Viðskipti
71 72 73 74 75 76 77 78 79 … 223 ›
FL Group selur í Bang & Olufsen FL Group hefur selt allan hlut sinn í danska fyrirtækinu Bang & Olufsen A/S, sem svaraði til 10,76 prósenta af hlutafé fyrirtækisins. Kaupverð nemur 10,2 milljörðum króna en kaupendur eru hópur danskra og alþjóðlegra stofnanafjárfesta. Viðskipti innlent 30.5.2007 09:48
Kínastjórn kældi markaðinn Gengi hlutabréfa lækkaði nokkuð í kauphöllinni í Sjanghæ í Kína í dag eftir að kínversk stjórnvöld ákváðu að þrefalda gjöld á viðskipti með hlutabréf. Aðgerðin er liður í því að koma í veg fyrir ofhitnun á hlutabréfamarkaði í Kína. Viðskipti erlent 30.5.2007 06:04
Meiri væntingar í Bandaríkjunum Væntingarvísitala Bandaríkjamanna hækkaði úr 106,3 stigum í 108 stig á milli mánaða í maí, samkvæmt upplýsingum bandaríska viðskiptaráðsins sem birtar voru í dag. Þetta er talsvert meira en greinendur höfðu gert ráð fyrir. Þetta virðist benda til að fréttir af samdrætti á bandarískum fasteignalánamarkaði í mars hafi ekki smitað út frá sér til neytenda til lengri tíma litið. Viðskipti erlent 29.5.2007 16:13
Velta á fasteignamarkaði eykst milli ára 246 kaupsamningum var þinglýst á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku, samkvæmt upplýsingum Fasteignamats ríkisins. Til samanburðar var 148 samningum þinglýst á sambærilegum tíma í fyrra. Meðalupphæð hvers samnings nam 29,4 milljónum krónum þá en nemur nú 28 milljónum króna. Kaupsamningum fjölgaði á Akureyri á sama tíma en meðalupphæð á samning lækkar á milli ára. Viðskipti innlent 29.5.2007 08:58
Nasdaq gerir tilboð í OMX Bandaríski verðbréfamarkaðurinn Nasdaq lagði í morgun fram yfirtökutilboð í sænska fyrirtækið OMX AB, sem rekur kauphallir í sjö löndum og þar á meðal á Íslandi. Stjórnir beggja fyrirtækja hafa samþykkt tilboðið og mæla með því að hluthafar geri það einnig. Nýja fyrirtækið verður kallað Nasdaq OMX hópurinn. Viðskipti erlent 25.5.2007 07:42
General Motors krafið gagna Bandaríska fjármálaeftirlitið hefur óskað eftir gögnum um síðasta ársuppgjör bandaríska bílaframleiðandans General Motors. Fyrirtækið segir að búist hafi verið við þess að eftirlitið myndi óska eftir gögnunum. Viðskipti erlent 24.5.2007 13:10
Kaupþing spáir 4,1 prósents verðbólgu Greiningardeild Kaupþings spáir því að vísitala neysluverðs hækki um 0,60 prósentustig á milli mánaða í júní. Gangi það eftir lækkar verðbólga úr 4,7 prósentum í 4,1 prósent. Deildin telur ekki líkur á að verðbólgumarkmiði Seðlabankans verði náð fyrr en í fyrsta lagi á þriðja fjórðungi næsta árs. Viðskipti innlent 24.5.2007 12:47
Fitch Ratings staðfestir einkunnir Straums-Burðaráss Fitch Ratings hefur staðfest lánshæfiseinkunnir Straums-Burðaráss fjárfestingabanka. Matsfyrirtækið gefur bankanum langtímaeinkunnina BBB-, skammtímaeinkunnina F3, óháð einkunn C/D og stuðningseinkunn 3 og segir horfur stöðugar. Viðskipti innlent 24.5.2007 11:54
Hlutabréf eru enn á uppleið Úrvalsvísitalan hélt áfram að hækka í gær og náði hún nýjum methæðum í 8.131 stigi í 22,7 milljarða viðskiptum. Þar með hefur hún hækkað um 26,8 prósent á árinu, þar af um 3,5 prósent eftir kosningar. Þrjú Kauphallarfélög hafa hækkað um meira en helming á árinu. Viðskipti innlent 24.5.2007 11:26
Minni hagnaður hjá Högum Hagar, sem meðal annars rekur Bónus, Hagkaup og fleiri verslanir, skilaði hagnaði upp á 417 milljónir króna á síðasta rekstrarári, sem stóð frá 1. mars í fyrra til loka febrúar á þessu ári. Þetta er rúmlega helmingslækkun á milli ára en í fyrra nam hagnaðurinn 997 milljónum króna. Viðskipti innlent 24.5.2007 10:03
