Íþróttir
312 313 314 315 316 317 318 319 320 … 334 ›
Áttundi sigur Cleveland í röð Cleveland Cavaliers vann nokkuð átakalítinn sigur á Boston Celtics í NBA deildinni í nótt, þar sem LeBron James fór á kostum og Dallas Mavericks er einnig á sigurbraut og vann sjötta leikinn í röð. Sport 23.11.2005 14:35
Ívar og félagar á toppinn Reading, lið Ívars Ingimarssonar í ensku fyrstu deildinni, komst í gærkvöld á toppinn þegar það vann góðan 3-0 sigur á Ipswich á útivelli. Ívar var að venju í byrjunarliði Reading og átti stóran þátt í einu marka sinna manna. Sport 23.11.2005 14:28
Hörður á leið til hollenska félagsins Waallwijk Hörður Sveinsson, framherji Keflavíkur, mun að öllum líkindum fara til æfinga hjá hollenska félaginu RKC Waalwijk á næstunni, en hollenska félagið hefur fylgst vel með honum undanfarna mánuði. Guðlaugur Tómasson, umboðsmaður Harðar, segir danska félagið FC Midtjylland einnig hafa sýnt honum áhuga en Hörður æfði með liði félagsins fyrir skömmu. Sport 22.11.2005 19:50
Garðar Gunnlaugsson: Skoska liðið Dunfermline sendi Val í gær tilboð í framherjann Garðar Gunnlaugsson en Garðar hefur verið undir smásjá nokkurra erlendra liða. Málið er á frumstigi en botn gæti fengist í málið fyrir helgi. Sport 22.11.2005 19:49
Vantar reynslumeiri leikmenn í liðið Bjarni Jóhannsson, þjálfari meistaraflokks karla hjá Breiðabliki, segist ætla að reyna að styrkja leikmannahóp sinn umtalsvert fyrir næsta keppnistímabil en Breiðablik vann 1.deildina með yfirburðum í sumar og ætlar félagið sér að tryggja stöðu sína í Landsbankadeildinni á næsta ári. Sport 22.11.2005 19:49
Hjálmar og Jóhannes að framlengja samningana Hjálmar Jónsson og Jóhannes Harðarson munu á næstu dögum ganga frá samningum við félög sín, Hjálmar er á mála hjá Gautaborg í Svíþjóð en Jóhannes hjá norska félaginu Start. Ólafur Garðarsson, umboðsmaður þeirra beggja, vinnur nú að samningamálum fyrir þá báða. Sport 22.11.2005 19:50
Biður Klitschko afsökunar Hnefaleikafrömuðurinn umdeildi Don King hefur beðið Úkraínumanninn Vitali Klitschko afsökunar á miður fallegum orðum sem hann lét falla í garð Klitschkos í kjölfar þess að hann dró sig úr bardaganum gegn Hasim Rahman. Sömu meiðsli leiddu siðan til þess að Klitschko lagði hanskana á hilluna. Sport 22.11.2005 19:50
Tap fyrir Ítölum í fyrsta leik Íslenska kvennalandsliðið í handknattleik hóf leik í undankeppni EM á Ítalíu í gærkvöld. Ísland er í riðli með fimm öðrum liðum og komast fjögur efstu liðin áfram í umspilsleiki sem fram fara næsta sumar. Fyrsti leikur íslenska liðsins var gegn heimamönnum í gær og tapaðist með sex mörkum, 19-25. Sport 22.11.2005 20:19
Hodgson hefði viljað halda í Borgvardt Roy Hodgson, fráfarandi þjálfari Viking í Noregi, segist hafa viljað halda Allan Borgvardt í röðum félagsins. Stjórn félagsins vildi ekki hlusta á hann. Sport 22.11.2005 19:50
Asinn á Íslandi kemur á óvart "Það hefur verið gaman að vera á Íslandi, þó það hafi gengið svona upp og ofan í handboltanum. Það er svolítið sláandi hversu mikill hraði er í íslensku samfélagi," sagði Guðmundur Hrafnkelsson, fyrrum landsliðsmarkvörður Íslands í handbolta, en hann leikur nú með liði Aftureldingar í DHL-deildinni og stundar nám í sjúkraþjálfun við Háskóla Íslands, eftir að hafa búið erlendis um árabil. Sport 22.11.2005 19:49
