Ástin og lífið

„Við erum bara venjulegt par“
Tónlistarkonan Svala Björgvinsdóttir kynntist kærastanum, Alexander Egholm Alexandersyni, fyrir rúmu ári síðan. Fyrsti kossinn átti sér stað í samkvæmi í Garðabæ og segir Svala þau hafa verið óaðskiljanleg síðan.

Trúlofuðu sig þegar þau komu í mark á HM í frjálsum
Ástin sveif svo sannarlega yfir vötnum á HM í frjálsum íþróttum í Búdapest. Göngupar frá Slóvakíu trúlofaði sig nefnilega á mótinu.

Ætlaði ekki að koma nálægt karlmönnum í tvö ár
„Ég var oft búin að kvíða fyrir því að hitta hann. Þetta var miklu verra en ég hélt,“ segir tónlistarkonan Jóhanna Guðrún Jónsdóttir þegar hún mætti æskuástinni, Ólafi Friðriki Ólafssyni viðskiptafræðingi og eiganda Pizzunnar.

Einhleypan: Vill hlæja með sálinni, hlusta með augunum og horfa með eyrunum
Listakonan S. Tinna Miljevic lýsir sjálfri sér sem ósýnilegum krafti á bakvið tjöldin. Þökk sé stóru systur sinni, Evu Ruzu Miljevic, skemmtikrafti býr Tinna þó ekki yfir neinum leyndum hæfileikum þar sem Eva er ófeimin að sýna frá þeim listaverkum sem Tinnu tekst að skapa. Hvort sem snýr að bakstri eða breyta Evu í fjölbreyttar fígúrur.

Matti í Hatara og Brynhildur Karls giftu sig í íslenskri sveitasælu
Listræna parið Matthías Haraldsson og Brynhildur Karlsdóttir giftu sig um helgina með pomp og prakt í íslenskri sveitasælu, umkringd sínu nánasta fólki. Faðir Brynhildar, leikarinn Karl Ágúst Úlfsson, gaf þau saman með táknrænum en ólögformlegum hætti.

Finnst stundum eins og Almar lifi og sé á leiðinni heim
Veröld Ástu Steinu Skúladóttur hrundi í desember 2021 þegar andleg veikindi drógu Almar Yngva Garðarsson, unnusta hennar, til dauða. Henni líður eins og hún hafi týnt sjálfri sér og finnst sem líf hennar hafi staðið í stað síðan Almar lést. Hún segir minningu hans ekki síst lifa í Eiríki Skúla, fjögurra ára syni þeirra, og þau ætla að hlaupa saman til minningar um hann í Reykjavíkurmaraþoninu á morgun.

Búa hæstu tvíburar heims í Hveragerði?
Þúsundir tvíbura alls staðar úr heiminum hittust nýlega á sérstakri tvíburahátíð í Bandaríkjunum, meðal annars tvennir tvíburar úr Hveragerði. Þau segja frábært að hitta aðra tvíbura og geta deilt með þeim reynslu sinni af tvíburalífinu.

Sakar Britney um framhjáhald og er fluttur út
Sam Asghari, eiginmaður poppstjörnunnar Britney Spears, er sagður hafa flutt af heimili þeirra og undirbúi sig nú undir að sækja um skilnað frá henni. Ástæðan er sögð meint framhjáhald Britneyar.

Knúsa reglulega bangsa úr fatnaði látins föður
Kona sem missti eiginmann sinn úr krabbameini á sér þá ósk heitasta að fá fólk í lið með sér að sauma persónulega bangsa handa börnum sem hafa misst foreldri sitt. Bangsi sem var saumaður úr fatnaði eiginmanns hennar er knúsaður reglulega á heimilinu.

Birgitta Líf og Enok eiga von á barni
Birgitta Líf Björnsdóttir, samfélagsmiðlastjarna og markaðsstjóri World Class, og kærasti hennar, Enok Jónsson eiga von á barni.

