Kynferðisofbeldi

Fréttamynd

Gera ó­háða rann­sókn á hóp­nauðgun við há­skólann

Cornell-háskóli hefur samþykkt að gera óháða rannsókn á hópnauðgun sem á að hafa átt sér stað í húsnæði bræðralags við skólann fyrir um tveimur árum. Háskólinn hefur samþykkt að ráða utanaðkomandi lögfræðinga. Kathy Hochul, ríkisstjóri New York-ríkis, sagði í gær að hún hefði kallað eftir því og að forseti skólans hefði samþykkt það.

Erlent
Fréttamynd

Cornell og klefamenning

Fyrir skömmu skrifaði ég greinina Hvar eru góðu mennirnir? Ég var ekki að spyrja hvar þeir væru af því að ég teldi þá ekki til. Ég var að spyrja hvar þeir væru þegar á reynir. Hvar eru karlarnir, sem myndu sjálfir aldrei beita konu ofbeldi, þegar vinur þeirra gerir það? Þegar þeir heyra eitthvað?

Skoðun
Fréttamynd

Kynheilbrigði ung­menna með öðru­vísi taugaþroska

Kynheilbrigði er mikilvægur þáttur í lífi hvers og eins og hluti af almennu heilbrigði. Rannsóknir sýna að börn og ungmenni með öðruvísi taugaþroska eru allt að fjórum sinnum líklegri til að verða fyrir kynferðislegu ofbeldi heldur en jafnaldrar þeirra sem fylgja dæmigerðu þroskaferli.

Skoðun
Fréttamynd

Sjö sakaðir um að nauðga sam­nemanda klukku­stundum saman

Saksóknarar í New York-ríki hafa ákveðið að taka aftur upp rannsókn á hópnauðgun sem á að hafa átt sér stað við Cornell-háskóla í Bandaríkjunum árið 2024. Þolandi höfðaði fyrr í þessum mánuði einkamál. Málið hefur vakið mikla athygli og reiði en sjö ungir menn eru sakaðir um að hafa nauðgað konunni í sameiningu klukkustundum saman og að hafa deilt upplýsingum um það á samfélagsmiðlum í þeim tilgangi að hvetja aðra til að taka þátt. 

Erlent
Fréttamynd

Á­kærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri

Fimm karlmenn hafa verið ákærðir fyrir nauðgun, sérstaklega hættulega líkamsárás, frelsissviptingu og hótanir í garð manns í ágúst árið 2023. Þeim er meðal annars gefið að sök að hafa troðið járnröri inn í endaþarm mannsins og svo stungið því í munn hans. Einn þeirra er ákærður fyrir að hafa tekið athæfið upp á myndskeið og deilt því í spjallhópinn „Fótbolti á Boys“ á samfélagsmiðlinum Snapchat.

Innlent
Fréttamynd

Gómaður með gríðar­legt magn af barna­klámi

Tuttugu og fimm ára karlmaður hefur verið dæmdur í sextíu daga skilorðsbundið fangelsi eftir að hafa verið gómaður með um hundrað ljósmyndir og myndbönd af barnaníðsefni í síma sínum. Maðurinn játaði sök en ekki náðist að birta honum dóminn. Hann býr í dag í Danmörku.

Innlent
Fréttamynd

Nauðgaði sofandi sam­býlis­konu sinni og tók myndir

Karlmaður hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 9. október vegna gruns um áralangt gróft ofbeldi í garð sambýliskonu sinnar. Hann er meðal annars grunaður um að hafa nauðgað konunni ítrekað á meðan hún svaf en myndir af slíku athæfi fundust í síma hans við rannsókn málsins.