Fyrri leikurinn á Akureyri KA og rúmenska handknattleiksfélagið Steaua Búkarest hafa komist að samkomulagi um að spila leiki liðanna heima og að heiman. Að því er fram kemur á heimasíðu KA voru einhverjar líkur á því að báðir leikirnir færu fram ytra en af því varð ekki. Fyrri leikur liðanna fer fram á Akureyri 3. desember en síðari leikurinn ytra verður spilaður 11. desember. KA sló út georgíska liðið Mamuli Tbilisi í síðustu umferð. Sport 22.11.2005 19:50
Ekki með Blikum næsta sumar Færeyski varnarmaðurinn Hans Fróði Hansen mun ekki leika með nýliðum Breiðabliks í Landsbankadeildinni næsta sumar þar sem hann hefur ákveðið að gerast spilandi þjálfari hjá liði LÍF í heimalandi sínu. Sport 22.11.2005 19:49
ÍR-ingar bíða og bíða Erindi stjórnar handknattleiksdeildar ÍR til stjórnar HSÍ um að leik ÍR og ÍBV verði seinkað frá 17. desember til 18. desember hefur enn ekki verið svarað. Um fimm vikur eru síðan upprunaleg beiðni var lögð inn. Sport 22.11.2005 19:50
LeBron James sýnir listir sínar Leikur Cleveland Cavaliers og Boston Celtics verður sýndur beint á NBA TV á miðnætti í kvöld. Cleveland er heitasta liðið í NBA í dag og hefur unnið sjö leiki í röð og hefur enn ekki tapað á heimavelli sínum. Þarna gefst körfuboltaunnendum gott tækifæri á að sjá sjálfan LeBron James hjá Cleveland sýna listir sínar, en hann hefur verið sjóðandi heitur undanfarið. Sport 22.11.2005 17:21
Markalaust á Old Trafford Leikjum kvöldsins í Meistaradeildinni er lokið. Manchester United náði ekki að leggja vængbrotið lið Villareal á heimavelli sínum og því eru möguleikar liðsins ekki glæsilegir í riðlinum. Bayern Munchen burstaði Rapid Vín 4-0 og Arsenal stal sigrinum gegn Thun í blálokin. Sport 22.11.2005 21:34
Ricky Hatton í besta formi á ferlinum Hnefaleikarinn Ricky Hatton segist vera í besta formi sem hann hafi verið í á ævi sinni og hlakkar til að verja IBF titil sinn gegn Carlos Maussa á laugardagskvöldið, en sá bardagi verður í beinni útsendingu á Sýn. Sport 22.11.2005 21:05
Íhugar að fella niður þjóðsöngva á landsleikjum Sepp Blatter, forseti FIFA, segist vera að hugsa um að leggja fyrir stjórn sambandsins tillögu um að leggja niður þann sið að flytja þjóðsöngva fyrir landsleiki í knattspyrnu vegna þeirrar vanvirðingar sem þjóðir séu farnar að sýna hvor annari við flutning söngvanna í dag. Sport 22.11.2005 18:40
Sex marka tap gegn Ítölum Íslenska kvennalandsliðið tapaði 25-19 fyrir því ítalska í undankeppni EM í kvöld. Staðan var 14-11 í hálfleik fyrir ítalska liðið, sem hafði yfir allan leikinn. Hanna G. Stefánsdóttir var markahæst íslensku stúlknanna með 6 mörk, en Berglind Hansdóttir fór á kostum í markinu og varði 25 skot. Íslenska liðið mætir Belgum á morgun klukkan 16. Sport 22.11.2005 20:25
Stórleikir á Sýn í kvöld Tveir stórleikir verða sýndir í beinni útsendingu á Sýn og Sýn Extra í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Bein útsending frá leik Manchester United og Villareal hefst klukkan 19:30 á Sýn, en klukkan 19:35 fer í loftið bein útsending á Sýn Extra frá leik Barcelona og Werder Bremen. Sport 22.11.2005 18:35
Makelele verður frá í þrjár vikur Hinn öflugi miðjumaður Claude Makelele verður ekki með Chelsea í leiknum gegn Anderlecht í Meistaradeildinni annað kvöld og talið er að hann verði frá keppni í um þrjár vikur eftir að hafa meiðst á hné í leiknum gegn Newcastle um helgina. Sport 22.11.2005 18:26