Greenspan olli lækkun á markaði Gengi hlutabréfa í kauphöllinni í Sjanghæ í Kína lækkaði um 1,5 prósent í dag eftir að Alan Greenspan, fyrrum aðalseðlabankastjóri Bandaríkjanna, sagði í ræðu í gær að gengi bréfanna ofmetið og sagðist sjá mikla leiðréttingu á verði þeirra í framtíðinni. Þá lækkaði gengi bréfa sömuleiðis á helstu mörkuðum í Evrópu og í Bandaríkjunum af sömu sökum. Viðskipti erlent 24.5.2007 09:28
Úrvalsvísitalan slær enn eitt metið Enn og aftur sló Úrvalsvísitalan met í Kauphöll Íslands en hún endaði í 8.131 stigi við lokun markaðar. Vísitalan hefur hækkað hratt á árinu, eða um 26,83 prósent. Viðskipti innlent 23.5.2007 16:18
Fjögurra milljarða jöklabréfaútgáfa í dag Evrópski fjárfestingabankinn (EIB) gaf í dag út jöklabréf fyrir fjóra milljarða króna. Bréfin bera 10,25 prósenta vexti og eru á gjalddaga í janúar 2010. Þetta er fyrsta jöklabréfaútgáfan síðan þýski landbúnaðarsjóðurinn KfW gaf út 10 ára bréf fyrir hálfum mánuði. Viðskipti innlent 23.5.2007 16:02
Eldsneytisbirgðir jukust í Bandaríkjunum Eldsneytisbirgðir í Bandaríkjunum jukust um 1,5 milljónir tunna á milli vikna, að því er fram kemur í vikulegri skýrslu bandaríska orkumálaráðuneytisins sem birt var í dag. Þetta er talsvert yfir væntingum markaðsaðila. Viðskipti erlent 23.5.2007 15:35
Stýrivextir lækka í Taílandi Seðlabanki Taílands hefur lækkað stýrivexti um 50 punkta og standa vextir bankans nú í 3,5 prósentum. Með lækkuninni er vonast til að með blása lífi í einkaneyslu og auka væntingar og stöðugleika í landinu í kjölfar átaka í fyrra. Viðskipti erlent 23.5.2007 13:54
Rætt um sameiningu Byrs og SpK Hafnar eru viðræður um sameiningu Byrs og Sparisjóðs Kópavogs (SpK)en búið er að veita stjórnarformönnum beggja sparisjóða heimild til þess. Ætlun er að hraða vinnu eins og kostur er en engin tímamörk hafa verið sett um sameiningu sparisjóðanna. Viðskipti innlent 23.5.2007 11:46
Lenovo bætir afkomuna verulega Kínverski tölvuframleiðandinn Lenovo, sem framleiðir fartölvur undir eigin nafni og merki IBM, skilaði hagnaði upp á rúma 161 milljón bandaríkjadala, jafnvirði 10 milljarða íslenskra króna, á fyrsta ársfjórðungi. Afkoman er langt umfram væntingar. Viðskipti erlent 23.5.2007 11:26
Spá lægri farsímakostnaði Gert er ráð fyrir því að kostnaður vegna farsímanotkunar á milli landa innan aðildarríkja Evrópusambandsins komi til með að lækka um allt að 75 prósent þegar samþykkt verður að setja þak á reikigjöld farsímafyrirtækja. Evrópusambandið styður aðgerðir til að lækka reikigjöldin en framkvæmdastjórn Evrópusambandsins á eftir að gefa samþykki sitt. Það þykir hins vegar einungis vera formsatriði. Viðskipti erlent 23.5.2007 10:59
Góð afkoma hjá Alfesca Alfesca skilaði hagnaði upp á 1,3 milljónir evra, jafnvirði 109,5 milljóna íslenskra króna, á fyrstu þremur mánuðum ársins. Þetta er um 150 prósentum betri afkoma en á sama tíma í fyrra þegar hagnaðurinn nam 524 þúsundum evra, 43,9 milljónum króna. Viðskipti innlent 23.5.2007 10:24
Enn eitt metið í Kauphöll Íslands Úrvalsvísitalan sló enn eitt metið við lokun Kauphallar Íslands í dag þegar hún fór yfir 8.100 stig. Vísitalan hefur aldrei verið hærri. Vísitalan hefur hækkað um 26,38 prósent frá áramótum. Viðskipti innlent 22.5.2007 16:05