Innlent
Fréttamynd

Barnaníðingur fékk ekki annað leyfi hjá Hæsta­rétti

Hæstiréttur hefur hafnað áfrýjunarbeiðni manns á þrítugsaldri, sem var dæmdur í 3,5 ára fangelsi í Landsrétti fyrir að nauðga þrettán ára stúlku. Hann var sýknaður af ákæru fyrir nauðgun í héraði, þar sem ekki var talið að hann hefði beitt stúlkuna nauðung. Alla jafna fá þeir sem sýknaðir eru í héraði en sakfelldir í Landsrétti áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar en rétturinn taldi ljóst að hann myndi ekki snúa dómi Landsréttar í tilfelli mannsins og hafnaði því beiðni hans.

Innlent
Fréttamynd

Vill þyngja hámarksrefsingu fyrir að kaupa vændi af barni

Dómsmálaráðuneytið leggur til í nýju frumvarpi að ekki verði lengur hægt að ljúka vændiskaupabrotum með lögreglustjórasekt heldur leiði þau til útgáfu ákæru og dómsmáls. Einnig er lagt til að hámarksrefsing fyrir að kaupa vændi af barni verði hækkuð úr tveggja ára fangelsi í fjögur ár. 

Innlent
Fréttamynd

Glæpahópurinn 764: Á­tján ára í tíu ára fangelsi fyrir til­raunir til manndráps og nauðgun á netinu

Átján ára piltur hefur verið dæmdur til tíu ára fangelsis í dómstóli í Umeå í Svíþjóð fyrir tvær tilraunir til manndráps gegn ungmenni í Þýskalandi og fjölmörg kynferðis- og ofbeldisbrot gegn ástralskri stúlku. Brotin áttu sér stað á netinu og pilturinn hefur verið kallaður „Chai“ í sænskum miðlum og var hluti af glæpahópnum 764.

Erlent
Fréttamynd

Fangar þurfi að fylgja sam­þykktri dag­skrá í dagsleyfum

Fangar þurfa að skila ítarlegri dagskrá áður en þeir fá dagsleyfi og fallast á þau skilyrði sem leyfinu fylgja. Að sögn Fangelsismálastofnunar liggur áhættumat fyrir þegar um alvarleg brot er að ræða og hægt er að takmarka ferðir fanga og samskipti þeirra við aðra.

Innlent
Fréttamynd

Greip um eistu lög­reglu­manns

Kona á sextugsaldri hefur verið dæmd til tveggja mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir brot gegn valdstjórninni og kynferðislega áreitni. Konan greip um kynfæri lögreglumanns þegar hann var að færa hana í fangaklefa.

Innlent
Fréttamynd

„Ég mun stúta þér og ein­hver skilar sér ekki í skólann“

Karlmaður var dæmdur í skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa ráðist á fyrrverandi sambýliskonu sína, síðan hótað henni ítrekað og nálgast hana og börn hennar þrátt fyrir nálgunarbann. Hann bar á hana ásakanir um fósturmissi sem hann sagði hafa verið viljandi af hennar hálfu og hótaði að „taka tvö“ börn frá henni líkt og hann taldi konuna hafa tekið frá sér eigin börn. Einnig birti hann myndband á TikTok undir reikningi í hennar nafni þar sem hann hafði látið sviðsetja „bölvunarathöfn“ og óskað henni þar dauða og þjáningar.

Innlent
Fréttamynd

Bein út­sending: Mál­þing um Biskups­málið

Kvenréttindafélag Íslands, Bjarkarhlíð, Kvennaathvarfið, Líf án ofbeldis, Stígamót og Vitund standa fyrir málþingi í kjölfar þáttaraðarinnar Biskupsmálið eftir Gabríelu Bryndísi Ernudóttur sálfræðing klukkan 17. Málþingið má sjá í beinni útsendingu á Vísi.

Innlent
Fréttamynd

Hvar liggur á­byrgðin?

Í vetur vakti hlaðvarpsserían Biskupsmálið eftir Gabríelu Bryndísi Ernudóttur mikla athygli. Um leið eru liðin fimmtán ár frá útkomu bókarinnar Ekki líta undan, þar sem ég sagði frá kynferðisofbeldi sem Ólafur Skúlason biskup, faðir minn, beitti mig.

Skoðun