Borgarbyggð
5 6 7 8 9 10 11 12 13 … 18 ›
Segir hryssu og folald enn innilokuð án dagsbirtu Íbúi í Borgarnesi segir hryssu og folald enn innilokuð í hesthúsi í Borgarnesi, þar sem ekki sjáist til sólar. Eigandinn var tilneyddur í gær að færa önnur hross sín, sem voru vannærð og illa haldin, á beit en hryssa með folald er enn innilokuð í hesthúsinu. Innlent 2.9.2022 10:29
Áfall þegar hún sá myndir af hryssunum sínum í fjölmiðlum Fyrrverandi eigandi þriggja hrossa úr stóði, sem sagt er hafa sætt illri meðferð núverandi eigenda, segir það hafa verið gríðarlegt áfall að sjá myndir af hrossunum í fjölmiðlum í gær. Hún leitar nú leiða til að fá hrossin aftur til sín. Innlent 1.9.2022 21:00
Skoða hvernig MAST stendur sig í eftirliti með velferð dýra Ríkisendurskoðun hefur ákveðið að hefja frumkvæðisúttekt á eftirliti Matvælastofnunar með velferð dýra. Þetta kemur fram á vef stofnunarinnar. Tilefni ákvörðunarinnar er ekki tiltekin en hún kemur í beinu framhaldi af háværri gagnrýni á eftirlit MAST með dýravelferð í Borgarbyggð. Innlent 1.9.2022 16:28
Húðskamma MAST og vilja aðgerðir í Borgarbyggð strax Eigandi hrossa í Borgarfirði, sem sakaður hefur verið um illa meðferð á skepnum sínum, hefur orðið við kröfum MAST og flutt hrossin á beit, að sögn dýralæknis hrossasjúkdóma hjá stofnuninni. Íbúi í nágrenninnu segir yfirvöld ekki aðhafast nóg - og alltof seint. Lögregla var kölluð til vegna málsins í gærkvöldi. Dýraverndarsambandið kallar eftir aðgerðum strax. Innlent 1.9.2022 11:41
Lögreglumenn fóru að bænum í gærkvöldi Lögregla á Vesturlandi segir enga kæru hafa borist vegna máls hrossaræktenda, sem sakaðir hafa verið um illa meðferð á skepnum sínum, í nágrenni Borgarnes. Málið hafi hins vegar verið tilkynnt til lögreglu í ágúst og í gærkvöldi hafi lögreglumenn sinnt útkalli að bænum. Innlent 1.9.2022 10:27
Segir eigendur vannærðu hestanna reyna að flytja þá í skjóli nætur Hrossaræktendur í Borgarfirði í nágrenni Borgarness sem sakaðir hafa verið um illa meðferð á skepnum sínum virðast ætla að flytja hestana úr hesthúsi sínu í skjóli nætur. Lögregla hefur verið kölluð til og er á svæðinu. Innlent 31.8.2022 22:57
„Hestamenn í Borgarnesi eru allir lamaðir yfir þessu“ Íbúi í Borgarnesi segir nærsveitunga sína lamaða vegna illrar meðferðar á hestum í nærsveitinni. Hún er ósátt við yfirvöld að grípa ekki inn í þrátt fyrir endurteknar ábendingar. Dýralæknir hrossasjúkdóma hjá MAST segir málið í ferli hjá stofnuninni. Innlent 31.8.2022 17:00
Leysingar og úrkoma gærdagsins áttu ekkert í skyndiflóðið fyrir tveimur árum Veðurstofan fylgist áfram grannt með Hafrafellslóni við Langjökul vegna hættu á skyndiflóði úr lóni. Rennsli í Hvítá jókst til muna í hlýindum og rigningu í gær, en þó ekkert á við það sem myndi gerast ef flóð úr lóninu færi af stað. Innlent 31.8.2022 11:42
Fimm ára með maríulax Það að veiða fyrsta laxinn sinn er stórt skref fyrir alla veiðimenn og það er mjög misjafnt hvenær á lífsleiðinni hann kemur. Veiði 29.8.2022 15:17
