Ástin og lífið

Eins og gleðisprauta í rasskinnina
Edda Björgvins segir að nokkrar mínútur af dansi með Önnu Claessen sé eins og gleðisprauta í rassinn.

Gætir jafnvægis milli vinnu og tíma með strákunum í Brasilíu
Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor emeritus við Háskóla Íslands, dvelur yfir vetrarmánuðina á suðrænum slóðum í Rio de Janeiro. Hann segist vinna mikið í Brasilíu en dvöl hans ytra snýst ekki aðeins um vinnu heldur leyfir hann sér líka að slaka á og njóta í góðum félagsskap.

Bað kærustunnar í þrjú þúsund metra hæð
Breski leikarinn Ed Westwick bað um hönd kærustu sinnar og leikkonunnar Amy Jackson á hinni hangandi brú, Peak Walk by Tissot, í svissnesku Ölpunum á dögunum.

„Ég var óvart lagður inn á líknardeild og það talaði enginn ensku“
Leikarinn og húmoristinn Starkaður Pétursson lýsir sjálfum sér sem spjátrungi úr Hafnarfirði í tilvistarkreppu sem finnst ekkert betra en að sitja í heitum potti, hlusta á undarlega tónlist og reyna að koma fólki til að hlæja, með misjöfnum árangri.

Leifur Andri og Hugrún eiga von á „litlu ljóni“
Knattspyrnukappinn og fyrirliði HK í Bestu deild karla, Leifur Andri Leifsson, og kærastan hans Hugrún Elvarsdóttir, verkefnastjóri hjá Samtökum atvinnulífsins og stjórnarmeðlimur FKA, eiga vona á sínu fyrsta barni saman.

Atli Már og Katla tilkynna kynið
Atli Már Steinarsson útvarpsmaður á RÚV og sambýliskona hans, Katla Ómarsdóttir, eiga von á sínu fyrsta barni saman. Katla tilkynnti í færslu á samfélagsmiðlum á dögunum að von væri á stúlku.

Stjörnulífið: Blót, bóndadagur og börn
Stjörnur landsins dönsuðu sig í gegnum síðustu helgi janúarmánaðar og fer þessi langi mánuður senn að líða undir lok, mörgum til mikillar ánægju. Þorrablót, tónleikar, afmælisveislur og fleira fjör einkenndi helgina.

Handboltapar á von á barni
Handboltaparið Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason eiga von á sínu fyrsta barni saman í lok sumars. Parið deildi gleðifréttunum í sameiginlegri færslu á Instagram.

Brynhildur Gunnlaugs hélt meðgöngunni leyndri
Samfélagsmiðlastjarnan Brynhildur Gunnlaugsdóttir og körfuboltamaðurinn Dani Koljanin eignuðust stúlku 4. desember síðastliðinn. Brynhildur hélt þunguninni leyndri frá fylgjendum sínum og segist ekki ætla að birta myndum af dótturinni á miðlunum.

Kalli svikinn um löggilt kynþokkavottorðið
Í tilefni bóndadags birti DV lista yfir kynþokkafyllstu karlmenn landsins. Og eru eins og vænta má margir álitlegir menn kynntir til sögunnar.

Camilla Rut loggar sig út
Camilla Rut Rúnarsdóttir áhrifavaldur og athafnakona hefur ákveðið að taka sér frí frá samfélagsmiðlum og vera meira í núinu. Þeir hafi tekið of mikinn tíma frá henni.

Skotheldar hugmyndir fyrir Bóndadaginn
Bóndagurinn, fyrsti dagur Þorra, er á morgun. Dagurinn þar sem hefð er fyrir því að gleðja og dekra við bóndann á heimilinu.

Tóku brúðkaupsmyndirnar í Melabúðinni: „Skemmtilegasta búðin á landinu“
Þau Klara Rún Ragnarsdóttir og Birgir Már Arnórsson gengu nýlega í hjónaband. En í stað hinna hefðbundnu brúðkaupsmynda sem gjarnan eru teknar í náttúrunni eða í ljósmyndaveri í tilefni þess áfanga ákváðu þau að myndirnar yrðu teknar í Melabúðinni.

„Smá gluggi inn í sálarlífið mitt“
„Ég held að ég leyfi mér hér að vera enn berskjaldaðri en áður,“ segir tónlistarmaðurinn Friðrik Dór Jónsson um nýja tónlist sem hann var að gefa út. Tæplega fimmtán ár eru liðin frá því að hann sendi frá sér sitt fyrsta lag, Hlið við hlið, og hefur honum tekist að syngja sig aftur og aftur inn í hjörtu þjóðarinnar.

„Netflix er í samkeppni við kynlíf og Netflix er að vinna“
„Ég eyði deginum í að tala um kynlíf,“ segir Áslaug Kristjánsdóttir kynfræðingur og kynlífsráðgjafi í samtali við Marín Möndu Magnúsdóttur í nýjasta hlaðvarpsþætti Spegilmyndarinnar.

Ást er: Segja fjölmiðla minna þau á aldursmuninn
Birgitta Líf Björnsdóttir, markaðsstjóri World Class og raunveruleikastjarna LXS, og sambýlismaður hennar, Enok Jónsson, kynntust fyrir um tveimur árum síðan á skemmtistaðnum Bankastræti Club. Enok hélt upp á tvítugsafmæli sitt á staðnum, sem var á þeim tíma í eigu Birgittu.

