Rússland
60 61 62 63 64 65 66 67 68 … 97 ›
Sárt að fylgjast með úr fjarlægð og vill refsiaðgerðir gegn ólígörkum Úkraínumaðurinn Naz Davidoff segir erfitt og sársaukafullt að fylgjast með átökunum í Úkraínu úr fjarlægð frá Íslandi. Hann hefur verið í nánu sambandi við vini og ættingja sína í landinu í dag og hefur áhyggjur af öryggi þeirra. Innlent 24.2.2022 16:13
Mótmæli við sendiráðið: „Erfitt að lýsa þessu með orðum“ Rússneskur blaðamaður búsettur á Íslandi kveðst skammast sín fyrir hönd þjóðar sinnar í dag, nú þegar rússneski herinn hefur ráðist af fullum mætti inn í Úkraínu. Boðað er til mótmæla við rússneska sendiráð við Túngötu klukkan 17.30. Innlent 24.2.2022 15:35
Matvöruverslanir og hraðbankar tæmdir í Kænugarði Óskar Hallgrímsson ljósmyndari og íbúi í Kænugarði í Úkraínu var nokkuð rólegur þegar fréttastofa náði af honum tali á tólfta tímanum. Hann segir íbúa borgarinnar þó mjög kvíðna fyrir komandi dögum og mikil óvissa ríki meðal landsmanna um framhaldið. Innlent 24.2.2022 13:35
Umheimurinn bregst harkalega við innrás Rússa Leiðtogar ríkja um allan heim hafa fordæmt innrás Rússa í Úkraínu og boða hertar refsiaðgerðir gegn þeim. Pútin Rússlandsforseti hótar öllum þeim sem reyni að stöðva innrásina afleiðingum sem aldrei hafi sést áður í veraldarsögunni. Erlent 24.2.2022 12:45
Lýsir stórmerkilegum persónulegum kynnum af Pútín Harald Malmgren, hagfræðingur og ráðgjafi fjölda Bandaríkjaforseta í alþjóðamálum í gegnum tíðina, skrifar grein á vefmiðilinn Unherd í dag, þar sem hann lýsir persónulegum kynnum sínum af Vladimír Pútín Rússlandsforseta. Erlent 24.2.2022 12:44
„Sorglegt að við séum að horfa upp á stríðsátök í Evrópu á þessum tímum“ Forsætisráðherra fordæmir innrás Rússa í Úkraínu og segir að íslensk stjórnvöld muni þegar í stað leggja aukið fé í mannúðaraðstoð. Þá megi búast við aukinni umferð og liðsflutningum af hálfu Atlantshafsbandalagsins um varnarsvæðið á næstu dögum og vikum. Innlent 24.2.2022 12:31
Rússar fá að keppa í Eurovision þrátt fyrir allt Rússland mun fá að taka þátt í Söngvakeppni Evrópskra sjónvarpsstöðva, Eurovision, þrátt fyrir innrás í Úkraínu. Þetta tilkynntu skipuleggjendur keppninnar í hádeginu. Erlent 24.2.2022 12:17
Sextán íslenskir ríkisborgarar enn í Úkraínu Borgaraþjónusta utanríkisráðuneytisins fylgist grannt með stöðu 28 einstaklinga sem staddir eru í Úkraínu. Sextán þeirra eru íslenskir ríkisborgarar og hinir tólf hafa náin tengsl við Ísland, eru annað hvort makar eða börn íslenskra ríkisborgara. Innlent 24.2.2022 11:58
Rússneski sendiherrann kallaður á teppið Mikhaíl V. Noskov, sendiherra Rússlands á Íslandi var kallaður á teppið í utanríkisráðuneytingu, bæði í gær og í dag, þar sem íslensk stjórnvöld fordæmdu árásir Rússa í Úkraínu. Forsætisráðherra segir það sorglegt að stríðsátök hafi brotist út í Evrópu. Innlent 24.2.2022 11:24
Vaknaði við sprengingar: „Það var sjokk að vakna við þetta í morgun“ Óskar Hallgrímsson ljósmyndari sem er búsettur í Kænugarði í Úkraínu vaknaði við sprengingar í nótt. Rússar hafa hafið innrás af fullum krafti en Óskar segir að stríður straumur sé af íbúum Kænugarðs út úr borginni. Fólk er að flýja vestur. Innlent 24.2.2022 08:08