Næstu þrír mánuðir ráða miklu Arsene Wenger, stjóri Arsenal, segir að næstu þrír mánuðir komi til með að hafa úrslitaþýðingu um það hvort Thierry Henry verði áfram hjá félaginu, en hann hefur sem kunnugt er neitað að ræða framlengingu á samningi sínum við Arsenal þangað til á næsta ári og margir slá því föstu að hann fari frá Englandi. Sport 22.11.2005 16:53
Tekur ekki þátt í Evrópumeistaramótinu Í tilkynningu frá Sundsambandi Íslands hefur Brian Marshall landsliðsþjálfari tilkynnt að Örn Arnarson sundkappi muni ekki taka þátt í Evrópumeistaramótinu í sundi sem fram fer á Ítalíu í næsta mánuði af heilsufarsástæðum. Örn var greindur með hjartsláttartruflanir um helgina og því þykir ekki ráðlegt að hann verði með á mótinu. Sport 22.11.2005 16:46
Ísland mætir Ítalíu í dag Íslenska kvennalandsliðið í handknattleik mætir Ítölum í fyrsta leiknum í undankeppni EM á Ítalíu í dag. Íslenska liðið leikur í riðli með Ítölum, Belgum, Svisslendingum, Tyrkjum og Búlgörum, en fjögur þessara liða komast áfram í keppninni. Leikurinn hefst klukkan 18 að íslenskum tíma. Sport 22.11.2005 16:42
Riquelme verður ekki með Villareal Leikstjórnandinn snjalli Juan Roman Riquelme verður ekki með liði sínu Villareal í leiknum gegn Manchester United í Meistaradeild Evrópu í kvöld, vegna meiðsla á læri. Þetta eru góð tíðindi fyrir enska liðið, því Riquelme hefur farið á kostum með spænska liðinu í vetur, sem og landsliði Argentínu. Sport 22.11.2005 15:53
Keflavík mætir Fjölni Í dag var dregið í 32-liða úrslit bikarkeppninnar í körfubolta. Tveir af leikjunum verða viðureignir úrvalsdeildarliða, en það eru leikir Keflavíkur og Fjölnis annarsvegar og Skallagríms og ÍR hinsvegar. Sport 22.11.2005 14:37
Ekki hrifinn af Glazer-fjölskyldunni Franski snillngurinn Eric Cantona, sem gerði garðinn frægan með Manchester United á tíunda áratugnum og hefur oft lýst yfir áhuga sínum á að taka við knattspyrnustjórastöðu hjá félaginu, segir að hann myndi ekki koma nálægt félaginu á meðan það er í eigu Glazer-feðga. Sport 22.11.2005 14:26
Framlengdi samning sinn til 2009 Steve McClaren hefur framlengt samning sinn við úrvalsdeildarlið Middlesbrough til ársins 2009, en hann hafði verið orðaður nokkuð við Manchester United og enska landsliðið í framtíðinni. Sport 22.11.2005 14:20
San Antonio lagði Sacramento Fjórir leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt. San Antonio lagði Sacramento á útivelli, Philadelphia lagði New Orleans, Utah sigraði Milwaukee og Golden State vann New Jersey, þar sem Vince Carter meiddist í baki og gat aðeins spilað hálfan leikinn. Sport 22.11.2005 13:38
Leik Birmingham og Bolton frestað Leik Birmingham og Bolton í ensku úrvalsdeildinni, sem fara átti fram í kvöld var frestað vegna þoku á St. Andrews-vellinum í Birmingham. Ekki hefur enn verið ákveðið hvenær leikurinn verður spilaður, en þokan var það þykk að ekki þótti vert að reyna að leika knattspyrnu við þessar aðstæður. Sport 21.11.2005 23:20
Wenger heimtar sigur Arsene Wenger vill ná í öll þrjú stigin á útivelli gegn FC Thun í Meistaradeildinni annað kvöld, þrátt fyrir að Arsenal hafi þegar tryggt sér áframhaldandi þáttöku í keppninni með góðri frammistöðu í undangengnum leikjum. Sport 21.11.2005 18:36