Ný vefmyndavél vaktar Hvítá Möguleiki er á að jökulhlaup verði í Svartá úr lóni við Langjökul en Elmar Snorrason hefur sett upp vefmyndavél til þess að vakta megi svæðið og bregðast fyrr við ef af hlaupinu verður. Innlent 20.8.2022 14:00
Njörður kveður og Ólína tekur við starfinu Dr. Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, þjóðfræðingur, rithöfundur og fyrrverandi alþingismaður, skólameistari og borgarfulltrúi, hefur verið ráðin deildarforseti við félagsvísindadeild Háskólans á Bifröst. Ólína tekur við af Nirði Sigurjónssyni sem hefur gegnt starfinu síðustu tvö ár. Innlent 19.8.2022 13:31
Vatnsstaða lóns við Langjökul hækkar Gervitunglamynd sýnir að vatnsstaða í lóni við Langjökul er orðin nokkuð há. Þrisvar hefur hlaupið úr lóninu svo vitað sé, allt á síðustu átta árum. Innlent 18.8.2022 07:03
Fyrst íslenskra framhaldsskóla til að þróa „STEAM“ áfanga Menntaskóli Borgarfjarðar hlaut styrk frá þróunarsjóði námsgagna nú á dögunum. Með styrknum mun skólinn þróa námsefni út frá nýrri kennslustefnu sem skólinn er í þann mund að taka, en MB mun verða fyrsti framhaldsskóli landsins til þess að bjóða upp á sérstaka „STEAM“ áfanga. Innlent 12.7.2022 17:30
Mikill stuðningur við færslu hringvegar út úr Borgarnesi Verulegur stuðningur er við þá tillögu að hringvegurinn um Borgarnes verður færður út á vegfyllingu utan við byggðina, samkvæmt könnun sem Samgöngufélagið lét gera. Þá er allnokkur stuðningur við að hringvegurinn milli Akraness og Borgarness liggi í framtíðinni yfir mynni Grunnafjarðar norðan Akrafjalls. Innlent 9.7.2022 08:25
Gefast upp á erfiðum markaðsaðstæðum og selja bruggverksmiðju Eigendur brugghússins Steðja hafa ákveðið að selja allar sínar bruggræjur og hætta starfsemi sinni. Annar eigandinn segir að greiða þurfi fyrir að koma áfengi í hillur ÁTVR. Viðskipti innlent 29.6.2022 10:40
Blésu af göngufótboltaleik eftir að Guðlaugur Þór meiddist „Þetta var nú meiri dagurinn á Landsmóti UMFÍ 50+ í Borgarnesi í dag,“ svo hefst fréttatilkynning frá UMFÍ, en í Borgarnesi bar helst í dag að umhverfisráðherra meiddist í göngufótbolta. Lífið 26.6.2022 19:47
Hjólagarpurinn Þorsteinn heiðraður Borgnesingurinn og hjólagarpurinn Þorsteinn Eyþórsson var heiðraður við setningu Landsmóts UMFÍ 50+ í Borgarnesi í gærkvöldi. Þorsteinn hjólaði Vestfjarðahringinn svokallaða í sumar til styrktar Píetasamtökunum en hann missti tengdason sinn fyrir nokkru og vildi hann styrkja samtökin. Píetasamtökin sinna forvarnarstarfi gegn sjálfsvígum og sjálfsskaða og styðja við aðstandendur. Innlent 25.6.2022 16:07
Stór skjálfti í Langjökli Klukkan 22:12 varð skjálfti af stærð 4,6 í Langjökli, um ellefu kílómetra norður af Hagajökli. Síðast varð skjálfti yfir 4 að stærð í vestanverðum Langjökli 10. desember 2015. Innlent 23.6.2022 22:42
Flott opnun í Grímsá Veiði er hafin í Grímsá í Borgarfirði og það verður ekki annað sagt en að opnunin hafi gengið vonum framar. Veiði 18.6.2022 08:04
