Reykjavík síðdegis „
6 7 8 9 10 11 12 13 14 … 15 ›
„Bagalegt að þurfa að reka embætti á loforðum“ Formaður Lögreglustjórafélags Íslands segir bagalegt að þurfa að reka embætti á loforðum. Hann segir styttingu vinnuvikunnar hjá lögreglumönnum þýða að ráða þurfi tugi nýrra lögreglumanna til starfa og enn fáist engin skýr svör um fjármagn frá fjármálaráðuneytinu. Innlent 2.6.2021 21:54
„Þessi déskotans veira hefur þessa eiginleika að breyta sér“ Björn Rúnar Lúðvíksson, prófessor í ónæmisfræði og yfirlæknir ónæmislækninga á Landspítalanum, segir rannsóknir hér á landi benda til þess að góð mótefnasvörun sé enn til staðar hjá 95 prósent þeirra sem smitast allt að fjórtán mánuðum eftir sýkingu. Þetta er í samræmi við rannsóknir vestanhafs á fólki sem smitaðist snemma í faraldrinum. Innlent 27.5.2021 22:41
Unga fólkið „efniviður í hópsýkingu“ Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn segir sjálfsagt mál að fólk geri sér glaðan dag um helgina en brýnir fyrir því að fara varlega. Þjóðin sé á lokasprettinum í kórónuveirufaraldrinum, en sá hópur sem væri líklegastur til að sækja mannfögnuði um helgina væri að stórum hluta til enn óbólusettur. Innlent 27.5.2021 19:20
Furðar sig á forgangi Eurovision-hópsins Gunnar Bragi Sveinsson þingmaður Miðflokksins birti í dag færslu á Facebook-síðu sinni þar sem hann furðaði sig á því að Eurovision-hópur Íslands hefði fengið bólusetningu fyrir brottför til Hollands þar sem keppnin fer fram. Hópurinn var bólusettur að beiðni Ríkisútvarpsins en smit hefur nú komið upp í hópnum. Innlent 17.5.2021 19:58
„Veirufrítt samfélag“ bratt, óraunhæft og kostnaðarsamt „Ég er bara eins og aðrir, að lesa um þetta í fréttum af þessum fundi í morgun, þar sem Þórólfur lýsir þessu sem sinni skoðun,“ segir Sigríður Á. Andersen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, um það markmið sóttvarnalæknis að stefna að veirufríu samfélagi. Innlent 8.4.2021 23:33
Liggur enn ekki fyrir hvernig konan smitaðist Enn er ekki ljóst hvernig konan sem greindist með breska afbrigði kórónuveirunnar utan sóttkvíar á miðvikudag smitaðist af veirunni. Yfir hundrað einstaklingar eru í sóttkví vegna smitsins en smitrakningarteymi almannavarna telur sig hafa náð í flestalla þá sem eru útsettir. Innlent 19.3.2021 21:02
Ingó veðurguð í sóttkví eftir að hafa skemmt í starfsmannagleði Tónlistarmaðurinn Ingólfur Þórarinsson, betur þekktur sem Ingó veðurguð, er á leið í sóttkví. Hann skemmti á starfsmannagleði ION hótela á sunnudag en einn starfsmaður sem sótti samkvæmið greindist með veiruna í gær. Lífið 18.3.2021 18:12
„Miðað við hvernig staðan er í Evrópu held ég að Íslendingar geti verið sáttir“ Emil Hallfreðsson, landsliðsmaður í knattspyrnu og leikmaður Padova í C-deildinni á Ítalíu, ræddi við Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í gær um stöðuna á Ítalíu vegna kórónuveirunnar. Emil býr í Verona með fjölskyldu sinni og eðlilega hefur þetta mikil áhrif á líf þeirra allra. Fótbolti 17.3.2021 07:01
Kallar eftir aðgerðum vegna aukinnar offitu barna: „Hægt að snúa þróuninni við“ Barnalæknir, sem hefur sérhæft sig í offitu barna, segir nauðsynlegt að við förum að setjast niður og skoða það hvernig hægt sé að breyta lífsvenjum og lífsstíl til þess að snúa þeirri þróun við að sífellt fleiri börn séu með ofþyngd. Hann segir að málið sé flókið og tengist aukin ofþyngd barna ekki aðeins mataræði og hreyfingu. Innlent 15.3.2021 17:51
„Ég er verndari réttarríkisins,“ segir Jón Steinar: Spyr hvort ráðherra sé að „beygja sig“ undir gagnrýni „Þetta er allt saman bull og vitleysa og byggt á einhverjum misskilningi,“ sagði Jón Steinar Gunnlaugsson, lögmaður og fyrrverandi hæstaréttardómari, í samtali við Reykjavík síðdegis í dag. Innlent 10.3.2021 17:49
