Ástin og lífið

Bjarki og Rósa orðin hjón
Bjarki Bergmann Gunnlaugsson og Rósa Signý Gísladóttir giftu sig um helgina.

„Það er enginn séns að reyna alltaf að útskýra sig“
„Ég held ég hafi bara aldrei tekið lífinu of alvarlega. Maður þarf að minna sig á að þetta er ekki svona alvarlegt. Inni í öllum sársauka er fegurð, það er staðreynd. Ég hef upplifað það frá mjög ungum aldri. Maður verður að nýta öll tólin til að styrkja sig og læra af. Annars er maður bara að byggja fangelsi í kringum sig,“ segir tónlistarkonan og íslenska stórstjarnan Bríet. Blaðamaður ræddi við hana um farsælan feril, tilveruna, hæðir og lægðir og margt fleira.

Emilíana Torrini einhleyp
Söngkonan ástsæla Emilíana Torrini og Rowan Patrick Robinson Cain eru að skilja eftir fimm ára hjónaband. Emilíana hefur í mörg ár verið ein allra vinsælasta söngkona þjóðarinnar.

„Vinkonusambönd virka aldrei ef það er afbrýðisemi“
Áhrifavaldarnir og raunveruleikastjörnurnar Sunneva Einarsdóttir og Jóhanna Helga Jensdóttir eða Jóa eru bestu vinkonur og hafa þekkst í rúm tólf ár. Vinátta þeirra hefur vakið mikla athygli en þær hafa meðal annars verið saman með raunveruleikaþátt, eytt tíma saman á fæðingardeildinni þegar Jóa eignaðist barn og margt fleira eftirminnilegt. Blaðamaður ræddi við þær um vináttuna.

Edda Falak gaf bróður sínum nafna
Edda Falak, baráttukona og áhrifavaldur, og Kristján Helgi Hafliðason, glímukappi og þjálfari í Mjölni, hafa gefið syni sínum nafn. Drengurinn heitir Ómar, í höfuðið á bróður Eddu.

Fólk fer of snemma af stað í næsta samband
Það er æ algengara að pör búi ekki saman. Sérstaklega þegar þau eru komin yfir miðjan aldur. Þegar pör hætti saman gerist það í langflestum tilvikum að fólk fari of snemma af stað í næsta samband.

Tók ákvörðun um að hætta að gera ráð fyrir því að fólk hataði sig
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir formaður Pírata vill komast aftur á þing og helst í ríkisstjórn. Sindri Sindrason hitti þingmanninn í morgunkaffi á heimili hennar í Mosfellsbæ í Íslandi í dag í vikunni.

Kynbomban Megan Fox ólétt
Hollywood-leikkonan Megan Fox og tónlistarmaðurinn Machine Gun Kelly, réttu nafni Colson Baker, eiga von á sínu fyrsta barni saman. Fyrir á Fox þrjá drengi og Baker eina dóttur.

Viðkvæmur drengur sem var á brjósti til fimm ára aldurs og farinn að reykja
Einn dáðasti sjónvarpsmaður landsins Jón Ársæll Þórðarson hefur ekki mikið opnað sig um persónuleg mál þó hann sé frægur fyrir að fá viðmælendur sína til að vera einlæga og oft opinskáa í viðtölum sem hann tók.

Stjörnulífið: „Einhver þarna uppi heldur með mér“
Stjörnur landsins nutu liðinnar viku eins og þeim einum er lagið. Feðradagurinn var haldinn hátíðlegur í gær og sendu fjölmargir Íslendingar fallegar kveðjur á feður í lífi þeirra í tilefni dagsins. Tónleikahald var áberandi um helgina og má þar nefna tónleika Páls Óskar og Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Airwaves tónleika Emilíönu Torrini í Eldborgarsal Hörpu.

Einhleypan: „Borða, ríða, elska“
„Það er ótrúlega heillandi þegar fólk sýnir frumkvæði, er forvitið og klárt, er gott í samskiptum og þekkir sjálfan sig og tekur ábyrgð á sjálfum sér. Svo kannski númer 1,2 og 3 er fyndið fólk með smitandi hlátur og heillandi bros,“segir Indíana Rós Ægisdóttir kynfræðingur í viðtali við Makamál.

Rómantík í loftinu hjá Sveindísi Jane
Sveindís Jane Jónsdóttir landsliðskona í knattspyrnu og Rob Holding varnarmaður Crystal Palace eru að stinga saman nefjum. Þetta herma heimildir fréttastofu. Úr gæti orðið sannkallað ofurfótboltapar.

Skotheldar hugmyndir fyrir feðradaginn
Feðradagurinn er haldinn hátíðlegur næstkomandi sunnudag. Dagurinn þar sem hefð er fyrir því að gleðja og dekra við feður landsins. Að eiga góðan pabba er svo sannarlega mikið gæfuspor og gerir lífið miklu betra. Í tilefni dagsins má gleðja feður með góðu knúsi, gjöf eða ljúffengum kræsingum.

Gunnhildur og Erin eignuðust dreng
Knattspyrnukonurnar, Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir og Erin McLeod, eignuðust dreng í lok október. Um er að ræða fyrsta barn þeirra hjóna.

„Dagurinn var algjörlega fullkominn“
Hinir nýgiftu Einar Guðmundsson og Aron Freyr eru búnir að vera par í rúm átta ár, eru báðir grafískir hönnuðir og reka saman verslunina Mikado á Hafnartorgi. Þeir trúlofuðu sig í Lissabon og á borgin svo stóran stað í hjarta þeirra að þeir ákváðu að halda brúðkaupið þar sömuleiðis. Blaðamaður ræddi við Einar og Aron um stóra daginn.

