
Sveitarstjórnarmál

Gera kröfu um að varaaflsstöðin verði áfram í Vík
Einar Freyr Elínarson sveitarstjóri í Vík segir sveitarfélagið gera kröfu um það að varaaflsstöðin sem nú er við Vík verði þar áfram í vetur svo hægt verði að tryggja að íbúar og gestir sveitarfélagsins hafi öruggt aðgengi að rafmagni.

Aðgengi og lífsgæði eldri borgara í stafrænni framtíð: Hvað getum við gert betur?
Ísland færist hratt í átt að stafrænum heimi þar sem samskipti við hið opinbera fara fram á vettvangi eins og heilsuvera.is og island.is. Þó að þessi þróun bjóði upp aukin lífsgæði fyrir marga, þá eru hópar í samfélaginu sem eiga erfitt með að fóta sig í stafrænni veröld.

Hörmungarsaga viðbyggingar við leikskólann Óskaland
Hörmungarsaga þessi hófst með leigusamningi sem meirihluti O-listans og Framsóknar í Hveragerði gerðu við Fasteignafélagið Eik (Eik) og verktakafyrirtækið Hrafnshóll ehf (Hrafnshóll) síðasta vor.

Frjálslega farið með sannleikann
Mér er það ljúft og skylt að gera athugasemd við orð Kristrúnar Frostadóttur, formanns Samfylkingarinnar, sem hún lét falla í kappræðum formanna flokkanna á RÚV sl. föstudagskvöld. Í þættinum fór Kristrún frjálslega með sannleikann þegar hún beindi orðum sínum að Sveitarfélaginu Árborg.

Sigríður Júlía verður bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar
Sigríður Júlía Brynleifsdóttir verður næsti bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar. Hún tekur við af Örnu Láru Jónsdóttur sem verið hefur bæjarstjóri frá árinu 2022 en náði á laugardaginn kjöri á Alþingi.

Erfiðara að manna í frístund í austurhluta borgarinnar
Í síðustu viku voru alls 194 börn á bið eftir plássi í frístund í Reykjavík. Enn á eftir að ráða í 31,6 stöðugildi í frístundaheimilum og sértækum félagsmiðstöðvum. Á sama tíma átti eftir að ráða 62 grunnstöðugildi í leikskólum. Þetta kemur fram í minnisblaði um stöðu ráðninga á skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar.

Krefjast úrbóta á leikskólastarfi í leikskólanum Lundi
Vissum skilyrðum leikskólastarfsins í leikskólanum Lundi var ábótavant þegar starfsfólk skóla- og frístundasvið fór í óboðað eftirlit í leikskólanum í upphafi mánaðar. Skóla- og frístundasvið hefur krafist úrbóta. Greining og eftirfylgni í leikskólanum hefur staðið yfir stærstan hluta nóvember og stendur enn samkvæmt svari frá skóla- og frístundasviði vegna málsins.

Framsókn með þriggja prósenta fylgi í borginni
Framsóknarflokkurinn mælist nú með þriggja prósenta fylgi í Reykjavík samkvæmt nýrri könnun Maskínu, Borgarvitanum. Yrði gengið til kosninga í sveitarstjórn í dag myndi flokkur borgarstjóra því ekki ná inn í borgarstjórn. Flokkurinn fékk 18,9 prósenta fylgi í kosningunum árið 2022.

Vilja afnema álag á útsvar í Árborg á næsta ári
Fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Árborgar fyrir árið 2025 var lögð fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn í dag. Þar var ákveðið að lækka útsvarsprósentuna í 14,97 prósent og álagið afnumið. Frá þessu er greint í frétt á vef sveitarfélagsins.

Ríkið þarf ekki að greiða borginni milljarðana
Hæstiréttur Íslands hefur sýknað íslenska ríkið af nokkurra milljarða króna kröfu Reykjavíkurborgar í tengslum við framlög ríkisins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga.

Sérfræðingar fengnir til að liðka fyrir viðræðum
Hreyfing er komin á kjaraviðræður kennara og ríkis og sveitarfélaga en samninganefndir kennara og ríkis og sveitarfélaga hittust á fundi í Karphúsinu í morgun annan daginn í röð.

Að lifa með reisn
Ég tók þátt í pallborðsumræðum á vegum Sambands íslenskra sveitarfélaga um málefni fatlaðs fólks nú í vikunni. Meginumræðuefnið var hvernig sveitarfélögum hefði tekist að þjónusta fatlað fólk, nú 13 árum eftir að sveitarfélögin tóku við málaflokknum af hendi ríkisins.

Bætum samskipti ríkis og sveitarfélaga
Á þessu ári eru liðin 30 ár frá því ég hóf störf á vettvangi sveitarfélaga. Á þessum tíma hafa mér verið falin ábyrgðar- og trúnaðarstörf, m.a. sem bæjarstjóri í 16 ár og stjórnarmaður hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga til átta ára.

Dæmisaga úr raunveruleikanum
Samtök íslenskra sveitarfélaga ákváðu í sameiningu að leggja ljósleiðara um öll sveitarfélög.

Bein útsending: Kosningafundur Sambands íslenskra sveitarfélaga
Samband íslenskra sveitarfélaga stendur fyrir umræðufundi með fulltrúum stjórnmálaflokka á Hilton Reykavík Nordica milli klukkan 14 og 15.30. Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinu streymi.

Leikskólastarfsmenn í Hafnarfirði greiða atkvæði um verkfall
Félagsmenn verkalýðsfélagsins Hlífar sem starfa á leikskólum Hafnarfjarðar greiða ný atkvæði um verkfall. Verði tillagan samþykkt fara starfsmenn í verkfall í tvo sólarhringa á tímabilinu 21. nóvember til 5. desember.