Hlutfallslega margir sem fari á hjúkrunarheimili Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður Landssambands eldri borgara, segir Norðurlöndin standa Íslandi mun framar í þjónustu við eldri borgara. Þar bjóðist eldri borgurum heimahjúkrun í meira mæli og fólk fari seinna á hjúkrunarheimili en þekkist hér á landi. Innlent 8.3.2021 19:00
Hefur áhyggjur af Bitcoin-kaupum Íslendinga og líkir rafmyntinni við píramídasvindl Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri varar við kaupum á rafmyntum á borð við Bitcoin og líkir kapphlaupinu við þátttöku í píramídasvindli. Íslendingar versluðu með Bitcoin fyrir um 600 milljónir króna í janúar samkvæmt úttekt Rafmyntaráðs. Virði Bitcoin fór yfir 50 þúsund Bandaríkjadali um miðjan febrúar og kostar nú hver mynt rúmlega 6,2 milljónir króna. Viðskipti innlent 1.3.2021 17:21
Flestar skammbyssurnar íþrótta- eða atvinnutæki Lögregla verður ekki mikið vör við að skotvopnum sé smyglað til landsins. Þetta sagði Jónas Hafsteinsson, lögreglufulltrúi í leyfadeild hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við Reykjavík síðdegis í dag. Innlent 23.2.2021 20:24
Velti fyrir sér hvernig höfuðpaurarnir gátu leikið lausum hala Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi lögreglumaður, útilokar ekki að það vanti frumkvæði eða vilja hjá lögreglu til þess að hefja rannsókn þegar vísbendingar eru um ólöglega háttsemi. Löggjafinn þurfi þó að tryggja að lögregla hafi þær heimildir sem til þurfa. Innlent 22.2.2021 19:48
„Í rauninni er hægt að finna myglu í hverju einasta húsi“ Líffræðingur og lýðheilsufræðingur hjá Eflu verkfræðistofu segir að finna megi myglu í einhverjum mæli í öllum húsum. Það sé upp að vissu marki eðlilegt að mygla myndist en mikilvægt sé að vera vel vakandi og fjarlægja alla myglu sem upp kemur. Góð loftskipti gegni lykilhlutverki í baráttunni gegn myglu í húsum. Innlent 22.2.2021 18:16
„Ómögulegt fyrir okkur sem þjóð að sitja uppi með óupplýst morðmál af þessu tagi“ Helgi Gunnlaugsson, prófessor í félags- og afbrotafræði við Háskóla Íslands, segir morðið í Rauðagerði óhugnanlegt mál sem veki skiljanlega upp margar spurningar. Það að maður sé myrtur fyrir utan heimili sitt sé eitthvað sem þekkist ekki hér á landi. Innlent 19.2.2021 23:28
Sektirnar verði alltaf hærri en kostnaður við að útvega sér vottorð Frá og með deginum í dag þurfa farþegar sem koma hingað til lands að framvísa neikvæðri niðurstöðu úr PCR-prófi við komuna ásamt því að fara í tvöfalda skimun. Sigurgeir Sigmundsson, yfirlögregluþjónn á Keflavíkurflugvelli, segir vinnuna tímafreka en dagurinn í dag hafi gengið vel. Innlent 19.2.2021 19:23
Atvinnuleysi „eitur í beinum Íslendinga“ Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir hlutfallslegt vægi ferðaþjónustu hér á landi skýra að vissu marki hvers vegna atvinnuleysi er hærra hér á landi en á Norðurlöndunum. Allar spár geri þó ráð fyrir því að greinin nái vopnum sínum fljótt aftur þegar kórónuveirufaraldrinum lýkur, sem komi til með að hafa jákvæð áhrif á atvinnustig í landinu. Viðskipti innlent 18.2.2021 23:04
Telur að þjálfa þurfi almenna lögreglumenn til að vopnast Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi lögregluþjónn, telur að þjálfa þurfi almenna lögreglumenn til að vopnbúast ef þörf er á. Þessa skoðun sína setur hann í samhengi við manndráp við Rauðagerði í Reykjavík um helgina. Innlent 15.2.2021 18:40
Færu beint í hörðustu aðgerðir ef til fjórðu bylgju kæmi Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn segir að gripið yrði strax til harðra aðgerða ef vísbendingar kæmu upp um að fjórða bylgja kórónuveirufaraldursins væri að hefjast hér á landi. Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra ákvað í dag að færa almannavarnastig úr neyðarstigi niður á hættustig, í fyrsta skipti síðan 4. október síðastliðinn. Innlent 12.2.2021 18:45