Sunneva nefndi son Jóhönnu
Sunneva Einarsdóttir, áhrifavaldur og raunveruleikastjarna, gaf syni vinkonu sinnar, Jóhönnu Helgu Jensdóttur áhrifavalds og útvarpskonu á FM957, nafn við hátíðlega athöfn um helgina. Litli drengurinn fékk nafnið Styrmir Óli Geirsson. Tvær athafnir fóru fram, annars vegar skírn í kirkju og svo athöfnin í heimahúsi.

Tanja Ýr og Ryan fengu að vita kynið á sjöttu viku
Athafnakonan Tanja Ýr Ástþórsdóttir og breski hermaðurinn Ryan Amor eiga von á dreng. Parið greindi frá kyninu barnsins í myndskeiði á Instagram. Þetta mun vera fyrsta barn þeirra saman.

Einhleypan: Fangavörður, einlæg og skemmtileg
„Ég var ástfangin af Páli Óskari og upplifði mína fyrstu ástarsorg sirka sex ára gömul í tívolíinu á höfninni í Reykjavík þegar ég sá hann í sleik við mann. Enginn hefur getað fyllt hans fótspor ennþá,“ segir Theodóra Fanndal Torfadóttir í viðtali við Makamál.

Bjarni Ben orðinn tvöfaldur afi
Bjarni Benediktsson forsætisráðherra er orðinn afi í annað sinn. Margrét Bjarnadóttir elsta dóttir Bjarna og unnusti hennar Ísak Ernir Kristinsson eignuðust dóttur á þriðjudaginn.

Tilkynna óléttu tveimur mánuðum eftir brúðkaup
Breski leikarinn Ed Westwick og leikkonan Amy Jackson eiga von á sínu fyrsta barni saman. Fyrir á Jackson einn dreng, Andreas sem er fimm ára.

Kynntust í fyrri seríunni
Önnur þáttaröðin af Svörtu Söndum er farin í loftið á Stöð 2 en fyrri serían naut mikilla vinsælda.

Unnur Eggerts og Travis eiga von á öðru barni
Unnur Eggertsdóttir, leikkona og verkefnastjóri og hugmynda- og textasmiður hjá Maurum auglýsingastofu, á von á sínu öðru barni með unnusta sínum Travis. Hún deilir gleðitíðindunum með fylgjendum sínum á Instagram.

Skylduð til að bæta Baltasarsdóttir við
Dóttir leikstjórans Baltasars Kormáks og Sunnevu Ásu Weisshappel, myndlistarkonu og leikmyndahönnuðar var skírð þann 5. október síðastliðinn og fékk hún nafnið Kilja Kormákur. Parið þurfti að sækja um sérstakt leyfi til Mannanafnanefndar og segir að það hafi komið þeim á óvart að Kilja væri ekki til sem íslenskt kvenmannsnafn.

Dóttir Sunnevu og Baltasars ber nafnið Kormákur
Leikstjórinn Baltasar Kormákur og Sunneva Ása Weisshappel, myndlistakona og leikmyndahönnuður, eignuðust stúlku þann 5. ágúst síðastliðinn. Stúlkan hefur fengið nafnið Kilja Kormákur.

Bündchen 44 ára og ólétt
Brasilíska ofurfyrirsætan Gisele Bündchen og þjálfarinn Joaquim Valente, eiga von á sínu fyrsta barni saman. Tímaritið People hefur fengið þetta staðfest.

Móðurmál: Tvær óvæntar þunganir eftir óútskýrða ófrjósemi
„Ég væri til í endurupplifa þessar stundir milljón sinnum. Það er svo magnað að á einni millisekúndu fer maður frá mesta sársauka sem ég hef upplifað yfir í bestu tilfinningu lífs míns,“ segir Jóna Kristín Hauksdóttir, hagfræðingur og þriggja barna móðir, í viðtalsliðnum Móðurmál.

Nýfæddur sonur Gylfa og Alexöndru kominn með nafn
Alexandra Helga Ívarsdóttir, eigandi barnafataverslunar, og Gylfi Þór Sigurðsson knattspyrnumaður eignuðust dreng þann sautjánda október. Nú hefur drengurinn fengið nafnið Róman Þór Gylfason.

Ragga Holm og Elma eignuðust dreng
Reykjavíkurdóttirin Ragga Holm og kærastan hennar Elma Valgerður eignuðust frumburð sinn þann 22. október síðastliðinn. Öllum heilsast vel og segist Ragga ekki geta sett það í orð hve stolt hún er af konunni sinni.

Stjörnulífið: Seiðandi ofurskvísur og hrekkjavaka
Mikið var um veisluhöld um helgina þar sem árshátíðir fyrirtækja og hrekkjavökuteiti voru áberandi á samfélagsmiðlum. Stjörnur landsins tóku forskot á sæluna og klæddu sig upp sem Hollywood-stjörnur. Helgi Ómars skellti sér í jógakennaranám á meðan Elísabet Gunnars eyddi vetrarfríinu með börnunum í Vestmannaeyjum.

Einhleypan: Góðmennska og húmor heillar
Lárus Thor er 23 ára nemi, búsettur á Seltjarnarnesi. Hann er mikill fótboltaáhugamaður og þykir fátt betra en að fá sér góða nautasteik. Lárus er Einhleypan á Vísi.