Samgönguslys

Önnur þyrlan í skoðun og hin ekki útkallshæf
Framkvæmdastjóri aðgerðasviðs hjá Landhelgisgæslunni segir útreikninga sýna að nóg sé að Gæslan hafi hjá sér þrjár þyrlur.

Fékk flogakast undir stýri og vagninn hafnaði utan vegar
Strætisvagn hafnaði utan vegar við Álafosskvosina í Mosfellsbæ nú á öðrum tímanum.

Þrír enn á gjörgæslu eftir slysið við Hof
Fjórði einstaklingurinn hefur verið fluttur á bráðalegudeild spítalans.

Vegurinn þröngur á umræddum vegakafla
Yfirlögregluþjónn á Suðurlandi segir að skýrsla verði tekin af farþegum rútunnar í dag.

Varðstjóri sjúkraflutninga: „Ein þyrla ekki nóg“
Rafal Figlarski segir að mun betur hafi farið en á horfðist þegar rúta með 33 um borð fór út af veginum og valt í Öræfum í dag.

Læknir á vettvangi rútuslyssins: „Þetta var ekki fögur sýn“
Fólk sem var um borð í rútunni hlaut skurði og svöðusár þegar það dróst eftir malbikinu og jarðveginum, að sögn læknis sem fór á vettvang.

Lögreglan á Akureyri auglýsir eftir kínverskumælandi fólki
Nokkrir þeirra kínversku ferðamanna sem slösuðust í rútuslysinu í Öræfum voru fluttir á Sjúkrahúsið á Akureyri.

Árekstur bíls og bifhjóls við Sólfarið
Ökumaður bifhjólsins var fluttur á slysadeild en er talinn hafa sloppið nokkuð vel.

Heimamenn á dráttarvél komu til bjargar
Tveir þeirra sem voru um borð í rútunni sem valt á Suðurlandsvegi lentu undir henni. Dráttarvél af nærliggjandi bæ var notuð til að losa þá.

Þeir alvarlega slösuðu sagðir með meðvitund
Tveir farþegar rútunnar sem valt í Öræfum eru sagðir hafa lent undir henni.

Kínverskir ferðamenn í rútunni sem valt í Öræfum
Lögreglan á Suðurlandi segir nú að fjórir séu alvarlega slasaðir. Kínverska sendiráðið segir að fólkið sé ekki lífshættulega slasað.

Fimm alvarlega slasaðir eftir rútuslys í Öræfum
Fimm eru alvarlega slasaðir eftir alvarlegt umferðarslys við Hof í Öræfum klukkan 15:05 í dag. Hópbifreið með 32 farþega auk ökumanns fór á hliðina en viðbragðsaðilar eru komnir á vettvang og er aðhlynning slasaðra hafin.

Fleiri slasast vegna fíkniefna- en ölvunaraksturs
Ýmislegt forvitnilegt má finna í nýrri skýrslu um umferðarslys.

Segist ekki hafa orðið var við að farangur farþega hafi tafið rýmingu
Maðurinn sem segist hafa komist síðastur út af þeim sem sluppu lifandi frá flugslysinu á Sheremetyevo-flugvellinum í Moskvu er flugvél Aeroflot brann eftir harkalega lendingu segist ekki hafa orðið var við það að farþegar hafi tafið rýmingu flugvélarinnar með því að grípa farangur sinn með sér á útleið.

Miklar umferðartafir í Hafnarfirði eftir umferðarslys
Bíll og bifhjól rákust saman nærri hringtorginu á mótum Reykjanesbrautar og Lækjargötu.

Skemmtibátur dreginn í höfn í Kópavogi
Tveir voru um borð í skemmtibát þegar mótorinn hætti að virka á siglingu í Kópavogi um þrjúleytið.