Markmiðið að brjóta niður hernaðarmátt Úkraínu og „afmá nasismann“ Vladimír Pútín Rússlandsforseti ávarpaði þjóð sína klukkan þrjú að íslenskum tíma þar sem hann sagðist hafa samþykkt hernaðaraðgerð í aðskilnaðarhéruðunum Luhansk og Donetsk í Úkraínu. Erlent 24.2.2022 07:44
„Þetta er stríð“ Sendiherra Úkraínu hjá Sameinuðu þjóðunum segir að átökin sem hafin eru þar í landi séu stríð. Rússar hófu allsherjarinnrás í landið í morgun og sprengjum rignir nú yfir úkraínskar borgir. Erlent 24.2.2022 07:22
Segir að alþjóðasamfélagið muni draga Rússa til ábyrgðar Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur brugðist við því sem hann kallar „tilefnislausa og óréttlætanlega“ árás rússneskra hersveita á Úkraínu. Hann segir heiminn allan biðja fyrir Úkraínumönnum og standi með þeim. Erlent 24.2.2022 07:08
Vaktin: Allsherjarinnrás Rússa í Úkraínu Her Rússlands gerði innrás í Úkraínu eftir skipun frá Vladimír Pútín, forseta Rússlands, í nótt. Innrásin hófst á sprengjuregni í nokkrum borgum Úkraínu og innrás úr norðri, austri og suðri. Erlent 24.2.2022 06:23
„Skref sem gæti markað upphaf stríðs í gjörvallri Evrópu“ Volodymyr Zelensky forseti Úkraínu ávarpaði þjóð sína í kvöld þar sem hann segir að yfirvöld í Rússlandi hafi fyrirskipað innrás og að þetta skref Rússa gæti verið upphafið á stríði í gjörvallri Evrópu. Erlent 23.2.2022 23:27
Úkraína óskar eftir neyðarfundi í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna Úkraína hefur óskað eftir að Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna komi saman á neyðarfundi vegna ástandsins í landinu. Gervihnattamyndir sýna skýrt liðssöfnun Rússa við landamærin. Erlent 23.2.2022 22:55
Aðskilnaðarsinnar biðja Rússa um hernaðaraðstoð Aðskilnaðarsinnar í héruðunum Doetsk og Luhansk í Úkraínu hafa óskað eftir hernaðaraðstoð frá Rússlandi til að bregðast við ágangi Úkraínumanna. Þetta hefur AP fréttastofan eftir talsmanni Kreml. Erlent 23.2.2022 22:31
Forseti Úkraínu segir Úkraínumenn standa eina í vörnum landsins Atkvæðagreiðslu um tillögu Öryggis- og varnamálaráðs Úkraínu um að lýsa yfir neyðarástandi í landinu vegna hernaðaraðgerða Rússa var slegið á frest í dag eftir víðtæka árás á tölvukerfi landsins. Utanríkisráðherra Lettlands hvetur til enn harðari refsiaðgerða en samþykktar hafa verið. Utanríkismálanefnd Alþingis fundaði tvívegis um úkraínudeiluna í dag. Erlent 23.2.2022 20:09
Heimurinn bíður næstu skrefa Pútíns Ráðamenn víða um heim bíða eftir næstu skrefum Vladimírs Pútín, forseta Rússlands. Stærsta spurningin er hvort hann muni hefja stríð við Úkraínu eða kalla her sinn heim frá landamærunum. Erlent 23.2.2022 17:01
Ætla að kynna frekari aðgerðir gegn Rússum í dag Sendiherrar Evrópusambandsins hafa komist að niðurstöðu um frekari refsiaðgerðir gegn Rússlandi vegna hernaðaraðgerða þeirra í Úkraínu. Búist er við því að þær verði samþykktar og kynntar síðar í dag. Erlent 23.2.2022 13:51
Þverpólitísk samstaða um viðbrögð í utanríkismálanefnd Alþingis Þverpólitísk sátt er í utanríkismálanefnd Alþingis um að fordæma aðgerðir Rússa gagnvart Úkraínu og að Íslendingar styðji þær refsiaðgerðir sem bandalagsþjóðir hafa samþykkt gegn Rússum. Vladimír Pútin Rússlandsforseti skellir sökinni af stöðunni algerlega á Vesturlönd og segist reiðubúinn til heiðarlegra viðræðna. Innlent 23.2.2022 12:11