Dreamliner að líta dagsins ljós Flugvélasmiðir hjá bandaríska flugvélaframleiðandanum Boeing eru þessa dagana að ljúka við að setja saman nýjustu farþegaþotu fyrirtækisins, Dreamliner787. Hlutirnir eru framleiddir víða um heim en settir saman í námunda við Seattle á vesturströnd Bandaríkjanna. Horft er til þess að tilraunaflug vélanna hefjist í ágúst og verði þær fyrstu afhentar í maí á næsta ári. Viðskipti erlent 22.5.2007 14:55
Stærsta tónlistarútgáfa í heimi verður til Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur gefið evrópska útgáfufyrirtækinu Universal Music græna ljósið á að kaupa þýska útgáfu- og afþreyingafyrirtækið BMG Music Publishing. Kaupverð nemur 1,63 milljörðum evra, jafnvirði rúmra 137 milljarða íslenskra króna. Með kaupunum verður til stærsta tónlistarútgáfa í heimi. Viðskipti erlent 22.5.2007 13:55
Alfesca kaupir franskt matvælafyrirtæki Alfesca hefur náð samningum um yfirtöku á franska matvælafyrirtækinu Le Traiteur Grec, sem framleiðir álegg úr grænmeti. Kaupverð nemur 19,7 milljónum evra, jafnvirði 1.669 milljóna íslenskra króna. Greitt verður með reiðufé en gert er ráð fyrir því að kaupin gangi í gegn í næsta mánuði að lokinni endurfjármögnun. Viðskipti innlent 22.5.2007 11:28
Stefna að yfirtöku á finnskum banka Straumur-Burðarás Fjárfestingabanki hefur keypt meirihluta í finnska bankanum eQ Corporation, sem sérhæfir sig í eignastýringu, verðbréfamiðlun og fyrirtækjaráðgjöf. Gert verður yfirtökutilboð í allt hlutafé og kauprétti í bankann. Samanlagt kaupvirði er 260 milljónir evra, jafnvirði um 22 milljarða íslenskra króna. Stjórn eQ mælir með því að hluthafar og rétthafar samþykki yfirtökutilboðið. Viðskipti innlent 22.5.2007 09:20
EMI samþykkir yfirtökutilboð Stjórn breska útgáfufyrirtækisins EMI hefur ákveðið að taka yfirtökutilboði fjárfestingafélagsins Terra Firma. Kaupverð nemur 3,2 milljörðum punda, rúmum 397 milljörðum íslenskra króna, að meðtöldum skuldum. Viðskipti erlent 21.5.2007 17:52
Tilboð komið í EMI Fjárfestingasjóðurinn Terra Firma lagði í dag fram 2,4 milljarða punda yfirtökutilboð í breska útgáfufélagið EMI. Þetta jafngildir 298 milljörðum íslenskra króna. Forstjóri Terra Firma segist hafa samþykki stjórnar EMI fyrir tilboðinu, sem hljóðar upp á 265 pens á hlut. Viðskipti erlent 21.5.2007 16:24
Spá 4,1 prósents verðbólgu Greiningardeild Landsbankans segir nýjustu hagvísa benda til að töluvert meiri verðbólguþrýstingur sé í hagkerfinu og gerir ráð fyrir 4,1 prósents verðbólgu á árinu öllu. Viðskipti innlent 21.5.2007 16:13
Hráolíuverðið yfir 70 dölum á tunnu Heimsmarkaðsverð á hráolíu rauk yfir 70 dali á tunnu í dag eftir að skæruliðar í Nígeríu gerðu árásir á olíuframleiðslustöð franska olíufélagsins Total og ollu miklu tjóni á tækjum. Engin mun hafa slasast í árásunum. Viðskipti erlent 21.5.2007 13:20
Icebank og Arev stofna nýjan einkafjármagnssjóð Eignarhaldsfélagið Arev og Icebank hafa stofnað nýjan einkafjármagnssjóð, Arev N1. Sjóðurinn hefur allt að þrjá milljarða króna til fjárfestinga í íslenskum neytendavörufyrirtækjum, aðallega á sviði heildsölu, smásölu og þjónustu. Þetta er eini sjóðurinn með þessu sniði hérlendis, sem fjárfestir í neytendavörufyrirtækjum. Viðskipti innlent 21.5.2007 10:19
Bankar sameinast á Ítalíu Ítalski bankinn Unicredit hefur keypt bankann Capitalia, sem er smærri. Kaupverð, sem greiðist að öllu leyti með hlutafé, nemur 22 milljörðum evra, jafnvirði 1.882 milljörðum íslenskra króna. Með kaupunum verður til annar stærsti banki Evrópu að markaðsvirði, sem nemur rúmum 100 milljörðum evra, jafnvirði 8.554 milljarða íslenskra króna. Viðskipti erlent 21.5.2007 09:28