Íþróttir

Alonso á ráspól í Brasilíu
Spænski ökuþórinn Fernando Alonso náði besta tímanum í tímatökum fyrir brasilíska kappaksturinn sem fram fer á morgun. Juan Pablo Montoya náði öðrum besta tímanum, en félagi Alonso hjá Renault, Giancarlo Fisichella kom þriðji.

Heimsbikarinn í beinni á Sýn
Heimsbikarinn í kappakstri hófst á Sýn klukkan 13 en þar keppa 25 þjóðir í landskeppni. Keppt er á Englandi og í dag verður tímataka sem ráða mun rásröð á morgun. Í kvöld verður svo leikur Real Betis og Barcelona sýndur beint á Sýn Extra klukkan 20.

McLaren fljótastir á æfingum
Alex Wurz, æfingaökumaður McLaren, náði besta tíma allra á æfingum fyrir Brasilíukappaksturinn sem fram fóru nú áðan. Takuma Sato hjá BAR átti annan besta tímann, en verðandi heimsmeistarinn Fernando Alonso kom næstur þar á eftir.
Kveðjuleikur Erlu
Erla Hendriksdóttir, önnur leikjahæsta landsliðskona Íslands í knattspyrnu frá upphafi, hefur ákveðið að leggja skóna í hilluna í haust og því verður leikur Íslands gegn Tékkum í undankeppni HM 2007 á laugardag kveðjuleikur Erlu. Hún hefur alls leikið 54 leiki með A landsliði Íslands. Hún hefur borið fyrirliðabandið í 8 leikjum og skorað 4 mörk.

Björgvin álfumeistari í stórsvigi
Skíðamaðurinn Björgvin Björgvinsson varð í nótt Álfumeistari í stórsvigi, en síðasta keppnin um Ástralíu og Nýja Sjálandsbikarinn, féll niður vegna veðurs. Björgvin fékk samanlagt 240 stig, eða 40 stigum meira en Ástralinn Bradley Wall.

Keppt í Indianapolis 2006
Forráðamenn Indianapolis kappakstursins í Formúlu 1 í Bandaríkjunum ætla ekki að láta hneykslið sem varð á brautinni í ár koma í veg fyrir að keppnin fari fram þar á næsta ári og hafa staðfest að keppni næsta árs fari fram þann 2. júlí næsta sumar, ef Alþjóða Akstursíþróttasambandið gefur grænt ljós á það.

Mál Button frágengið
Ökuþórinn Jenson Button hefur nú formlega fengið sig lausan frá fyrirhuguðum samningi við lið Williams í Formúlu 1, en hann mun sem kunnugt er verða áfram hjá BAR eftir að honum snerist hugur um að fara frá liðinu.
Frjálsíþróttahöllin á eftir áætlun
Nýja frjálsíþróttahöllin í Laugardal, sem einnig er ráðstefnu- og sýningarhöll, verður ekki tilbúin fyrir vígslumót 15. október eins og stefnt var að.

Gunnar H. besti maður vallarins
Í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu náði Djurgarden sex stiga forystu á IFK Gautaborg í gækvöldi. Gunnar Heiðar Þorvaldsson var besti maður vallarins þegar Halmstad og Elfsborg gerðu 1-1 jafntefli.
Start mistókst að ná Våleringa
Start mistókst að ná Våleringa að stigum þegar liðið beið lægri hlut fyrir Brann í norsku knattspyrnunni í gær. Kristján Örn Sigurðsson lék með Brann en Ólafur Örn Bjarnason er meiddur.

Peugeot-menn hættir í HM í rallý?
Svo gæti farið að Peugeot-bílaframleiðandinn keppi ekki meira í heimsmeistaramótinu í rallakstri. Breski aðstoðarökumaðurinn Michael Park lést í gærmorgun þegar bíll Eistans Marko Martins ók út af í breska rallinu í Wales.
Button verður áfram hjá BAR
Breski ökuþórinn Jenson Button mun ekki ganga til liðs við Williams í Formúlu eitt á næsta ári eins og til stóð, heldur hefur hann samþykkt að vera áfram hjá BAR liðinu og mun væntanlega skrifa undir nýjan samning við liðið fljótlega.
Våleringa með 3 stiga forystu
Árni Gautur Arason og félagar í Våleringa í Osló hafa þriggja stiga forystu á Start eftir markalaust jafntefli við Lilleström í gær. Våleringa er með 44 stig en Start, sem mætir Brann í Björgvin í kvöld, getur náð Oslóarliðinu að stigum, takist liðinu að vinna Brann í kvöld.

Helgi gerði 2 ára samning við Fram
Helgi Sigurðsson hefur gert tveggja ára samning við Fram. Helgi snýr því til síns gamla félags eftir rúman áratug í atvinnumennsku erlendis. Brynjar Jóhannesson, framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar Fram, segir að Helgi komi til með að leika með Fram í 1. deild, nema ef til þess komi að hann verði lánaður.
Lyon með þriggja stiga forystu
Í Frakklandi hefur Lyon þriggja stiga forystu á Le Mans þegar sjö umferðir eru búnar. Lyon gerði 1-1 jafntefli við Bordeaux um helgina en Le Mans sigraði Sochaux, 2-1. Paris St. Germain mistókst að endurheimta 2. sætið; liðið steinlá 3-0 fyrir St. Etienne.