Gamlir mótherjar mætast á Landsmóti UMFÍ 50+ „Þarna fær maður tækifæri til að rifja upp mjög gamla takta og spila við gamla keppinauta sem maður hefur kannski ekki séð í mörg ár. Keppnisandinn er enn til staðar og menn stífna upp í vöðvum og fá tak í nára, sem er mjög vinsælt á Landsmótinu 50+. Ég fékk einmitt tak aftan í læri á síðasta móti þannig að þetta kemur fyrir bestu menn,“ segir Garðar Jónsson en hann tekur þátt í Landsmóti UMFÍ 50+ sem fram fer í Borgarnesi 24. til 26. júní. Lífið samstarf 14.6.2022 10:27
Miklar tafir á Borgarfjarðarbrú vegna elds í bíl Eldur komst í bíl á Borgarfjarðarbrú með þeim afleiðingum að umferð suður um Borgarnes nánast stöðvaðist. Bílaröð náði langt upp fyrir Borgarnes. Innlent 12.6.2022 18:21
Stuðningsfulltrúi tognaði á öxl og fær átta milljónir í bætur Borgarbyggð hefur verið gert að greiða stuðningsfulltrúa sveitarfélagsins tæpar átta milljónir króna í skaðabætur vegna slyss sem varð við umönnun hans á þroskaskertum einstaklingi. Innlent 9.6.2022 16:01
Stefán Broddi ráðinn sveitarstjóri Borgarbyggðar Stefán Broddi Guðjónsson, sem hefur starfað hjá Arion banka undanfarin tíu ár, hefur verið ráðinn í starf sveitarstjóra í Borgarbyggð af nýjum meirihluta. Áætlað er hann taki við starfinu 1. júlí næstkomandi. Klinkið 7.6.2022 23:25
Kannar hug fólks til breytinga á tveimur köflum hringvegarins Samgöngufélagið leitar eftir afstöðu almennings til þess hvort breyta eigi legu hringvegarins á tveimur köflum á Vesturlandi. Frestur til að taka þátt í skoðanakönnun félagsins rennur út 10. júní. Innlent 7.6.2022 22:30
Tíu laxar í opnunarholli Norðurár Fyrsta hollið í Norðurá í sumar hefur lokið veiðum og er það almennt rómur manna að opnunin hafi verið ágæt þó svo að aflatölur mættu vera hærri. Veiði 7.6.2022 09:08
Soffía frænka ræður öllu í fjósinu á Snorrastöðum Soffía frænka úr Kardemommubænum kemur víða við, því nú er hún mætt í fjós á bæ í Borgarbyggð þar sem hún ræður ríkjum og stjórnar öllum kúnum í kringum sig með harðri hendi. Innlent 29.5.2022 07:46
Tvíburasystur dúxuðu með nákvæmlega sömu meðaleinkunn Tvíburasystur sem dúxuðu menntaskóla með sömu lokaeinkunn, upp á kommu, segja dýrmætt að eiga lærdómsfélaga í gegnum skólagönguna. Þrátt fyrir að hafa hjálpast að með námið var keppnisskapið aldrei langt undan. Innlent 28.5.2022 21:07
Norðurá að verða svo gott sem uppseld Laxveiðin hefst 1. júní og það er mikil spenna í loftinu eins og alltaf en þeir sem ætla sér að veiða í sumar og eru ekki búnir að bóka neitt gætu lent í vandræðum. Veiði 27.5.2022 10:01
Þórdís Sif ekki endurráðin sem sveitarstjóri Þórdís Sif Sigurðardóttir mun ekki halda áfram sem sveitarstjóri Borgarbyggðar. Hún hefur gengt starfinu síðastliðin tvö ár. Innlent 20.5.2022 17:24
Lokatölur úr Borgarbyggð: Framsókn komin með hreinan meirihluta Lokatölur eru komnar úr Borgarbyggð og er Framsóknarflokkurinn með hreinan meirihluta. Innlent 14.5.2022 06:00