Kynferðisofbeldi

Fréttamynd

Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti var­lega í að draga á­lyktanir út frá fram­burði drengsins

Fjölskipaður dómur Héraðsdóms Reykjaness taldi ekki unnt að slá því föstu að Helgi Bjartur Þorvarðarson hefði gerst sekur um háttsemi sem flokka megi sem önnur kynferðismök en samræði, þegar hann braust inn til tíu ára drengs í Hafnarfirði og lagðist upp í rúm til hans. Hann var sakfelldur fyrir kynferðislega áreitni í stað nauðgunar og var dæmdur til 12 mánaða fangelsisvistar, þar af eru níu mánuðir skilorðsbundnir.

Innlent
Fréttamynd

Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi

Helgi Bjartur Þorvarðarson hefur verið dæmdur í 12 mánaða fangelsi fyrir að brot gegn tíu ára dreng í Hafnarfirði. Níu mánuðir dómsins eru bundnir skilorði. Hann var ekki sakfelldur fyrir að nauðga drengnum heldur fyrir kynferðislega áreitni í hans garð.

Innlent
Fréttamynd

Hæsti­réttur hlýðir ekki á Jón Þór

Hæstiréttur hefur hafnað áfrýjunarleyfisbeiðni Jóns Þórs Dagbjartssonar, sem var dæmdur í sjö ára fangelsi fyrir grófa líkamsárás og tilraun til manndráps gagnvart fyrrverandi sambýliskonu sinni á Vopnafirði árið 2024.

Innlent
Fréttamynd

Þver­tekur fyrir nokkur tengsl

Líkt og fjölmargir aðrir hefur Melania Trump, forsetafrú Bandaríkjanna, verið bendluð við hin svokölluðu Epstein-skjöl. Hún tók sig til í dag og boðaði alla fréttamenn Hvíta hússins á fund en þar tilkynnti forsetafrúin að hvers kyns lygum sem tengdu hana við kynferðisafbrotamanninn Jeffrey Epstein „yrði að linna í dag“.

Erlent
Fréttamynd

Meint kyn­ferðis­brotamál rann­sakað í tví­gang en fellt niður

Meint kynferðisofbeldi gegn barni á leikskólanum Tröllaborgum á Akureyri var rannsakað í tvígang en fellt niður í bæði skiptin. Lögreglan á Norðurlandi eystra segir að enginn rökstuddur grunur sé um brot gegn barninu. Hann á að hafa starfað í sex vikur á leikskólanum eftir að málið kom upp.

Innlent
Fréttamynd

Aðal­með­ferð hafin í máli Helga Bjarts

Aðalmeðferð í máli Helga Bjarts Þorvarðarsonar, sem sætir ákæru fyrir að nauðga tíu ára dreng í Hafnarfirði og vændiskaup, hófst í morgun. Hún mun standa yfir í allan dag og ef allt fer samkvæmt áætlun má reikna með að dómur falli innan fjögurra vikna. Allt þinghald í málinu fer fram fyrir luktum dyrum.

Innlent
Fréttamynd

Rann­sökuðu ekki nauðgun og báðu sak­borning af­sökunar

Starfshættir lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu voru ámælisverðir þegar hún vanrækti að rannsaka nauðgun að mati eftirlitsnefndar. Einstaklingur sakaði lögreglumenn um að hafa vísvitandi spillt fyrir rannsókninni. Lögreglumaður bað sakborning afsökunar þegar hann var loks kallaður til skýrslutöku.

Innlent
Fréttamynd

Gert að rann­saka tvö mál betur en gefa ekkert upp

Embætti Héraðssaksóknara gefur ekkert upp um stöðuna á rannsókn mála tveggja barna á leikskólanum Múlaborg, sem Ríkissaksóknari gerði embættinu að taka til meðferðar á ný. Starfsmaður á leikskólanum hefur verið ákærður fyrir að nauðga einu barni tvívegis.

Innlent
Fréttamynd

Mannréttindadómstóllinn vísar máli Nöru frá

Mannréttindadómstóll Evrópu hefur vísað máli hinnar áströlsku Nöru Walker á hendur íslenska ríkinu frá dómi. Nara kærði ríkið í kjölfar þess að hún var sakfelld og dæmd í átján mánaða fangelsi fyrir að bíta hluta úr tungu fyrrverandi eiginmanns síns. Dómstóllinn taldi kæru hennar ekki byggða á nægilega sterkum grunni og því þyrfti að vísa henni frá dóminum.