„Sæll. Er ég að fara að deyja?“
Viðvörunarbjöllur höfðu hringt hjá Laufeyju Karítas Einarsdóttur, margfaldri móður, í töluverðan tíma. Hún hafði sett fjölskyldu, börn og vinnu í fyrsta sætið en gleymt sjálfri sér.

Giftu sig á Hlévangi svo faðir brúðarinnar gæti verið með
Kara Tryggvadóttir og Eysteinn Sindri Elvarsson höfðu lengi ætlað að láta pússa sig saman. Þegar þau tíðindi bárust að brugðið gæti til beggja vona hjá föður Köru biðu þau ekki boðanna. Blásið var til brúðkaups á hjúkrunarheimilinu Hlévangi í Reykjanesbæ svo faðir brúðarinnar gæti fylgt litlu stelpunni sinni upp að altarinu.

„Er klárlega með breiðara bak í dag“
„Það er alltaf svolítið áhugavert þegar að fólk kemur upp að manni og segir: Vá, ég hélt að þú værir allt öðruvísi. Ég viðurkenni alveg að mér finnst það skrýtin athugasemd, manni líður eins og fólk sé að segja: Ég hélt að þú værir ótrúlega heimsk og vitlaus og þú ert það ekki,“ segir útvarps- og sjónvarpskonan Jóhanna Helga Jensdóttir.

„Hljóp til þeirra og klappaði þeim meðan lífið fjaraði út“
Listaparið og grænkerarnir Kolbeinn Arnbjörnsson og Aldís Amah Hamilton hafa sneitt alfarið hjá dýraafurðum síðastliðin ár. Þau segja matseldina einfaldari en fólk grunar og hvetja alla til að prófa sig áfram. Parið deilir þremur girnilegum vegan uppskriftum með lesendum Vísis.

Theodóra Mjöll og Þór opinbera kynið
Theodóra Mjöll Skúladóttir, hárgreiðslukona og vöruhönnuður, og Þór Steinar Ólafs knattspyrnuþjálfari eiga von á dreng. Parið greindi frá gleðitíðindunum í í hringrásarfærslu á samfélagsmiðlum í gærkvöldi.

„Hún gerir skammdegið bjartara með brosinu einu saman“
Mynd- og rithöfundurinn Bergrún Íris Sævarsdóttir sendi kærustu sinni, Kolbrúnu Ósk Skaftadóttur bókastjóra bókaútgáfunnar Bókabeitunnar, hjartnæma afmæliskveðju á samfélagsmiðlum í tilefni dagsins.

„Skyndilega varð allt þess virði“
Svava Kristín Grétarsdóttir íþróttafréttakona eignaðist stúlku 14. janúar síðastliðinn. Fæðingin var löng og erfið og var ákveðið að koma stúlkunni í heiminn með bráðakeisara.

Sindri Snær og Alexía gáfu syninum nafn
Sindri Snær Jensson athafnamaður og kærasta hans Alexía Mist Baldursdóttir gáfu syni sínum nafn á dögunum. Drengurinn fékk nafnið Júlíus Skuggi.

Förðunardrottning á lausu
Heiður Ósk Eggertsdóttir, förðunarfræðingur og eigandi Reykjavík Makeup School, hefur bæst í hóp glæsilegra einhleypra kvenna.

Endurvekja sögufræga keppni með Miss Bikini Iceland
Ísdrottningin Ásdís Rán Gunnarsdóttir og athafnamaðurinn Sverrir Einar Eiríksson, hyggjast endurvekja Ungfrú Hawaiian-Tropic keppnina undir heitinu Miss Bikini Iceland. Þátttakendur þurfa að hafa náð átján ára aldri og njóta þess að koma fram.

„Ég vakna alla daga þakklát fyrir hann“
Kristín Sif Björgvinsdóttir, útvarpskona og næringarþjálfari, sendi eiginmanni sínum og tónlistarmanninum Stefáni Jakobssyni, hjartnæma afmæliskveðju á Instagram á dögunum.

Elín Metta fann ástina í örmum Sigurðar
Knattspyrnukonan Elín Metta Jensen og Sigurður Tómasson, verkefnastjóri hjá VEX ehf. eru nýtt par.

Lítil ævintýrastelpa væntanleg
Íris Freyja Salguero fyrirsæta og Egill Halldórsson, eigandi Górilla vöruhúss og Wake up Reykjavík, eiga von á stúlku í sumar. Íris Freyja deilir gleðifréttunum með fallegri myndafærslu á samfélagmiðlum.

Ferðalag til Íslands varð kveikjan að ævintýrinu
Hin 28 ára gamla Gabby Beckford er bandarískur áhrifavaldur sem heldur úti afar vinsælum aðgangi á TikTok, Instagram og Youtube. Þar deilir hún myndefni úr ferðalögum sínum víða um heiminn. Með mikilli vinnu hefur henni tekist að gera ferðalögin að aðalstarfi sínu en á seinasta ári þénaði hún hátt í fjörtíu milljónir íslenskra króna í gegnum samstarf við fyrirtæki og ýmislegt fleira.