Reykjanesbær

Hnífstunguárás á Ásbrú
Sérsveit Ríkislögreglustjóra var kölluð út vegna hnífstunguárásar við Lindarbraut á Ásbrú á miðvikudag í síðustu viku.

Tólf sóttu um embætti forstjóra HSS
Sveitarstjóri, núverandi starfsmenn og aðrir sérfræðingar eru meðal umsækjenda um embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar HSS. Skipað verður í embættið í mars á næsta ári, til fimm ára. Fráfarandi forstjóri sækir ekki um starfið og hefur stefnt ríkinu og heilbrigðisráðherra.

Hörðustu Njarðvíkingar horfa til sameiningar við Keflavík
Keflavík og Njarðvík eiga tvö af sigursælustu körfuboltafélögum landsins og viðureignir liðanna eru tveir af hápunktum hvers tímabils. Þess vegna vekja vangaveltur frá fyrrum formanni körfuknattleiksdeildar Njarðvíkur athygli.

Brot í nánu sambandi: Njósnaði um farsímanotkun með forriti og beitti ofbeldi
Héraðsdómur Reykjaness dæmdi karlmann í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir margvísleg brot í nánu sambandi á miðvikudag. Maðurinn var meðal annars ákærður fyrir að beita barnsmóður sinni líkamlegu ofbeldi, koma fyrir njósnaforriti í farsíma hennar og brjóta gegn nálgunarbanni.

Karlmaðurinn sem lést í Lækjargötu var þriggja barna faðir
Karlmaðurinn sem lést í umferðarslysi í Lækjargötu þann 13. september síðastliðinn hét Marek Dementiuk. Hann var 37 ára, lætur eftir sig eiginkonu og þrjú börn sem eru búsett í Reykjanesbæ. Efnt hefur verið til söfnunar til að styðja við fjölskylduna á þessum erfiðu tímum.

Störf Markúsar og Gylfa auglýst til umsóknar
Embætti forstjóra tveggja heilbrigðisstofnana hafa verið auglýst til umsóknar. Annar núverandi forstjóra hefur tilkynnt það að hann sé að hætta en hinn hefur greint frá ágreiningi við heilbrigðisráðherra.

15 þúsund skammtar af mat á dag hjá Skólamat í Reykjanesbæ
Fimmtán þúsund matarskammtar fara út á hverjum virkum degi í einu fullkomnasta eldhúsi landsins til leik- og grunnskólabarna á Suðurnesjum og á höfuðborgarsvæðinu. Vinsælasti maturinn er hakk og spaghettí og grjónagrautur. Hér erum við að tala um fyrirtækið Skólamat í Reykjanesbæ.

Sameining sveitarfélaga á endanum ákvörðun íbúa
Sveitarfélagið Vogar útilokar ekki mögulega sameiningu við neinn að sögn bæjarstjóra. Nágrannasveitarfélögunum á Suðurnesjum verði sent formlegt erindi á næstu dögum um samtal en of snemmt sé að spá fyrir um það hvort samtalið muni leiða til breytinga.

Vogar vilja ræða sameiningu og hin sveitarfélögin jákvæð
Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga samþykkti á fundi sínum á miðvikudag að hefja samtal við nágrannasveitarfélög til að ræða mögulega sameiningarkosti. Bæjarstjórar Reykjanesbæjar og Suðurnesjabæjar hafa tekið vel í frumkvæði Vogamanna.

Kvóti frá Reykjanesbæ til Ólafsvíkur
Útgerðarfélagið Steinunn ehf. hefur lagt grunn að auknum umsvifum sínum í Ólafsvík með kaupum á fiskveiðiheimildum sem nema ríflega hundrað þorskígildistonnum af Saltveri ehf. í Reykjanesbæ fyrir um 300 milljónir króna.

Ók á 217 kílómetra hraða og á von á ákæru
Lögreglan á Suðurnesjum hafði afskipti af ökumanni í nótt sem reyndist aka á 217 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 90. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni.

Óraskaður dómur yfir manni sem kveikti í eigin veitingastað
Landsréttur staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Reykjaness í máli manns sem kveikti í veitingastað sínum sumarið 2020 og gerði í kjölfarið tilraun til fjárssvika. Manninum er gert að sæta fangelsi í tvö ár og þrjá mánuði og greiða áfrýjunarkostnað málsins.

Eftirlýstur hælisleitandi handtekinn með tvær milljónir í reiðufé
Karlmaður sem lögreglan á Suðurnesjum hafði afskipti af fyrr í mánuðinum reyndist eftirlýstur hælisleitandi. Við leit á manninum fundust tvær milljónir króna í reiðufé. Maðurinn hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald.

Hundrað ára dansari í Reykjanesbæ
Þó hann sé orðinn hundrað ára gamall þá lætur hann það ekki stoppa sig við að dansa því það gerir hann með nokkrum hressum konum einu sinni í viku. Hér erum við að tala um Gunnar Jónsson, fyrrverandi sjómann í Reykjanesbæ.