Innlent
Fréttamynd

Spacey sleppur við dóm­salinn með sátt við þrjá menn

Leikarinn Kevin Spacey hefur gert sátt við þrjá menn sem sökuðu hann um kynferðisofbeldi yfir margra ára tímabil. Málið átti að fara fyrir dómara í Lundúnum síðar á þessu ári en ekki verður af því. Fjöldi karlmanna steig fram í MeToo-bylgjunni og sakaði Spacey um kynferðisbrot en málin hafa ýmist verið felld niður eða hann sýknaður.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Áttu að meta hvort þrettán ára væri nógu þroskuð til að veita sam­þykki

Hæstiréttur hefur ómerkt dóms Landsréttar yfir manni á þrítugsaldri, sem var dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir að nauðga þrettán ára stúlku og áreita aðra stúlku kynferðislega. Hæstiréttur vísaði til þess að óhjákvæmilegt væri að Landsréttur mæti sjálfstætt hvort það leiddi af þroska brotaþola sem og atvikum öðrum hvort hún hafi verið bær til þess að veita gilt samþykki fyrir samræði við manninn. Landsréttur þarf því að taka málið fyrir á ný.

Innlent
Fréttamynd

Pósturinn sendir starfs­manninn í leyfi

Pósturinn hefur sent Andrés Pál Ragnarsson í leyfi en hann var í desember dæmdur fyrir nauðgun og kynferðislega áreitni gagnvart fjórtán ára barni. Pósturinn segist taka málið alvarlega og að þau ætli að endurskoða verklag og ferla í kjölfar þessa máls. 

Innlent
Fréttamynd

Keyrir út póst með nauðgunardóm á bakinu

Karlmaður sem dæmdur var fyrir að nauðga fjórtán ára barni starfar við akstur og dreifingu pósts í litlu samfélagi á Norðurlandi vestra. Gerandi og þolandi eru bæði búsett í sveitarfélaginu. Aðstandendur brotaþola telja brýnt að verklag fyrirtækja og öryggismat sé endurskoðað þegar starfsmenn eru sakfelldir fyrir svo alvarleg brot. Hinn dæmdi segist vera fjölskyldumaður og ekki hættulegur.

Innlent
Fréttamynd

John Alford fannst látinn í fangelsinu

Leikarinn John Alford er látinn. Hann lést föstudaginn 13. mars í HMP Bure fangelsinu í Norfolkfangelsi, tveimur mánuðum eftir að hann var dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn tveimur unglingsstúlkum. 

Erlent
Fréttamynd

Átta ár fyrir gróf brot gegn gest­komandi barni og eigin­konu

Karlmaður hefur verið dæmdur í átta ára fangelsi fyrir að nauðga sex ára stúlku tvívegis og eiginkonu sinni ítrekað. Hann var einnig dæmdur fyrir að hafa ljósmyndað athæfi sitt og birt ljósmyndir af því á netinu og að hafa í fórum sínum barnaníðsefni, sem sýnir meðal annars kornabörn.

Innlent
Fréttamynd

Lentu í harka­legum á­rekstri augna­blikum eftir nauðgun

Karlmaður hefur verið dæmdur til tæplega þriggja ára fangelsisvistar fyrir nauðgun sem hann tók upp myndskeið af og braut þannig gegn kynferðislegri friðhelgi. Brotaþoli var kærasta mannsins þegar brotin áttu sér stað. Meðal lykilsönnunargagna var mæling á ástandi fólksins sem lenti í harkalegum árekstri skömmu eftir að nauðgunin átti sér stað.

Innlent
Fréttamynd

Lygin um að á Ís­landi sé nauðgunarmenning

Hluti af áróðri ýmissa kvennahreyfinga, og í sumum tilfellum stjórnvalda, er að draga upp ranga mynd af ofbeldi. Karlar eru málaðir upp sem gerendur og konur sem þolendur – þó rannsóknir staðfesti að konur og karlar séu álíka oft þolendur heimilisofbeldis.

Skoðun
Fréttamynd

Segist sak­laus

Kristján Einar Sigurbjörnsson, betur þekktur sem Kleini, segist saklaus af öllum ásökunum sem hafa komið fram varðandi kynferðisbrot sem lögreglan a Akureyri rannsakar. Samkvæmt heimildum fréttastofu er Kristján grunaður í málinu.

Innlent