Slökkvilið

„Þetta er mjög erfitt en okkur gengur vel“
Slökkviliðsmenn börðust við gróðurelda á gossvæðinu á Reykjanesi í allan dag meðal annars með aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar. Ríkisstjórnin ákvað í morgun að styrkja Björgunarsveitina í Grindavik um tíu milljónir króna og verið er að athuga gerð á nýju bílastæði sem myndi stytta göngu að gosstöðvunum verulega.

Tvö tonn af vatni í senn
Slökkvistarf Landhelgisgæslunnar við gosstöðvarnar á Reykjanesskaga hefur gengið vel að sögn stýrimanns. Notast er við skjólur sem rúma um tvö tonn af vatni.

Hálft Reykjanesið geti farið undir eld
Slökkviliðsbíla má nú sjá við gosstöðvarnar þar sem reynt er að halda aftur af útbreiðslu gróðurelda sem loga vegna glóandi hrauns. Slökkviliðsstjóri segir að ef ekkert verði að gert sé hætta á því að þeir nái gríðarlegri dreifingu á svæðinu. Lokað var fyrir aðgengi almennings að gosstöðvunum í dag.

Öryggi og velferð í Uppsveitum
Sem íbúi í Uppsveitum Árnessýslu er ég mjög hugsi þessa dagana varðandi öryggi og velferð okkar hér í því samfélagi sem við búum og störfum í.

Brunakerfi í gang í Mjódd
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur verið kallað út vegna brunakerfis sem fór í gang í verslunarmiðstöðinni Mjódd í Breiðholti. Hún var rýmd á meðan aðgerðir slökkviliðs stóðu yfir.

Ekið á gangandi vegfaranda á Hverfisgötu
Slys varð þegar ekið var á gangandi vegfaranda á mótum Hverfisgötu og Klapparstígs í miðborg Reykjavíkur í morgun.

Bifhjólaslys á Suðurlandsbraut
Bifhjólaslys varð á Suðurlandsbraut í Reykjavík, ekki langt frá Grensásvegi, á öðrum tímanum í dag.

Eldur kom upp í gufubaði í húsi í Garðabæ
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út þegar eldur kom upp í gömlu gufubaði og baðherbergi í einbýlishúsi við Holtsbúð í Garðabæ í nótt.

Eldur í Gyðufelli
Eldur kviknaði í geymslu í kjallara íbúðablokkar í Gyðufelli í Fellahverfi Reykjavíkur í dag. Tilkynning barst um eldinn um klukkan 15:30 og gekk slökkviliði greiðlega að ná tökum á eldsvoðanum.

Rafmagnshlaupahjól orsök eldsvoðans
Talið er að eldur sem kviknaði í timburhúsi við Blesugróf í Fossvogi í Reykjavík í gær hafi kviknað út frá rafmagnshlaupahjóli sem var í hleðslu. Þetta er niðurstaða tæknideildar lögreglu sem rannsakaði vettvang brunans í dag en húsið er nú gjörónýtt.

Tæknideild rannsakar vettvang í dag
Tæknideild lögreglunnar á höfuðborgarsvæði mun í dag rannsaka vettvang bruna sem varð í Blesugróf í Fossvogi í gærkvöldi. Tilkynnt var um brunann laust eftir klukkan sex og lauk aðgerðum laust eftir miðnætti.

Í áfalli yfir að hafa misst æskuheimili barna sinna
Eigandi tveggja hæða timburhúss við Blesugróf 25 í Fossvogshverfi Reykjavíkur segist í miklu áfalli eftir að hafa misst æskuheimili barna sinna í eldsvoða í kvöld. Húsið telst nú ónýtt en eigandinn þakkar fyrir að engin slys urðu á fólki. Íbúðin hafi verið í útleigu síðastliðið ár og staðið til að hún tæki aftur við lyklunum næsta laugardag.

Allt tiltækt lið kallað út vegna alelda húss í Blesugróf
Slökkvilið hefur verið kallað út vegna elds sem kviknaði í tveggja hæða timburhúsi í Blesugróf í Reykjavík. Mikinn reyk leggur frá húsinu.

Eldur í Teigunum
Eldur kom upp í fjölbýlishúsi í Laugardalnum í Teigahverfinu í kvöld. Að sögn varðstjóra slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu kom eldur upp í þaki hússins, enginn sé slasaður.

