
Tyrkland

Brottflutningur hermanna frá Sýrlandi hafinn
Mikil óvissa hefur ríkt um brottflutninginn og hafa embættismenn í Bandaríkjunum verið margsaga um hvort og hvenær af honum verði.

Ætla sér að ráðast á Kúrda hvort sem bandarískir hermenn eru fyrir eða ekki
Utanríkisráðherra Tyrklands sagði Tyrki staðráðna í að ráðast gegn YPG, vopnuðum sveitum sýrlenskra Kúrda, og þeir myndu ekki biðja nokkurn aðila um leyfi.

Erdogan neitaði að hitta Bolton
Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, neitaði að hitta John Bolton, þjóðaröryggisráðgjafa Bandaríkjanna, í dag.

Spekileki skekur Tyrkland
Fræðimenn, frumkvöðlar, viðskiptamenn, námsmenn og þúsundir auðugra Tyrkja hafa flúið land á undanförnum árum.

„Þetta er eina skiptið sem ég raunverulega hélt að ég myndi deyja“
Íslensk kona upplifði alvarlegt ofbeldisbrot í Tyrklandi eftir að brotist var inn á hótelherbergi hennar þega hún dvaldi þar í landi árið 2014. Hún segir mikla brotalöm í kerfinu og safnar nú í sjóð fyrir konur sem leita réttar síns í ofbeldismálum.

Íslenskur kúrdi kallar eftir viðbrögðum Íslendinga í mannréttindaráði
Íslenskur kúrdi vill að Ísland óski eftir fundi í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna vegna ákvörðunar Donalds Trump að draga herlið Bandaríkjanna frá Sýrlandi.

Sýrlenskir Kúrdar líta til Frakklands
Frakkland er meðlimur í bandalagi Bandaríkjanna gegn ISIS og er með sérsveitarmenn í norðurhluta Sýrlands þar sem þeir berjast með sýrlenskum Kúrdum og öðrum meðlimum samtakanna Syrian Democratic Forces gegn ISIS-liðum.

Kúrdar í Sýrlandi telja ákvörðun Trump svik
Mikil óvissa ríkir um framhald stríðsins gegn Ríki íslams í Sýrlandi eftir að Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti að hann ætlaði að draga 2.000 manna herlið þaðan.

Trump sakar bandamenn um vanþakklæti og lýgur um Sýrland
Á sama tíma og Pútín Rússlandsforseti lofaði ákvörðun Trump um að draga herlið frá Sýrlandi fullyrti bandaríski forsetinn að Rússar væru óánægðir með hana.

„Ef Obama hefði gert þetta, værum við allir brjálaðir“
Ákvörðun Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, að kalla alla hermenn Bandaríkjanna frá Sýrlandi heim, kom mörgum á óvart. Þar á meðal þingmönnum, embættismönnum og bandamönnum Bandaríkjanna.

Refsing fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafa Trump ákveðin í dag
Michael Flynn er sagður hafa veitt sérstaka rannsakandanum verulega aðstoð og saksóknarar krefjast ekki fangelsisrefsingar yfir honum.

Viðskiptafélagar fyrrum þjóðaröryggisráðgjafa Trump ákærðir
Þeir eru taldir hafa verið á launum hjá forseta Tyrklands til að reyna að sannfæra bandarísk stjórnvöld um að framselja einn helsta pólitíska andstæðing hans.

„Ég veit hvernig á að skera“
Þetta sagði Recep Tayyip Erdogan, Tyrklandsforseti, í dag en tyrknesk yfirvöld hafa deilt hljóðupptökunni með yfirvöldum í Bandaríkjunum og Evrópu.

Erdogan hyggur á frekari árásir á Kúrda
Vísbendingar eru um að Tyrkir hafi verið að færa hergögn og menn að landamærum sýrlenskra Kúrda sem starfa undir regnhlífarsamtökum Syrian Democratic Forces og með stuðningi Bandaríkjanna.

Sádar ætla ekki að framselja þá sem myrtu Khashoggi
Adel al-Jubei, utanríkisráðherra Sádí-Arabíu hefur útilokað að mennirnir sem grunaðir eru um morðið á Jamal Khashoggi verði framseldir til Tyrklands.

Gert að leysa Kúrda úr haldi
Mannréttindadómstóllinn skipaði Tyrkjastjórn að leysa einn af stjórnmálaleiðtogum Kúrda úr haldi. Handtekinn fyrir tveimur árum vegna meintra tengsla við PKK.