Niðurskurðarhnífnum beitt á skólana
Allt of gróflega er verið að skera niður, draga úr þjónustu við börn eins og rakið er í mörgum liðum í yfirliti frá skóla- og frístundasviði í Greinargerð fagsviða sem birt var með í Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2025.

Viðræður hafnar um kaup á Perlunni, Toppstöðinni og 125 bílastæðum
Viðræður standa nú yfir á milli Reykjavíkurborgar og Perlunnar þróunarfélags ehf. um kaup á Perlunni og tveimur tönkum. Í tilkynningu frá borginni segir að Perlan þróunarfélag ehf. hafi verið leigutaki síðustu átta ár. Þá kemur fram í sömu tilkynningu að gengið verði til samningaviðræðna við hæstbjóðendur í Toppstöðina í Elliðaárdal og 125 bílastæði í bílakjallara Hörpu.

Rekin út fyrir að vera kennari
Það eru grundvallarréttindi vinnandi fólks að beita verkfalli til að knýja á um kjarabætur. Því vakti víða athygli þegar kennarar komu saman að morgni 29. október til að tryggja að verkfall kennara á leikskólanum Ársölum í Skagafirði væri ekki brotið að fyrirskipun sveitarfélagsins Skagafjarðar. Það hefur hins vegar ekki verið fjallað mikið um aðdraganda verkfallsbrotanna eða eftirmála þeirra.

Rekstur borgarinnar allur að braggast segir borgarstjóri
Borgarstjóri segir að takast muni að snúa halla í afgang á rekstri borgarsjóðs strax á þessu ári. Afgangurinn verði síðan tæpir tveir milljarðar á næsta ári. Oddviti Sjálfstæðisflokksins sakar meirihlutann um að hagræða sannleikanum.

Bein útsending: Kynna fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar
Reykjavíkurborg hefur boðað til blaðamannafundar til að kynna fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2025 og áætlun fyrir fimm ára tímabilið til 2029.

Umræða á Bylgjunni ekki ígildi stjórnvaldsákvörðunar
Formaður umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkurborgar segir fokið í flest skjól ef orð hennar um víkkun vaxtarmarka í viðtali í Bítinu teljist sem stjórnvaldsákvörðun. Beiðni um færslu vaxtarmarka á höfuðborgarsvæðinu hafi ekki komið formlega inn á borð borgarstjórnar.

Fagnar 400 nýjum störfum við Hvammsvirkjun
Stóru málin á Suðurlandi eru samgöngur og orkumál með sérstaka áherslu á að arður af orkunni verði að hluta til eftir heima í héraði. Þetta segir formaður Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga, sem fagnar í leiðinni fjögur hundruð nýjum störfum við Hvammsvirkjun, sem hann segir að verði meira og minna skipuð erlendu vinnuafli.

„Sjáum fram á að geta rekið sveitarfélagið eitthvað fram eftir næsta ári“
Grindavíkurbær stefnir í greiðsluþrot á næsta ári verði ekki komið til móts við bæjarsjóð að mati Grindavíkurnefndar. Bæjarstjóri segir óvissu um framlengingu ýmissa stuðningsúrræða ótæka. Innviðaráðherra segir margar stórar ákvarðanir um áframhaldandi stuðning bíða nýrrar ríkisstjórnar.

Hætta á að Grindavík fari í greiðsluþrot
Grindavíkurnefnd segir hættu á að bærinn fari í greiðsluþrot á næsta ári verði ekki brugðist við. Bærinn geti verið rekinn í 1,5 til tveggja milljarða halla á næsta ári. Bæjarstjórn Grindavíkur skorar á þingmenn að samþykkja lagabreytingar sem varða afkomu og húsnæðismál Grindvíkinga sem allra fyrst og á yfirstandandi þingi.

Fækka áramótabrennum í Reykjavík um fjórar
Fækka á áramótabrennum í Reykjavík úr tíu í sex. Erindi þess efnis var samþykkt á fundi umhverfis- og skipulagsráðs í gær. Þær brennur sem lagt er til að verði lagðar af eru þær sem haldnar hafa verið við Rauðavatn, í Suðurfelli , Laugardal og Skerjafirði.

Sorp: Fólk að hoppa niður plastið í tunnunum til að þjappa því
„Við setjum plast í tunnuna sem nánast fyllist strax. Þannig að þegar tunnan er full fer fólk að stíga í tunnuna og hoppa á plastinu til að þjappa því niður. Ég þar á meðal,“ segir Börkur Smári Kristinsson, rekstrarstjóri Pure North Recycling.

Telja sig ekki brjóta neinar verkfallsreglur
Sveitarstjóri Skagafjarðar segir túlkun sveitarfélagsins og Sambands íslenskra sveitarfélaga (SÍS) þannig að heimilt sé að starfsmenn ekki í verkfalli haldi starfsemi leikskólans Ársala gangandi. Enginn gangi í störf þeirra sem eru í verkfalli.

„Algjörlega óforsvaranlegt að borgarstjóri skuli gera lítið úr okkur”
Íbúar í Grafarvogi segja ummæli borgarstjóri í Bítinu á Bylgjunni í morgun hvorki honum né meirihluta borgarstjórnar til sóma. Einar Þorsteinsson borgarstjóri ræddi í Bítinu áform um uppbyggingu í Grafarvogi en íbúar eru margir afar óánægðir.

Skeiða- og Gnúpverjahreppur valið sveitarfélag ársins
Skeiða- og Gnúpverjahreppur hreppti nafnbótina Sveitarfélag ársins 2024. Könnun var gerð meðal félagsfólks í tíu bæjarstarfsmannafélögum