Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Vilhjálmur Árnason hefur gert forseta Alþingis grein fyrir afsögn sinni en hann hóf störf sem bæjarstjóri Reykjanesbæjar 2. júní. Vilhjálmur hefur verið þingmaður Sjálfstæðisflokksins fyrir Suðurkjördæmi frá árinu 2013 og var varaformaður þingflokksins. Innlent 8.6.2026 17:52
Enn í lífshættulegu ástandi Karlmaðurinn sem var fluttur til Noregs með brunasár eftir lögregluaðgerð í Reykjanesbæ er enn í lífshættu og enn á gjörgæslu að sögn lögmanns mannsins. Innlent 8.6.2026 12:09
Guðlaug skipuð skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurnesja Guðlaug M. Pálsdóttir hefur verið skipuð í embætti skólameistara Fjölbrautaskóla Suðurnesja til fimm ára frá 1. ágúst næstkomandi. Innlent 5.6.2026 16:52
Konan komin í leitirnar Kona sem lögreglan á Suðurnesjum lýsti eftir fyrr í kvöld er fundin. Lögreglan hyggst ekki veita frekari upplýsingar um málið. Innlent 27. maí 2026 21:23
Vilhjálmur verður bæjarstjóri Vilhjálmur Árnason, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ, verður bæjarstjóri en hann og Gunnlaugur Kárason, oddviti Miðflokksins, skrifuðu í dag undir málefnasáttmála nýs meirihluta. Gunnlaugur verður formaður bæjarráðs. Innlent 21. maí 2026 17:34
Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Þriðji ættliðurinn í Njarðvík varð Íslandsmeistari í fyrrakvöld. Sara Björk Logadóttir fylgdi þar í fótspor föður síns Loga Gunnarssonar og afa Gunnars Þorvarðarsonar sem einnig urðu Íslandsmeistarar með Njarðvík. Körfubolti 21. maí 2026 12:07
Tvær sóttu um stöðu skólameistara Fjölbrautaskóla Suðurnesja Mennta- og barnamálaráðuneytinu bárust þrjár umsóknir um embætti skólameistara Fjölbrautaskóla Suðurnesja sem auglýst var laust til umsóknar á dögunum. Einn dró umsókn sína til baka. Innlent 21. maí 2026 10:00
Meirihlutasamstarf í höfn í Reykjanesbæ Sjálfstæðisflokkurinn og Miðflokkurinn í Reykjanesbæ hafa náð samkomulagi um nýjan meirihluta. Samkomulagið verður undirritað á morgun. Innlent 20. maí 2026 19:31
Fluttur til Noregs með brunasár á um helmingi líkamans Íslendingur á fimmtugsaldri var í gær fluttur til Noregs með sjúkraflugi með brunasár á um helmingi líkamans og þarf að gangast þar undir aðgerðir. Lögmaður mannsins segir lögregluna hafa stórskaðað hann og gengið of harkalega fram þegar rafvarnarvopni var beitt eftir að maðurinn hafði hellt yfir sig eldfimum vökva. Hann hefur óskað eftir að héraðssaksóknari rannsaki málið. Innlent 20. maí 2026 18:55
Fjölgun hælisleitenda í Reykjanesbæ sé engin Oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ segir skýra kröfu frá samfélaginu að málefni hælisleitenda í sveitarfélaginu séu tekin föstum tökum. Fjölgunin hælisleitenda sé engin en klára þurfi verkefnið og passa að vandamálið vaxi ekki á ný. Skoðað verði hvort sett verði á fót öryggisteymi í sveitarfélaginu. Innlent 20. maí 2026 12:17
Ekkert sem bannar upptökur af lögregluaðgerðum á almannafæri Almennum borgurum er heimilt að taka upp myndskeið af aðgerðum lögreglu á almannafæri. Þá hefur lögregla ekki heimild til að skipa einstaklingum að eyða upptökum, líkt og virðist hafa átt sér stað í Keflavík á mánudagsmorgun. Innlent 20. maí 2026 06:31
Sviðin rafbyssupíla enn í kirkjugarðinum Sjónarvottur gagnrýnir aðgerðir lögreglu í gær þegar rafvarnarvopni var beitt á mann sem hafði hellt yfir sig bensíni. Á vettvangi í dag mátti finna sviðna pílu úr vopninu. Innlent 19. maí 2026 20:01
„Ég treysti því að lögreglan muni skoða þetta mjög rækilega“ Framkvæmdastjóri Geðhjálpar segir samtökin hafa bent á að svo virðist sem þekkingarleysi sé innan lögreglunnar þegar hafa þarf afskipti af fólki sem glímir við andleg vandamál. Hann segir óhugnanlegt þegar rafbyssum er beitt líkt og gert var við handtöku í Reykjanesbæ í gær. Innlent 19. maí 2026 16:30