Kofi við Elliðavatn brann til kaldra kola
Eldur kviknaði í kofa sem stóð við Elliðavatn á ellefta tímanum í kvöld. Ekki er enn vitað um upptök eldsins.

Eldur kviknaði í bílaverkstæði á Esjumelum
Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu sinnir nú útkalli vegna elds sem kviknaði í bílaverkstæði á Esjumelum í Reykjavík.

Missti stjórn á bílnum og endaði uppi á hól
Um klukkan 17 varð umferðaróhapp á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Listabrautar í Reykjavík. Ökumaður fólksbíls missti stjórn á bílnum og keyrði út af veginum og upp á hól.

Einn fluttur á bráðamóttöku vegna áreksturs
Fyrir skömmu varð árekstur á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar í Reykjavík. Einn var fluttur á bráðamóttöku Landspítalans til aðhlynningar en hann er ekki alvarlega slasaður.

Töluverður eldur þegar kviknaði í stjórnborði fyrir heitan pott
Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út í miðborg Reykjavíkur í gærkvöldi eða nótt þegar eldur kviknaði í stjórnborði fyrir heitan pott, á svölum fjölbýlishúss. Engan sakaði í eldsvoðanum en eldurinn var töluverður.

Fimm bílar eyðilögðust í bruna í Engihjalla
Íbúi var fluttur á slysadeild með reykeitrun eftir að það kviknaði í fimm bílum á bílastæði við íbúðablokk í Engihjalla í Kópavogi í nótt.

Hlaupahjólasprenging og árekstrar á meðal fjölmargra verkefna
Slökkvilið hefur sinnt hátt í sextíu sjúkraflutningum og farið í átta dælubíla-útköll það sem af er degi. Meðal verkefna er sprenging sem varð út frá hlaupahjóli og umferðarslys í Garðabæ og Heiðmörk.

„Þú mátt aldrei panika, þá ferðu að hugsa vitlaust“
Blind reykköfun, vatnssöfnun og ákvarðanataka undir gífurlegu álagi er meðal þess sem nemar í slökkviliðsfræðum voru prófaðir í þegar lokapróf í greininni fóru fram í gær. Nemendurnir segja úthaldið og baráttu við hausinn það erfiðasta.

Mikið viðbragð eftir að ekið var utan í götuvita
Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu sinnti útkalli vegna umferðarslyss á ellefta tímanum í kvöld. Þegar slökkviliðsmenn og sjúkraflutningarmenn bar að vettvangi reyndist aðeins hafa verið ekið laust á götuvita.

Sóttu slasaða hestakonu á Valahnúka
Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað til upp úr klukkan tíu í kvöld vegna konu sem hafði fallið af hestbaki við Valahnúka í Hafnarfirði. Verið er að flytja konuna á bráðamóttöku en hún er ekki alvarlega slösuð.

Eldur kom upp í móttöku- og flokkunarstöð Sorpu í Gufunesi
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út eftir að tilkynning barst um eld í móttöku- og flokkunarstöð Sorpu í Gufunesi skömmu fyrir klukkan níu í morgun.

Mikill viðbúnaður vegna elds í Ármúla
Slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu hefur verið kallað út vegna elds í Ármúla 5.

Ekki hægt að bjarga bátnum og hann látinn brenna
„Hann var látinn brenna, það var lítið annað hægt að gera.“

Sinubruni á Akureyri var ekki til mikilla vandræða
Sinubruni kom upp í brekkunni fyrir ofan Skautahöllina á Akureyri í dag. Varðstjóri hjá slökkviliðinu á Akureyri segir að tekið hafi um hálftíma að ráða niðurlögum eldsins. Um sé að ræða fyrsta sinubrunann fyrir norðan í vetur.

Féll tvo metra ofan holu við Kleppsmýrarveg
Lögregla og slökkvilið höfuðborgarsvæðisins voru kölluð út eftir að tilkynnt var um að maður hafi fallið um tvo metra ofan í grunn við við Kleppsmýrarveg, Dugguvog og Arkarvog í Reykjavík í gærkvöldi.

Hundrað manns tóku þátt í æfingu Landhelgisgæslunnar
Umfangsmikil æfing Landhelgisgæslunnar, slökkviliðs Höfuðborgarsvæðisins og annarra helstu björgunaraðila fór fram á Faxaflóa í dag. Að sögn æfingastjóra eru æfingar sem þessar mikilvægur liður í að samhæfa verklag allra sem koma að björgunaraðgerðum á sjó.