Nadal vann 10. titilinn á árinu
Spánverjinn Rafael Nadal vann í gær 10. titil sinn í tennis á þessu ári þegar hann lagði Argentínumanninn Gullermo Coria að velli á Peking-mótinu. Nadal og Svisslendingurinn Roger Federer hafa haft mikla yfirburði á þessu ári.
Tennis: Rússar sigruðu Frakka
Rússar sigruðu í Federation-bikarkeppninni í tennis eftir æsispennandi úrslitaleik við Frakka. Staðan var jöfn, 1-1, eftir keppni laugardagsins.
Rallökumaður lést í Bretlandi
Breskur rallökumaður lést í slysi á lokadegi Bretlandsrallsins í dag. Michael Park, sem var aðstoðarökumaður Eistans Markkos Martins, lést þegar Martin ók bílnum á tré á fimmtándu sérleið keppninnar. Martin slapp ómeiddur úr árekstrinum. Rallið er liður í heimsmótaröð rallökumanna og var síðustu tveimur sérleiðunum aflýst sem og verðlaunaafhendingu vegna andláts Parks.

Heidfeld skrifar undir hjá BMW
Hið nýja BMW lið í Formúlu 1 sem hefja mun keppni á næsta ári, hefur tryggt sér samning við fyrsta ökumanninn, en það er Þjóðverjinn Nick Heidfeld sem nú ekur með liði BMW Williams, en leiðir munu skilja hjá BMW og Williams að þessu tímabili loknu.

Loeb í forystu í Wales
Heimsmeistarinn Sebastien Loeb á Citroen hefur forystu eftir fyrsta keppnisdag í Wales-rallinu og hefur 20 sekúndna forskot á Norðmanninn Petter Solberg á Subaru, sem er í öðru sæti. Finnski ökuþórinn Harry Rovanpera á Mitsubitshi er í þriðja sæti og landi hans Marcus Grönholm er í fjórða sæti.

Hálandaleikarnir á Sýn í kvöld
Þátturinn Kraftasport verður á dagskrá á Sýn klukkan 20:10 í kvöld, en þar verða sýndar myndir frá Hálandaleikunum sem fram fóru á Akranesi um síðustu helgi. Á meðal keppenda á mótinu voru Auðunn Jónsson, Kristinn Óskar Haraldsson, Pétur Guðmundsson og Sæmundur Sæmundsson. Kynnir er hinn eini sanni Hjalti Úrsus Árnason.

Leiðrétting á frétt um lyftingar
Vísi hefur borist leiðrétting vegna fréttar sem birtist fyrr í kvöld um árangur Ásbjörns Ólafssonar á HM unglinga um helgina, þegar hann setti meðal annars heimsmet í bekkpressu. Greint var frá því að þetta hefði verið í annað sinn sem Íslendingur setur heimsmet í kraftlyftingum, en það hefur þó gerst oftar.

Stabæk og Sandefjörd efst
Veigar Páll Gunnarsson var í liði Stabæk sem gerði jafntefli við Tönsberg, 1-1, í norsku fyrstu deildinni í knattspyrnu í gær. Stabæk og Sandefjörd eru efst og jöfn í deildinni með 49 stig.

Ásbjörn setti heimsmet um helgina
Kraftlyftingamaðurinn ungi Ásbjörn Ólafsson, keppti á Heimsmeistaramóti drengja og unglinga í Fort Wayne í Bandaríkjunum um liðna helgi og setti þar glæsilegt heimsmet í flokki drengja 18 ára og yngri, þegar hann lyfti 205 kílóum í bekkpressu.

10 þúsund sæti á Laugardalsvelli
Borgarstjórinn í Reykjavík, Steinunn Valdís Óskarsdóttir, og Eggert Magnússon, formaður Knattspyrnusambands Íslands, undirrituðu í morgun samning um uppbyggingu og endurbætur á Laugardalsvelli en áætlaður kostnaður við verkið er einn milljarður og 38 milljónir króna. Eftir breytingarnar mun Laugardalsvöllur rúma 10.000 manns í sæti.
Árni og félagar á toppnum
Árni Gautur Arason og félagar í Vålerenga eru á toppnum í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu en Vålerenga burstaði Fredrikstad, 4-0, í gær. Þá vann Molde Álasund, 4-1. Haraldur Freyr Guðmundsson lék allan leikinn fyrir Álasund.

Falcons lögðu Eagles
Atlanta Falcons lagði Philadelphia Eagles,14-10, í lokaleik fyrstu umferðar ameríska fótboltans í gærkvöldi, en þessi lið mættust í úrslitum þjóðardeildar á síðustu leiktíð. Leikurinn var mjög grófur og tveir leikmenn, einn úr hvoru liði, voru reknir út af áður en leikurinn hófst.

Sato þarf til sálfræðings
Heimsmeistarinn Michael Schumacher vandaði japanska ökuþórnum Takuma Sato ekki kveðjurnar eftir að sá síðastnefndi ók á hann í keppninni á Spa um helgina og sagði honum að hann þyrfti að fara til sálfræðings.

Federer sigraði á opna bandaríska
Svisslendingurinn Roger Federer sigraði Andre Agassi í úrslitaleik opna bandaríska meistaramótsins í tennis sem fram fór í New York í gærkvöldi. Agassi veitti góða mótspyrnu, en Federer undirstrikaði með sigrinum að hann er besti tennisleikari í heiminum í dag.
Tindastóll féll úr 2. deild
Tindastóll féll í gær úr 2. deild eftir 1-2 ósigur gegn Leiftri/Dalvík sem þegar var fallið. Reynir Sandgerði og Sindri Hornafirði taka sæti þeirra í 2. deild en Reynir tryggði sér sigur í 3. deild með því að vinna Sindra 4-1 í gær.