinsson undirritað nýjan og betri samning við félagið sem gildir til ársins 2011.

Ég hljóp á mig
Joey Barton, leikmaður Manchester City, hefur nú dregið beiðni sína um að verða seldur frá félaginu til baka og segist vonast til að ná samningum við félagið á næstu dögum. Hann segist jafnframt hafa látið skapið hlaupa með sig í gönur þegar hann fór fram á að verða seldur á dögunum.

Leikmenn Boro ósáttir við McClaren
Jonathan Greening, leikmaður West Brom og fyrrum leikmaður Middlesbrough, segir nokkra af leikmönnum Boro hafa látið í ljós við sig óánægju með störf Steve McClaren, knattspyrnustjóra félagsins.

Tap hjá Napoli
Jón Arnór Stefánsson og félagar í ítalska liðinu Napoli töpuðu naumlega fyrir Milano 97-95 í A-deildinni þar í landi í gærkvöld. Jón Arnór skoraði 8 stig fyrir Napoli, sem er í öðru sæti deildarinnar. Jakob Sigurðarson komst ekki á blað hjá Leverkusen þegar liðið tapaði fyrir Frankfurt 88-84 í úrvalsdeildinni þýsku, en Logi Gunnarsson 23 stig fyrir lið sitt Bayreuth í 97-70 stórsigri liðsins á Nördlingen í 2. deildinni.

Mætti á æfingu hjá Arsenal í dag
Varnarmaðurinn Sol Campbell hefur nú snúið aftur til æfinga með liði sínu Arsenal eftir að hafa farið huldu höfði í nokkra daga eftir tapið fyrir West Ham í síðustu viku. Campbell gerði sig sekan um dýr mistök í leiknum og lét sig hverfa í hálfleik og hefur ekki mætt á æfingu síðan.