Frekari innrás og auknar refsiaðgerðir í kortunum Yfirvöld í Úkraínu byrjuðu í morgun að kveðja 18 ára til sextuga menn í varaliði hersins til starfa eftir að Vólódómír Selenskí, forseti, fyrirskipaði slíkt í gær. Rússar hafa flutt herlið inn í austurhluta Úkraínu, á yfirráðasvæði aðskilnaðarsinna en Vladimír Pútín, forseti Rússlands, viðurkenndi á mánudaginn sjálfstæði þessara svæða og rúmlega það. Erlent 23.2.2022 10:46
Bandaríkjamenn slá fund með Rússum út af borðinu Hvíta húsið hefur gefið það út að Joe Biden Bandaríkjaforseti hyggist ekki funda með Vladimír Pútín Rússlandsforseta vegna stöðunnar sem skapast hefur í Úkraínu. Bandaríkjamenn útiloka fund með Rússum nú eftir að Pútín fyrirskipaði innrás í Úkraínu. Erlent 23.2.2022 07:43
Biden kynnir viðskiptaþvinganir gegn Rússlandi Joe Biden Bandaríkjaforseti segir innrás Rússlands inn í Úkraínu hafa hafist í gær þegar Vladímír Pútín viðurkenndi sjálfstæði tveggja héraða innan Úkraínu og fyrirskipaði að hermenn yrðu fluttir þangað til þess að sinna „friðargæslu.“ Erlent 22.2.2022 20:43
Vestræn ríki loka á rússneska banka og frysta eignir rússneskra auðmanna Vestræn ríki hafa nú þegar gripið til refsiaðgerða gegn Rússum eftir viðurkenningu þeirra á sjálfstæði tveggja héraða í austurhluta Úkraínu og komu rússneskra hersveita þangað. Putin krefst þess að restin af Úkraínu verði hlutlaust ríki utan hernaðarbandalaga. Erlent 22.2.2022 19:20
Utanríkisráðherra um Úkraínu: „Það er ekki nóg að sýna samstöðu í orði eða tístum“ Utanríkisráðherra segir hljóðið í varnarmálaráðherrum Norðurlandanna, Eystrasaltsríkjanna og Bretlands vera afar þungt. Hún hefur fundað með ráðherrunum síðustu daga vegna stöðunnar í Úkraínu en í gær viðurkenndu Rússar sjálfstæði tveggja héraða innan Úkraínu og sendu herlið inn í landið. Innlent 22.2.2022 19:02
Talið víst að úrslitaleikurinn verði færður frá Rússlandi Nær öruggt er að úrslitaleikurinn í Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla verði færður frá Rússlandi eftir innrás Rússa í Úkraínu. Fótbolti 22.2.2022 17:30
„Þetta er okkar heimili og land og við erum tilbúin“ Evrópusambandið hefur ákveðið að beita Rússa refsiaðgerðum vegna hernaðaraðgerða landsins í austurhluta Úkraínu. Sjálfstæðissinnar í austurhlutanum eru byrjaðir að kveða almenna borgara í herinn til að berjast við samlanda sína að sögn konu frá landinu sem býr hér. Erlent 22.2.2022 14:01
Olíuverð hækkar hratt og hefur ekki verið hærra frá 2014 Olíuverð hafði í morgun ekki verið hærra frá 2014 samhliða mjög svo aukinni spennu í Austur-Evrópu. Spennan við Úkraínu náði nýjum hæðum í gærkvöldi þegar Vladimír Pútín, forseti Rússlands, viðurkenndi sjálfstæði tveggja héraða í Úkraínu þar sem aðskilnaðarsinnar, studdir af Rússlandi, ráða ríkjum. Viðskipti erlent 22.2.2022 09:40
Hráolíuverð ekki verið hærra í sjö ár Olíuverð hefur farið hækkandi síðustu daga og vikur. Tunna af Brent-hráolíu kostar nú 97,44 Bandaríkjadali og hefur ekki verið dýrari í sjö ár. Viðskipti erlent 22.2.2022 08:04