Hjónabandið sé á enda eftir orðróm um framhjáhald
Leikkonan Natalie Portman er sögð vera að skilja við eiginmann sinn, franska dansarann Benjamin Millepied. Portman skildi giftingarhringinn eftir heima á ellefu ára brúðkaupsafmæli þeirra á dögunum.

Hittust fyrir tilviljun í flugvél Icelandair og eru í dag hjón
Í apríl 2022 var hin 25 ára gamla Sasha Ebrahimi á leiðinni frá Bandaríkjunum til London með millilendingu á Íslandi. Annar farþegi, hinn 35 ára gamli Daniel Guiterrez, settist við hliðina á henni í vél Icelandair á flugvellinum í Denver. Hvorugt þeirra grunaði að tæpu ári seinna ættu þau eftir að verða hjón.

Sigmar og Júlíana hvort í sína áttina
Hjónin Sigmar Guðmundsson þingmaður Viðreisnar og Júlíana Einarsdóttir mannauðssérfræðingur hjá Samskipum hafa slitið sambandi sínu. Þau hafa verið í sambandi í ellefu ár síðan leiðir þeirra lágu saman þegar þau störfuðu í fjölmiðlum.

Tengir hjartagalla við það að geta ekki elskað
Hljómsveitin Hipsumhaps var að senda frá sér lagið „Hjarta“. Er um að ræða aðra smáskífu af væntanlegri plötu og er laginu lýst sem „indie-skotnum“ óð til einmana flagara sem veltir fyrir sér hvort það sé eitthvað að eigin heilsufari, nánar tiltekið hjartanu, þegar kemur að erfiðleikum í málefnum ástarinnar.

„Allir staðir eru rómantískir með réttu manneskjunni“
Þær Þorbjörg Þorvaldsdóttir og Silja Ýr S. Leifsdóttir kynntust á spjallborðinu Lez Jungle sem þá var vettvangur íslenskra hinsegin kvenna til að kynnast. Það þurfti aðeins eitt samtal og hafa þær nú verið par í fimmtán ár og eiga saman tvær dætur.

„Vorum ekki lengur nafnlaus og í felum í dimmum skúmaskotum“
„Þetta var í fyrsta sinn sem ég upplifði samstöðu og stuðning frá almenningi í almannarými. Tilvera okkar var ekki lengur einhver dularfull flökkusaga í lausu lofti og stuðningurinn ekki bara eitthvað hvísl í lokuðu rými,“ segir stórstjarnan Páll Óskar í samtali við blaðamann þar sem hann rifjar upp sína fyrstu Gleðigöngu.

Rannsókn: Æskilegasta aldursbil hjóna
Aldur er afstæður og aldur segir svo sem ekkert allt um neinn. Þegar kemur að ástinni er síðan jafnvel sagt að aldur skipti engu máli, ef ástin sé til staðar þá sigri hún allt.

„Augnablik sem ég gleymi aldrei svo lengi sem ég lifi“
„Kvíðahnúturinn leystist upp og breyttist í eitthvað allt annað. Ég greip í höndina á manninum mínum og kyssti hann. Svo fór ég að hágráta. Það var eins og allir erfiðleikarnir, allt strögglið væri tekið frá okkur á augabragði og eftir stóð bara frelsistilfinning og gleði,“ rifjar fjölmiðlamaðurinn Felix Bergsson upp í samtali við blaðamann um Gleðigönguna.

Urðu ástfangin í Marokkó
Listaparið Snæfríður Ingvarsdóttir og Högni Egilsson eru óumdeilanlega eitt heitasta par landsins. Þau hafa verið saman um nokkurra ára skeið en vita fátt betra en að taka frá tíma til að vera bara tvö saman.

Redda mér yfirleitt með raulinu
Tómas Oddur Eiríksson jógakennari og dans þerapisti lýsir sjálfum sér sem góðri blöndu af landafræðinörda, heimsspekifræðingi og áhugamanni um stjarneðlisfræði. Þrátt fyrir framandi áhugamál er Tómas Oddur vel jarðtengdur en hann segist vera minnst þrettán komma átta milljarðar ára í anda.