„Okkur þykir náttúrulega miður að þetta skyldi koma upp“
Bæjarstjóri Reykjanesbæjar harmar vinnubrögð lögreglunnar á Suðurnesjum gagnvart sautján ára dreng á bæjarhátíðinni Ljósanótt í Reykjanesbraut. Málið varpi skugga á hátíðina

Leita réttar síns vegna framkomu lögreglu á Ljósanótt
Mæðgin hyggjast leita réttar síns vegna framkomu lögreglunnar á Suðurnesjum á Ljósanótt í Reykjanesbæ. Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir málið vera áhyggjuefni og að það sé til rannsóknar.

Vinnubrögð lögreglunnar á Suðurnesjum á Ljósanótt til skoðunar
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum lítur mál unglingspilts á Ljósanótt í Reykjanesbæ sem snýr að vinnubrögðum lögreglu alvarlegum augum. Móðir drengsins hefur sakað lögreglu um kynþáttahatur.

„Ég vissi ekki að svona rasismi væri til“
Ferð tveggja sautján ára drengja á bæjarhátíðina Ljósanótt í Reykjanesbæ breyttist fljótt í martröð. Þeir voru nýmættir á hátíðina þegar fjöldi lögreglumanna ýttu öðrum drengnum, sem er dökkur á hörund, upp að vegg og létu fíkniefnahund leita á honum. Mikið sjokk, segir móðir drengsins sem hætti við að fara á hátíðina eftir uppákomuna. Hún sakar lögreglu um rasisma og vill skýringar á atvikinu.

Golfvöllurinn á kafi og manni bjargað úr húsi í Sandgerði
Björgunarsveitir á Suðurnesjum komu manni til bjargar eftir að sjór flæddi yfir sjóvarnargarða í Sandgerði. Sjórinn umlukti hús hans en það er sömuleiðis allt á floti á golfvelli bæjarins.

Alls kyns foktjón í fyrstu haustlægðinni
Annasamt hefur verið hjá björgunarsveitum í kvöld á meðan fyrsta haustlægðin gengur yfir með miklu hvassviðri. Stærsta verkefnið var á hálendinu þar sem sækja þurfti örmagna göngumann.

„Það verður stormur um mestallt land“
Fyrsta haustlægðin fer yfir landið í kvöld og gular viðvaranir tóku víða gildi klukkan sjö. Björgunarsveitir hafa verið boðaðar út víða.

Góð stemning í Leifsstöð þegar ný töskufæribönd voru tekin í notkun
Nýr og rúmbetri töskusalur beið farþega sem lentu á Keflavíkurflugvelli upp úr hádegi í dag. Töskusalurinn er fyrsti áfanginn sem tekinn er í notkun í nýrri austurálmu flugstöðvarinnar.

Leita allra leiða til að halda dagskrá í óveðri
Forsvarsmenn bæjarhátíðarinnar Ljósanætur í Reykjanesbæ leita nú allra leiða til að halda hátíðina samkvæmt dagskrá. Aftakaveðri er spáð næstu helgi þegar hátíðin fer fram.

Stormur í kortunum en óljóst hvar
Búist er við stormi og rigningu á landinu um helgina. Ekki liggur þó fyrir að svo stöddu hvar á landinu veðrið verður verst.

Íbúar Reykjaness geti gert ráð fyrir stærri skjálftum næstu árin
Jarðskjálfti sem varð seint í gærkvöldi á Reykjanesskaga var sá stærsti á svæðinu frá goslokum. Náttúruvársérfræðingur segir íbúa svæðisins geta gert ráð fyrir stærri skjálftum inn á milli næstu árin.

Höfða mál á hendur ríkinu vegna útburðarins
ÖBÍ réttindasamtök hafa tekið ákvörðun um að stefna ríkinu vegna útburðar Jakubs Polkowski, 23 ára gamals öryrkja í Reykjanesbæ. Formaður ÖBÍ segir málið fordæmisgefandi og vonast til þess að það verði víti til varnaðar fyrir sýslumenn.

Minna áreiti í skólum
Nú þegar skólastarf er að hefjast eftir sumarið hefur mikið verið rætt og ritað um þá sýn UNESCO, Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna, að snjallsímar verði ekki leyfðir í grunnskólum. Samkvæmt skýrslu UNESCO sem gefin var út í lok júlí er lögð áhersla á að tækni sé eingöngu nýtt við nám þegar hún bætir námsárangur.

Óttast að unglingar sniffi gas í strætisvögnum
Rekstraraðili strætó í Reykjanesbær verður í síauknum mæli var við að tóm gashylki séu skilin eftir í strætisvögnum bæjarins. Hann segist óttast að unglingar noti hylkin til að sprauta gasi með rjómasprautu í blöðru og komast þannig í vímu.

Glæsilegur fornbíll og fornhjólhýsi í Keflavík
Eigendur fornbíls í Keflavík vekja alls staðar mikla athygli þar sem þau eru á ferðinni, ekki síst þegar hjólhýsið er aftan í bílnum en það er 58 ára gamalt. „Það eru allir símar á lofti,“ segir eigandinn.

Öryrkinn borinn út
Það vakti athygli þegar Sýslumaðurinn í Keflavík seldi lítið einbýlishús öryrkja í Reykjanesbæ á uppboði fyrir 3 milljónir. Húsið var metið á 57 milljónir. Öryrkinn talar ekki íslensku og á við vanheilsu að stríða vegna höfuðáverka af völdum slyss. Tap öryrkjans nemur um 54 milljónum vegna aðgerða sýslumanns.