Razzie-verðlaunin

Þau eru tilnefnd fyrir verstu kvikmyndagerðina
Tilnefningar til Razzie-verðlaunanna svokölluðu voru kynntar í dögunum, í sömu viku og tilnefningar til Óskarsverðlaunanna voru kynntar.

Hryllingsmyndin um Bangsímon valin sú versta á Razzie-verðlaununum
Razzie-verðlaunahátíðin svokallaða var haldin í gær. Á henni var hryllingsmyndin Winnie the Pooh: Blood and Honey ótvíræður „sigurvegari“ en hún hlaut verðlaun í fimm af tíu flokkum.

Blonde valin versta myndin á Razzie-verðlaunahátíðinni
Razzie-verðlaunin svokölluðu voru veitt í Hollywood nú í morgun, degi á undan Óskarsverðlaunahátíðinni. Verðlaunin voru fyrst veitt árið 1980 en skipuleggjendur lýsa þeim sem „ljóta frænda Óskarsverðlaunanna“, þar sem þeir „verðlauna“ það sem þeir telja verstu myndir ársins sem og verstu frammistöðu einstakra leikara í kvikmyndum ársins.

Draga tilnefningu tólf ára barns til Razzie-verðlauna til baka
Aðstandendur Razzie-verðlaunanna hafa ákveðið að draga tilnefningu hinnar tólf ára Ryan Kiera Armstrong til verðlaunanna til baka. Aðstandendur verðlaunanna hafa sætt mikilli gagnrýni vegna ákvörðunarinnar að tilnefna stúlkuna og hafa þeir verið sakaðir um að leggja barn í einelti. Þeir hafa nú beðist afsökunar á málinu.

Blonde með flestar tilnefningar til Razzie-verðlaunanna
Kvikmyndin Blonde, þar sem segir frá ævi leikkonunnar Marilyn Monroe, hefur hlotið flestar tilnefningar til Razzie-verðlaunanna svokölluðu.

Bruce Willis fær sinn eigin flokk á Razzie-verðlaununum
Í gær var tilkynnt hvaða myndir eru tilnefndar til Razzie-verðlaunanna í ár. Á hátíðinni er kastljósinu beint að því versta í kvikmyndum. Verðlaunin eru afhent degi á undan Óskarnum, þar sem það besta fær alla athyglina.

Rudy Giuliani versti aukaleikari þessa árs
Rudy Giuliani, fyrrverandi borgarstjóri New York og lögmaður Donalds Trumps fyrrverandi Bandaríkjaforseta, hlaut tvenn verðlaun á kvikmyndahátíðinni Hindberinu (e. Raspberry Awards). Hlaut hann þar verðlaun fyrir versta aukahlutverkið og versta samleikinn á síðasta ári.

Cats hlaut flestar tilnefningar til Razzie-verðlauna
Stórmyndin Cats sem byggð er á samnefndum söngleik Andrew Lloyd Webber og bók rithöfundarins T. S. Eliot Old Possum's Book of Practical Cats, hlaut tilnefningar til níu Razzie-verðlauna en tilnefningarnar voru tilkynntar í Los Angeles í nótt.

Razzie-verðlaunin: Trump og McCarthy valin verstu leikarar ársins
Kvikmyndin Holmes & Watson var valin sú versta í sínum flokki.


Botnlanginn veittur í kvöld
Kattaauglýsing Símans þar sem köttur sést gleypa mann er meðal þeirra auglýsinga sem tilnefndar eru sem sístu auglýsingar ársins 2008 á nýrri og vafasamri verðlaunahátíð í kvöld: Botnlanganum.

Velja verstu leiksýningu ársins
Leiklistarnemendur og aðrir áhugamenn um leiklist vinna að því að halda Grímuverðlaunapartý þar sem veðjað er á verðlaunahafa.

Lindsay og Murphy langverst
Kvikmynd Lindsay Lohan, I Know Who Killed Me, hefur verið tilnefnd til níu Razzie-verðlauna en myndin Norbit með Eddie Murphy hlaut átta tilnefningar.

Dönsku fánaberarnir
Danskar kvikmyndir hafa yfirleitt átt upp á pallborðið hjá kvikmyndaunnendum um allan heim og danskir leikstjórar eru eftirsóttir í Hollywood. Og nú eru danskir leikarar einnig að hasla sér völl þar vestra