Völdu að sleppa því að gúgla og njóta tímans sem hún átti eftir
Í fyrra missti Rúnar Marínó Ragnarsson eiginkonu sína Ingu Hrund Kjartansdóttur úr brjóstakrabbameini. Inga var 37 ára gömul og hafði fram að því alltaf verið heilsuhraust og aldrei kennt sér meins.

Létu þjónana missa brúðkaupstertuna í gólfið
Listaparið Gunnlaugur Egilsson og Gunnur von Matérn gengu í hjónaband síðastliðna helgi. Gunnlaugur segir athöfnina hafa verið fullkomna og hápunktinum hafi verið náð þegar veislugestir supu andköf yfir gervitertu sem brúðhjónin létu útbúa.

Bachelorette-stjarna komin með kærustu
Gabby Windey tók þátt í raunveruleikaþættinum The Bachelorette á síðasta ári. Þar kynntist hún þrjátíu og tveimur mönnum og ákvað að lokum að trúlofast einum þeirra. Það samband entist þó ekki lengi og er Gabby nú komin með kærustu.

Einhleypan: Á eingöngu eftir að kaupa sér glæsihöll og snekkju
Ísdrottninguna Ásdísi Rán Gunnarsdóttur þarf vart að kynna fyrir Íslendingum. Hún er nú búsett í Búlgaríu þar sem hún starfar sem fyrirsæta og leikkona. Nýjasta verkefni hennar, og jafn framt stærsta sem leikkona er að fara með aðalhlutverkið í ítalskri kvikmynd undir leikstjórn Lorenzo Faccend. Kvikmyndin er tekin upp í Sófíu, höfuðborg Búlgaríu. Ásdís fer með hlutverk hjákonu auðugs manns og hún lýsir því sem draumaverkefni.

Sambandsslit stjörnupars skekja tónlistarheiminn
Tónlistarkonan Rosalía og reggaeton-söngvarinn Rauw Alejandro hafa slitið trúlofun sinni og eru hætt saman eftir þriggja ára samband. Fregnirnar eru áfall fyrir heim latíntónlistar enda eru þau bæði risastjörnur innan hans.

Fabjúlöss feður
Birtingarmynd föðurhlutverksins er fjölbreytt og flókin. Þar má nefna nýbakaða feður, margra barna feður, stjúpfeður, einstæða feður, verðandi feður og feður yfir fertugt, svo fátt eitt sé nefnt.

Örlagaríkt matarboð leiddi þau saman
Listaparið Árni Kristjánsson og Harpa Fönn Sigurjónsdóttir kynntust í Tjarnarbíó þegar Harpa var að framleiða sýningu með Vinnslunni og Árni var með skrifstofu í húsinu til að skrifa leikrit.

Körfuboltastjarnan Kristófer Acox á lausu
Kristófer Acox, landsliðsmaður og leikmaður Vals í Subway-deild karla í körfubolta, og Ólavía Grímsdóttir arkítektúrnemi hafa slitið sambandi sínu.

Stjörnulífið: Hátíðarhöld, hinsegin dagar og hundaafmæli
Íslensku stjörnurnar halda áfram að njóta sumarsins hvort sem það er í sólinni erlendis eða úti á landi. Fjölmiðlamaðurinn Siggi Gunnars naut Hinsegin daga í Hrísey með ástinni sinni og leikarinn Bjarni Snæbjörnsson var sömuleiðis þar. Stórstjörnurnar Birgitta Haukdal og Páll Óskar létu Mærudaga á Húsavík ekki fram hjá sér fara en Birgitta fagnaði einnig 44 ára afmæli sínu í sínum heimabæ.

Fann ástina í örmum barnastjörnunnar úr Love Actually
Talulah Riley, leikkona og fyrrverandi eiginkona Elon Musk, og Thomas Brodie-Sangster, barnastjarna sem er þekktastur fyrir leik sinn í Love Actually, eru trúlofuð.