„Get fullyrt að þetta mun ekki valda neinum réttarspjöllum“ Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir að beiting rafvarnarvopns við aðstæður sem uppi voru við handtöku í Keflavík í gær sé varasöm og fullyrðir að engin réttarspjöll verði þó vitni að atvikinu hafi verið gert að eyða myndbandi af handtökunni. Innlent 19. maí 2026 12:29
Lögreglu hafi stafað hætta af manninum Yfirlögregluþjónn Lögreglunnar á Suðurnesjum segir lögreglumenn hafa tekið upplýsta ákvörðun þegar þeir ákváðu að beita rafvarnarvopni gegn manni sem þakinn var íkveikivökva í morgun. Þá hafi manni verið gert að eyða myndefni af atvikinu í þágu hagsmuna þess sem beittur var rafvopninu, enda hafi hann verið án fata. Innlent 18. maí 2026 16:59
Látinn eyða myndskeiði: „Ekki standa þarna eins og gungur, hjálpið manninum“ Maður sem varð vitni að afskiptum lögreglu af manni við Keflavíkurkirkjugarð í morgun, sem endaði með því að kviknaði í manninum, segir beitingu lögreglu á rafvarnarvopni fáránlega, þar sem maðurinn hafi verið búinn að hella á sig íkveikivökva. Þá hafi lögregla neytt hann til að eyða myndskeiði af atvikinu með hótunum um handtöku. Innlent 18. maí 2026 14:39
Kveikti í sér eftir að hafa verið beittur rafvarnarvopni Karlmaður bar að sér eld í Reykjanesbæ í morgun eftir að lögregla hafði beitt hann rafvarnarvopni. Innlent 18. maí 2026 11:38
Konur meirihluti fulltrúa í Kópavogi, Árborg og Múlaþingi Sextán nýir fulltrúar taka sæti í borgarstjórn Reykjavíkur. Konum fækkar víða en hlutfallið helst það sama annars staðar. Þær eru í nokkrum sveitarfélögum meirihluti fulltrúa. Innlent 17. maí 2026 14:55
Lokatölur í Reykjanesbæ: Sjálfstæðismenn fara með stórsigur af hólmi Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig tveimur mönnum og Samfylkingin tapar einum í Reykjanesbæ. Framsóknarmenn halda sínum þremur en Viðreisn fær engan mann kjörinn. Innlent 17. maí 2026 02:19
Oddvitaáskorunin: Neitar að nota gervigreind Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2026 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í sveitarfélögum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum spurningum. Lífið 15. maí 2026 17:02
Gjöld fyrir frístund rokið upp Samanburður á gjöldum hjá fjórtán sveitarfélögum sýnir að hækkanir á gjaldskrám frístundaheimila fyrir grunnskólabörn frá árinu 2023 til 2026 eru á bilinu fjögur prósent upp í 37 prósent. Innlent 13. maí 2026 10:04
Bæjarfulltrúi sagst vilja taka hann „bak við húsvegg og skjóta“ Sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs Reykjanesbæjar segir að bæjarfulltrúi og frambjóðandi Samfylkingarinnar hafi lýst því yfir að hann vildi helst fara með hann „bak við húsvegg og skjóta“. Orðin hafi Hjörtur Magnús Guðbjartsson látið falla í heimsókn til ónefnds verktakafyrirtækis í Reykjanesbæ en hann er í öðru sæti á lista Samfylkingarinnar. Innlent 12. maí 2026 16:06
Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Portúgölsk kona á sjötugsaldri sem reyndi að smygla fíkniefnum innbyrðis til landsins þurfti að fara í bráðaaðgerð og liggur nú á Landspítalanum. Málum sem snúa að burðardýrum hefur fjölgað verulega að sögn lögreglu. Að jafnaði séu hátt í tuttugu manns í gæsluvarðhaldi vegna slíkra brota á Suðurnesjum. Innlent 5. maí 2026 19:13
Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Skólar á Suðurnesjum eru vanfjármagnaðir þar sem ekki er tekið tillit til þess hversu hátt hlutfall nemenda er með erlendan bakgrunn, segir þingmaður Framsóknar. Verði ekki ráðist í endurskoðun á úthlutun til skólanna skapist stór og mikil vandamál síðar meir. Rannsóknir sýni að líðan barna á svæðinu fari versnandi þegar líður á skólagönguna. Innlent 26. apríl 2026 21:18