Sökk á nokkrum mínútum úti fyrir Hvammstanga
Mannbjörg varð þegar bátur sökk úti fyrir Hvammstanga í nótt . Varaformaður björgunarsveitarinnar Húna segir að ekki hefði mátt tæpara standa en báturinn sökk skömmu eftir að sveitin kom að. Þrír bátsverjar voru komnir í flotgalla og var bjargað úr sjónum

Björguðu þremur mönnum þegar bátur sökk við Hvammstanga
Björgunarsveitin á Hvammstanga var boðuð út um klukkan fjögur í nótt vegna báts sem var þá að sökkva úti fyrir bænum.

Banaslysið við Álfhellu: Sviptur ökuréttindum ævilangt en fékk mótorhjólið skráð á sig
Karlmaður sem lést í umferðarslysi sem varð við Álfhellu í Hafnarfirði 24. maí 2017 hafði tveimur árum áður verið sviptur ökuréttindum ævilangt. Fimmtán dögum áður en slysið varð hafði hann fengið mótorhjólið sem hann var á skráð á sig.

Ökumaður á rauðu ljósi ók á barn rétt hjá hinum slysstaðnum á Hringbraut
Lækkun hámarkshraða hefur þegar tekið gildi á Hringbraut en ekki verður hægt að framfylgja lækkuninni fyrr en merkingar verða settar upp í maí.

Kyndill nýtur góðs af minningarsjóði Jennýjar Lilju
Minningarsjóður Jennýjar Lilju Gunnarsdóttur afhendir í dag Björgunarsveitinni Kyndli þrjú loftdýnusett til að auðvelda sveitinni störf á vettvangi slysa.

Banaslys nærri Húnaveri
Karlmaður lést í umferðarslysi sem varð á þjóðveginum í botni Langadals, austan Blönduóss, skammt vestan við Húnaver. Bifreið mannsins, sem var á suðurleið, lenti utan vegar og olti margar veltur neðst í Bólstaðarhlíðarbrekku í gærkvöldi.

Einn alvarlega slasaður eftir umferðarslys nærri Húnaveri
Slökkviliðsmenn frá Brunavörnum Austur-Húnavatnssýslu auk sjúkraflutningamanna á Blönduósi og lögreglu á Norðurlandi vestra fengu tilkynningu um klukkan hálf tíu í kvöld um alvarlegt umferðarslys á þjóðveginum í botni Langadals, austan Blönduós.

Húsbíll fauk út af á Reykjanesbraut
Húsbíll hafnaði utan vegar í miklu hvassviðri á Reykjanesbraut við Keilisvöllinn í Hafnarfirði skömmu eftir hádegi í dag.

Ekkert banaslys orðið í umferðinni á árinu það sem af er
Ekkert banaslys hefur orðið í umferðinni það sem af er ári og fara þarf tæplega áttatíu ár aftur í tímann til þess að finna tímabil þar sem ekkert banaslys hafði orðið þegar svo langt er liðið inn á árið eins og nú.

Banaslysið í Eldhrauni: Rútunni ekið of hratt með lélegt hemlakerfi
Rannsóknarnefnd samgönguslysa telur að rútunni sem valt þann 27. desember 2017 með þeim afleiðingum að tveir létust og fjölmargir slösuðust hafi verið ekið of hratt. Hemlageta rútunnar var lítil og líklegt er að afstýra hefði mátt slysinu hefði hemlakerfið verið í lagi.

Dómur staðfestur fyrir manndráp af gáleysi við Jökulsárlón
Landsréttur hefur staðfest tvegja mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm yfir karlmanni á þrítugsaldri fyrir manndráp af gáleysi í Jökulsárlóni sumarið 2015.

Íslenskur vert stórslasaður eftir mótorhjólaslys í Taílandi
Frí á Hua Hin-eyju tók hörmulega stefnu eftir slys.

Skert útsýni og of mikill hraði sennileg orsök banaslyss
Þetta kemur fram í skýrslu um banaslys á Eyjafjarðarbraut

Allt stopp á Suðurlandsvegi vegna bíls sem þveraði veginn
Löng bílaröð myndaðist á Suðurlandsvegi í austur í grennd við Litlu kaffistofuna nú á sjönda tímanum.