Leituðu leiða til að framselja Gulen til Tyrklands til að friðþægja Erdogan
Ríkisstjórn Donald Trump er sögð vilja létta á þrýsingi á krónpríns Sádi-Arabíu.

Tyrkir hafa deilt upptökum sem tengjast morðinu á Khashoggi
Tyrkir hafa deilt myndböndum sem tengjast morðinu á Jamal Khashoggi með Bandaríkjunum, Bretlandi, Sádi Arabíu og fleirum. Forseti Tyrklands Recep Tayyip Erdogan ítrekaði það sem hann hefur fullyrt að Sádi Arabar vita hvert hafi myrt Khashoggi.

Sagður hættulegur íslamisti og líkið leyst upp í sýru
Blaðamaðurinn Jamal Khashoggi var meðlimur Bræðralags múslima og hættulegur íslamisti að því er krónprins Sádi-Arabíu sagði við bandaríska embættismenn.

Tyrkir segja lík Khashoggi hafa verið "leyst upp“
Talsmaður Receps Tayyip Erdoğan Tyrklandsforseta segir að lík sádi-arabíska blaðamannsins Jamals Khashoggi hafi verið "leyst upp“ eftir að Khashoggi var myrtur á ræðismannsskrifstofu Sáda í Istanbúl fyrir mánuði síðan og lík hans bútað niður.

Dularfulla morðið á Jamal Khashoggi
Þó að enn sé margt á huldu varðandi morðið á Khashoggi hefur ýmislegt komið fram í fréttum undanfarnar vikur. Hér verður tekið það saman það helsta sem komið hefur fram um þetta dularfulla morð.

„Færið mér höfuð hundsins“: Fyrirskipaði morð Khashoggi í gegnum Skype
Náinn ráðgjafi krónprins Sádi-Arabíu er sagður hafa fyrirskipað morð Khashoggi í gegnum Skype.

Mál Khashoggi alvarlegt fyrir prins
Blaðamaðurinn Jamal Khashoggi sagður hafa verið pyntaður og aflimaður áður en hann var myrtur. Mál hans er umtalað á alþjóðavettvangi og svertir orðspor krónprins Sádi-Araba, sem hefur haft þá ímynd að vera umbótasinni.

Yfirvöld í Tyrklandi leita bíls sem talinn er hafa flutt lík blaðamannsins
Yfirvöld í Tyrklandi rannsaka nú umferðarmyndavélar í von um að finna svartan sendiferðabíl sem þau telja hafa flutt lík blaðamannsins Jamal Khashoggi frá ræðisskrifstofu Sádi-arabíu í Istanbúl.

Ísraelskir þingmenn vilja fordæma þjóðarmorð Tyrkja á Armenum
Þingmenn tveggja flokka á ísraelska þinginu ætla að leggja fram lagafrumvarp þess efnis að Ísrael viðurkenni þjóðarmorð Tyrkja á Armenum fyrir rúmum hundrað árum.

Tyrkir segjast hafa gripið tugi stjórnarandstæðinga erlendis
Þeir eiga allir að hafa verið fylgjendur klerksins Fetullah Gulen sem tyrknesk stjórnvöld kenna um valdaránstilraun árið 2016.

Höfuðpaur Istanbúl-árásar drepinn
Öryggislögregla Georgíu segir að maðurinn hafi einnig sprengt sjálfan sig í loft upp eftir um tuttugu klukkustunda langt umsátur lögreglu fyrir utan Tbilísí í síðastu viku.

Segir Evrópu þurfa á Tyrklandi að halda
Forseti Tyrklands hvetur evrópska ráðamenn til að taka á samskiptavanda lands síns og Evrópusambandsins með heilbrigða skynsemi að leiðarljósi. Uppi eru hugmyndir um að stöðva greiðslur frá Evrópusambandinu til Tyrklands.

Árásin í Istanbúl á nýársnótt: Masharipov játar sekt
Ríkisstjóri Istanbúl segir að maðurinn, Abdulkadir Masharipov, hafi hlotið þjálfun í Afganistan og komið til Tyrklands í janúar 2016.

Árásarmaðurinn frá því á nýársnótt í Istanbúl handtekinn
Tyrkneska lögreglan hefur haft hendur í hári mannsins sem réðst inn á skemmtistað og myrti 39 manns og særði um sjötíu.