

Enn á eftir að koma upp fullnægjandi snjóflóðavörnum sem verja myndu um 130 íbúðir á Austurlandi og 80 íbúðir á Vestfjörðum þar sem mesta hættan stafar af ofanflóðum, á hættusvæði C.
28 nemendur útskrifaðir reynslunni ríkari.
Þrátt fyrir að áætlað hafi verið að ljúka uppbyggingu snjóflóðavarna fyrir árið 2010 á enn eftir að reisa tæplega helming varnarvirkjanna. Ofanflóðasérfræðingar og forsvarsmenn bæjarfélaga á áhættusvæðum hafa sent áskorun til ríkisstjórnarinnar að ljúka verkinu á næstu tíu árum enda sé enn hundraðsjötíuogeitt hýbýli á hættusvæði víðs vegar um landið.
Ísafjarðarbær og Bolungarvík eru ekki lengur kafin snjó á kortavef tæknirisans Google.
Hátíðahöld í tilefni 1. maí verða í meira en 30 sveitarfélögum samkvæmt tilkynningu frá ASÍ. Í Reykjavík verður gengið frá Hlemmi niður á Ingólfstorg þar sem útifundur verður. Fer gangan af stað klukkan 13.30.
Særði blygðunarsemi konunnar með háttsemi sinni.
Veðrið leikur við tónleikagesti á Aldrei fór ég suður og segir Rokkstjóri hátíðarinnar að annar eins fjöldi gesta hafi aldrei sést á svæðinu. Hátt í fjögur þúsunda manns lögðu leið sína vestur samkvæmt Vegagerðinni.
Páskahelgin er yfirleitt mikil ferðahelgi og er sú í ár engin undantekning. Mikill fjöldi fólks hefur ferðast til annarra landshluta til að sækja heim ættingja, tónlistarhátíðir eða til að skella sér á skíði.
Eldur kom upp í húsi á Ísafirði í nótt. Lögreglumenn í eftirlitsferð urðu varir við mikinn reyk sem lagði frá húsinu og ræstu út slökkvilið. Í ljós kom að eldur logaði í sólpalli og í timburklæðningu hússins.
Skólahljómsveitin Rassar sem stofnuð var á Núpi í Dýrafirði 1969 er komin vestur á firði og fagnar þar hálfrar aldar afmæli með því að spila, sér og öðrum til gamans.
Flaggað var víða á Vestfjörðum í tilefni þess að síðasta haftið í Dýrafjarðagöngum var rofið í dag. Sjaldan eða aldrei hefur jarðgangagerð gengið jafnvel hérlendis.
Boðað hefur verið til mannfagnaðar í Dýrafirði á morgun í tilefni þess að þá verður slegið í gegn í Dýrafjarðargöngum. Sjaldan eða aldrei hefur jarðgangagerð á Íslandi gengið jafn vel og þessi.
Flugi flugfélagsins Air Iceland Connect til og frá Reykjavíkurflugvelli hefur verið aflýst vegna veðurs. Áður hafði flugi frá Keflavíkurflugvelli í dag verið aflýst en komum sem áætlaðar voru síðdegis hafði verið frestað til kvölds.
Þrekvirki var unnið í dag þegar áhafnir björgunarbátanna Gunnar Friðrikssonar og Gísla Hjalta komu bát sem strandaði á Jökulfjörðum til Ísafjarðar.
Búið er að ná bátnum sem var strandaður á Jökulfjörðum af strandstað og hann kominn til hafnar á Ísafirði.
Búið er að ná bátnum sem var strandaður á Jökulfjörðum af strandstað.
Björgunarskip og bátar Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Ísafirði og Bolungarvík hafa verið ræst út vegna báts sem sendi út neyðarkall í Jökulfjörðum.
Robert Schmidt, leiðsögumaður á Suðureyri, birti myndir af hræinu á Facebook-síðu sinni fyrr í dag.
Fólk er beðið um að vera vakandi fyrir flóðum á heimilum sínum.
Tónlistarskóli Ísafjarðar fagnar um þessar mundir 70 ára afmæli og hefur af því tilefni staðið fyrir fjölmörgum tónlistarviðburðum.
Festust á Hrafnseyrarheiði.
Tveir óskuðu eftir aðstoð björgunarsveita á Hrafnseyrarheiði í dag eftir að þeir urðu innlyksa eftir að snjóflóð féll á veginn sem þeir óku eftir.
Bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar segir að tillögur fjármálaráðherra um niðurskurð fjárframlaga til jöfnunarsjóðs sveitarfélaga komi eins og þruma úr heiðskíru lofti. Komi þær til framkvæmda séu forsendur brostnar varðandi flutning þjónustu við fatlað fólk frá ríki til sveitarfélaga.
Þyrla landhelgisgæslunnar sótti í dag tvo vélsleðamenn sem slösuðust norðarlega á Vestfjörðum. Tilkynning barst um miðjan dag og lenti þyrla gæslunnar um klukkan þrjú á slysstað.
Bæjarstjórarnir í Bolungarvík og á Ísafirði eru ekki sáttir við þá staðreynd að sá hluti Vestfjarða þar sem bæjarfélögin eru staðsett er þakinn snjó allt árið um kring á Google Maps.
Lögreglan á Vestfjörðum stöðvaði ökumann í Ísafjarðardjúpi og fundust um 100 grömm af kannabisefnum í bílnum.
Ingibjörg Guðmundsdóttir, kennslustjóri Háskólans í Reykjavík, hefur verið ráðin skólastjóri Lýðháskólans á Flateyri frá 15. júní næstkomandi.
Lögreglustjórinn á Vestfjörðum hefur ákært karlmann á fertugsaldri fyrir að stýra skipi undir áhrifum fíkniefna þann 14. desember síðastliðinn.
Björgunarsveitir á Vestfjörðum voru kallaðar út ásamt þyrlu Landhelgisgæslunnar til að aðstoða slasaða skíðakonu í Hrafnsfirði í Jökulfjörðunum á norðanverðum Vestfjörðum.
Lögreglan á Vestfjörðum rannsakar meintan fjárdrátt starfsmanns velferðarsviðs Ísafjarðarbæjar. Talið er að starfsmaðurinn hafi dregið sér nokkrar milljónir af reikningum skjólstæðinga bæjarins.