Fyrirspurnum um rasslyftingu hefur fjölgað Rúmmálsaukandi aðgerðum á rasskinnum hefur fjölgað um 77,6 prósent á heimsvísu frá árinu 2015 og segir íslenskur lýtalæknir aðgerðunum einnig hafa fjölgað hér á landi. Margir vilja rekja vinsældir þessara aðgerða til raunveruleikastjörnunnar Kim Kardashian, sem hefur verið ófeimin við að sýna stóran og myndarlegan rassinn. Innlent 11.2.2021 18:13
Áhyggjuefni að færri fari í sýnatöku Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn segir fulla ástæðu til að gleðjast yfir þeim árangri sem hefur náðst í baráttunni við kórónuveiruna í þessari þriðju bylgju faraldursins. Enginn smit greindust innanlands í gær, en hátt í sjö hundruð fóru í sýnatöku. Innlent 22.1.2021 21:35
Dæmi um aldursfordóma og menntahroka á íslenskum vinnumarkaði Varaformaður ASÍ-UNG, ungliðahreyfingar Alþýðusambands Íslands, segir aldursfordóma og menntahroka ríkja víða á íslenskum vinnumarkaði. Hann kallar eftir því að atvinnurekendur horfi í auknum mæli til reynslu fólks við ráðningar og síður á prófskírteinið. Að öðrum kosti verði fyrirtæki og stofnanir af gríðarlegum mannauði. Viðskipti innlent 21.1.2021 22:41
„Hin miklu tíðindi“ eru þau að nú er kona varaforseti Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, óskar nýjum forseta Bandaríkjanna velfarnaðar nú þegar hann hefur tekið við embætti. Guðni hyggur að meiri áhersla verði lögð meðal annars á loftslagsmál og jafnréttismál í tíð nýrrar ríkisstjórnar í Bandaríkjunum frá því sem var í stjórnartíð Trump. Guðni segir ein stærstu tíðindin vera þau að í fyrsta sinn sé það nú kona sem gegni embætti varaforseta. Innlent 20.1.2021 20:05
Um tíu einstaklingar undir fertugu bráðkvaddir á ári hverju Í kringum tíu einstaklingar undir fertugu deyja svokölluðum skyndidauða hérlendis á hverju ári. Davíð O. Arnar, yfirlæknir hjartalækninga á Landspítala, segir að yfirleitt sé það breytilegt eftir aldri hvað veldur því að einstaklingar verða bráðkvaddir. Innlent 19.1.2021 20:37
Ótækt að bera saman tilkynningar um aukaverkanir Moderna og Pfizer Alls hafa sextán aukaverkanir verið tilkynntar eftir bólusetningar með bóluefni Moderna en aðeins ein er talin alvarleg. Í því tilfelli fékk einstaklingur ofnæmisviðbrögð eftir bólusetninguna. Innlent 18.1.2021 18:34
Leggur til að fólk þurfi að framvísa vottorði til að komast til landsins Sóttvarnalæknir hefur sent heilbrigðisráðherra nýja tillögu um fyrirkomulag við landamærin í ljósi þess að ráðuneytið hefur tjáð honum að ekki sé lagastoð fyrir tillögum hans, hvorki tillöguna um að öllum verði gert skylt að fara í tvöfalda skimun með sóttkví á milli né tillögu hans um tveggja vikna dvöl í farsóttarhúsi. Þórólfur greindi frá þessu í Reykjavík síðdegis. Innlent 13.1.2021 17:20
Tvöföld skimun „alveg þess virði“ Lögreglan á Suðurnesjum hefur fylgst vel með komufarþegum á Keflavíkurflugvelli til þess að tryggja að allir þekki þær reglur sem eru í gildi. Heilbrigðisráðherra greindi frá því í gær að ákveðið hefði verið að fólk sem kemur hingað til landsins og kýs ekki að fara í skimun þurfi að fara í tveggja vikna sóttkví í farsóttahúsi. Innlent 11.1.2021 20:56
Laugavegshlaupið seldist upp á tuttugu mínútum: „Ómögulegt að fjölga þátttakendum“ Laugavegshlaupið seldist upp á tuttugu mínútum í dag. Upplýsingafulltrúi ÍBR segir leitt að færri komust að en vildu. Innlent 8.1.2021 20:58
Vongóður að líkamsræktarstöðvar fái bráðlega að opna: „Þetta er bara tóm helvítis þvæla“ „Við erum að heyra nákvæmlega sama ruglið, aftur og aftur. Það eigi að fara varlega í tilslakanir og annað slíkt. Það er eins og stjórnvöld og sóttvarnayfirvöld beri enga virðingu fyrir fyrirtækjum eða fólkinu í landinu. Við erum algjörlega í þoku með það hvort við megum starfa eða ekki,“ segir Björn Leifsson, eigandi World Class. Viðskipti innlent 7.1.2021 18:01
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu:„Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent