
Sænski boltinn

Arnór Ingvi skoraði það sem reyndist sigurmarkið
Arnór Ingvi Traustason skoraði það sem reyndist sigurmark Norrköping í 2-1 útisigri liðsins á BK Häcken í sænsku úrvalsdeild karla.

Dúndurbyrjun hjá Gísla og félögum
Íslendingaliðið Halmstad komst upp í 2. sæti sænsku úrvalsdeildarinnar með sigri á Varnamo, 1-3, í dag. Góð byrjun lagði grunninn að sigri gestanna.

Guðrún skoraði og með fullt hús stiga á toppnum
Guðrún Arnardóttir skoraði fyrsta mark Rosengård í 3-0 sigri liðsins á AIK í sænsku úrvalsdeild kvenna í fótbolta. Þá lagði Þórdís Elva Ágústsdóttir upp sigurmark Växjö á Linköping.

Hamrén hafnaði 388 milljóna samningi
Fyrrum landsliðsþjálfari Íslands segist hafa fengið mörg tilboð um að þjálfa félagslið og landslið í Sádí Arabíu.

Skelfilegar fjórar mínútur hjá Kristianstad í Íslendingaslag
Ísland átti fjóra af 22 byrjunarliðsmönnum þegar Rosengård vann 3-1 útisigur á Kristianstad í sænsku kvennadeildinni í fótbolta.

Hjartnæm stund þegar Sven-Göran var heiðraður á Gamla Ullevi
Það var hjartnæm stund þegar Sven-Göran Eriksson var heiðraður og hylltur á leikvanginum Gamla Ullevi í Gautaborg í gær.

Sjáðu Arnór Ingva skora glæsimark
Arnór Ingvi Traustason skoraði sitt fyrsta mark á tímabilinu en Norrköping náði ekki að landa sigri þrátt fyrir að vera manni fleiri í hálftíma.

Góður laugardagur fyrir Ísak, Þóri og Stefán
Þrír íslenskir knattspyrnumenn fögnuðu allir sigri í leikjum liða þeirra í neðri deildunum í Þýskalandi og Svíþjóð í dag.

Hafi ekki séð styrkleika sína nægilega vel
Eftir löng samtöl er íslenski landsliðsmaðurinn í fótbolta, Andri Lucas Guðjohnsen loksins orðinn leikmaður Lyngby að fullu. Hann segir vangaveltur um framtíð sína ekki hafa truflað sig innan vallar og þá horfir hann björtum augum fram á komandi tíma hjá Lyngby sem stendur í ströngu um þessar mundir í efstu deild Danmerkur. Hann kveður því sænska félagið IFK Norrköping að fullu og finnst sínir styrkleikar ekki hafa fengið að skína í gegn þar.

Íslensku stelpurnar áttu besta fagnið
Íslensku knattspyrnukonurnar Katla Tryggvadóttir og Hlín Eiríksdóttir upplifðu frábæra fyrstu umferð með liði sínu Kristianstad þegar sænska deildin fór af stað um helgina.

Katla komst á blað í fyrsta deildarleik
Tveimur leikjum lauk rétt í þessu í fyrstu umferð sænsku úrvalsdeildarinnar. Katla Tryggvadóttir opnaði markareikning sinn fyrir Kristianstad þegar hún skoraði annað markið í 3-1 útisigri gegn AIK.

Dramatík á lokamínútunum í fyrstu umferð
Sænska úrvalsdeildin í knattspyrnu, Damallsvenskan, fór af stað með látum í dag.

Borga tugi milljóna til að eignast Andra Lucas
Forráðamenn danska knattspyrnufélagsins Lyngby eru staðráðnir í að eignast framherjann Andra Lucas Guðjohnsen, sem verið hefur að láni hjá félaginu í vetur.

Hörmuleg byrjun á tímabilinu hjá Íslendingaliði Norrköping
Íslendingalið Norrköping fer vægast sagt illa af stað í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Liðið mátti þola 3-0 tap gegn Mjällby í dag.

Andri Fannar byrjaði á að leggja upp
Andri Fannar Baldursson var aðeins tíu mínútur að leggja upp mark í fyrstu umferð sænsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í dag.

Kolbeinn sá strax rautt en Stefan og Túfa fögnuðu í fyrsta leik
Boltinn er byrjaður að rúlla í sænska fótboltanum og nokkrir Íslendingar voru á ferðinni í dag, í efstu og næstefstu deild karla.

Ísak skoraði en liðið fékk skell: Sjáðu markið
Ísak Andri Sigurgeirsson var á skotskónum með Norrköping í sænsku deildinni í dag en liðið fékk hins vegar stóran skell á heimavelli sínum.

Hlín tryggði Kristianstad sigur
Kristianstad vann 2-1 sigur á Linköping í æfingarleik í dag en það styttist óðum í það að sænska kvennadeildin fari af stað.

Túfa fær Ljubicic til Svíþjóðar
Framherjinn Stefan Alexander Ljubicic hefur samið við sænska B-deildarliðið Skövde. Þar hittir hann fyrir fyrrverandi þjálfara sinn, Srdjan Tufegdzic.

Guðný orðin leikmaður Kristianstad
Íslenska landsliðskonan í fótbolta, Guðný Árnadóttir hefur samið við sænska úrvalsdeildarfélagið Kristianstad og gengur hún til liðs við félagið frá ítalska liðinu AC Milan. Þetta staðfestir Kristianstad í fréttatilkynningu á miðlum sínum.

Hlín skoraði tvö í stórsigri
Íslendingalið Kristianstad byrjar gríðarlega vel í sænska bikarnum en liðið vann sjö marka sigur á Lidköping, lokatölur 8-1. Hlín Eiríksdóttir og Katla Tryggvadóttir voru í byrjunarliði Kristianstad. Sú fyrrnefnda skoraði tvívegis.

Alexandra fagnaði sigri á móti Söru Björk: Komin í bikarúrslit
Íslenska landsliðskonan Alexandra Jóhannsdóttir og félagar hennar í Fiorentina eru komnar í bikarúrslitaleikinn á Ítalíu eftir 3-1 sigur í dag í seinni undanúrslitaleiknum á móti Jventus.

Tók báða Íslendingana af velli á sama tíma
Íslendingaliðið Halmstad komst í dag í undanúrslit sænsku bikarkeppninnar í fótbolta eftir 1-0 sigur á Brommapojkarna í framlengdum leik.

Óli Valur líklega á heimleið
Stjörnunni gæti verið að berast enn frekari liðsstyrkur fyrir átökin í Bestu deild karla í sumar.

Guðmundur Baldvin aftur í Stjörnuna
Stjörnunni hefur borist mikill liðsstyrkur mánuði en keppni í Bestu deild karla hefst. Guðmundur Baldvin Nökkvason er kominn til liðsins á láni frá Mjällby í Svíþjóð.

Ísak kom inn af bekknum og skoraði mikilvægt mark
Ísak Andri Sigurgeirsson skoraði annað mark Norrköping er liðið heimsótti Sirius í sænsku bikarkeppninni í fótbolta í kvöld.

Spilaði 106 landsleiki en líður samt eins og útlendingi
Henrik Larsson er einn frægasti og farsælasti sænski knattspyrnumaður sögunnar. Larsson segist þó ekki líða eins og gegnheilum Svía í nýju viðtali.

Ríkjandi meistarar úr leik en Halmstad heldur áfram
BK Häcken mun ekki takast að verja bikarmeistaratitil sinn í Svíþjóð eftir að liðið féll úr leik í dag. Halmstad hélt hins vegar áfram í átta liða úrslit eftir 1-0 sigur gegn Värnamo.

Liðsfélagi Sverris Inga í öndunarvél
Sænski landsliðsmaðurinn Kristoffer Olsson hjá danska félaginu FC Midtjylland veiktist alvarlega á dögunum en félagið greinir frá þessu á vef sínum.

Fyrsti útlendingurinn sem þjálfar sænska landsliðið
Jon Dahl Tomasson hefur verið ráðinn þjálfari sænska karlalandsliðsins í fótbolta. Hann tekur við starfinu af Janne Andersson sem hætti fyrir tæpum hundrað dögum.